Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Page 12
28 + 29 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Sport Sport Heiöar Helguson kom inn á sem varamaöur ( byrjun síöari hálfleiks fyrir Helga Sigurösson. Hér sést hann í baráttu við skosku varnarmennina Lee Wilkie og Callum Davidson. DV-mynd E.ÓI. Skoskir áhorfendur skemmtu sér vel á Laugardalsvellinum á laugar- daginn og kannski fullvei ef marka má þessa mynd. DV-mynd E.ÓI. Leikur íslands og Skotlands Stuttar sendinéar Undir stjórn Atla Eðvaldssonar hef- ur íslenska liöið aðeins tapað tveimur af þeim ellefu leikjum þar sem liðið hefur komst í 1-0 og sjö þeirra hafa unnist. Töpin komu gegn Dönum á Laugardalsvellinum 2000 og úti í Búlgaríu 2001. I rauninni er þetta það mark and- stæðinga íslenska liðsins sem næstfyrst er skorað á Laugardalsveli- inum frá upphafi. Fyrir sjö árum kom Svisslendingurinn Ciriao Sforza sínu liði yfir í 0-1 eftir fjögurra mínútna leik og kom það mark einnig upp úr horni. islenska landslióió hefur tapað öllum fjórum landsleikjum sínum fyrir Skot- um og það sem meira er að íslenska liöið hefur ekki skorað allar þessar 360 mínútur. Skotar unnu 1-0 1964 og 1985 3-0 1984 og svo 2-0 á laugardaginn. íslenska landslióió tapaöi sjötta leiknum f röö þar sem liöiö lendir 0-1 undir. Síðast vann íslenska liðið sig út úr slíkri stöðu gegn Pólverjum á Laug- ardalsvellinum í fyrra þegar Andri Sigþórsson tryggði jafntefiiö Ijórum mínútum fyrir leikslok. íslenska landsliðið hafði ekki fengiö á sig mark svo snemma í sjö ár þegar Christian Dailly kom Skotum yfir eft- ir 6 mínútur og 20 sekúndur. i -m Islendingar komust aldrei undan því kverkataki sem Skotar náðu á þeim í byrjun leiks íslenska landsliöið í knattspyrnu hóf leik í undankeppni EM á versta mögulegan hátt þegar liöið tók á móti Skotum á laugardag- inn. Miklar væntingar voru gerðar til ís- lenska liðsins fyrir leikinn og er ekki orðum aukið að segja að þeir hafi ekki staðið undir þeim. Niðurstaðan þegar flautað var til leiksloka var mönnum vonbrigði, 2-0, tap fyr- ir Skotum, sem þar með unnu sinn fyrsta leik undir stjóm Berti Vogts. Ekki er hægt að segja annað en að sigurinn hafi verið sann- gjarn. Skotar gerðu nákvæmlega það sem þeir þurftu til að leggja hikandi, staða og máttlausa íslendinga. Atli Eðvaldsson gjörbreytti ölium sóknar- leik liðsins fyrir leikinn gegn Skotum ef mið er tekið af vináttuleikjunum tveimur á undan sem hljóta að hafa átt að vera undirbúningur fyrir leikinn mikilvæga á laugardaginn. í stað stóra framherjans sem átti að halda boltanum og vinna skallaeinvígi voru komn- ir leikmenn, Helgi Sigurðsson og Haukur Ingi Guðnason, sem vilja ekki fá boltann í lappir heldur í svæðin á bak við vörnina. Atli rétt- lætti þessar breytingar með því að segja að Skotarnir væru svo sterkir í loftinu og því hefði verið ákveðið að finna leiðina bak við vörnina þeirra. Gott og vel en þessi staðreynd var uppi á borðinu í lok ágúst þegar Ándorra kom í heimsókn og af hverju í ósköpunum var ekki reynt að spila þann sóknarleik sem átti að spila gegn Skotum í leikjunum gegn Andorra og Ungverjalandi þar sem ekkert var undir og timi til að vera með tilraunastarfsemi. Varð að tilraunaverkefni Leikurinn gegn Skotum