Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002
Fréttir DV
Varaformaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segir af sér:
Kveðst ekki hafa þolað
hroka formannnsins
Gylfi Svafar Gylfason, varafor-
maður Sjómannafélags Eyjafjarö-
ar og sjómaður á Árbaki EA-5, tog-
ara Útgerðarfélags Akureyringa,
sagði sig úr stjórn sjómannafé-
lagsins sl. föstudag. Gylfi segir að
við brottfór hafi hann látiö bóka
ýmis atriði þar sem Konráð Al-
freðsson, formaður félagsins og
varaformaður Sjómannasambands
íslands, hefur farið með ósannindi
og jafnvel hótanir og hroka auk
launamála hans sjálfs. Þessi deila
hafi staðið síðustu 16 mánuði og
nú sé mál að linni.
„Formaðurinn hefur í umræðu
um launamál sagt ósatt og reynt
þannig að fegra eigin stöðu og fela
staðreyndir. Hrokinn kemur m.a.
fram i þvi að hann lét þá skoðun í
ljósi að hann vildi reka sjómann
úr félaginu sem ekki hafi
fengið verkfallsbætur en
hugðist ná sínum rétti
með því að kæra félagið og
leita þannig réttar síns.
Maður heyrir stundum
svona orð hjá útgerðar-
mönnum en aldrei hjá for-
svarsmönnum stéttarfé-
laga sem eiga að gæta rétt-
ar þeirra sem eru í félag-
inu. Þessi sjómaður kærði
aldrei, lét líklega bugast. Ég hef
verið hvattur til þess aö bjóða mig
fram gegn Konráöi á næsta aðal-
fundi um næstu áramót, enda er
mikil óánægja ríkjandi innan
stjórnar og trúnaðarráðs með
störf formannsins. Það var vara-
maður í stjóm sem gerði það en
hann hefur skipt um skoðun af
einhverjum undarlegum
og óskiljanlegum ástæð-
um. Ég ætla alls ekki að
bjóða mig fram, hef fengið
nóg,“ segir Gylfi Svafar
Gylfason.
Engar skýringar
„Ég hef ekki skýringu
handa þér. Væntanlega
hefur Gylfi haft skýringar
á reiðum höndum en þú
verður að leita þeirra hjá honum.“
- Er það vegna ósættis við þig?
„Ég vil ekki tjá mig um það. En
það er stjórnarkjör um næstu ára-
mót og þangað til kemur maður úr
varastjórn inn í aðalstjórnina,"
segir Konráð Alfreðsson, formað-
ur Sjómannafélags Eyjafjarðar.
Nokkur óvissa og erfitt ástand
er ríkjandi nú um stöðu þeirra
sjómanna sem eru hjá Samherja,
að sögn Konráðs Alfreðssonar.
Togarinn Baldvin Þorsteinsson
fer úr rekstri, Kambaröstin verð-
ur seld, Hjalteyrin liggur við
bryggju á Akureyri, Margrétin
hættir á frystingu og fer á ísfisk-
veiðar og allt þetta þýðir látlausa
fækkun á mönnum um borð.
Reynt er að minnka róðrarlag hjá
öðrum til þess að koma öllum
þeim mannskap að sem útgerð
Samherja vill halda i. Nýr Baldvin
Þorsteinsson, sem áður hét
Hannover en kom nýr til landsins
á sinum tíma sem Guðbjörg ÍS,
kemur ekki til landsins fyrr en
um næstu áramót.
-GG
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Loksins uppstytta!
