Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002
iy^sr
Fréttir
Elstu menn muna vart meiri bleytutíð í kartöfluræktinni:
Verðið fyrir afurðirn-
ar er handónýtt
- smásöluverslunin tekur æ stærri hlut, segir kartöflubóndi í Þykkvabænum
„Verðið fyrir afurðimar
er bara h„Verðið fyrir af-
urðirnar er bara handó-
nýtt. Smásöluverslunin
tekur svo stóran hluta af
verðinu til sín að lítið er
eftir fyrir okkur,“ segir
Sigurbjartur Pálsson, kart-
öflubóndi og stjórnarmað-
ur í Kartöfluverksmiðju
Þykkvabæjar hf. Hann seg-
ir kartöflubændur ekki öf-
undsverða eftir frekar lélegt upp-
skerusumar og fádæma vætutíð í
september.
„Elstu menn muna ekki annað
eins,“ sagði Sigurbjartur. Hann seg-
ist reyndar hafa heyrt það um dag-
inn að búið væri að reikna það út
að minni elstu manna væri ekki
nema þrjú ár. „Hjá okkur í Þykkva-
bænum rigndi að jafnaði sjö og hálf-
an millímetra á dag alla daga sept-
embermánaðar. Það er einfaldlega
of mikið fyrir okkar smekk."
Hann er sjálfur með kartöflurækt
LSH í Fossvogi:
Deild lokað
vegna bakteríu
Bæklunarskurðdeild Landspítalans
í Fossvogi var lokað í gær eftir að
baktería fannst í sýnum fjögurra sjúk-
linga á þremur stofum deildarinnar.
Bakterían, sem er sjaldgæf, er ónæm
fyrir algengustu sýklalyljum. Sjúk-
lingarnir hafa ekki orðið veikir en
þeir hafa veriö settir í lyflameðferð og
einangrun. Aðrir sjúklingar á deild-
inni fóru ýmist heim í gær eða voru
fluttir á aðrar deildir. Bráðaaðgerðum
er sinnt á öðrum deildum spítalans,
en á þriðja tug aðgerða hefur verið
frestað vegna lokunarinnar. Um 600
manns bíða eftir aðgerð á bæklunar-
deildum Landspítalans.
Unnið verður aö sótthreinsun deild-
arinnar næstu daga og standa vonir
til að hún verði opnuð í lok næstu
viku. -aþ
á um 30 hekturum og hættur
að taka upp þetta árið. „Það
sem ég á eftir er mjög óveru-
legt en ég met að það sé orð-
ið ónýtt.“
Hann segir að kartöflu-
bændur hafi verið að fá um
35 krónur fyrir síðasta árs
úppskeru í sumar. Venjulega
hefur verðið síðan farið eitt-
hvað upp með nýjum kartöfl-
um á markaði. „Ég sé ekki
annað en að það stefni í að framleið-
endur verði áfram að fá um 35 krón-
ur fyrir kílóið sem síðan er selt út
úr búð á 150 krónur eða guð má vita
hvað.“
Samkvæmt könnun Morgunblaðs-
ins sem birt var í gær kemur fram
að meðalverðið er eftir tegundum
frá 161 til 276 króhur á kílóið. Lægst
var verðið samkvæmt könnuninni
88 krónur og hæst 479 krónur.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, sagðist í morgun ekki gera sér
grein fyrir hvort verslunin væri að
taka til sín meira en eðlilegt væri.
Benti hann á að hátt verð út úr búð
skýrðist oft af miklum afíollum og
þar með gæti afrakstur kaupmanns-
ins verið mjög lítill þegar upp er
staðið.
Við stóra að eiga
„Hlutur smásöluverslunarinnar í
útsöluverðinu hefur verið að
stækka á undanförnum árum,“ seg-
ir Sigurbjartur. „t þessari sam-
þjöppun sem átt hefur sér stað í
smásölunni er það alveg klárt mál
að þeir hafa tekið sér stærri hluta af
heildarverðinu. Við njótum þess
alls ekki neitt. Við erum settir upp
við vegg enda við stærri og sterkari
kaupendur að eiga.
Þrátt fyrir allar kostnaðarhækk-
anir sem orðið hafa við framleiðsl-
una síðustu 15 árin erum við að fá í
krónutölu um 60% af þvi sem við
vorum að fá fyrir 15 árum. Að vísu
hafa búin stækkað og einhver hag-
ræðing náðst um leið og framleiðsl-
an hefur færst á færri hendur.
Raunverðið fyrir framleiðsluna til
okkar hefur hins vegar lækkað
verulega."
Sigurbjartur segir nánast útilok-
að fyrir kartöflubændur að selja
sína vöru beint. Hann segir að í dag
séu tveir aðilar langstærstir á
markaðnum í hópi kaupenda, Baug-
Sigurður
Jónsson.
DV-MYND NJORÐUR HELGASON
Kartöflubændur ekki öfundsverðir
Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi og stjórnarmaöur í Kartöfluverksmiðju
Þykkvabæjar hf„ segir kartöflubændur ekki öfundsveröa. Eftir frekar lélegt
uppskerusumar og fádæma vætutíð í september sé veröiö fyrir afuröirnar
mjög lélegt.
ur og Búr. Auk þeirra eru Samkaup
líka nokkuð stór kaupandi en sam-
anlagt segir hann að þessir þrír að-
ilar kaupi um 90% af allri kartöflu-
framleiðslunni.
- Hvernig gengur að láta enda ná
saman í rekstrinum?
„Það er bara mjög erfitt og nán-
asta ekki hægt. Ef eðlileg kostnaðar-
hækkun fæst ekki greidd i gegnum
afurðaverðið þá endar það bara á
einn veg. Það hefur verið að fækka
mjög ákveðið í greininni undanfar-
in ár og það koma ekki nýir í stað-
inn fyrir þá sem hætta vegna aldurs
eða hreinlega gefast upp.“ Sigur-
bjartur segir að nú séu eftir á svæð-
inu á milli 30 og 40 bændur.
Hvorki náðist í forsvarsmenn
Ávaxtahússins-Nýtt og ferskt ehf.,
sem annast að mestu innkaupin á
kartöflum frá bændum fyrir Baug,
né forsvarsmenn Búrs. Samkaup
kaupir lítið sem ekkert beint af
bændum heldur að mestu í gegnum
Búr. -HKr.
Nýgift hjón í Grafarvogi misstu allt innbú sitt í eldsvoða:
Biúðargjafirnar brunnu til ösku
Ung hjón, Sólrún Valdimarsdóttir
og Kristján Kristjánsson, misstu allt
sitt í eldsvoða síðastliðinn laugardag.
Þau bjuggu í Mosarima 16 í Grafar-
vogi, ásamt dóttur sinni 5 ára, Rögnu
Björg. Ungu hjónin voru nýgift, og
meðal annars sem þau máttu sjá á eft-
ir í klær eldsins voru allar brúðargjaf-
irnar sem þau höfðu fengið fyrir tæp-
um mánuði.
Það var nöturleg aðkoma þegar DV
hitti ungu hjónin í Mosarimanum i
gær. Búið var að hreinsa út alla bú-
slóðina sem var gjörónýt eftir eldsvoð-
ann. Það eina sem bar merki um að
einhvem tíma hefði verið búið í íbúð-
inni voru brunnin og sótug hreinlæt-
istæki og nokkrar sviðnar bamabæk-
ur i glugga herbergisins hennar
Rögnu Bjargar. Allt annað var farið,
gjörónýtt. íbúðin var kolsótug, glugg-
ar brotnir og allt útvaðandi í sóti og
bleytu.
„Við hjónin urð-
um samferða út á
laugardaginn,
nokkru áður en vart
varð við eldinn,"
sagði Kristján við
DV í gær. „Ég fðr á
landsleikinn, en Sól-
rún fór að versla í
Bónus. Þegar hún
kom til baka,
smeygði hún inn-
kaupapokanum inn
fyrir dymar og varð
þá einskis vör. Hún
fór síðan út á róló,
héma rétt fyrir
framan húsið. Skömmu siðar heyrði
hún í reykskynjara. Hún flýtti sér heim
og sá þá reyk koma út um svalagluggann.
Hún lagði lófann á útidyrahurðina en
fann engan hita svo hún opnaði. Þá gaus
kolþykkur reykur út á móti henni."
Þegar var hringt
á slökkviliðið og
tókst að ráða nið-
urlögum eldsins á
um það bil hálf-
tíma. Engu að sið-
ar var allt ónýtt í
íbúðinni sem eyði-
lagst gat. Hitinn
var gífurlegur, svo
mikill að heimilis-
tækin bókstaflega
bráðnuðu. Vitað er
að eldurinn kom
upp í þvottahúsi
sem var í miðri
íbúðinni, en ekkert
liggur fyrir með vissu um hver elds-
upptök voru.
Innbúið var tryggt, en Kristján sagði
að þær tryggingar dygðu í sjálfu sér
skammt. Fyrir utan innbúið hefðu til
dæmis allar brúðargjafirnar, sem þau
fengu á brúðkaupsdaginn 21. septem-
ber sl., brunnið, þar á meðal mörg mál-
verk og ýmsir munir aðrir sem aldrei
yrðu bættir. „Ég vil benda þeim á sem
lesa þetta að endurskoða tryggingar
sínar,“ sagði hann. „Fólk getur verið
tryggt, en ekki nógu vel.“
Þau Sólrún báðu fyrir þakkir til for-
eldra, systkina og vina sem hefðu veitt
þeim ómetanlega aðstoð. Hugur ná-
grannanna, bæði fullorðinna og bama,
hafði líka greinilega verið hjá fjöl-
skyldunni, því þegar hún birtist til að
ræða við DV í gær réttu vinir Rögnu
Bjargar henni poka með alls konar dóti
í, þar á meðal dúkkum og dúkkufótum.
