Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Page 11
11
MIDVKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002
I>V Útlönd
Þjóðaratkvæðagreiðslan í írak:
Saddam fékk 100%
stuðning þjóðarinnar
- sumir merktu við „jáið“ með eigin blóði
kl/ Magnaðir
SKJÁR EINN miðvikudagar
mættur aftur!
Samkvæmt fréttum frá írak fékk
Saddam Hussein, forseti landsins,
100% útkomu úr þjóðaratkvæða-
greiðslunni í gær, um það hvort þjóð-
in vildi hafa hann áfram í forseta-
stólnum til næstu sjö ára og er það
0,04% aukning frá síðustu atkvæða-
greiðslu þegar hann fékk 99,96%
stuðning.
Alls nýttu 11.445.638 manns atkvæð-
isrétt sinn og greiddu þeir allir með
tölu ástkærum forseta sínum, sem var
einn í framboði, atkvæði sitt. Kosn-
ingin var einfóld og þurfti aðeins að
velja á milli ,já“ og „nei“ um það
hvort kjósendur vildu Saddam áfram
sem forseta.
Kjósendur höfðu verið hvattir til
þess að sýna samstöðu í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni og styðja við bakið
á leiðtoga sínum í baráttunni gegn
hugsanlegri árás Bandaríkjamanna og
Breta á landið og er ekki annað að sjá
_____________a*_________________
Handagangur við kosningaöskjuna.
en þjóðin standi saman í baráttunni ef
marka má úrslitin.
Á kjörstöðum var það helsta gaman
kjósenda að trampa á bandaríska fán-
anum og sumir gengu svo langt að
merkja við ,jáið“ með eigin blóði til
að sýna foringjanum hollustu sína.
Eftir á var dansað á götum úti og
sauðum slátrað til heiðurs Saddam.
Fyrir fram höfðu Bandaríkjamenn
lýst atkvæðagreiðslunni sem sjónar-
spili, eins og fyrst þegar þjóðin vottaði
honum hollustu sína árið 1995.
„Það er auðséð að það er lítil alvara
i þessu hjá þeim, allavega ekki hvað
varðar kosninguna, enda tekur eng-
inn mark á henni," sagði Ari Fleisch-
er, talsmaður Hvíta hússins.
Talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins tók í sama streng og sagði
lítið að marka kosningu þar sem að-
eins einn maður væri í framboði.
Maður sem þekktur væri fyrir að
myrða og pynta andstæðinga sína til
hlýðni. „Hver sá sem dirfist að bjóða
honum birginn missir alla vega tung-
una,“ sagði talsmaðurinn.
REUTERSMYND
Kínverjar fá sameinaða liti Benetton
ítalska tískuvöruhúsið Benetton opnaði risastóra versiun í kínversku borginni Shanghaí í morgun. Þetta er stærsta
verslun Benetton-fyrirtækisins í öllum heiminum og gera forráðamenn fyrirtækisins sér vonir um að njóta góðs af vax-
andi velsæld í Kína. Á myndinni eru þeir Wang Lu Yen, forstjóri Kínabúðarinnar, og Luciano Benetton.
Aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum í undirbúningi í Indónesíu:
Ástralar íhuga að setja fé til
höfuðs sprengjuvörgunum
Áströlsk stjómvöld íhuga að setja
fé til höfuös þeim sem bera ábyrgð á
sprengjutilræðinu á ferðamannaeyj-
unni Balí í Indónesíu á laugardags-
kvöld þar sem rúmlega eitt hundrað
og áttatíu manns týndu lífí. Taliö er
að flestir hinna látnu hafi verið frá
Ástralíu.
Stjómvöld í Indónesíu búa sig nú
undir að hrinda 1 framkvæmd að-
gerðaáætlun gegn hryðjuverka-
mönnum vegna tilræðisins. Banda-
ríkin og nágrannar Indónesa þrýsta
nú mjög á þá að taka á honum stóra
sínum. Aðstoðarmaður Megawati
Sukamoputri, forseta Indónesiu,
sagði í morgun að nýjar reglugerðir
yrðu settar eins fljótt og auðið væri.
Ýmis nágrannaríki hafa beitt sér-
stökum öryggislögum við handtök-
ur liðsmanna íslömsku öfgasamtak-
anna Jemaah Islamiah, sem hefur
REUTERSMYND
Grátið á Balí
Indónesísk konar grætur þegar hún
biður fyrir þeim er létust í sprengju-
ðrásinni á Balí á laugardagskvöld.
verið kennt um tilræðiö á Balí.
Múslímaklerkurinn Abu Bakar Bas-
hir, sem býr í Indónesíu, hefur ver-
ið sakaður um að leiða hópinn.
Hann vísar hins vegar á bug öllum
slíkum fullyrðingum.
Ástralar ætla að þrýsta á að sam-
tökin verði sett á lista Sameinuðu
þjóðanna yfir hryðjuverkahópa.
Budi Setuawan, lögreglustjóri á
Balí, vildi í morgun hvorki staðfesta
né neita fréttum í Washington Post
um að fyrrum liðsmaður indónes-
íska flughersins hefði gengist við
því að hafa gert sprengjurnar sem
notaðar voru á laugardag.
Indónesískir rannsóknarmenn,
sem kanna hugsanleg tengsl al-Qa-
eda-hryðjuverkasamtaka Osama bin
Ladens við árásina á Balí, hafa yfir-
heyrt tvo Indónesa og fundið leifar
af sprengiefni.
Ný þáttaröð af Mótor hefur göngu
sína á SKJÁEINUM miðvikudaginn
16. okt. kl. 19.30. Nýr liðsmaður
Mótors er Karl Gunnlaugsson
Formúluspekúlant og ökukappi,
sem ásamt Halldóru Maríu
Einarsdóttur og Njáli Gunnlaugssyni
færir áhorfendum nýjustu fréttir úr
mótorheimum, skoðar forvitnileg
farartæki og fylgist með fífldjörfum
og framtakssömum ökumönnum.
Guinness
World
Records
i m i
Day Leno
Judging Amy kl.23.40 ©