Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 10
26 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Sport Radcliffe setti heimsmet Enska hlaupadrottningin Paula Radcliffe setti nýtt og glæsilegt heimsmet í maraþon- hlaupi kvenna i gær en þá fór fram hið árlega Chicago-mara- þon. Radcliffe kom í mark eftir 2 klst., 17 mínútur og 18 sekúndur og stórbætti gamla metið sem Cathrine Ndereba frá Keniu setti á sama stað í fyrra, eða um heil- ar 89 sekúndur. Ndereba kom önnur í mark, rúmum tveimur mínútum á eftir Radcliffe. „Ég fékk ótrúlega mikinn stuðning frá áhorfendum sem komu hingað frá Bretlandi og það er þeim að þakka að ég hljóp stöðugt áfram,“ sagði Radcliffe eftir hlaupið en hún hefur aðal- lega getið sér gott orð i fimm og tíu þúsund metra hlaupi kvenna. Menn höfðu gert sér vonir um heimsmet í karlaflokki en sú varö ekki raunin. Khalid Khann- ouchi frá Bandaríkjunum kom fyrstur í mark á tímanum 2 klst., 17 mín. og 18 sek. og var 18 sek- úndum frá sínu eigin heimsmeti sem hann setti í London í apríl síðastliðnum. -vig Hrósarensku úrvalsdeildinni Franski landsliðsmaðurinn Thierry Henry segir að enska úrvalsdeildin sé ástæðan fyrir frábærri frammistöðu franska landsliðsins um helgina þegar það valtaði yfir Slóvena, 5-0. Átta af ellefu byrjunarmönnum liðsins spila með liðum i ensku deildinni. „Þetta lýsir bara styrkleika enskrar knattspyrnu. Svona leikir eru á dagskrá í hverri einustu viku í Englandi," segir Henry og bætti við að hann hefði lært gríðarlega mikið um andlega þætti knattspymunnar síðan hann gekk til liðs við Arsenal. -vig Stoke vill háar skaðabætur íslendingaliðið Stoke City vill fá umtalsverðar skaðabætur frá Sunderland fyrir að hafa lokkað Steve Cotterill frá félaginu til að taka við starfi aðstoðarmanns Howards Wilkinsons, nýráðins framkvæmdastjóra Sunderland. Stoke er sagt vilja fá um 130 milljónir króna í skaðabætur fyrir missinn en Sunderland segir að í samningi Cotterills við Stoke sé ákvæði um að aðeins þurfi að greiða tæpar 20 milljónir króna. Forráðamenn Stoke segjast vona að málið leysist í sátt og samlyndi og reynt verður af fremsta megni að forðast málaferli. -vig l**: iNGLAND 1. deild: Bradford-Derby ...............0-0 Bumley-Walsall................2-1 Ipswich-Sheff. Wed............2-1 Watford-Grimsby...............2-0 Millwall-Wimbledon........... 1-1 Rotherham-GiUingham.......... 1-1 2. deild: CardifT-Wycombe.............. 1-0 Bamsley-Bristol C............ 1-4 Chesterfield-Tranmere........ 1-0 Huddersfield-Notts County .... 3-0 Luton-Cheltenham..............2-1 Northampton-Brentford ....... 1-2 Peterborough-Mansfield .......0-0 Plymouth-Wigan .............. 1-3 Port Vale-Oldham ............ 1-1 Stockport-Crewe.............. 1-4 Swindon-Colchester............2-0 Naumt hjá Njarðvík - vann nýliða Hauka, 58-63, á Ásvöllum -15 þriggja stiga körfur í leiknum DV Bland i poka Gunnar Berg Viktorsson skoraði tvö mörk fyrir lið sitt, Paris HB, sem tap- aði fyrir Montpellier, 36-28, á heima- velli í frönsku 1. deildinni í handknatt- leik um helgina. Nýliðar Hauka voru nálægt því að vinna annan sigur sinn i röð í 1. deild kvenna í gær þegar Njarðvík sótti sigur á Ásvöllum. Njarðvík skoraði tiu af tólf síðustu stigum leiksins og vann fyrsta leik sinn á íslandsmótinu, 58-63, en liðið varð meistari meistaranna á dögunum. Það var einkum góð þriggja stiga hittni stelpnanna sem vakti mesta athygli í þessum leik og nýttu stelp- urnar langskotin mun betur en þau sem þær tóku nær körfunni. Alls