varð að tilrauna- verkefni þar sem sóknarleikurinn var lagður upp með von og óvon án mikillar reynslu. Að auki stillti Atli upp Bjarna Þorsteinssyni í hægri bakvarðarstöðunni, jafnvel þó hann hefði ekki valið hann í vináttuleikina tvo. Það val er enn eitt dæmið um tilraunastarf- semina sem var í gangi í leiknum. íslenska liðiö mætti ágætlega stemmt til leiks en fékk á sig mark eftir rúmar sex mín- útur. Markið var afskaplega klaufalegt og má segja að röð mistaka hafi orsakað það. Skóg- arhlaup Árna Gauts, léleg dekking inni í teig og enginn maður á fjærstöng þrátt fyrir að Skotar hefðu rétt á undan fengið hornspyrnu. Eftir þetta kjaftshögg Skotanna má segja að leikur íslendinga hafi verið ansi tilviljana- kenndur. Sendingar leikmanna voru út og suður, hreyfing án bolta var lítil sem engin og það gekk engan veginn að koma tveimur bestu sóknarmönnum liðsins, Rúnari og Eiði Smára, inn í leikinn. Rúnar var týndur úti á vinstri kanti og við getum einfaldlega ekki ætlast til þess að Eið- ur Smári geri allt upp á eigin spýtur þegar hann fær holtann. Sendingarnar inn fyrir vörnina, sem Atli hafði beðið um fyrir leik- inn, gengu aldrei upp né heldur fyrirgjafirn- ar sem voru nær undantekningalaust sorgleg- ar. Þetta bar allt að sama brunni. Áttavitinn á fótum leikmanna íslenska liðsins var van- stilltur og þeir gátu hvorki gefið fimm metra sendingu, stungusendingu né fyrir markið. Geisluöu af sjálfsöryggi Skotarnir, sem höfðu verið með bakið upp við vegginn eftir háðulegt gengi að undan- fomu, mættu á Laugardalsvöllinn og léku eins og þjóð í miklum meðbyr. Leikmenn liðs- ins geisluðu af sjálfsöryggi og á þeirra leik mátti sjá að þeir vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera. Annað er hægt að segja um Is- lendingana sem vissu varla í hvorn fótinn þeir áttu að stíga enda erfitt að ná upp takt- fostu spilmynstri þegar kúvending á sér stað í sóknarleik liðsins nokkrum dögum fyrir leik. Það er alveg ljóst að íslenska landsliðið í knattspyrnu á í kröggum. Árangur og spila- mennska í undanfórnum landsleikjum hafa ekki veriö upp á marga fiska og einhvern veg- inn hefur maður það á tilfinningunni að ís- lenska liðið sé lið sem leikur án sjálfstrausts, gleði, og hugmyndaauðgi, stefnulaust rekald á hafi úti. í þessum leik var það aðeins Ivar Ingimars- son sem komst frá leiknum með sóma. Aðrir leikmenn eiga mikið inni og það er sorglegt að þurfa að horfa upp á leikmann eins og Eið Smára vera vannýttan vegna þess að hann fær ekki þá þjónustu sem hann þarf til að gera það sem hann getur. Atli þarf að finna stöðugleika í liðinu. I augnablikinu er of mörgum spurningum ósvarað eins og bent var á í grein í DV-Sport fimmtudaginn 3. október og því fer fjarri að einhver svör hafi fengist á laugardaginn. Atli þarf að finna sér ákveðið sóknar- mynstur þar sem hæfileikar manna á borð við Eið Smára fá að njóta sín og halda sig við það i stað þess að vera að skipta um sóknar- stíl í tíma og ótíma. Hann þarf að finna hægri bakvörð sem getur borið boltann upp og hann þarf auk þess að velta því fyrir sér hvort Arn- ar Þór Viðarsson heldur sjó varnarlega gegn sterkum liðum. Að auki er kantspil liðsins mikið vandamál og það væri ekki verra ef það væri hægt að finna einhvern mann sem getur komið boltanum fyrir markið utan af kanti. Raunhæfar kröfur? Maður spyr sig eftir gengi undanfarinna leikja hvort kröfumar sem fjölmiðlar og al- menningur á Islandi geri til landsliðsins séu raunhæfar. I Ijósi stöðunnar í dag eru þær það ekki og það má vel vera að við höfum séð getu okkar manna sem spila erlendis í hyll- ingum. Þeir eru góðir knattspymumenn, um það efast enginn, en sem liðsheild virkar lið- ið engan veginn og þegar þannig er í pottinn búið er óraunhæft að búast við árangri. Við gerðum kröfur af þvi við höföum trú á liðinu, ekki til þess að skaða þaö. Trúin lifir ekki endalaust og líklega er þannig í pottinn búið nú að ég mæti á Laugardalsvöllinn á miðvikudaginn albúinn hinu versta. -ósk I % Stuöningsmenn Islenska liösins létu vel í sér heyra. DV-mynd ÞÖK Hvílík vonbrigði Stuðningsmenn íslenska lands- liðsins áttu erfitt með að leyna vonbrigðum sínum þegar ljóst var að Skotar myndu fara með sigur af hólmi á laugardaginn. Mikil og góð stemning var á með- al áhorfenda á fyrri hálfleik en íslensku áhorfendurnir fylltust sama vonleysinu og íslensku leikmennirnir þegar Skotar skor- uðu annað markið og voru marg- ir hverjir horfnir af velli löngu áður en lokaflautan gall. íslensku áhorfendurnir mættu gjarnan læra af skosku áhorfend- unum sem kunna manna best aö halda uppi stemningu á leikjum með söngvum, hljóðfæraleik og góðu skapi, Skosku stuðnings- mennirnir voru svo sannarlega dýrmætir fyrir skoska liðiö og virkaði á stundum sem Skotar væru á heimavelli en ekki íslend- ingar. íslendingar mættu gjaman láta heyra meira í sér þegar á móti blæs i stað þess að hengja haus. íslensku strákamir þurfa á öflugum stuðningi áhorfenda að halda á miðvikudaginn gegn Lit- háen á Laugardalsvelli. -ósk Ísland-Skotland 0-2 (0-1) 0-1 Christian Dailly (7., skalli úr markteig eftir fyrirgjöf Gary Naysmith sem hafði fengið boltann aftur eftir homspymu sína frá hægri. Ámi Gautur komst ekki út í fyrirgjöfma.) 0-1 Gary Naysmith (63., glæsilegt skot rétt innan vítateigs eftir gott upphlaup og fyrirgjöf Maurice Ross frá hægri. Vel heppnuð skyndisókn Skota.) ísland (4-5-1) Ámi Gautur Arason .......2 Bjami Þorsteinsson.......2 Lárus Orri Sigurðsson .... 3 Hermann Hreiðarsson .... 3 Amar Þór Viðarsson........2 (66., Marel Baldvinsson ... 3) Brynjar Bjöm Gunnarsson 3 ívar Ingimarsson.........4 Rúnar Kristinsson........2 Haukur Ingi Guðnason ... 2 (75., Bjarni Guðjónsson ... -) Eiöur Smári Guðjohnsen . . 3 Helgi Sigurðsson .........2 (46., Heiðar Helguson.....3) Dómari: Alain Sars frá Frakklandi (4). Áhorfendur: 7065. Gul spjöld: Rúnar (32.), Is- land, Lee Wilkie (23.), Steven Thomp- son (39.), Call- um Davidson (73.) Rauð soiöld: Engin Skot (á mark): 7 (4)-10 (5) Horn: 11-6 Aukaspyrnur: 19-15 Rangstöóur: 3-4 Varin skot: Ámi Gautur 2 - Douglas 2 Skotland (3-5-2) Robert Douglas . Christian Dailly . Steven Pressley . Lee Wilkie..... Maurice Ross ... Barry Fergusson Paul Lambert... Jackie McNamara ... (34., Callum Davidson Gary Naysmith ...... (90., Russell Anderson Steven Thompson . . . (89., Scott Severin ... Steven Crawford .... Gæöi leiks: Maður leiksins hjá DV-Sporti: Gary Naysmith, Skotlandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.