Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002
I>v
6 fyrstu blööin ókeypis
og vönduö reiknivél aö gjöf...
ef þú svarar innan 10 daga!
Viöskiptablaöið er sent tii áskrifenda á hverjum
miðvikudagsmorgni, stútfullt af traustum fréttum og
fréttaskýringum úr íslensku og erlendu viöskiptalífi.
Vönduö blaöamennska þar sem byggt er á margra ára
reynslu og þekkingu.
Tryggðu þér einstakt áskriftartilboð og fáðu fyrstu
6 blöðin ókeypis og vandaða reiknivél að gjöf ef þú
tekur tilboðinu innan 10 daga!
Hringdu strax í sima 51 1.6622....................
eða skráðu þig á vb .ÍS!
Fréttir
Fulltrúi Vinstri grænna á Akureyri ósáttur við meirihlutann:
Segir meirihlutann
misgáfaðan
„Þetta eru ekki
bara vonbrigði
heldur kom þessi
afgreiðsla bæjar-
ráðs mjög á
óvart,“ segir Val-
gerður Bjama-
dóttir, fulltrúi
Vinstri grænna á
Valgerður Akureyri.
Bjarnadóttir. Meirihluti bæj-
arráðs á Akur-
eyri hefur lagst gegn tillögu Val-
gerðar um að ráðast I allsherjar-
könnun á launum allra starfsmanna
Akureyrarbæjar. Með tillögunni
var Valgerður að bregðast við könn-
un á launum æðstu stjómenda hjá
Akureyrarbæ en niðurstöður henn-
ar sýndu kynbundinn launamun,
konum í óhag. Bæjarráð samþykkti
með þremur atkvæðum gegn einu
að ekki væri að svo stöddu tilefni til
að ráðast i heildstæða könnun með-
al allra starfsmanna Akureyrarbæj-
ar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks greiddi atkvæði
gegn tillögunni, fulltrúi L-listans sat
hjá en fulltrúi Samfylkingarinnar
vildi fara að tillögu Valgerðar. Hún
hefur sjálf ekki atkvæðisrétt i bæj-
arráði og gat því ekki stutt eigin til-
lögu.
Valgerður telur að með ákvörðun-
inni hafi Akureyrarbær misst af
tækifæri til að kanna launamál
starfsmanna fyrir og eftir starfsmat
en innan skamms mun vinnu við
slíkt mat verða lokið hjá öllum
starfsmönnum bæjarins. „Ég taldi
að hér væri komið gullið tækifæri
til að meta áhrif þessarar einstöku
aðgerðar á launamuninn," segir
Valgerður og lýsir jafnframt von-
brigðum með að meirihlutinn
skyldi ekki tilbúinn að ræða neina
málamiðlun gagnvart tUlögunni.
„Bæjarstjórn hefði getað hafnað
tillögunni en ég taldi að með því að
vísa málinu til bæjarráðs væri
ákveðinn vilji til að gera eitthvað í
þessum málum en sá vilji virðist
ekki fyrir hendi,“ segir Valgerður.
Aðspurð hvort kostnaður við
launakönnunina hafi reynst fyrir-
staða segir Valgerður að þótt
svona athugun kosti e.t.v. um 3
milljónir króna verji bærinn öðr-
um eins fjárhæöum í eitt og annað
og misgáfulegt. Til dæmis séu
menn nú að slétta moldarhaug við
fjölnota íþróttahús og kosti það
starf á annan tug milljóna króna.
Gleymst hafi á sínum tíma að
hugsa fyrir því að slétta yrði úr
hrúgunni. -BÞ
Fasteignamarkaðurinn:
Mesta aukningin
í Kópavogi en
minnst í Bessa-
staðahreppi
Velta og fjöldi kaupsamninga í fast-
eignaviðskiptum á höfuðborgarsvæð-
inu jókst á þriðja íjórðungi ársins
2002 (júlí til september) borið saman
við sama tlma 2001. Þinglýstum kaup-
samningum íjölgaði úr 1.682 á þriðja
ársfjórðungi 2001 i 1.928 á sama tíma
2002, eða um 15%. Á sama tíma hefur
velta aukist úr 21,7 milljarði króna í
27,3 milljarði króna, eða um 26%.
