Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 18
34 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Sport Undankeppni EM U-21: Ísland-Skotland 0-2 0-1 Kevin Kyle (17.), 0-2 Simön Lynch (88.). Lið Islands: Ómar Jóhannsson, Ólafur Ingi Skúlason, Ármann Smári Bjömsson, Indriði Sigurðsson (fyrirliði), Haraldur Guðmundsson, Helgi Valur Danielsson (79. Hjálmur Dór Hjálmsson), Grétar Rafn Steinsson, Viktor Bjarki Amarsson (67. Gunnar Heiðar Þorvaldsson), Ellert Jón Bjömsson (81. Magnús Sverrir Þorsteinsson), Sigmundur Kristjánsson, Hannes Sigurðsson. Lið Skotlands: Derek Soutar, Gary Caldwell, John Kennedy, Christopher Doig, Ian Murray (fyrirliði), Gareth Williams, Brian Kerr, Stuart Duff, Stephen Hughes (70. Darren Fletcher), Kevin Kyle, Tom McManus (84. Simon Lynch). Gul spjöld: Indriði Sigurðsson (21.), Tom McManus (27.). Rautt spjald: Ólafur Ingi Skúlason (90.). Indriði Sigurðsson: Vorum smeykir „Mér fannst við vera alveg ótrúlega lélegir í fyrri hálfleik. Við vorum ekki að vinna neina seinni bolta, fórum ekki í návígi af krafti og gáfum okkur ekki 100% í leikinn. Ég held að við höfum verið smeykir í byrjun en í seinni hálfleik sáum við að þetta var hægt og þá fór þetta strax að skána hjá okkur. Mér fannst Skotarnir ekki vera að skapa sér nein færi að ráði í leiknum heldur töpum við leiknum á eigin mistökum. Við gerum einstaklingsmistök sem kosta bæði mörkin og það varð okkur dýrt. Skotarnir voru ná- kvæmlega eins og við bjuggumst við þeim, líkamlega sterkir og fljótir. Við vissum að þetta yrði barátta og það lið sem myndi hafa yfirhöndina þar myndi vinna leikinn. Því miður gerðum við það ekki í dag,“ sagði Indriði Sigurðsson, fyrirliði íslenska liðsins, í samtali við DV-Sport eftir leikinn gegn Skotum. Vantaði grimmd „Það vantaöi grimmd í leikinn hjá okkur. Við fengum óteljandi homspyrnur í seinni hálfleik en náðum ekki að nýta neina. Það leit út fyrir að við ætluðum ekki að skora í leiknum. Mér fannst okkur vanta sjálfstraust í fyrri hálfleik. Við vom ragir og hrædd- ir og það er aldrei gott. Mér fannst að viö hefðum átt að sækja meira í seinni hálfleik. Við vor- um bara með einn frammi og hefðum mátt vera duglegri að koma upp með honum og styðja við hann. Leikurinn í heild var mikil vonbrigði en við ætlum okkur að mæta gegn Litháum á þiðjudaginn og sýna okkar rétta andlit,“ sagði Helgi Valur Daní- elsson eftir leikinn. -ósk Góð byrjun „Ég er mjög ánægður með sig- urinn, sérstaklega i ljósi þess að þetta er fyrsti leikur okkar í keppninni og það er mikilvægt að byrja vel. Góð byrjun gefur leikmönnum sjálfstraust í næstu leikjum. Þetta var mjög erfiður leikur því að það má segja að við höfum verið heppnir að fá ekki á okkur mark í seinni hálfleik. Ég er stoltur af mínum mönnum fyrir að halda einbeitingu og standast sóknir íslenska liðsins á móti vindinum. íslenska liðið er gott. Þaö spil- aði mjög vel í síðari hálfleik og setti mikla pressu á okkur. Það eru margir góðir leikmenn í lið- inu en ég var sérstaklega hrifinn af leikmönnum nr. 10 (Sigmundi Kristjánssyni) og nr. 6 (Indriða Sigurðssyni," sagði Rainer Bon- hoff, þjálfari skoska U-21 árs landsliðsins, viö DV-Sport eftir leikinn. -ósk Skoski markvöröurinn Derek Soutar grípur hér eina af fimmtán hornspyrnum fslenska liösins f seinni hálfleik. Grétar Rafn Steinsson stekkur upp um meö honum og Hannes Sigurösson fylgist meö. DV-mynd ÞÖK íslenska landsliöiö skipað leikmönnum U-21 árs og yngri tapaöi fyrir Skotum: Dagur og nótt - íslenska liðið spilaði tvo gjörólíka hálfleiki í Kaplakrika á föstudaginn Islenska landsliðið skipað leikmönn- um 21 árs og yngri hóf keppni í und- ankeppni EM á versta mögulega máta þegar liöið beið lægri hlut fyrir Skot- um, 2-0, í Kaplakrika á fóstudaginn. íslenska liðið átti mjög sérkennileg- an dag því að það var eins og dagur og nótt. I fyrri hálfleik var liðið á hælun- um og virtist eiga litla möguleika í skoska liðið en í þeim seinni brettu leikmenn liðsins upp ermamar, pressuðu Skotana stíft og heföu undir venjulegum kringumstæðum átt að vera búnir að jafna þegar Skotar gull- tryggðu sér sigurinn á lokamínútun- um. íslenska liðið stillti upp með leikað- ferðina 4-3-3 að leiðarljósi. Hún náði þó aldrei að verða neitt annað en 4-5-1 í fyrri hálfleik því að leikmenn íslenska liðsins virkuðu hálfsmeykir og þorðu aldrei almennilega fram á völlinn. Fyrsta færi leiksins leit dagsins ljós á 3. mínútu þegar Skotinn Thomas McManus komst einn inn fyrir vöm is- lenska liðsins en missti boltann of langt frá sér og færið rann út í sand- inn. íslenska liðið var nálægt því að komast yfir á 6. mínútu þegar Grétar Rafn Steinsson átti fyrirgjöf fyrir mark Skota en Hannes Sigurðsson skaut beint í Derek Soutar, markvörð skoska liðsins. Eftir þetta gerðist fátt markvert hjá íslenska liðinu þar til undir lok hálfleiksins. I millitíðinni tóku Skotar leikinn í sinar hendur. Þeir fengu nóg pláss til að athafna sig á miðjunni og létu bolt- ann ganga ágætlega manna á milli án þess þó að skapa sér góð færi. Þeim tókst hins vegar að skora á 17. mínútu en það var meira fyrir klaufaskap ís- lensku leikmannanna heldur en ágæti skoska liðsins. Skotar fengu horn- spymu. Ómar Jóhannsson, markvörð- ur íslenska liðsins, misreiknaði sig hrapallega í úthlaupinu og stóð eins og bryggjustólpi úti í miðjum teig þegar sóknarmaðurinn Kevin Kyle, sem leik- ur með Sunderland, þrumaði boltanum i mark íslenska liðsins úr miðjum teig. Kyle þessi var í A-landsliðshópnum gegn Færeyingum en var færður niður í U-21 árs landsliðið fyrir þennan leik. íslenska liðinu gekk illa að halda boltanum innan liðsins í fyrri hálfleik og spil liðsins var ómarkvisst. Skotar voru nærri búnir að bæta við marki á 41. mínútu en Ómar bjargaði skoti frá McManus glæsilega með úthlaupi. Þetta virtist vekja íslenska liðið og áttu það tvær bestu sóknir sínar í hálf- leiknum í kjölfarið. Fyrri sóknin rann reyndar út i sandinn eftir að Viktor B. Amarsson hafði skotið í vamarmann skoska liðsins en seinni sóknin endaði með besta færi íslenska liðsins í leikn- um. Grétar Rafn komst upp að enda- mörkum og gaf fyrir mark Skotanna þar sem Hannes Sigurðsson var aleinn fyrir framan mark Skota. Honum mistókst hins vegar að ná til knattar- ins en sóknin var góð engu að síður. íslenska liðið kom gjörbreytt til leiks í síðari hálfleik, dyggilega stutt af öflugum vindi í bakiö. Horfið var hik- ið sem einkenndi það í fyrri hálfleik og íslensku leikmennimir héldu uppi stífri pressu að marki Skotanna nánast allan hálfleikinn. Aukinn kraftur kom í liðið á 66. mínútu þegar Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom inn á fyrir Viktor Bjarka og Ólafur þjálfari spilaði með tvo framherja það sem eftir lifði leiks. Liðið fékk fimmtán homspymur en þrátt fyrir að margar þeirra, frá Ell- erti Jóni Bjömssyni og Sigmundi Kristjánssyni, væru stórhættulegar tókst íslenska iiðinu ekki að gera sér mat úr þeim. Mesta hættan eftir hom- spymu skapaðist á 84. mínútu þegar markvörður skoska liðsins sló spymu Sigmundar í slána. Síðustu mínútum- ar lagði íslenska liðið allt kapp á að jafna leikinn, tók áhættu en uppskar því miður aðeins annað mark á sig undir lok ieiksins þegar varamaðurinn Simon Lynch komst einn inn fyrir vömina og vippaði snyrtilega yfir Ómar markvörð. Tveggja marka tap var þvi staðreynd og leikmenn ís- lenska liðsins hljóta að naga sig í hand- arbökin fyrir að hafa ekki byrjað að spila almennilega fyrr en í síðari hálf- leik. Það setti ljótan svip á leikinn und- ir lokin þegar Ólafur Ingi Skúlason fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka viljandi í Skotann Brian Kerr og má hann teljast heppinn ef hann sleppur með eins leiks bann. Ekki er hægt að segja að neinn leik- manna íslenska liðsins hafi verið að spila vel í þessum leik. Leikurinn hlýt- ur að hafa verið þeirn mikil vonbrigði en þeir hafa tækifæri á þriðjudaginn í leiknum gegn Litháum tÚ að sýna hvað í þeim býr. Það em margir góðir knatt- spymumenn í liðinu en menn þurfa hins vegar að leggja sig fram í 90 mín- útur en ekki 45 til að ná árangri í knattspymu. -ósk Verða að forna sér - sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari íslands „Strákarnir vom ekki tilbúnir að taka nógu vel á þeim á fyrri hálf- leik. Við gerum ein alvarleg mistök sem kosta okkur mark og eigum síðan tvö bestu færin í hálfleiknum sem við náum því miður ekki að nýta. Við verðum náttúrlega að nýta svona færi í svona leikjum til að eiga möguleika á að vinna. í seinni hálfleik eigum við nátt- úrulega að skora. Það er alveg sorg- legt að fá þennan fjölda af góðum hornspyrnum og ná ekki að vinna einn bolta í teignum. Menn fórna sér ekki í teignum og þá er erfitt að skora. Það vantaði alla grimmd í strákana upp við markið. Skotamir vora nákvæmlega eins og við bjuggumst við þeim. Þeir náðu reyndar að halda boltanum ágætlega í fyrri hálfleik en það var vegna þess að við gáfum þeim of mikinn tíma. Við vorum ekki að pressa þá nægilega vel og liöið slitnaði allt of mikið í sundur. Skoska liðiö er mun sterkara en það ungverska sem við unnum á dögunum en við eigum að geta unn- ið þetta lið á góðum degi. Við getum spilað betur en í dag ef litið er á heildina. Seinni hálfleik- urinn var ágætur en sá fyrri var slakur. Það er ekki nógu gott því að fótboltaleikur er níutíu mínútur. Við gáfum aulamörk og enduðum á því að elta skottið á sjálfum okkur í djöfulgangi allan seinni hálfleik- inn,“ sagði Ólafur Þórðarson. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.