Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 23
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
39
Sport
i>v
Lokaumferð heimsbikarmótsins í götubílaflokki í torfærunni:
„Jeppinn var
góður við mig“
- sagði Ragnar Róbertsson heimsbikarhafi í samtali við DV-Sport
„Það hafðist hjá mér að sigra í dag
og það er ég mjög ánægður með,“ sagði
Ragnar Róbertsson eftir að hann haföi
tryggt sér heimsbikartitilinn í torfæru-
akstri í götubílaflokki. „Pizza 67
Wiilysinn var í lagi í dag. Ég skipti um
kveikju og blöndung fyrir þessa keppni
þannig að hann gekk eins og bíll. Það
var mikið um beygjur í keppninni í
dag og stundum var það gott fyrir mig.
Willysinn grísaðist einhvem veginn i
beygjumar. Hann er oft svo góður við
mig bíllinn og hann stóð sig ágætlega í
dag,“ sagði Ragnar fullur hógværðar.
„Ég er ánægður með að vinna þennan
titil þriðja árið í röð því að þá ég fæ að
eiga dolluna. I dag átti ég betri dag en
Gunnar, við erum orðnir mjög jafnir
og það var alltaf spuming hvemig
þetta færi. Mér fannst siðasta brautin
mjög erfið en hún skipti engu máli fyr-
ir mig vegna þess að ég var búinn að
vinna keppnina fyrir hana, þannig að
mér var alveg sama hvemig mér gengi
þar,“ sagði Ragnar að endingu.
Nokkuð sáttur viö sumarið
Gunnar Gunnarsson háði haröa
baráttu við Ragnar um heimsbikartitil-
inn en varð að lúta í lægra haldi að
þessu sinni eftir að hafa náð íslands-
meistaratitlinum fyrir þremur vikum.
„Ég lenti í klúðri í fyrstu brautinni,
misreiknaði mig aðeins," sagði Gunn-
ar. „Þórður Bragason varð á undan
mér í brautina. Hann hafði bakkað nið-
ur, þvert yfir brautina. Maður horfir
oft á nýjustu hjólfórin. Ég kom yfir
barðið í loftköstum, var rosalega
„Pizza 67 Willysinn var góöur viö mig í dag,“ sagöi Ragnar Róbertsson en
honum gekk vel í lokaumferö heimsbikarmótsins.
Ragnar Róbertsson var aö vonum ánægöur meö aö hafa unniö heimsbikar-
inn til eignar eftir aö hafa unniö hann þrjú ár i röö. DV-myndir JAK
Torfæru-
punktar
Sigurður Þór Jónsson hefur verið að
þróa stýrið i Toshiba-tröllinu seinni
part sumars og að þessu sinni mætti
hann með nýjan, öflugri stýristjakk
sem Þorsteinn Gunnarsson, vélstjóri
og aöstoðarmaöur hans, haföi smíðað
og var tilgangurinn að létta Sigurði
erfiðið við að stýra jeppanum.
Sigurður Þór Jónsson var einnig bú-
inn að breyta fjöðrunarkerfinu að
framan í Toshiba-tröllinu.
Gunnar Ásgeirsson á Goodyear Em-
inum hætti keppni eftir 2. braut eftir
að hann þurfti að kljást við bilanir í
framöxli í tveimur fyrstu brautunum.
Gísli Gunnar Jónsson á Arctic
Trucks-Toyotunni og aðstoðarmenn
hans þurftu að fara í bremsuviögerö-
ir eftir 5. braut þegar steinn, sem
spýttist undan dekki bílsins hjó
bremsuslöngu i sundur.
Leó Viðar Bjömsson á Steðjanum
braut millikassann 1 5. brautinni og
varð að hætta keppni eftir það.
Haraldur Pétursson sprengdi vökva-
slöngu í stýri Mussoins í 5. braut og
varö uppi fótur og fit í liði hans til að
gera við bilunina.
í 6. braut var álagið á stýrið í Tos-
hiba-tröllinu svo mikið að Siguröur
Þór Jónsson braut stýristjakkinn
nýja sem hann hafði sett i jeppann
fyrir þessa keppni.
Daníel G. Ingimundarson átti í erfið-
leikum með að hemja Grænu
þmmuna eftir að vökvastýrið bilaði i
tímabrautinni.
Gunnar Gunnarsson vellti Trúðnum í
8. brautinni þegar hann gerði villi-
mannslegar tilraunir til að komast
upp snarbratta brekkuna.
Úrslit keppninnar á Hellu
1. Ragnar Róbertsson ........1735
2. Gunnar Gunnarsson ........1095
3. Bjarki Reynisson..........1080
4. Þórður Bragason.............10
Lokastaða íslandsmeistara-
mótsins.
1. Ragnar Róbertsson..........140
2. Gunnar Gunnarsson..........132
3. Bjarki Reynisson...........104
4. Karl Víðir Jónsson .........18
5. Pétur V. Pétursson..........10
6. Þórður Bragason.............10
<4,
vr
vr
ánægður að hitta í hliðið. Ég beygði og ir
fór í hjólfór Þórðar. Við það keyrði ég
út úr brautinni. Það voru mistökin.
Maður á að vita betur. Þetta voru
augnabliksmistök sem ég gerði þegar ég
lenti eftir stökkið. Þar náði Ragnar
strax forystu og þraut númer tvö var
einnig mjög slæm hjá mér. Ég kom út á
núlli þegar búið var að draga refsistigin
af mér. Ég var því með 50 stig eftir tvær
brautir þannig að þetta var eiginlega
búið þá. Svona er þetta. Trúðurinn var
í ágætislagi í dag. Þó var nitroið eitt-
hvað að hrekkja mig en ég veit ekki al-
veg hvað það var. Ég vil að lokum óska
Ragnari til hamingju með titilinn og
góðs gengis í Rockcrawler- keppninni í
Ameríku," sagði Gunnar Gunnarsson,
tiltölulega sáttur eftir að hafa þó náð ís-
landsmeistaratitlinum. -JAK
Gunnar Gunnarsson reyndi hvaö hann gat til aö ná heimsbikartitlinum en þaö
tókst ekki og veröur hann aö láta sér nægja íslandsmeistaratitilinn þetta áriö.
Siguröur Þór Jónsson náöi fjóröa sætinu f heimsbikarmótinu og miöaö viö ökulag hans í sumar er Ijóst aö hann
ætlaöi sér þar betra sæti. Siguröur Þór hugsar sér vafalaust gott til glóöarinnar næsta sumar.