voru gerði fimmtán þriggja stiga körfur, allar í fyrstu þremur leik- hlutanum, er liðin nýttu 15 af 26 skotum fyrir utan þriggja stiga lín- una. Haukar byrjuðu betur en Auður Jónsdóttir og Bára Lúðvíksdóttir fóru í gang í öðrum leikhluta og skoruðu saman 17 af 24 stigum Njarðvíkurliðsins í leikhlutanum sem náði 29-38 forskoti í hálfleik. Haukaliðið kom ákveðið til leiks í seinni hálfleikinn og náði 19-7 kafla í upphafi hans og þar með forustu í leiknum. Síðasti leikhlutinn var æsispennandi en Njarðvíkurliðið var sterkara á taugunum á lokasek- úndunum. Helena sterk Hin 14 ára Helena Sverrisdóttir var mjög góð í liði Hauka og eins stóðu þær Birna Eiríksdóttir og Stefanía Jónsdóttir sig vel. Litháinn Egedija Raubvaité hitti hins vegar afar illa, eða aðeins 4 af 14 skotum, auk þess sem hún var í villu- vandræðum allan leikinn. Hjá Njarðvík voru Auður og Bára sterkar fyrir hlé en eftir hlé voru það þær Helga Jónasdóttir og Fjóla Eiríksdóttir sem stuðluðu mest að því að landa sigrinum. Helga lék fyrsta leik sinn á tíma- bilinu eftir erfið veikindi. Sacha Montgomery var stigahæst í Njarðvíkurliðinu en fyrir utan góða hittni fyrir utan þriggja stiga línuna gerði hún alltof mörg mistök. Það kom þó ekki að sök og liðið vann mikilvægan sigur. Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 15 (8 fráköst, 8 stolnir), Bima Eiríksdóttir 14, Stefanía Jónsdóttir 8 (9 stoðsendingar, 6 fráköst, 4 stolnir), Egedija Raubaité 8 (11 fráköst, 7 í sókn), Hafdís Hafberg 7, Ösp Jóhannsdóttir 6. Stig Njarðvíkur: Sacha Montgomery 20 (hitti 4 af 7 þriggja stiga skotum), Auð- ur Jónsdóttir 13 (5 fráköst, 4 stoðs.), Fjóla Eiríksdóttir 11, Bára Lúðvíksdóttir 8, Helga Jónasdóttir 5 (6 fráköst á 15 mín.), Eva Stefánsdóttir 3, Guðrún Ósk Karis- dóttir 3. -ÓÓJ ■ Sacha Montgomery skoraöi 20 stig fyrir Njarðvík gegn Haukum í gær. DV-mynd Hari Heiðmar Felixson skoraði tvö mörk fyrir Bidasoa sem gerði jafntefli, 24-24, gegn Teucro á útivelli i spænsku 1. deildinni 1 handknattleik á laugardaginn. Rúnar Sigtryggsson var ekki meðal markaskorara hjá Real Ciudad sem vann Valladolid, 28-25, á heimavelli. Sunderland er í miklum mark- mannsvandræðum þessa dagana en Thomas Myrhe meiddist um helgina í landsleik Norömanna og Rúmena og verður frá í óákveðinn tíma. Aðal- markvörður liðsins, Thomas Sören- sen, er frá til áramóta vegna meiðsla og því er búist við að þriðji mark- vörður liðsins, Júrgen Macho, muni byrja inná í næsta leik. Enski vamarmaðurinn Matthew Up- son, sem er á mála hjá Arsenal, en er nú i láni hjá 1. deildar liðinu Read- ing, óttast að hann muni aldrei tryggja sér sæti í liöi Arsenal og þá sérstaklega eftir að Frakkinn Pascal Cygan var keyptur. „Mér leiðist að horfa á leiki með Arsenal því að í hvert sinn sem ég sé þá ímynda ég mér að það sé ég þama inni á vellinum. Mér finnst ég hafa verið rændur tækifærinu til að fá að vera með,“ segir Upson. Nú eru uppi sögusagnir um að brasilíska stórstjaman Ronaldo sé á leið frá Real Madrid til Arsenal. Gil- berto Silva, Brasilíumaðurinn hjá Arsenal, segist hafa sagt Ronaldo að Arsenal sé besta lið í heimi og hann væri vel settur ef hann gengi til liðs við það. Ekki veröur þó talið ltklegt að af þessum kaupum verði þar sem Ronaldo segir að sér liði vel i Ma- drid. Franski tennisleikarinn Paul-Henri Mathieu bar sigur úr býtum á Lyon- Grand-prix mótinu sem lauk um helg- ina. Mathieu vann Brasilíumanninn Gustavo Kuerten í þremur settum, 4-6, 6-3, 6-1 . Sigur Mathieu kom nokkuð á óvart enda hefur