Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 17
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 33 x>v Sport Skosku stuöningsmennirnir settu skemmtilegan svip á landsleik íslendinga og Skota á laugardaginn. Sá Ijóöur var þó á ráöi þeirra aö þeir komu sér fyrir í stæöunum viö suöurenda gömlu stúkunnar sem er stranglega bannað samkvæmt reglum Knattspyrnusambands Evrópu. Þaö kom þó ekki í veg fyrir aö þeir sungu allan leikinn og fögnuöu ógurlega hverju einasta skrefi sem skoska liöiö steig í leiknum. Ber er hver aö baki nema sér bróöur eigi og þaö á svo sannarlega viö um skoska liöiö og stuöningsmenn þess. DV-mynd ÞÖK Jón og séra Jón - Skotar völsuðu um völlinn að vild á meðan ljósmyndarar íslensku blaðanna komust hvorki lönd né strönd fyrir öryggisvörðum Það vakti mikla athygli að skoskir áhorfendur hlömmuðu sér niður í stæðin við suðurenda gömlu stúkunnar þrátt fyrir að reglur Knattspymusambands Evr- ópu kveða á um að allir áhorfend- ur skuli sitja í þar tO gerðum sæt- um. íslenskir lögreglumenn reyndu að fá Skotana til að fara til sæta sinna en höfðu ekki erindi sem erfiði og voru í raun hálfhjá- kátlegir í glimu sinni við Skotana. Að lokum fór svo að þeir stóðu sem fastast í stæðunum allan leik- inn og skemmtu sér konunglega. Það að Skotamir skuli hafa fengið að sitja sem fastast kemur mjög á óvart í ljósi þess hvernig öryggisgæslu á Laugardalsvellin- um hefur verið háttað að undan- fornu. Jóhannes Kristinsson, vall- arstjóri Laugardalsvallar, hefur gengið fremstur í flokki um að framfylgja reglum Knattspyrnu- sambands Evrópu um staðsetning- ar blaðamanna og ljósmyndara DV og Morgunblaðsins og oft á tíðum hefur þessum aðilum nánast reynst ómögulegt að vinna sína vinnu fyrir reglugerðarbók Jó- hanns. Hann hefur ítrekað sýnt yf- irgang og hroka í samskiptum sín- um við fjölmiðlamenn og er varla sá maður tU á þessum tveimur blöðum sem ekki hefur lent upp á kant við hann síðan hann tók við vallarstjóminni. Það hljómar því furðulega að hann hafi ekki reynt að framfylgja ströngum reglum Knattspyrnu- sambands Evrópu um staðsetning- ar áhorfenda þegar á reyndi eftir að hafa fylgt þeim upp á millí- metra í samskiptum sínum við ís- lenska fjölmiðla. Þessi vinnubrögð munu að öUum líkindum koma tU með kosta Knattspyrnusamband íslands þó nokkum skUdinginn í formi sekta og því hefði maður haldið að aUt yrði gert tU að koma Skotunum tU sæta sinna svo regl- unum væri framfylgt. Hægt er að setja spumingarmerki við undir- búningsvinnuna því að engin tU- raun var gerð tU að loka stæðun- um og menn gátu valsað þar um eins og þá lysti. VaUarstjóri og lögregla treystu sér ekki tU að ráðast tU aUögu við Skotana heldur héldu sig tU hlés og leyfðu þeim að standa sem fast- ast. Það vekur upp spumingar um Jón og séra Jón. -ósk ____________________________y Geir Þorsteinsson: Fáum líklega háa sekt Mjög líklegt er að sú ákvörðun skosku stuðningsmannanna að neita að fara tU sætis í stúku en sitja sem fastast í stæðunum við suðurenda gömlu stúkunnar muni draga dilk á eftir sér fyrir Knattspymusamband íslands. Geir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, staðfesti þetta í samtali við við DV-Sport í gær og sagði reglur Knatt- spymusambands Evrópu mjög strangar þegar kæmi að því að áhorfendur héldu sig á fyrirfram ákveðnum stöðum. „Ég á von á því að við verðum sektaðir. Það fer náttúrlega aUt eftir því hvað eftirlitsmaðurinn á leiknum skrifar í skýrslu sína en Knattspyrnusamband Evrópu er þekkt fyrir að taka hart á þessum málum og sektimir eru oft mjög háar. Hversu há okkar sekt verður veit ég ekki en ég vona auðvitað að hún verði í lægri kantinum,“ sagði Geir Þor- steinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, við DV-Sport í gær. -ósk Rúnar Kristinsson, fyrirliði íslenska liðsins: Baráttan dugar ekki alltaf - verðum að skapa færi og skora úr þeim ef sigur á að