Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 13
13 _______________________________________•_________Viðskipti Umsjón: Viðskiptablaðið Heildarafli hefur aukist um 167 þúsund tonn MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 DV Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 8.717 m.kr. Hlutabréf 681 m.kr. Húsbréf 3.237 m.kr. MEST VIÐSKIPTI ( Kaupþing 382 m.kr. €:- Pharmaco 96 m.kr. Össur 57 m.kr. MESTA HÆKKUN O Íslandssími 7,5% © Auölind 0,9% © Kaupþing 0,8% MESTA LÆKKUN Q Sjóvá-Almennar 2,3% Q Pharmaco 2,0% © Landsbankinn 0,8% ÚRVALSVÍSITALAN 1.310 - Breyting -0,38% Vilhjálmur ráðinn forstjóri Tanga hf. Vilhjálmur Vilhjálmsson hefur ver- iö ráðinn framkvæmdastjóri Tanga hf. og tekur viö starfinu af Friðriki Guðmundssyni 1. nóvember nk. Vilhjálmur Vilhjálmsson hefur gegnt starfi skrifstofustjóra Tanga hf. frá ársbyrjun 2001. Áður hefur Vil- hjálmur m.a. starfað hjá LÍÚ 1986- 1994, þar sem hann sá m.a. um stjórn- un og skipulag á útflutningi á ísuðum fiski og var hann framkvæmdastjóri Aflamiðlunar í 4 ár. Vilhjálmur starf- aði hjá Fiskafuröum hf. 1994-1998 og sá þar m.a. um kaup og sölu á fiskaf- urðum. Þá rak Vilhjálmur eigið fyrir- tæki, m.a. útgerð 1998-2000. Vilhjálmur er fæddur 1953. Hann lauk verslunarskólaprófi 1972, far- mannaprófl frá Stýrimannaskólanum í ReyKjavík árið 1976 og útgerðar- tækni frá Tækniskóla Islands árið 1980. Skipulagsbreyting- ar hjá Olíufélaginu í framhaldi af mótun nýrra stefnu- miða Olíufélagsins ehf. hefur verið ráðist í breytingar á skipulagi félags- ins. Helstu breytingar frá fyrra skipu- lagi felast í skarpari sýn tekjusviða Olíufélagsins á markaðs-, sölu- og þjónustuhlutverk en áður hefur verið. Þá er skipulag stoðdeilda einfaldað, starfsþróunardeild færð beint undir forstjóra og hið sama gildir um elds- neytisinnkaup. Breytingarnar miða að því að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins og skapa því skilyrði til að eflast og vaxa í takt við ný stefhumið og síbreytilegt samkeppn- isumhverfi. „Samrunar og yfirtökur" Stjórnunarvika Stjómvísi stendur nú yfir og lýkur á fimmtudaginn og er yfirskrift hennar „Samrunar og yfir- tökur“. Það er óhætt að segja að yfir- töku- og samrunaalda hafi riðið yfir heiminn á síðustú árum og er ísland þar ekki undanskilið. Nýlegt dæmi um sameiningaröldu kemur úr sjávar- útveginum á íslandi en þar hafa farið fram margar sameiningar og yfirtök- ur á síðustu mánuðum og er því ferli ekki lokið. Áhrif slíkra samruna og sameininga geta verið margvísleg á þjóðfélagið og ekki hvað síst á við- komandi fyrirtæki og starfsmenn þeirra. Markmiðið með þessari viku er að fjalla bæði um efnahagsleg og stjórnunarleg áhrif þessara þátta. Á ráðstefnu sem haldin verður á morg- un á Hótel Loftleiðum verður fjallað um hlutverk og reynslu stjórnenda. Ráðstefnan hefst með ávarpi Þorkels Sigurlaugssonar frá Eimskip. Þá tek- ur til máls Hilmar B. Janusson, þró- unarstjóri Össurar, og fjaliar hann um reynslu Össurar af yfirtöku. Þar á eftir flytur Hulda Dóra Styrmisdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og kynn- ingarmála Islandsbanka, mál sitt um reynslu íslandsbanka af sameiningu. Eftir kaffihlé fjallar Reynir Jónsson, ráðgjafi IMG Deloitte, um samruna- stjórnun - lykilatriði til árangurs. Að síðustu talar Erna Amardóttir, starfs- mannastjóri hjá Hug hf., undir yfir- skriftinni: „Ég bað ekki um þessar breytingar". Heildarafli landsmanna á fyrstu níu mánuðum ársins er orðinn 1.862.970 tonn sem er 167.000 tonn- um meiri afli samanborið við sama tímabil á árinu 2001. Heild- arafli botnfisktegunda er orðinn rúmlega 346 þúsund tonn og nem- ur aflaaukningin 12.561 tonni. Uppsjávarafli ársins 2002 er orð- inn 1.445.544 tonn, flatfiskaflinn 28.443 tonn og skel- og krabba- dýraaflinn 42.714 tonn. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu íslands um fiskaflann í september sl. Fiskaflinn í septem- ber var 109.960 tonn samanborið við 117.898 tonn i septembermán- uði árið 2001 og nemur samdrátt- urinn alls 7.939 tonnum. Botnfiskafli var 37.249 tonn embermánuði 2001, sem er aukn- ing um rétt rúm 1.900 tonn. Af þorski veiddust 17.030 tonn en þorskafli var 1.053 tonnum meiri nú en í septembermánuði í fyrra. Karfaafli var 3.451 tonn, aukning um 228 tonn, og úthafskarfaafli um 3.609 tonn frá fyrra ári. Af flatfiski bárust 3.260 tonn á land en í septembermánuði í fyrra veiddust 2.818 tonn og er munur- inn 441 tonn. Af veiði einstakra tegunda má nefna að 1.436 tonn veiddust af sandkola, aukning um 89 tonn frá fyrra ári, og 1.011 tonn af skarkola sem er aukning um 231 tonn frá fyrra ári. Af kolmunna veiddust rúmlega 44.000 tonn sem er samdráttur um tæp 14 þúsund tonn samanborið við septembermánuð 2001. Alls veiddust tæplega 19.500 tonn af síld samanborið við rúmlega 16.000 tonna afla í september í fyrra. Engin loðna barst á land í september í ár sem var einnig raunin í fyrra. Skel- og krabbadýraafli var 5.901 tonn, þar af var rækjuaflinn 3.373 tonn, kúfiskur 1.614 tonn og hörpudiskur 883 tonn. í september 2001 var skel- og krabbadýraaflinn 5.844 tonn og aflinn því 57 tonnum meiri nú en þá. FÆRÐ ÞÚ FERÐAVINIMIIXIG? LUKKUMIÐI FYLGIR ÞES5U BLAÐI!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.