Sjálf hafði hún haft mestar áhyggjur af
því vídeóspóla sem hún var með í láni
frá vini sínum hefði eyðilagst í eldin-
um. Hún var ekki í rónni fyrr en pabbi
hennar hafði sagt henni að hún þyrfti
ekki að hafa áhyggjur, nýrri spólu yrði
skilað með sóma og sann. -JSS
DV-MYND E.ÓLÞ.
Allt brunnið
Ungu hjónin, Kristján og Sólrún, í
ibúöinni í Mosarimanum í gær.
Dýr úrskurður
Útgjöld ríkisins
munu aukast um
hundruð milljóna
króna á ári vegna úr-
skurðar kjaranefnd-
ar um kjör heilsu-
gæslulækna þar sem
laun læknanna
hækkuðu um
17-20%. Aö sögn Jóns Kristjánssonar
heilbrigðisráðherra má lauslega áætla
að kostnaðaraukinn sé allt að 300
milljónir króna á ári. Mbl. sagði frá.
Vaxtalækkun
Seðlabankinn hefur ákveðið að
lækka vexti bankans gagnvart lána-
stofnunum um 0,3% þar sem verð-
bólguspár bankans eru að ganga eftir,
slaki á vinnumarkaði vex og horfur
eru á minni hagvexti árið 2003 en
spáð var. Eru vextir Seðlabankans nú
6,8%.
Hrókeringar
Ólafur Egilsson,
sem verið hefur
sendiherra í Kína,
flyst heim en Eiður
Guðnason, sem hef-
ur verið aðalræðis-
maður í Winnipeg,
kemur í hans stað.
Til Winnipeg fer hins
vegar Komelius Sigmundsson sem hef-
ur verið í Helsinki. Gunnar Snorri
Gunnarsson, fráfarandi sendiherra hjá
ESB, verður ráðuneytisstjóri.
Móðgandi tilboð
Mikil óánægja varð á Kirkjuþingi í
gær um tilboð kirkjumálaráðherra
vegna uppgjörs og afhendingar prests-
setra. Tilboðið hljóðar upp á 150 millj-
ónir króna og felur m.a. í sér að þjóð-
kirkjan afsali sér rétti til bóta fyrir
allar þær eignir sem gengið hafa und-
an prestssetrum meðan ríkið hafði
umsjón með þeim. Þótti tilboðið
móðgandi. Mbl. sagði frá.
Hraðskákmót
í kvöld kl. 20.30 verður opið hrað-
skákmót á Hótel Selfossi í boði Við-
skiptablaðsins. Meðal keppenda verða
meistararnir af Mjólkurskákmótinu.
Áhugamenn fá því frábært tækifæri
til að komast í návígi við þá.
Vill byggja á Balí
Gunnar Friðþjófsson, sem býr í
Noregi, áformar að byggja gistihús á
ferðamannaeyjunni Balí þar sem
mannskæðar sprengjuárásir voru
gerðar um helgina. RÚV sagði frá.
Halldór í aðgerð
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra gekkst undir
aðgerð á Landspítal-
anum i gærmorgun
vegna meins í
blöðruhálskirtli. Að-
gerðin heppnaðist
vel en Halldór verð-
ur í veikindaleyfi meðan hann er að
ná sér og ná fullri starfsorku.
Börnin hlýði
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, vill að sett verði í
barnalög ákvæði um að börnum beri
að hlýða foreldrum sinum.
Ákærðir
Ríkislögreglustjóri hefur gefið út
ákæru á hendur tveimur fyrrverandi
framkvæmdastjórum Sæunnar Axels
ehf. og framkvæmdastjóra inn- og út-
flutningsfyrirtækisins Valeikur ehf.
fyrir brot á tollalögum og almennum
hegningarlögum.
Valt með járn
Stór flutningabifreið með brota-
málm valt við vegamótin til Hvamms-
tanga mn miðjan dag í gær. Ökumað-
ur bifreiðarinnar hlaut áverka á eyra
og eymsli í öxlum og hálsi.
Vilja hlutlausan aðila
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borgarráði vilja að fenginn verði hlut-
laus aðili til að fara yfir fjárhagslegar
forsendur sem liggja til grundvallar
kaupverði á ljósleiðaraneti og tengd-
um kerfum Línu.Nets. Mbl. sagði frá.
-hlh