Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Page 29
MIÐVKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 29 Laufey og Rakel í Val Val hefur borist liðs- styrkur í kvennaknatt- spyrnunni. Laufey Ólafs- dóttir og Rakel Logadótt- ir, sem báðar léku með ÍBV í sumar sem leið, hafa ákveöið að leika uppi á fastalandinu á næsta tímabili. Þær stöll- ur eru öllum hnútum kunnugar á Hlíðarenda en þar léku með Val áð- ur en þær fóru til Eyja. Valsstúlkur eru til alls líklegar næsta sumar en áður hafði Guðbjörg Gunnarsdóttir mark- vörður gengið í Val úr FH. -JKS Rafpostur: dvsport@dv.is Oliver Kahn, markvörður Bayern Munchen og þýska landsliðsins, er að íhuga að hætta að leika með landsliðinu, þrátt fyrir að hart sé lagt að honum að halda áfram fram yfir HM 2006, sem haldin verður í Þýskalandi. Hann segist ímynda sér að að hætta með lands- liðinu sé einhvers konar frelsun og segist alveg geta hugsað sér að minnka við sig og leika annars staðar en með Bayem Munchen. Enska knattspyrnuliöid Barnsley hefur rekið framkvæmdastjóra sinn, Steve Parkin. Hann tók við af Nigel Spackman í nóvember síð- astliðnum en hann náði ekki að koma 1 veg fyrir að liðið félli í 2. deild I vor. Barnsley lék í úrvals- deildinni keppnistímabilið 1998-99 en féll þá um vorið. Þýska liðið Essen, sem þeir félag- ar Patrekur Jóhannesson og Guðjón Valur Sigurðsson leika með, drógust gegn slóvakíska lið- inu MSK Povazská Bystrica í EHF- keppninni í handknattleik. Fyrri leikurinn verður í Slóvakíu. Lærisveinar Alfreðs Gislasonar í þýska handknattleiksliðinu Mag- deburg leika í riðlakeppni meist- aradeildar Evrópu. Liðið leikur i A-riðli með Fotex Vesprem frá Ungverjalandi, Wisla Plock frá Póllandi og gríska liðinu Panellin- os AC Athens. Fyrsti leikur Mag- deburgar, sem eru núverandi Evr- ópumeistarar, verður gegn griska liðinu I Aþenu 9. nóvember. Þess má geta að Magdeburg og Fotex Vesprem mættust í úrslita- leik meistaradeildarinnar á sl. vori. Fotex vann sinn heimaleik meö þremur mörkum en Mag- deburg vann á heimavelli með fimm mörkum og tryggði sér titil- inn. Svíinn Pierre Thorsson og félagi Guðmundar Hrafnkelssonar hjá ítalska handknattleiksliðinu Con- versano átti sér þann draum að liðið drægist á móti sænska lið- inu Sávehof í Evrópukeppninni. Hann var þó sáttur þegar í ljós kom að hann fengi íslandsferð. i staðinn. David Batty er ekki á leiðinni frá Leeds United eins og sögusagnir hafa verið um upp á síðkastið. Umboösmaður hans skýrði frá þessu í gærkvöld. -JKS/PS jt IBV-Fylkir 34-20 1-0,7-1,10-4,11-8, (14-10), 1S-10,21-11,26-13,31-18, 34-20. ÍBV: Mörk/viti (skot/víti): Sylvia Strass 11 (15), Anna Yakova 7 (11), Alla Gorkorian 6/3 (11/3), Ingibjörg Jónsdóttir 4/1 (8/1), Edda Eggertsdóttir 3 (3), Birgit Engl 2 (6), Elísa Siguröardóttir 1 (1). Mörk úr hraöaupphlaupunv 10 (Sylvia 4, Anna 3, Ingibjörg, Alla, Edda). Vitanýting: Skoraö úr 4 af 4. Fiskuó vítL’ Ingibjörg 2, Birgit 2. Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís Siguröardótt- ir 21 (41/3, hélt 12,51%). Brottvísanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Júlíus Sigurjóns- son og Magnús Bjömsson (8). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 95. Best á vellinum Sylvia Strass, ÍBV Fvlkir/ÍR’ Mörk/víti (skot/víti): Sigurbima Guðjónsdóttir 7 (15), Hekla Daöadóttir 5/3 (16/3), Valgeröur Áma- dóttir 4 (4), Hulda Karen Guömundsdóttir 2 (4), Soffía Gísladóttir 1 (2), Inga Jóna Ingimundardótt- ir 1 (3), Lára Hannesdóttir (1), Hrönn Kristinsdótt- ir (1), Tinna Jökulsdóttir (1). Mörk úr hraóaupphlaupunv 2 (ValgerÖUT, Soff- ía). Vitanýting: Skoraö úr 3 af 3. Fiskuó vitv Hekla 2, Inga Jóna. Varin skot/víti (skot á sig): Erna María Eiríks- dóttir 11 (39/3, hélt 4, 28%), Ásdís Benedikts- dóttir 0 (6/1). Brottvisanir. 4 mínútur. Þjálfarar íslensku liðanna sáttir með mótherja sina í Evrópukeppninni: Ótrúleg tilviljun - segir Guðmundur Hrafnkelsson en félagar hans frá Ítalíu drógust gegn Haukum í gær var dregið á Evrópumót- unum í handknattleik en tvö ís- lensk lið, Haukar og Grótta/KR, voru í hattinum en drátturinn fór fram í Vínarborg. Haukar, sem leika í keppni bikarhafa, drógust gegn ítalska liöinu Papillon Con- versano í 3. umferð og eiga Hauk- arnir fyrri leikinn á Ítalíu. Guð- mundur Hrafnkelsson landsliðs- markvörður leikur með ítalska liðinu sem hefur nokkra aðra er- lenda leikmenn á sínum snærum. Grótta/KR dróst gegn Desportiv Francisco de Holanda frá Portú- gal og eiga Gróttumenn fyrri leik- inn á heimavelli. Þetta er draumadráttur í okkarhuga „Við erum mjög ánægðir og þetta er draumadráttur i okkar huga. Það er eins og við höfum fengið að velja okkur mótherja. Það verður spennandi og gaman að mæta Guðmundi Hrafnkels- syni og bara hann mun eflaust draga að áhorfendur. Það er tví- mælalaust viss kostur að eiga fyrri leikinn á útivelli en þá vit- um viö alveg að hverju við göng- um í seinni leiknum heima í Hafnarfirði. Ef við berum saman íslenskan og ítalska handbolta þá eigum við að klára þetta dæmi en ég veit ekki alveg enn þá hversu sterkt ítalska liðið er. Við höfum verið heppnir með mótherja í Evrópukeppninni á síðustu tveim- ur árum og á því varð engin breyting að þessu sinni,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, í samtali við DV eftir dráttinn í gær. Viö eigum góða möguleika gegn Haukunum „Ég var mjög ánægður þegar ég heyrði um dráttinn en þetta er ótrúleg tilviljun að þetta hafi gerst. Það er erfitt að meta þessi lið saman vegna þess að ég hef ekkert séð til Haukaliðsins lengi. Ég get þó ekki annað séð en að við eigum góða möguleika en það er viss ókostur samt að eiga fyrri leikinn á heimavelli. Þetta verða alveg örugglega hörkuleikir og ég hlakka til að koma til íslands," sagði Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður Papillon Conversano, í spjalli við DV. Conversano er sterkara en á síöasta tímabili Guðmundur sagði að allt hefði veriö lagt undir fyrir tímabilið að liðið næði sem besum árangri í vetur og liðið væri þó nokkru sterkara en í fyrra. Fjórum um- ferðum er lokið í ítölsku 1. deild- inni og hefur Conversano unnið þrjá leiki og tapað einum. Guð- mundur meiddist á undirbúnings- tímabilinu og lék af þeim sökum ekki fyrstu tvo deildarleikina með liðinu. Hann hefur náð sér alveg og hefur varið markið i síðustu tveimur leikjum. Með Conversano leika flmm út- lendingar. Auk Guðmundar eru það Svíinn Pierre Thorsson sem leikur í hægra horninu. Hann á að baki um 200 landsleiki með sænska landsliðinu en leikur ekki lengur með því. Hann lék í nokk- ur ár í Þýskalandi en fór til ítalska liðsins í fyrra. Þá leikur Júgóslavinn Blazo Lisicic stöðu örvhentrar skyttu, Króatinn Zvonimir Bilic er rétthent skytta og landi hans Igor Vori er á lín- unni. Skiptir sköpum aö veröa sér úti um upplýsingar „f fljótu bragði líst okkur bara vel á þennan portúgalska