Eftir margra vikna rigningar
skein sól á íbúa suðausturhomsins
í morgun. Mikil flóð hafa herjað á
Austfirðinga að undanfömu enda
hefur ekki þornað á steini á þessum
slóðum lengi. Þegar íbúar Víkur
héldu til vinnu í morgun blöstu við
þeim gullin ský á himni. -SKH
Milljónir í húfi
Tilkynnt verður á Norðurlanda-
ráðsþing í Helsinki 29. október hver
hlýtur Kvikmyndaverðlaun Norður-
landaráðs í ár og þar með ávísun
hálfa fimmtu milljón króna. Tíu
norrænar myndir sem frumsýndar
hafa verið á sl. tólf mánuðum eru
tilnefndar, þar á meðal Hafið og
Mávahlátur frá íslandi. -GG
Sala á hluta af Arnarneslandi í Garðabæ:
Sjö aðilar kaupa land af Jóni
- málið kynnt í bæjarráði í gærmorgun
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar í
gærmorgun kynnti Gísli R. Rafns-
son hjá Teymi fyrir hönd nýrra
kaupenda eignarbreytingar sem
greint var frá i DV í gær á hluta af
svokölluðu Arnameslandi í Garða-
bæ. Jón Ólafsson fjármálamaður,
eða fyrirtæki hans, Byggingarfélag-
ið Amames ehf., keypti þetta land í
ársbyrjun 1999 á 680 milljónir
króna. Naut hann aðstoðar Lands-
banka íslands til kaupanna. Sam-
kvæmt heimildum DV er nú unnið
að frágangi á samningum upp á um
400 milljónir króna við sjö aðila um
kaup á landi af Amarnesi ehf. fyrir
lóðir undir 275 íbúðir. Búist er við
að þeirri samningsgerð ljúki á
næstu tveim vikum. Þangað til
verður biðstaða varðandi ákvörðun
bæjaryfirvalda varðandi fram-
Arnarnesland í Garöabæ
Ingimundur Sveinsson arkitekt hannaöi skipulag svæöisins en búist er við aö nýir eig-
endur syöri hluta landsins muni óska einhverra breytinga á deiliskipulaginu.
kvæmdaröö og framkvæmdahraða á
svæðinu.
Hilmar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Arnamess, staðfesti í gær að
kominn væri á bindandi samningur
um sölu á hluta landsins til verk-
taka. Landið sem selt er mun vera
allt það svæði í suðurhluta Arnar-
neslands sem skipulagt hefur verið
undir fjölbýlishúsa-, raðhúsa- og
parhúsalóðir, alls undir 275 íbúðir.
Samkvæmt samningsdrögum sem
hafa verið rædd við bæjaryfirvöld á
landið allt að byggjast upp á árun-
um 2003 til 2008. Þarna er gert ráð
fyrir samtals 416 íbúðum, þ.e. 168
íbúðum í íjöleignahúsum, 77 rað-
húsum, 30 parhúsum og 141 einbýl-
ishúsalóð. Ingimundur Sveinsson
arkitekt sá um skipulagsteikningar
af umræddu Arnarneslandi. -HKr.
Arnarnesvogur í Garðarbæ:
Framkvæmdir hafnar við bryggjuhverfi
- skapað pláss fyrir 760 íbúðir
DV-MYND ÞÖK
Nýtt bryggjuhverfi í Garðabæ í mótun
Svokallaöar Búkollur hafa unniö aö jarövegsflutningum aö undanförnu i Arnarnesvogi undir nýtt bryggjuhverfi sem þar
á aö risa. Veröur þarna um aö ræöa taisveröa landfyllingu en verkefnið mun komast á fullan skriö næsta vor.
Egill Jónsson, byggingarfulltrúi
Garðabæjar, segir framkvæmdir að
hluta hafhar við nýtt bryggjuhverfi
neðan við umrædd Amamesland Jóns
Ólafssonar við Amamesvog í Garða-
bæ. Það em Byggingafélag Gylfa og
Gunnars, eða BYGG ehf., og Björgun
hf. sem standa að uppbyggingu þessa
nýja hverfis. Búið er að fjarlægja stór-
byggingu skipasmiðastöðvarinnar Stál-
víkur sem þama var og verið er að
gera vamargarða með stórvirkum
vinnuvélum fyrir uppfyllingu á svæð-
inu. Ráðgert er að sanddæluskip dæli
efhi í uppfyOingu bak við vamargarð-
ana. Miðað er við að framkvæmdir
verði komnar á fuOan skrið næsta vor.
MOdar deUur stóðu um hugmyndir að
nýja bryggjuhverfinu. DeUt var m.a.
um umhverfisáhrif skerts útsýnis íbúa
i nágrenninu og meinta eyðUeggingu á
fiörunni og dýralifi í voginum.
