Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 25 pv_____________________________________________________________________________Sport Sannfærandi Blika á Blikar unnu nokkuö sann- færandi sigur, 93-78, á ÍR- ingum í Kjörísbikarnum í íþróttahúsi Seljaskóla í gær- kvöldi. Það sem helst gerði útslagið var stórleikur þeirra Kennys Tates og Pálma Sigurgeirssonar sem skoruðu saman 67 af þessum 93 stigum Blika á sama tíma og enginn tók af skarið hjá ÍR-ingum þegar leikur liðs- ins var kominn í óefni. Fyrsti leikhlutinn var nokkuð jafn og spennandi en Blikar höfðu þó heldur frumkvæðið. En þegar líða tók á annan leikhluta hrukku Blikarnir í gang svo um munaði. Þeir náðu að auka muninn úr fjórum stig- um í 18 stig, 27-45, en ÍR-ing- ar klóruðu svo í bakkann undir lokin og var munur- inn aðeins níu stig í leik- hléi, 37-46. ÍR-ingar byrjuðu svo síð- ari hálfleikinn ágætlega og virtist sem leikurinn ætlaði að fara að snúast þeim í vil þegar dæmt var ásetnings- villa á Jóhannes Hauksson í upphafi leikhlutans. í kjöl- farið minnkuðu ÍR-ingar muninn í sex stig, en lengra komust þeir síðan ekki. Blikar juku muninn aftur fant og þétt með Kenny og Pálma sem bestu menn og bjuggu til bil sem ÍR-ingar náðu aldrei að brúa. Mun- urinn var 15 stig eftir þriðja leikhluta, 57-72, og munur- inn var síðan sá sami i leikslok, 78-93, og sigurinn í raun aldrei í hættu. Það voru fyrmefndir tveir leikmenn sem vom alit í öllu hjá Blikum en mikil stemning og leikgleði var í liði þeirra og gætu þeir farið langt á henni í vetur, rétt eins og á síðasta tímabili. Hjá ÍR-ingum var Eugene Christopher góður þegar hann náði sér á strik en hann lék ekkert i fyrsta leik- hluta. Þá var Óðinn Öm Sævarsson sterkur í vörn- inni og Eiríkur Önundarson átti góða spretti. Unnu aftur í Hólminum Leikmenn Tindastóls mættu í Hólminn í annað sinn á fáum dögum í gær- kvöld, nú í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Kjöríss- bikarsins. Kristinn Friðriks- son, þjálfari þeirra og leik- maður, lék ekki vegna veik- inda en það virtist hafa lítil áhrif á liðið. Hlynur Bær- ingsson lék fyrsta leik sinn fyrir Snæfell en tókst ekki að setja mark sitt eins vel á hann og hann getur. Sóknarleikur Snæfellinga varð ráðaleysislegur og fundu þeir i raun aldrei al- mennilega taktinn í leiknum við að leysa málin í sókn- inni. Staðan eftir fyrsta leik- hluta var 16-22 og í hálfleik 32-45. Seinni háifleikur þró- aðist á svipaðan hátt. Gest- imir héldu Snæfellingum í þægilegri fjarlægð og léku svæðisvörnina af mikilli grimmd og festu. Við upphaf fjórða og síðasta leikhluta var staðan 53-67 en Snæfell vann síðasta leikhlutann 17-15 og lokatölur urðu 71-82. Sem fyrr segir var það svæðisvörn gestanna sem Snæfeliingum gekk illa að leysa. Maurice Carter skor- aði grimmt fyrir gestina og lék vel. Þá var Clifton Cook síógnandi og Óli Barðdal átti skínandi leik. Hjá Snæfelli var meðalmennskan í fyrir- rúmi en það var helst Lýð- ur Vignisson sem reif sig upp í seinni háifleik. Seinni leikur liðanna fer síðan fram á Króknum á fmuntu- daginn en í hann ganga Tindastólsmenn með 11 stiga forskot. 18 stiga sigur Hamars Hamarsmenn virtust ætla að endurtaka leikinn frá því þeir töpuðu með einu stigi gegn KR á föstudagskvöld en eins og þá vom þeir með 22 stiga forskot í hálfleik gegn Val að Hlíðarenda í gær- kvöld í fyrri leik liðanna í Kjörísbikarnum. Valsmenn náðu að minnka forskotið niður í sex í lokin en þá tóku Hvergerðingar við sér aftur og innbirtu 18 stiga sigur, 98-116, og eiga heima- leikinn eftir. Valur leiddi 29-26 i byrj- un annars leikhluta en þá fór að síga á ógæfuhliðina og þegar flautað var til hálf- leiks var staðan orðin 37-59 og virtist stefna í stórsigur Hvergerðinga. Heimamenn gáfust þó ekki upp og byij- uðu að saxa á forskot gest: anna og náðu því niður eins og áður sagði í sex stig en lengra