and- stæðing. Þarna er greinilega á ferð mjög sterkt lið en það er sem stendur í öðru sæti í 1. deildinni þar í landi. Það segir okkur vissa sögu um styrkleika liðsins en með því leika eingöngu atvinnumenn sem gera ekkert annað en að æfa og spila handbolta. Ég veit annars lítið um þetta lið en Daninn Lars Walter, sem lék á sfnum tíma með KA, ætlar að reyna að útvega mér upplýsingar um liðið. Hann lék í Portúgal fyrir nokkrum árum en er umboðsmaður í dag. Þaö skipt- ir sköpum finnst mér að verða sér úti um upplýsingar en þá vitum við betur hvað við erum að fara út í. Við getum þó gefið okkur það að þetta verður erfitt dæmi en um fram allt skemmtilegt og lær- dómsríkt fyrir liðið. Óneitanlega hefði veriö þægilegra að eiga síð- ari leikinn á heimavelli en það þýðir ekkert að vera velta sér upp úr þvi núna,“ sagði Ágúst Jó- hannsson, þjálfari Gróttu/KR, þegar drátturinn lá ljós fyrir í gær. Fyrri leikirnir á Evrópumótun- um fara fram helgina 9.-10. nóv- ember en síðari viðureignirnar viku síðar. -JKS || glÍ ", • ' \W jm, Æ" 'jgf*. * " f / 12 j, | |“ifc »i| f, r lCELA ND*,R Ajk mSmm* tiýir n trzfMf ± É Guðmundur Hrafnkelsson er að leika sitt annaö tímabil með ítalska fiðinu Papillon Conversano. Hann segist hlakka mikið til að fara til íslands. Símadeild kvenna í handknattleik: Samkvæmt bókinni - þegar ÍBV sigraði Fylki/ÍR, 34-20 Eyjastúlkur, sem eru með fullt hús stiga í Essodeildinni, tóku á móti nýliðunum úr Fylki/ÍR sem hafa farið frekar rólega af stað í deildinni og voru enn án stiga fyrir leikinn í Eyjum. Munurinn á liðunum var þónokkur en engu að síður sýndu gestirnir ágæta takta, sérstaklega í fyrri hálfleik. ÍBV sigraði hins vegar í leiknum með fjórtán mörkum, 34-20. Eyjastúlkur byrjuðu af miklum krafti, skoruðu fyrstu sex mörk leiksins og virtust ætla að stinga af strax á upphafsmínútunum. En leikmenn Fylkis/ÍR spýttu í lófana og með Sigurbirnu Guð- jónsdóttur í broddi fylkingar söx- uðu þær á forskotið og náðu því niður í þrjú mörk skömmu fyrir leikhlé en heimastúlkur áttu síð- asta orðið í hálfleiknum. Byrjuöum af krafti en hættum síðan Eyjastúlkur byrjuðu hins vegar seinni hálfleikinn eins og þann fyrri, skoruðu níu mörk úr tíu fyrstu sóknunum á meðan að lít- ið gekk hjá gestunum. Sylvia Strass var í algjörum sérflokki hjá ÍBV í seinni hálf- leik, skoraði þá níu mörk og dreif liðið áfram. Vigdís Sigurðardótt- ir átti einnig góða spretti í marki ÍBV en best hjá gestunum var áð- urnefnd Sigurbirna Guðjónsdótt- ir. Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV, var ánægð með sigurinn hjá sínu liði. „Við byrjuðum af miklum krafti en svo hættum við að spila sem lið um miðjan fyrri hálfleik- inn. Það kemur líklega upp hálf- gert vanmat hjá okkur en deildin er bara þannig að um leið og þú vanmetur andstæðinginn þá er ekki von á góðu. Fylkir/ÍR kom mér skemmtilega á óvart í þess- um leik, þær voru að spila vel og þetta eru mjög efnilegar stelpur," sagði Unnur. -jgi deildin Staöan í Essodeild kvenna: ÍBV 7 6 0 0 201-141 14 Stjaman 6 4 1 1 131-108 9 Haukar 6 4 0 2 173-129 8 Grótta/KR 6 4 0 2 116-118 8 Valur 6 4 0 2 124-127 8 Víkingur 6 3 0 3 119-106 6 FH 6 2 1 3 135-123 5 KA/Þór 7 2 0 5 153-170 4 Fylkir/ÍR 6 0 0 5 96-161 0 Fram 6 0 0 6 115-180 0 Næstu leikir: Stjarnan-Fram ... 18. okt. kl. 18.00 Víkingur-Haukar . 18. okt. kl. 18.00 Fylkir/ÍR-FH.......18. okt. kl. 20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.