íjöldi þinglýstra kaupsamninga
jókst um 4% á milli annars og þriðja
ársfjórðungs 2002 og veltan um 5% á
sama tíma. Kaupsamningum fjölgaði
úr 4.399 samingum fyrstu níu mánuði
ársins 2001 í 5.283 saminga fyrstu níu
mánuði ársins 2002, eða um 20%. Á
sama tíma jókst veltan um 61,2 millj-
örðum króna í 74,1 milljarð króna,
eða um 21%. í öllum sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu jókst velta og
fjöldi samninga fyrstu níu mánuði
ársins 2002 miðað við sama tíma árið
2001, mest 39% í Kópavogi en dróst
saman um 40% í Bessastaðahreppi.
Líkleg skýring í Bessastaðahreppi er
sú að þar er mjög takmarkað framboð
fasteigna. í Reykjavík fjölgaði samn-
ingum um 19% um 9% i Seltjarnar-
nesi, 16% í Mosfellsbæ, 20% I Hafnar-
firði og 6% í Garðabæ en þrátt fyrir
það er veltuaukning 33% í Garðabæ
meðan hún er 16% í Reykjavík og
39% í Kópavogi. -GG
DVJWYND GVA
Listaverk rifið niður
Listaverk úr tré var sett upp í hólma syöri Tjarnarinnar í Reykjavík um heig-
ina, eins konar turn meö konumynd. Höfundur er ókunnur sem og nafn
verksins eöa tilgangur þess. Verkiö haföi ekki veriö lengi í hólmanum áöur en
kæra barst til lögreglu. Fóru garöyrkjustarfsmenn borgarinnar út í hólmann I
gær og rifu verkiö niöur. Eftir því sem DV kemst næst þarf leyfi garöyrkju-
deildar fyrir listaverkum á staö sem þessum og haföi ekki veriö sótt um þaö.
Erlendir bókaútgefendur beina æ meira sjónum sínum til íslands:
Fylgjast grannt með
útkomu nýrra bóka
- segir Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi
„Bókamessan
verður skemmti-
legri fyrir ís-
lenska útgefend-
ur með hverju ár-
inu sem líður
vegna þess hve
erlendir útgef-
endur hafa mik-
inn áhuga á ís-
lenskum bók-
um,“ sagði Jó-
hann Páll Valdimarsson, bókaútgef-
andi hjá JPV forlagi, um nýafstaðna
bókamessu í Frankfurt.
Jóhann Páll sagði að þegar ís-
lenskir bókaútgefendur hefðu farið
á messumar í upphafi hefði enginn
látið sér detta í hug að bjóða ís-
Jóhann Páll
Valdimarsson.
lenskar bækur. Það hefði verið svo
vita tilgangslaust.
„Nú fylgjast erlendir útgefendur
grannt með því sem er að koma hér
út. Það er mjög ánægjulegt," sagði
Jóhann Páll. Hann sagði enn fremur
að þessar viðhorfsbreytingar til ís-
lenskra bóka mætti vafalaust rekja
til öflugs kynningarstarfs útgefenda
á undanfórnum árum. Þá mætti full-
yrða að íslenskir höfundar væru að
gera ekki síður spennandi hluti
heldur en erlendir kollegar þeirra.
„Við stöndum því tvímælalaust
jafnfætis hverjum sem er,“ sagði
hann.
Fjórir höfundar, sem JPV hefur á
sínum útgáfusnærum, hafa vakið
meiri athygli heldur en aðrir á bóka-
messunum. Þar má nefna Mikael
Torfason með bók sina Heimsins
heimskasti pabbi. Hún er að koma
út í Danmörku og Finnlandi í næsta
mánuði, svo og í Litháen eftir ára-
mót. Mjög margir aðrir útgefendur
sýna þessum höfundi áhuga. Vigdís
Grímsdóttir stendur traustum fótum
og hafa verk hennar notið gífurlegra
vinsælda í Svíþjóð og Finnlandi. Út-
gefendur frá öðrum löndum hafa
einnig sýnt áhuga á útgáfu verka
hennar. Þýskt forlag hefur gefið út
fjórar bækur eftir Guðberg Bergs-
son. Nú keypti það réttinn á 1. bindi
skáldævisögu hans. Loks sýndu
margir útgefendur sjálfsræktunar-
bók Önnu Valdimarsdóttur mikinn
áhuga á Frankfurtarmessunni. -JSS