komust þeir ekki. Hjá Val var Laverne Smith best- ur en hann átti mjög góðan seinni hálfleik eftir að hafa verið í vandræðum í þeim fyrri. Ólafúr Ægisson átti flnan í kafla þegar Vals- menn vom að saxa á forskot Hamars og Baldvin Johnsen sýndi flna takta inn á miili. Vörnin var þó ekki öflug og hafa Valsmenn fengið 110 og 116 stig í fyrstu tveimur leikjum liðsins. Ragnar Steinarsson lék þó ágætis vörn á Robert O’Kelley, er- lendan leikmann Hamars. O’Kelley tókst þó aö skora 45 stig þrátt fyrir að hafa verið gætt vel allan leikinn. Svav- ar Birgisson var góður og þá var Láms Jónsson gríðar- lega öflugur þegar hans naut við. Svavar Pálsson byrjaði vel en minna fór fyrir hon- um þegar leið á leikinn. -HI/KJ/Ben Milan Stefán til Keflavíkur Milan Stefán Jankovic verður næsti þjálfari 1. deildar liðs Keflavíkur en geng- ið var frá ráðningu hans i gær. Milan var í ár yfirþjálfari yngri flokka hjá Grinda- vík en hann þjálfaði meistaraflokk liðs- ins í þrjú ár áður en Bjarni Jóhannesson var ráðinn fyrir nýafstaðið tímabil. Ekki er ljóst hve langur samningur Milans verður en að sögn Rúnars Arnar- sonar, formanns knattspyrnudeildar Keflavíkur, á eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum. Rúnar segir jafnframt að stefnt sé að því að dúsa ekki lengi í 1. deild. „Við ætlum beint upp aftur og höfum tröllatrú á því að Jankovic takist það. Við erum mjög sáttir við að hafa klófest hann og bindum miklar vonir við störf hans. Hann er rétti maðurinn til að ná því besta út úr ungu strákunum og það bendir allt til þess að við höldum öllum leikmönnum okkar. Nokkrir leikmanna okkar verða að vísu i útlöndum í vetur en það hefur enginn gefið það út að hann ætli að hætta hjá okk- ur,“ sagði Rúnar Amarson þegar DV-Sport náði tali af hon- um í gær. -vig/ósk Milan Stefán Jan- kovic. Korfuboltadrama af bestu gerð - þegar KR lagöi Hamar í Hveragerði á föstudagskvöldið, 96-95 Það fá allir áhorfendur mikið fyrir sinn snúð að mæta á leiki Hamars og KR. Þetta eru allt háspennuleikir og var leikurinn á fóstudaginn engin undan- tekning. Þó að Hamarsmenn hafl gjörsamlega rúllað yflr KR-inga í fyrri hálfleik og verið 19 stigum yfir í hálfleik varð þessi leikur eins og allir aðrir hjá þessum lið- um, háspenna lífshætta í síðasta leik- hluta. Hamar var yfir á öllum tölum allt þangað til að KR komst yfir þegar rétt mínúta var eftir og hófst þá villtur stríðsdans sem stiginn var í Hvera- gryfiunni. Að endingu stóðu KR-ingar uppi sem sigurvegarar og Hamarsmenn sátu eftir með sárt ennið og geta kannski sjálfum sér um kennt að halda ekki haus síðustu mínútumar. Að sama skapi var frábært hjá KR aö sýna mikinn styrk og vinna upp forskotið. „Þetta var gríðarlegt," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, er DV-Sport ræddi við hann i leikslok. „Ég vissi að liðið ætti eitthvað inni en hvílík kúvending á Uði í hálileik. Ég hef ekki séð liðið svona hauslaust eins og i fyrri háifleik. Okkur tókst að kom- ast í takt við leikinn í gegnum góðan vamarleik í síðari hálfleik og það var það sem skóp þennan sigur bjá okkur. Hamarsliðið kom mér verulega á óvart. Við vorum hræddir við þennan leik og vissum að það var með góðan útlending sem hafði spilað vel í æfinga leikjum með þeim. Svo em aðrir leikmenn miklir baráttumenn og gefast aldrei upp og það sýndi sig í þessum leik og ég er ótrúlega ánægur með þennan leik og að ná í þessi stig í Hveragerði því það er ekki auðvelt,” sagði Ingi Þór að lok- um, rjóður og sveittur. „Þetta var ekki óskabyrjum og við gerðum mikil mistök i síðasta leik- hluta, misstum mörg vítaskot sem hefðu getað stuðlað að sigri í þessum leik. Við fengum á okkur tækniviilu þar sem við vorum með boltann og misstum við það þrjú stig og gerðum önnur slæm mistök sem kostuðu okkur sigurinn. Þó að við spiluðum vel í fyrstu tveimur leikhlutunum var það ekki nóg og ég vil