vinnast Gera Islendingar of miklar kröfur? „Ég er ekki frá því að Islendingar geri of miklar kröfúr. Ég held að það sé búið að spiUa íslenskum knattspymuáhuga- mönnum með sjónvarpsútsendingum af meistaradeUdinni og menn verða að átta sig á því að við erum ekki í sama gæða- flokki og Zinedine Zidane. Við erum ekki einu næstbestu knattspyrnumennirnir i heimi en við reynum að gera okkar besta í hvörjum landsleik og erum aUir mjög stoltir af að spUa fyrir íslands hönd,“ sagði Rúnar Kristinsson, fyrirliði íslenska lands- liðsins, eftir leikinn og bætti við að leik- menn íslenska liðsins myndu mæta dýrvit- lausir tU leiks á miðvikudaginn gegn Lit- háum á LaugardalsveUi. -ósk Það vakti mikla athygli í leikn- um á laugardaginn þegar Rúnar Kristinson, fyrirliði íslenska liðs- ins, kastaði af sér fyrirliöabandinu og ætlaði að skipta við Bjarna Guðjónsson sem stóð tUbúinn á hliðarlínunni. Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari íslands, hafði hins vegar annað í huga og skipti Hauki Inga Guðnasyni út af fyrir Bjarna. Rúnar Kristinsson hafði þetta að segja um atvikið eftir leikinn. Slæmur í náranum „Ég hef verið slæmur i náranum að undanförnu og var farinn að stífna mikið þegar líða tók á leik- inn. Ég sendi skUaboð þess eðlis á bekkinn en þau virðast eitthvað hafa misfarist. Ég ætlaði síðan að harka af mér í nokkrar mínút- ur þar tU hægt væri að skipta á ný en þá kom í ljós að við vorum búnir með skipting- amar. Ég þurfti því að spUa leikinn á enda,“ sagði Rúnar. Hvernig lögö- uö þió upp leik- inn? „Við ætluð- um að leyfa þeim að spUa boltanum út á annan hvom bak- vörðinn og setja síðan pressu á þá þegar þeir fæm að nálgast miðjan eigin vaUarhelming. Við ætluðum ekki að leggjast í vöm heldur setja pressu á þá þegar tækifæri gæfist og reyna að setja mark á þá. Þeir skora mark eftir sex mínútur og þá breytist leikurinn. AUt sem við lögðum upp fyrir leikinn var farið tU fjandans og það er óhætt aö segja að þetta mark hafi verið kjaftshögg. Þetta var klaufalegt mark og sló okkur út af laginu en að sama skapi fyUti það Skotana sjálfstrausti sem þeir þurftu svo sannarlega á að halda eftir dapurt gengi að undanfórnu. Við lögðum upp með það að byrja með Eið út á vinstri kanti og mig fyrir framan tvo miðjumenn. Ég lenti mikið vinstra megin og það var kannski erfitt að koma boltanum tU mín. Við komum mikið upp hægra meg- in og þá er oft erfitt að koma bolt- anum yfir tU vinstri. Vallarað- stæður buðu ekki upp á að það væri mikið spUað gegnum miðj- una því vöUurinn var blautur og háU og erfitt að taka við boltanum og snúa. Mér fannst reyndar aUir miðjumenn okkar týnast á ein- hverjum kafla í leiknum og það gekk illa að finna menn. Við ætl- uðum að beita sömu aðferð og Færeyingar notuöu gegn Skotum, það er koma boltanum inn fyrir vömina hjá þeim og láta Hauk Inga og Helga hlaupa á eftir bolt- anum. Það gekk hins vegar ekki því að þeir bökkuðu eftir að þeir skoruðu fyrra markið og notuðu hvert tækifæri eftir það tU að tefja og hægja á leiknum." Voru menn aö leggja sig fram í leiknum? „Já, það voru aUir að gera sitt ýtrasta til að berjast og slást og stemningin inni í klefa fyrir leik var mjög góð. Það voru aUir stað- ráðnir í að gefa sig aUan í leikinn og ég held að menn hafi gert það en þaö dugar kannski ekki aUtaf. Það þarf að skapa færi, skora úr færunum og halda markinu hreinu tU að vinna leiki.“ Hvernig fannst þér Skotarnir? „Skotamir voru að spUa vel. Þeir eru með mjög ákveðið leik- mynstur sem þeir fylgja og leik- menn vita aUtaf upp á hár hvað gerist næst. Þetta er þeirra styrkur enda spUa þeir aUir á Bret- landseyjum og eru aldir upp við sama boltann. Við eram hins veg- ar dreifðir irni aUar jarðir þar sem ólík knattspyma er spUuð og það er kannski ástæðan fyrir því að það gengur Ula að ná upp heUdstæðum sóknarleik.“ -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.