Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 20
36
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
Sport
Undankeppni EM 2004 á laugardaginn:
Jafnt hjá ítölum
- töpuðu dýrmætum stigum gegn Júgóslövum í Napolí
ítalir töpuðu dýrmætum stigum í
undankeppni EM á heimavelli á
laugardaginn þegar liðið gerði jafn-
tefli, 1-1, gegn Júgóslavíu í Napolí í
leik liðanna i 9. riðli.
Gestirnir náðu forystunni á 27.
mínútu þegar Predrag Mijatovic
nýtti sér mistök Alessandro Nesta og
skoraði fram hjá Gianluigi Butfon,
markverði italska liðsins.
Alessandro Del Piero, sem hefur
leikið frábærlega með Juventus í
vetur, jafnaði metin sjö mínútum
seinna meö því að skora beint úr
aukaspymu. ítalir áttu í miklum
vandræðum með fríska Júgóslava og
geta þakkað Buffon markverði að
ekki fór verr því að hann varði
nokkrum sinnum glæsilega í seinni
hálfleik.
Giovanni Trappatoni stillti upp
liðinu með það fyrir augum að sækja
til sigurs eftir að hafa verið gagn-
rýndur af ítölskum ijölmiðlum fyrir
að spial of varfæmislega í heims-
meistarakeppninni og i fyrsta leikn-
um í undankeppni EM gegn
Aserbaidsjan. Þessi aðferð
Trappatoni gekk ekki upp og hann
viðurkenndi það eftir leikinn.
„Við sköpuðum okkur engin
svæði til að sækja í. Þeir vom stór-
hættulegir í skyndisóknum sínum,
þeir pressuðu okkur og í hvert sinn
sem við færðum okkur framar á völl-
inn þá mynduðust svæði fyrir aftan
varnarlínuna,“ sagöi Trappatoni.
Sannfærandi Spánverjar
Spánverjar unnu sannfærandi sig-
Undankeppni EM 2004 á laugardaginn:
Frakkar á flugi
Franska landsliðið í knattspymu virðist vera að vakna til lífsins eftir
háðulega útreið í heimsmeistarakeppninni í sumar. Frakkar hafa byrjað
undankeppni EM af krafti og eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki í 1.
riðli. Á laugardaginn mættu þeir Slóvenum í Paris og kjöldrógu þá, 5-0.
Snillingurinn Zinedine Zidane var í frábæru formi og í vöminni stóð
Marcel Desailly, sem lék sinn 100. landsleik fyrir Frakka, eins og klett-
ur. Frakkar hófu stórskotahríð að marki Slóvena
strax í byrjun og Zidane átti skot í stöng á 5. mínútu.
Fyrsta mark Frakka koma á 10. mínútu og var það
samvinna Arsenal-leikmannanna frábæru Patricks
Vieira, sem skóp það, og Henrys en þeir splundruðu
vörn Slóvena með fallegu spili og sá fyrmefndi skor-
aði af öryggi. Þá var röðin komin að framherja Ful-
ham, Steve Marlet. Hann kom Frökkum í 2-0 á 34.
mínútu eftir góðan undirbúning Sylvains Wiltords
og geröi síöan endanlega út um leikinn á 63. mínútu.
Hann var síðan óheppinn að bæta ekki við þriöja markinu á 76. mínútu
þegar hann vippaði boltanum rétt yfir markið. Stórsókn Frakka hélt
áfram og Sylvain Wiitord bætti við íjórða markinu aðeins þremur mín-
útum seinna eftir að hafa leikið á þrjá vamarmenn Slóvena. Varamaður-
inn Sidney Gouvu skoraði síðan funmta markið á síðustu mínútu leiks-
ins. Það er ljóst að Frakkar em á góðri leið með jafiia sig á vonbrigðum
sumarsins og em Maltveijar, sem mæta Frökkum í Valletta á miöviku-
daginn, ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu. -ósk
ur á N-ímm, 3-0, í 10. riðli í Al-
bacete. Miðjumaðurinn Ruben Bara-
ja, sem leikur með Valencia, skoraði
tvívegis og Guti, sem leikur með
Real Madrid, bætti því þriðja við.
Spánverjar vom mikið til muna
sterkari í leiknum og hefðu auöveld-
lega getað bætt við fleiri mörkum.
Sigurinn færir Spánveijum efsta
sætið í riðlinum en Úkraínumenn
geta þó komist upp fyrir þá ef þeir
sigra N-íra í Belfast á miðvikudag-
inn.
Sjóðheitir Búlgarar
Búlgarar hafa byrjað undankeppni
EM af miklum krafti og unnu um
helgina sinn annnan leik í jafnmörg-
um leikjum í 8. riðli þegar þeir lögðu
Króata að velli, 2-0, í Sofíu. Þeir
sönnuðu um leið að útisigurinn gegn
Belgum fyrir rúmum mánuði var
engin tilvfijun. Króatar sá aidrei til
sólar 1 leiknum og gerðu Búlgarar út
um leikinn með tveimur mörkum í
fyrri hálfleik. Búigarar spiluðu oft á
tíðum mjög skemmtilega og verða að
teljast til alls líklegir 1 þessari und-
ankeppni.
Tyrkir komu til baka
Tyrkir sýndu mikla seiglu þegar
tryggðu sér sigur, 2-1, gegn
Makedónum eftir að hafa lent undir
strax eftir sjö mínútur í leik liðanna
í 7. riðli undankeppni EM í Skopje í
Makedóníu.
„Við vorum heppnir að vera enn-
þá inni í leiknum eftir hálftíma. Við
náðum síðan tökum á ieiknum þegar
við jöfnuðum. Það sem skiptir mestu
máli er að við fengum þrjú stig á
mjög erfiðum útivelli,“ sagöi Senol
Gunes, þjálfari Tyrkja, eftir leikinn.
Nikola Ilijevski, þjálfari Makedón-
íu, sagði að það hefði verið sorglegt
að sjá lið sitt brenna af mörgum
dauðafærum í fyrri hálfleik en að
þaö hefði verið á brattann að sækja
eftir að Tyrkir hefðu komist yfir í
seinni hálfleik. -ósk
Frakkarnir Zinedine Zidane, Patrick Vieira og Sylvain Wiltord fagna hér
Steve Marlet sem skoraöi tvö mörk fyrir liöiö á laugardaginn. Reuters
8. riðill
Búlgaría-Króatía . 2-0
1-0 StUian Petrov (21.), 2-0 Dimitar Berbatov (37.).
Andorra-Belgla 0-1 Wesley Sonck (62.). . 0-1
Búlgaria 2 2 0 0 4-0 6
Belgía 2 10 1 1-2 3
Króatía 2 0 11 0-2 1
Eistland 10 10 0-0 1
Andorra 10 0 1 0-1 0
9. riðill
Finnland-Aserbaidsjan . 3-0
1-0 Nurmale (16.), 2-0 Tihinen (60.), 3-0 Hyypia (72.).
Ítalia-Júgóslavla.............1-1
0-1 Predrag Mijatovic (28.), 1-1
Alessandro Del Piero (39.).
Ítalía 2 110 3-1 4
Wales 1 1 0 0 2-0 3
Finnland 2 10 13-2 3
Júgóslavía 10 10 1-1 1
Aserbaidsjan 10 0 10-2 0
10. riöill
Albanla-Sviss................1-1
0-1 Yakin (38.), 1-1 Murati (79.).
Georgla-Rússland ........frestað
vegna bilunar í flóðljósabúnaði í
Tblisi.
Sviss 2 110 5-2 4
Rússland 1 1 0 0 4-2 3
Albanía 10101-1 1
írland 10 0 1 2-4 0
Georgía 10 0 11-4 0
Bland i poka
Tveir stuðningsmenn enska landsliðs-
ins í knattspymu vom skotnir og
særðir á laugardagsmorgun í Brat-
islava þar sem þeir vora mættir til að
horfa á leik Slóvaka og Englendinga í
7. riðli undankeppni EMseinna um
daginn. Anhar þeirra særðist á hálsi
en hinn á fæti en þeir vora þó ekki al-
varlega slasaðir. Sendiráð Englands í
Bratislava sagði eftir atburðinn að það
myndi vinna hörðum höndum með
slóvakísku lögreglunni við að komast
að orsökum þessa voðaverks sem átti
sér stað fyrir utan krá eina ekki langt
frá hóteli enska landsliðsins.
Þetta var viðburðarik helgi fyrir
Englendinga í Bratislava. Slóvakíska
lögreglan stóð í ströngu við að halda
aftur af stuðningsmönnum enska
liðsins á meðan á leiknum við
Slóvakíu stóð en Englendingamir
ætluðu sér að komast yfir tU
slóvakísku stuðningsmannanna og
efna tU slagsmála. Lögreglunni tókst
að halda aftur af þeim en þó ekki án
þess að nota kylfur sem barefli gegn
æstum skrilnum.
Þýska landsliðið i knattspyrnu,
sem leikur i 5. riðli undankeppni EM
með islendingum, gerði jafntefli gegn
Bosníumönnum, 1-1, í vináttulands-
leik í Sarajevo á föstudaginn. Elvir
Baljic kom Bosníu yfir á 21. minútu
og á 35. mínútu brenndi Torsten
Frings, leikmaður Þjóðverja, af víta-
spymu. Það var síðan framherjinn
stæðUegi, Carsten Jancker, sem jafn-
aði metin fyrir Þjóðverja á 56. mínútu
og bjargaði andlitinu fyrir þá. Þjóð-
verjar mæta Færeyingum á miðviku-
daginn í undankeppninni.
Leik Georgiumanna og Rússa í 10.
riðli, sem fara átti fram í Tblisi á laug-
ardaginn, var hætt í hálfleik vegna bU-
ana í flóðljósum á Lokomotiv-leikvang-
inum. Flóðljósin bUuðu fyrst eftir
fimm minútna leik og síðan aftur í
hálfleik og ákvað dómari leiksins þá
að flauta leikinn af. Staðan í leiknum í
hálfleik var markalaus og sagði eftlr-
litsmaður Knattspymusambands Evr-
ópu, Tékkinn Rudolf Bata, að þrátt fyr-
ir að reglur sambandsins segðu að
leikurinn ætti að fara fram daginn eft-
ir hefði honum verið frestað um óá-
kveðinn tíma í samráði við forráða-
menn georgíska og rússneska liðsins.
-ósk