Upphaflega var fyrhhugað að reisa á
landfyUingu 2000 manna íbúðabyggð og
áttu framkvæmdh að hefiast seinni
hluta ársins 2002 og þeim skyldi ljúka á
árunum 2006-2007. í matsskýrslu, sem
lá tU grundvaUar úrskurði Skipulags-
stofiiunar um svæðið, var kynnt 7,3
hektara landfyUing í Amamesvogi.
Átti hún að vera framlenging á núver-
andi 2,7 hektara landfyUingu sem not-
uð hefur verið sem skipakví. Athugun
Skipulagsstofnunar leiddi í ljós að
svæðið nyti bæjarvemdar og væri á
náttúruminjaskrá vegna sérstakrar
náttúru, landslags, umhverfis- og úti-
vistargildis. Einnig var bent á að fyrir-
hugað bryggjuhverfi væri ekki i sam-
ræmi við aðalskipulag Garðabæjar
1995-2015. Þó var með vísan tU ýmissa
skUyrða í niðurstöðu Skipulagsstofn-
unar faUist á minni landfyUingu í Am-
amesvogi. Bæjarstjóm samþykkti sið-
an að auglýsa landfyUingu sem er 2,5
hektarar en sú fyUing þurfti ekki að
fara í umhverfismat. Þar er gert ráð
fyrir samtals 760 íbúðum. Þar af eru
560 óskUgreindar íbúðh og 200 íbúðh
fyrir aldraða. -HKr.
50% daglegt áhorf á Aksjón
Samkvæmt nýlegri áhorfsmæl-
ingu GaUup horfa 52,1% áhorfenda
daglega á akureyrsku sjónvarps-
stöðina Aksjón. GaUup hefur síðast-
liðin 3 ár gert mælingar á áhorfi á
Aksjón og nú síðast með símakönn-
un á tímabUinu 12. september tU 3.
október sl. Mælingin var þannig
framkvæmd að spurt var hve oft
bæjarbúar stiUtu á Aksjón og stiUtu
aUs 88,8% einhvem tima á sjón-
varpsstöðina.
í haust var í fyrsta skipti mældur
lestur dagskrárheftis og spurt hvort
fólk læsi eða fletti Extra sem er ann-
að tveggja dagskrárrita sem gefin
eru út vikulega á Akureyri. 84,5%
aðspurðra lásu eða flettu dagskrár-
heftinu. -BÞ
Landsmótið undirbúið
Nú standa yfir stórframkvæmdh
við aðalíþróttavöllinnn á Sauðárkróki
vegna Landsmóts ungmennafélaganna
sem haldið verður í Skagafhði sumar-
ið 2004. Framkvæmdirnar miða að því
að gerð verður hlaupabraut með sex
brautum umhverfis knattspymuvöll-
inn og einnig aðstaða fyrh kastgrein-
ar og stangarstökk.
Að sögn Viggós Jónssonar, for-
manns framkvæmdanefndar, sem
hefur umsjón með framkvæmdinni,
er stefnt að því að ljúka sem mestri
jarðvegsvinnu í haust en frágangur
og snyrting á svæðinu verði næsta
sumar. -ÖÞ
Spenna í skákinni
Áttunda og næstsiðasta umferð
MjóUíurskákmótsins á Hótel Selfossi
var æsispennandi og lauk aðeins
einni af tíu skákum með jafntefli. í
meistaraflokki komst rússneski stór-
meistarinn Pavel Tregubov upp að
hlið Predrags Nikolic á Mjólkurskák-
mótinu á Selfossi með fimmta sigrin-
um í röð. Tregubov, sem varð Evr-
ópumeistari í skák 1999, sigraði hinn
unga Luke McShane á meðan bosn-
ísku ofurstórmeistararnir Sokolov
og Nikolic gerðu eina jafntefli
kvöldsins. Hannes Hlífar Stefánsson
sigraði Helga Ólafsson í uppgjöri ís-
lensku stórmeistaranna. -HK
RDGUM Á MDRGUN
Fáðu þér miða í síma 800 6611 eða á hhi.is
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings