Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002
Tilvera DV
Gates segir
Jordan ljúga
Hin tandurhreina poppstjarna
Gareth Gates segir þaö örgustu
lygi hjá hinni íturvöxni Jordan
aö þau hafi átt í ástarsambandi,
en Jordan hélt því nýlega fram í
viðtali að hún hefði átt í leyni-
legu ástarsambandi við Gates
þegar hann var sautján ára.
„Hann var eins og kanínukarl
sem sleppt var inn í kanínubúr í
fyrsta skipti,“ sagði Jordan um
Gates sem er trúrækinn í meira
lagi.
„Hún gerir sér þetta upp og það
er mér algjörlega hulin ráðgáta
af hverju hún er að búa þetta
til. Ég þekki hana ekkert hef að-
eins einu sinni hitt hana, en það
var á EHe Style-verðlaunahátíð-
inni í síðasta mánuði,“ sagði
Gates sem fyrst varð frægur eft-
ir að hafa komið fram í sjón-
varpsþættinum Pop Idol.
Jordan sagði í viðtalinu að
-Qates liefði tertð hreimi sveiim
þegar ástarævintýrið byrjaði.
„Þetta var mjög indælt þótt
hann hefði ekki neina reynslu.
Ég varð að kenna honum öll
töfrabrögðin,11 sagði Jordan.
Madonna fær
skelfilega dóma
Nýjasta mynd Guy Ritchies,
Swept Away, sem eiginkona
hans, poppdrottningin
Madonna, fer með aðalhlutverk-
ið í, fær skelfilega dóma í
bandarískum blöðum.
Þetta fyrsta sameiginlega kvik-
myndaverkefni hjónanna nær
ekki einni einustu stjörnu hjá
gagnrýnendum stærri blaðanna
sem segja hana bæði viðvan-
ings- og hallærislega, auk þess
sem frammistaða Madonnu sé
það slakasta sem til hennar hef-
ur sést á hvíta tjaldinu.
Myndin er endurgerð ítalskrar
myndar frá árinu 1974 og segir
frá ofurríkri, illgjarnri, giftri
konu sem lendir í hafvillum á
skútu sinni og skolar síðan upp
á eyðieyju í Miðjarðarhafi
ásamt skútukarli sínurn.
Þar verður „ríka tíkin“ eins og
gagnrýnendur kalla konuna sem
leikin er af Madonnu, háð hjálp-
semi sjómannsins sem endar
með ástarævintýri og til-
heyrandi senum sem einn gagn-
rýnenda segir helst minna á
mislukkað brúðuleikhús.
Heitt og Kalt opnað við Grensásveg:
Var átta ára þegar ég
ákvað framtíðarstarfið
- segir Brynjar Eymundsson matreiðslumeistari
„Hún er lífseig þessi matreiðslu-
baktería. Fyrir ári seldum við hjón-
in Veisluna á Setjamamesi og ætl-
uðum að snúa okkur að einhverju
allt öðru en matargerð en það liðu
ekki margir mánuðir þar til við vor-
um farin að svipast um eftir nýju
eldhúsi og nýjum pottum,“ segir
Brynjar Eymundsson matreiðslu-
meistari sem í síðustu viku opnaði
veitingastaðinn Heitt og Kalt að
Grensásvegi 10, ásamt konu sinni
Elsu Guðmundsdóttur. Þar eru þau
með fyrstu sérverslun landsins með
heita og kalda rétti til að kippa með
sér - eða snæða á staðnum við bar-
borð út við glugga. Einnig fyrsta
súpubar landsins, svo og salatbar og
heita og kalda rétti af hlaðborði sem
hægt er að velja úr eftir vild og eru
þrenns konar verð i gildi, eftir því
hversu stórtækir menn eru. Það
heyrir einnig til nýjunga í svona
þjónustu. „Hér stílum við upp á
hraða hádegisafgreiðslu og höfum
opið fram til hálfníu á kvöldin en
lokað um helgar, nema í hádeginu á
laugardögum," segir Brynjar og
bætir við að á boðstólum séu meðal
annars heilsuréttir og að staðurinn
sé reyklaus. Salurinn tekur 80-90 í
sæti. Hann hefur létt yfirbragð og
sægrænn skenkur með ávöxtum og
skrauti setur á hann listrænan blæ.
Kokkur fjórtán ára
Vertamlr
Brynjar og Elsa vita aö leiöin aö hjarta fólks liggur gegnum magann
Brynjar er Homfirðingur og
kveðst stoltur af þvl að vera fyrsti
Austur-Skaftfellingurinn sem lærði
matreiðslu. „Þarf maður virkOega
að læra í fjögur ár til að henda ýsu
í pott og sjóða selspekið" spurði
gamall vinur minn, Þorbjöm Sig-
urðsson, og þóttist hneykslaður þeg-
ar ég var kominn út á þessa braut!“
segir Brynjar hlæjandi. En hvað
skyldi hafa komið til að hann fetaði
hana? „Ég hafði alltaf svo mikinn
áhuga á mat og átta ára var ég bú-
inn að ákveða framtíðarstarfið. Ég
byrjaði 14 ára sem kokkur á sjó og
var í því embætti í fjögur ár áður en
ég byrjaði að læra.“ Hann kveðst
hafa farið í Reykholt í gagnfræða-
próf 17 ára og eftir að hafa spjallað
við námsráðgjafa var kúrsinn settur
á matreiðslunámið.
Bíógagnrýni
Brynjar hefur mikla reynslu í feikilega vinsæll veitingastaður í
mörg ár.“ Veislan vár fyrirtæki sem
Brynjar stofnaði frá grunni og rak í
13 ár. Þar stóð Elsa við hlið hans
enda lærð smurbrauðsjómfrú og
með kokkamennskuna í blóðinu.