Kuerten verið einn af bestu tennisleikurum heims undan- farin ár. Hann er hins vegar nýbúinn að ná sér eftir erfið meiðsl sem hafa gert það að verkum að hann hefur hríðfallið niður styrkleikalista Ai- þjóða tennissambandsins. -vig $ 1. DEILD KVENNA KR Keflavík Grindavík Haukar Njarðvík ÍS 2 1 1 1 1 0 2 1 1 2 1 1 2 1 1 1 0 1 143-132 2 74-68 2 141-140 2 112-112 2 112-135 2 49-54 0 ÍS tekur á móti Keflavik klukkan 19.30 í Kennaraháskólanum og Keflavík spilar síðan annan útileik í Njarðvík á miðvikudaginn. - Grindavík kom til baka og vann KR, 73-66, í kvennakörfunni Enn ein vísbendingin um æsispennandi vetur í kvennakörf- unni kom með 73-66 sigri Grindavík- ur á KR í leik liðanna í 1. deild kvenna á laugardaginn. Grindavík byrjaði mun betur og náði meðal annars 11 stiga forystu í upphafi annars leikhluta, 26-15, en það munaði fimm stigum á liðunum í hálfleik þegar Grindavík hafði yfir, 38-33. KR-konur komu mjög ákveðnar til seinni hálfleiks og skoruðu ellefu fyrstu stig hans og voru allt í einu komar með góða forustu, 38-44. Hild- ur Sigurðardóttir skoraði sjö fyrstu stig hálfleiksins og eftir að Helga Þor- valdsdóttir haföi komið KR níu stig- um yfir, 39-48, með tveimur laglegum körfum í röð, benti fátt til annars en að KR-liðið væri að landa öruggum sigri. Denise Shelton, bandarískur leik- maður Grindavíkur, sem skoraði hafði 50 stig í tapleik tveimur dögum áður og 21 stig í fyrri hálfleik, var á þessum tima orðin mjög þreytt og misnotaði meöal annars sex skot í röð. En Grindavíkurliðið var þó ekki á því að gefast upp. Sólveig Gunn- laugsdóttir tók af skarið og gerði mikilvægar körfur auk þess sem Shelton fann körfuna á ný. Grinda- vík endaði leikhlutann 12-4 og það munaði aðeins einu stigi fyrir siðasta leikhlutann. KR var 51-52 yflr. KR-liðið hafði hins vegar misst taktinn í leik sinum. Öll sjö þriggja stiga skotin í síðasta leikhlutanum misfórust, Grindavík vann hann 22-14 og þar með leikinn, 73-66. Sólveig Gunnlaugsdóttir átti mjög góðan leik fyrir Grindavík, hitti með- al annars úr 8 af 13 skotum sínum, þar af 3 af 4 þriggja stiga skotum. Sólveig tók af skarið þegar liðið þurfti mest á því að halda. Shelton átti einnig afbragðsleik en þrátt fyrir 37 stig, 13 fráköst og 6 stolna bolta getur þessi frábæri leikmaður meira, enda hafði þreytan sín áhrif. María Anna Guðmundsdóttir mætti sýna skynsamlegri leik í send- ingavali en átta stoðsendingar, 6 frá- köst og mikilvæg þriggja stiga karfa í lokin höfðu mikið að segja þegar upp var staðið. KR tókst ekki að fylgja eftir góðum leik í Njarðvík. Hanna Björg Kjart- ansdóttir bryjaði af krafti (11 stig i fyrri hálfleik) en eyddi mikilli orku í að dekka Shelton í seinni hálfleik. Hildur Sigurðardóttir átti bestan leik en Hanna og Gréta María Grétars- dóttir skiluöu sínu. Stig Grindavikur: Denise Shelton 37 (13 fráköst, 6 stolnir, hitti úr 13 af 28 skotum), Sólveig Gunnlaugsdóttir 19 (8 fráköst), María Anna Guðmundsdóttir 5 (8 stoðs., 6 fráköst, 12 tapaðir), Sandra Guðlaugsdóttir 5, Erna Rún Magnúsdóttir 4 (4 stoðs.), Guð- rún Ósk Guðmundsdóttir 2, Sigríður Anna Ólafsdóttir 1. Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 18 (9 frá- köst, 5 stolnir), Hanna B. Kjartansdóttir 15 (7 fráköst, 5 stolnir), Gréta María Grétars- dóttir 11 (7 fráköst, 5 stoðs.), Helga Þor- valdsdóttir 10 (6 fráköst, 4 stoðs.), Guðrún Arna Sigurðardóttir 6 (6 fráköst), Sara Smart 2, Georgia Kristiansen 2, Tinna Björk Sigmundsdóttir 2. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.