Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 15
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 31 DV Sport ívar Ingimarsson: Ekkert vanmat í gangi „Ég er mjög svekktur með þessi úrslit. Við komum vel stemmdir til leiks og ætluðum að byrja af krafti. Við fengum á okk- ur frekar dapurt mark í byrjun og eftir það var þetta erfítt. Þá fauk planið okkur út um glugg- ann og við þurftum að færa okk- ur framar á völlinn. í seinni hálfleik fannst mér við vera að komast inn í leikinn, við vorum halda boltanum ágætlega og komast í hálffæri. Síðan fáum við annað markið á okkur og eft- ir það var þetta búið. Mér fannst við samt reyna að koma til baka en því miður tókst okkur ekki að skora.“ Skotarnir böröust fyrir öllu „Skotarnir hafa alltaf kunnað að verjast og eftir markið duttu þeir bara aftur. Við vissum aö það væri mikil pressa á þeim eft- ir Færeyjaleikinn en það var ekk- ert vanmat i gangi. Þetta eru Slcotar, þeir eru þekkt knatt- spyrnuþjóð og þeir voru með sært stolt. Þeir komu ákveðnir hingað og börðust fyrir öllu. Mér fannst spilið hjá okkur til að byrja með ekki nógu gott en það komu kaflar í leiknum sem voru ágætir og við náðum að komast upp kantana hjá þeim sem voru opnir. Fyrirgjafirnar voru hins vegar ekki að ná fyrir og því vantaði að reka smiös- höggið á það.“ Alltaf væntingar Það byggjast alltaf upp vænt- ingar fyrir leiki, sérstaklega þeg- ar úrslitin hjá þeim höfðu ekki verið betri en raun bar vitni. Við þurfum hins vegar að gera okkur grein fyrir því að við erum ís- land. Þó að við séum smáþjóð þá fórum við í leiki til að vinna þá en við getum ekki verið að van- meta andstæðinga okkar, hverjir sem þeir eru. Það væri algjör barnaskapur og ég held að það hafi engin gert það í dag, í það minnsta ekki leikmenn. Verðum aö læra af leiknum „Fyrir leikinn á miðvikudag- inn verðum við að byrja á þvi að hvíla, reyna siðan að gleyma leiknum og draga þann lærdóm af honum sem við getum og koma vel undirbúnir fyrir leikinn gegn Litháum,“ sagði miðjumaðurinn ívar Ingimarsson sem átti góðan leik á miðju íslenska liðsins gegn Skotum og sýndi að þar er leik- maður sem verður lykilmaður í liði íslands í framtíðinni. -ósk ívar ingimarsson sést hér á fleygiferð í leiknum gegn Skotum á laugardaginn en Skotinn Barry Ferguson reynir að ná honum. ívar átti góðan leik á miðju íslenska liösins í leiknum og gaf ekki tommu eftir í tæklingum og öðrum návígjum. DV-mynd E. 01. Hermann Hreiðarsson segir íslenska liðið geta gert miklu betur en á laugardaginn: Skota á góðum degi „Það vantaði ekki viljann og baráttuna en þetta gekk ekki hjá okkur í dag. Það er náttúrlega mjög svekkjandi að fá á sig þetta mark svona snemma en við sköpuðum okkur þarna nokkur færi, Eiður skaut í slá og fleira en einhvern veginn var boltinn ekki að detta fyrir okkur eins og við hefðum viljaö," sagði Hermann Hreiðars- son, annar miðvarða íslenska liðsins, að leik loknum. Hermann hafði verið slæmur í baki undanfamar vikur en hann sagði við DV-sport eftir leik að meiðslin hefðu ekki komið niður á spilamennsku hans í leiknum. Völlurinn erfiður „Við vorum kannski ekki alveg nógu öruggir í vöminni, það voru nokkrar slakar sendingar en þeir voru þó ekki að skapa sér nein færi upp úr því. Völlurinn var ekki góður, mjög sleipur og þungur og það hafði sitt að segja,“ sagði Hermann og bætti við að leikurinn hefði ekki spilast eins og lagt var upp fyrirfram. „Haukur Ingi átti að fara meira upp kantinn og reyna að teygja aðeins á vörninni svo að menn eins og Eiður Smári fengju meira pláss til að athafna sig en í staðinn vorum við að beita háum sendingum og þar voru skosku vamarmennimir eins og kóngar í ríki sínu og mjög sterkir í loftinú. Þeir komust yflr og gátu því varist og beitt skyndisóknum en við náðum aldrei að setja nægilega mikla pressu á þá. Þeir eiga þarna tvö skot á mark í seinni hálfleik. Seinna markið náttúrlega mjög vel gert hjá Nays- mith og tek ég það ekkert frá honum en við hefðum getað gert betur.“ Erum miður okkar Auðvitað erum við allir miður okkar og svekktir yflr því að ná ekki betri úrslitum og við viljum síst af öllu tapa leik á heimavelli. En við vissum alveg hvað Skotamir geta og bárum fulla virðingu fyrir þeim áður en leikurinn hófst. Það er valinn maður í hverju rúmi hjá þeim en við vitum vel að við getum unnið þetta lið, það er kannski mesta svekkelsið í þessu.“ Hermann vildi lítið tjá sig um leikinn á miðvikudaginn. „Við gerum það sem þjálfarinn leggur upp með fyrir þann leik. Þetta er einn hópur og ein heild og við stöndum bara allir saman og ætlum okkur að gera betur.“ Uppsögnin óvænt „Eins og kunnugt er var George Burley, framkvæmdastjóra Ipcwich, vikið úr starfi rétt fyrir helgi og sagði Hermann að það hefði vissulega komið sér á óvart. Já, ég get ekki neitað því. Hann er búinn að vera hjá liðinu í mörg ár, bæði sem leikmaður og síðan þjálfari. En svona er fótboltinn bara og það er aldrei að vita hvað er handan við homið. Stundum er þetta svona. Það gengur lítiö upp en ég hef enga trú á öðru en að þetta komi. Þetta er sami hópur og lenti í 5. sæti i úrvalsdeildinni fyrir tveimur áram þannig að við þurfum að ná því besta fram hver hjá öðrurn." -vig Getum vel unniö Haukur Ingi Gudnason hægri kantur Haukur Ingi hljóp og hljóp í leiknum og átti greinilega aö nýta hraöa hans til að valda usla í vöm Skota. Þrátt fyrir aö eiga sínar rispur komst hann samt lítið áleiðis gegn Gary Nay- smith og var á endanum skipt út af eftir að hafa fengið krampa. Skot (á mark): . . . 1 (1) Færi/mörk:.......0/0 Stoðsendingar: .... 0 Lykilsendlngar: ... 1 Aukasp. fengnar ... 0 Aukasp. gefnar .... 0 Rangstöður:......0 Eiður Smári Guðiohnsen framherji Virkar þungur og hreinlega ekki í nægilega góðu formi. Komst aldrei al- mennilega í takt við leikinn. Sýndi þó hvað hann getur á köflum og átti m.a. gott skot í slá í fyrri hálfleik. Það skapast alltaf hætta i kringum Eið þegar hann fær boltann í fæt- uma en hann virðist vánta meiri stuðning frá félögum Skot (á mark): .. . 2 (1) Færi/mörk:.......2/0 Stoðsendingar: .... 0 Lykilsendingar: ... 2 Aukasp. fengnar ... 3 Aukasp. gefiiar .... 0 Rangstöður:......2 Helgi Sigurðsson framherji Helgi náði sér engan veginn á strik i leiknum og fyflti engan veginn það skarð sem Ríkharður Daðason skildi eftir sig. Var skipt út af í hálfleik fyr- ir Heiðar Helguson sem átti í fullu tré viö Skotana í skallaboltun- um framan af en af honum dró þegar leið á hálfleikinn. Skot (á mark): . .. 0 (0) Færi (mörk): .... 0/0 Stoösendingar: .... 0 Lykilsendingar: ... 0 Aukasp. fengnar ... 2 Aukasp. gefiiar .... 1 Rangstöður:........1 Varamenn íslenska landsliðsins í leiknum Atli notaði allar skiptingarnar í leiknum og var kannski of fljótfær með þá síðustu þar sem nárameiðslin voru farin að há Rúnari það mikið seinni hluta leiks. Heióar kominnáfyrirHelgaíhálfleikogbyrjaði díbmí vel. Var duglegur við að vinna boltann og fljótur að oUOJOnSSOn skila honum á Eið Smára, eitthvað sem liðið sárvantaði fyrir hlé. Heiðar datt hins vegar niður skot (á mark)- 0 (0) með liðinu eftir annað mark Skota. Færi/mörk: .'. " ! 0/0 Marel kom mn fynr Arnar Þor og boðaði „ ,. augljósar áherslubreytingar í leik liðsins. Hann hélt Þtoösendingar: .... o boltanum ágætlega og skapaði hættu í tvígang og Lykilsendlngar: ... 0 sýndi að hann getur haft í fullu tré við varnarmenn í Aukasp. fengnar ... 0 alþjóðlegum gæðaflokki. Aukasp. gefaar .... o Bjarni kom seint inn á eða á þeim tíma þegar Rangstöður- 0 leikur liðsins var orðinn afar lágstemmdur. Bjarni s átti þó tvær af betri fyrirgjöfum liðsins og gerði engin Heiöar Helguson mistök Marel Baldvinsson Skot (á mark): . . . 1 (0) Færi/mörk:.......0/0 Stoðsendingar: .... 0 Lykilsendingar: ... 0 Aukasp. fengnar ... 2 Aukasp. gefiiar .... 0 Rangstöður:......0 Skot (á mark): . .. 0 (0) Færi/mörk:.......0/0 Stoðsendingar:.... 0 Lykilsendingar: ... 1 Aukasp. fengnar ... 1 Aukasp. gefitar .... 0 Rangstöður:......0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.