Faðir hennar, Guðmundur Þórðar-
son, var þekktur bryti á skipum
Eimskipafélagsins um áratuga
skeið, meðal annars á Gullfossi
þann tíma sem hann sigldi um
heimsins höf undir merkjum Eim-
skips.
matreiðslu og spurður hvort hann
hafi ekki ævinlega verið með eigin
rekstur svarar hann án yfirlætis.
„Jú, ég byrjaði fljótlega að brölta í
því. Setti upp kaffihús í Bankastræt-
inu 1980 en það er nú varla til hróss
eða frásagnar. Það hét Sæluhúsið og
þar hóf Svenni bakari sitt veldi því
ég leigði honum reksturinn en var
sjálfur með veitingarekstur í Félags-
heimili Kópavogs.“ Þegar veitinga-
húsið Halti haninn í Bankastræti
breyttist í Gullna hanann kveðst
Brynjar hafa gerst yfirkokkur þar.
„Þá upphófst ákaflega skemmtilegt
timabU," segir hann með blik í
brúnum augum. „Áður en ár var
liðið vorum við með tví-og þrísetið á
hverju einasta kvöldi. Haninn var
Kostaði krónu
Nafnið Heitt og Kalt á sér langa
sögu þótt hlé hafi orðið á notkun
þess. Upp úr 1930 var veitingastaður
með því nafni starfræktur í Hafnar-
stræti í Reykjavík og eftir gömlum
blaðagreinum og auglýsingum að
dæma gekk hann glimrandi vel um
tíma. Matarskammturinn kostaði
krónu og Brynjar segir einn gest
hafa komið til sín sem hafi keypt
sér máltíð þar á þeim kjörum. Heitt
og Kalt var með rekstur á tveimur
hæðum í Hafnarstrætinu en fyrir-
tækið Einar J. Skúlason var að
hefja sinn feril i kjallaranum. Nú er
hið nýja Heitt og Kalt á neðstu hæð
við Grensásveginn en Einar J.
Skúlason breiðir úr sér á öðrum
hæðum þar fyrir ofan. „Svona eru
tilviljanirnar," segir Brynjar bros-
andi. Segir nafnið hafa strax heillað
sig og konu sína. „Það á vel við og
hefur víða skírskotun því flest er
annaðhvort heitt eða kalt, meira að
segja samskipti fólks.“ _ -Gun.
Smárabíó/Regnboginn - Proof of Life ic i
Blóðugt uppgjör hjóna
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Enough er kvikmynd þar sem allt
snýst um stórstjömuna sem fer með
aðalhlutverkið enda er það hún sem
á að selja myndina. í þessu tilfelli er
þaö Jennifer Lopez. Handritið virð-
ist vera skrifað fyrir hana og ef svo
ólíklega vill til að það sé ekki raun-
in þá er því breytt til að Lopez fá að
njóta sín. Svo ber myndin þess
merki að ýmsar breytingar hafa
verið geröar á miðri leið. Úr verður
hrærigrautur þar sem við fáum að
kynnast Jennifer Lopez sem þjón-
ustustúlku á veitingastað, ham-
ingjusamri konu sem gift er ríkum
manni, elskandi móður, fómar-
lambi líkamsárása eiginmannsins,
eiginkonu á flótta með bam sitt,
endurborinni konu með nýtt nafn,
dóttur milljónamærings sem í
fyrstu vill ekkert með hana hafa,
dugmiklum nemanda í einkatímum
í sjálfsvöm og hefndarengli sem
snýr vöm í sókn.
Það hljóta allir að sjá að eigi að
koma öllu þessu á framfæri í tæp-
lega tveggja tíma kvikmynd er ekki
mikið pláss fyrir aðrar persónur.
Eiginmaðurinn, sem Billy Campbell
leikur, fær þó aðeins að njóta sín,
enda verður að koma því á framfæri
af hverju við þurfum að kynnast öll-
um þessum hliðum á Jennifer Lopez
eða Slim eins og hún heitir í mynd-
inni. Campbell sýnir sterkan og góð-
an leik í hlutverki „dramnaprins-
ins“ sem fellir grímuna þegar Slim
stendur hann að framhjáhaldi.
Nú er Jennifer Lopez ekki slæm
leikkona og margt verra hefur sést
heldur en leikur hennar í Enough.
Það er samt sem áður frekar erfitt
að ímynda sér konu með jafn klass-
ískt og glæsilegt útlit og Jennifer
Lopez í hlutverki eiginkonu sem
beitt er misþyrmingum af eigin-
manni sínum. Lopez er meira á
heimaslóðum þegar Slim snýr vöm
í sókn, komin í svarta bardagagall-
ann og tilbúinn að gera út um mál-
in. Þá er líka komin fram allt önnur
persóna en við kynntumst í byrjun.
Michael Apted, leikstjóri Enough,
er fær leikstjóri með mikla reynslu
að baki. Hvort sem um er að ræða
dramatískar myndir, spennumyndir
eða heimildarmyndir, sem fáir gera
betur, er hann góður fagmaður.
Gera verður ráð fyrir að hann hafi
fengið feitan launatékka fyrir að
leikastýra Enough. Apted gerir það
sem hægt er í björgunarskyni og
hann nær stundum að byggja upp
spennu í kringmn flótta Slims. Það
nægir samt ekki til að koma mynd-
inni yfir erfiðasta hjallann sem er
ofmat á Jennifer Lopez.
Lelkstjórl: Michael Apted. Handrit:
Nicholas Kazan. Kvikmyndataka: Rogier
Stoffers. Tónlist: David Arnold. Aöalleik-
arar: Jennifer Lopez, Billy Campbell, Juli-
ette Lewis, Fred Ward og Noah Wyle.