heldur spila vel í tveimur síðustu en tveimur fyrstu og tapa leiknum. Þetta var ekki okkar dag- ur. Það er tuttugu og einn leikur eftir og við verðum að horfa fram á veginn sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Ham- ars. Hjá Hamri var það liðsheildin sem skóp þetta forskot í fyrri hálfleik og fóru þar fremstir í flokki þeir Robert O’Kelly, Svarar B., Gunnlaugur og Lár- us. Spumingin er samt hvort þeir hafi ekki haft úthald í þetta allt þvi eins og þjálfari þeirra sagði gerðu menn ótrú- leg mistök í lokin. Hjá KR var Darrell Flake bestur þrátt fyrir bakmeiðsl sem hijáðu hann, Skarphéðinn, Magni og Herbert léku líka leika vel. -EH 16-liða úrslit Kjörísbikarsins í körfubolta: KFÍ-Keflavlk ...........65-110 Stig KFl: Jeremy Sargent 21 (13 frák.), Ásgeir Ásgeirsson 12, Baldur Jónasson 11, Haraldur Jóhannesson 8, Branislav Dragojlovic 6, Seko Dragolovic 5, Neil Þórisson 2. Stig Keflavikur: Gunnar Einarsson 27, Gunnar Stefánsson 19, Jón N. Haf- steinsson 12, Þorsteinn Húnfjörð 11, Kevin Grandberg 10, Damon Johnson 9, Davíð Jónsson 9, Sverrir Sverris- son 8, Sævar Sævarsson 4, Amar Jónsson 1. Keflavtk-KFÍ.............83-83 Stig Keflavíkur: Damon Johnson 33 (13 frák.), Magnús Gunnarsson 20, Sævar Sævarsson 14, Þorsteinn Húnfjörð 8, Kevin Grandberg 4, Jón N. Hafsteinsson 2, Aranr Jónsson 2. Stig KFÍ: Baldur Jónasson 31, Ásgeir Ásgeirsson 14, Jeremy Sargent 12 (14 frák.), Branislav Dragojlovic 8, Neil Þórisson 7, Haraldur Jóhannesson 5, Seko Dragolovic 3, Guðmundur Guðmannsson 2, Hrafn Kristjánsson 1. Skallagrimur-Grindavík . . 66-97 Stig Skallagríms: Egill Egilsson 13, Isaac Hawkins 13, Sigmar Egilsson 10, Pétur Sigurðsson 10, Hafþór Gunnarsson 7, Ari Gunnarsson 6, Finnur Jónsson 4, Pálmi Jónsson 3. Stig Grindavlkur: Darrell Lewis 48, Guðlaugur Eyjólfsson 14, Páll Axel Vilbergsson 12, Guðmundur Braga- son 9 (10 frák.), Bjami Magnússon 6, Jóhann Ólafsson 4, Davíö Hermanns- son 4. Þór Ak.-Haukar...........63-106 Stevie Johnson var með 38 stig gegn sinum gömlu félögum. Marel Guölaugsson gerði 22 stig, Þórður Gunnlaugsson með 17 og Sævar Haraldsson var með 10 stig. ÍS-Njarðvík .............72-72 Stig IS: Atli Þorbjömsson 15, Aöal- steinn Pálsson 15, fvar Ásgrímsson 10, Guðni Einarsson 9, Þór Ámason 8, Kristinn Haröarson 6, Hermann Birgisson 4, Stígur Þórhallsson 3, Leifur Ámason 2. Stig Njarðvlkur: Pete Philo 13, Sig- urður Einarsson 12, Halidór Karlsson 11, Amar Smárason 10, Guðmundur Jónsson 8, Ágúst Dearbom 7, Jóhann Ólafsson 6, Gunnar Einarsson 3, EgiU Jónasson 2. iR-Breiðablik............78-93 Stig fR: Eugene Christopher 25, Ei- ríkur Önundarson 13, Ómar öm Sævarsson 10 (6 varin skot), Ólafur Sigurðsson 10, Siguröur Þorvaldsson 9, Hreggviður Magnússon 4, Fannar Helgason 4, Alexander Cimic 2, Bene- dikt Pálsson 1. Stig Breiðabliks: Kenny Tate 42 (20, frák., 4 stolnir), Pálmi Fr. Sigurgeirs- son 25 (7 stoðs.), Þórarinn Örn Andr- ésson 9, Jón Amar Ingvarsson 5, Valdimar Helgason 4, Ólafur Hrafn Guðnason 4, Friðrik Hreinsson 2, Jó- hannes Hauksson 1, Þórólfur Þor- steinsson 1. Snæfell - Tindastóll ....71-82 Stig Snæfells: Lýður Vignisson 21, Clifton Bush 16, Jón Ólafur Jónsson 13, Hlynur Bæringsson 12, Helgi Reynir Guðmundsson 4, Andrés Heiðarsson 3 og Sigurbjöm Þórðar- son 2. Stig Tlndastóls: Maurice Carter 29, Clifton Cook 18, Michael Andropov 15, Óli Barðdal 10, Axel Kárason 5, Gunnar Andrésson 3 og Helgi Rafn Viggósson 2. Valur-Hamar.............98-116 Stig Vals: Laveme Smith 34, Ólafur Ægisson 16, Ragnar Steinarsson 14, Ægir Jónsson 11, Baldvin Johnsen 11, Hinrik Gunnarsson 10, Steingrímur Ingólfsson 2. Stig Hamars: Robert O’Kelley 45, Svavar Bfrgisson 21, Láras Jónsson 15, Svavar Pálsson 15, Gunnlaugur Hafsteinn 10, Marvin Baldvinsson 5, Hallgrimur Brynjólfsson 3, Pétur Ingvarsson 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.