Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 2
18 MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 Sport x>v Mánudagurinn 11. nóvember 2002 Efni DV- Sports í dag Utan vallar, fréttir 0 Víötal við Hilmar Björnsson 0 Formúla eitt Viötal viö Stefán Arnarson 0 Körfuboltaúttekt 0 Körfuboltaúttekt Essodeild kvenna © Essodeild kvenna 0 Kvennakarfa © Essodeild karla Essodeild karla og Haukar í Evrópukeppni © Enska knattspyrnan © Enska knattspyrnan © Enska knattspyrnan © Evrópuknattspyrnan Evrópuknattspyrnan ^ NBA-deildin © Unglingamót í sundi © Unglingamót í sundi 0 Amerískur fótbolti Veiöisíöa Baksíöa A heimsmælikvarða „Rúnar stóð sig rosalega vel. Hann er búinn að ganga í gegnum mörg áföll undanfarin misseri sem tengjast þjálfuninni en er að ná sér á strik núna eftir að hafa átt erfitt með að klára síðustu mót. Það gekk allt upp á bogahestinum og hann var að sýna æfmgar á heimsmælikvarða. Rúnar er í mjög góðu formi, hann er léttari en oft áður og það kom honum til góða um helgina," sagði Ásdís Pétursdóttir, þjálfari íslenska liðsins, í samtali við DV-Sport í gær. „Við höfðum gert okkur vonir um að Sif Pálsdóttir næði í úrslit í einhverjum áhöldum hjá stelpunum en hún veiktist og náði sér ekki á strik. En þessar 11-12 ára stelpur stóðu sig engu að síður frábærlega." -vig Miklu sterkara en mótið í fyrra „Þetta mót um helgina var miklu sterkara en mótið í fyrra. Við erum með ungt lið svo að það var kannski ekki búist við miklu þannig að þetta var framar vonum. Maður hafði samt alltaf smávegis væntingar til Bjarna og hann stóð heldur betur undir þeim og vel það,“ segir Sævar Sigursteinsson, annar af tveimur þjálfarum ís- lenska liðsins. „Bjarni vann allar viðureignir sínar á ippon og gerði allt saman rétt. Hann var í gríðarlega sterkum flokki þannig að þetta er glæsilegur árangur hjá honum," segir Sævar í samtali við DV-Sport. -vig Norður-Evrópumótið í fimleikum fór fram í Stokkhólmi um helgina: Frábært hjá Rúnari - sigraði á tveimur áhöldum og hlaut einkunnina 9,7 fyrir æfingar á bogahesti Rúnar Alexandersson, fimleika- maður úr Gerplu, náði frábærum ár- angri á Norður-Evrópumótinu í fim- leikum sem fram fór um helgina. Rúnar varð í öðru sæti í fjölþraut sem keppt var í á laugardaginn og hlaut 52,10 í samanlagða einkunn. Svíinn Micheal Hjort sigraði með 52,70 stig. Rúnar keppti síðan til úrslita í þremur greinum seinni keppnisdaginn, í gær, á boga- hesti, í hringj- um og á tvíslá. Það er skemmst frá þvi að segja að Rúnar sigraði með yfir- burðum á bogahesti og hlaut 9,7 fyrir æfingar sín- ar. Næstur kom svo Michael Hjort frá Svíþjóð með 9,35 og í 3. sæti varð Svíinn Anders Pett- ersson með 9,15. Rúnar hafnaði í þriðja sæti í hringjum með 9,2 en þar varð sigur- vegari Olli Torkel frá Finlnlandi með 9,60. í öðru sæti kom síðan Janne Simola frá Finnlandi með 9,45. Rúnar deildi síöan gullverðlaun- unum á tvíslá með Michael Hjort, þeir hlutu báðir einkunnina 9,10. í þriðja sæti varð síðan Janni Tanskanen frá Finnlandi með 8,45. Á heildina litið er þetta frábær ár- angur hjá Rúnari og virðist hann í feiknaformi um þessar mundir. Það er löngu orðið Ijóst að þeg- ar allt gengur upp hjá Rúnari er hann klárlega einn af fremstu fimleika- mönnum heims. Aörir keppendur íslands komust ekki i úrslit á einstökum áhöldum. í liðakepninni á laugardeginum gekk ágætlega hjá körlunum og enduðu þeir í fimmta sæti með 135,50 stig. Lið Svía sigraði með 153,90 stig eftir harða keppni við Finna sem komu næstir með 153,55 stig. íslenska liðið var skipað ungum fimleikamönnum og stóðu þeir sig mjög vel þrátt fyrir að komast ekki í úrslit á einstökum áhöldum. Næstsíðastar Kvennaliðið lenti í næstsíðasta sæti í liðakeppninni og hlaut 89,925 stig. Lestina ráku síðan frændur vorir Danir. íslensku stúlkurnar eru mjög ungar og óreyndar og vakti það athygli áhorfenda í Stokkhólmi hversu frambærilegar fimleikakon- ur þær voru miðað við ungan aldur. Engin af stelpunum komst í úrslit á einstökmn áhöldum og kom það ekki á óvart. Engu að síður glæsilegur árang- ur hjá íslenska lið- inu sem á fram- tíðina fyrir sér. -vig Beinn sími: ............... 550 5880 Ljósmyndir. ............... 550 5845 Fax:....................... 550 5020 Netfang:.............dvsport@dv.is Fastir starfsmenn: Henry Birgir Gunnarsson (henry@dv.is) Jón Kristján Sigurðsson (jks.sport@dv.is) Óskar 0. Jónsson (ooj.sport@dv.is) Óskar Hrafit Þorvaldsson (oskar@dv.is) Pjetur Sigurðsson (pjetur@dv.is) Rúnar Alexandersson vann gull á bogahesti á Noröur-Evrópumótinu í Svíþjóö um helgina. Júdó: Eitt gull I Finnlandi - Bjarni Skúlason vann -90 kg flokkinn íslensku keppendurnir náðu stórgóðum árangri á opna finnska meistaramótinu í júdó sem fram fór um helgina. Bjarni Skúlason vann gullverð- laun i -90 kg flokki og vann allar sínar glímur á ippon. Bjarni hef- ur dvalið i Japan síðustu 2 mán- uði og virðist að sögn Sævars Sig- ursteinssonar, annars þjálfara ís- lenska liðsins, vera í betra formi en nokkurn tímann áður. Þær Anna Soffia Víkingsdóttir og Gígja Guðbrandsdóttir, sem báðar keppa í -70 kg flokki, kepptu báðar um bronsverðlaun en höfnuðu i 5. sæti. Segir Sævar að þar megi að mestu kenna reynsluleysi um en þess má geta að Gigja er aðeins 17 ára gömul. Keppendur frá 24 löndum Alls voru það 274 keppendur frá 24 löndum sem tóku þátt í mótinu um helgina. Var mótið nú í fyrsta skipti flokkað sem B- mót Evrópska júdósambandsins sem þýðir að þetta er næst-sterkasta mótaröð sem völ er á. í fyrra náðist mjög góður ár- angur á sama móti þar sem is- lendingarnir nældu sér í fern verðlaun. Þá hafði EJU ekki samþykkt mótið sem B-mót þannig að mótið var ekki eins sterkt og í ár. Eu árangur liðsins er alls ekki síðri í ár ef tekið er mark á hversu mikið af sterkum keppendum var mætt til leiks. Um næstu helgi fer fram al- þjóðlegt mót í Svíþjóð og verða átta af landsliðsmönnum íslands áfram í æfingabúðum í Finnlandi fram að mótinu. Segist Sævar vonast eftir sambærilegum ár- angri í Svíþjóð. „Þetta er ekki eins sterkt mót og í Finnlandi en auðvitað verður ekkert gefið að ná betri árangri þar. Við vonum lika að Vernharð Þorleifsson verði orðinn klár þá en hann gat ekki verið með okkur nú um helgina vegna meiðsla," segir Sævar að 4 lokum. -vig Utan vallar Keflvíkingar hljóta að vera hæstánægðir með lífið í körfunni þessa dagana. Það er ekki nóg með að karlamir séu komnir á mikið skrið eftir rólega byrjun og stelp- umar séu taplausar í fyrstu sex umferðunum heldur fá þeir fyrstu úrslitaleiki tímabilsins heim til sín. Já, Keflavík verður á heimavelli í komandi undan- og úrslitaleikjum Kjörísbikars þrátt fyrir að hafa á engan hátt unnið til þess með frammistöðu sinni inni á vellinum. Þeir eru ekki íslandsmeistarar, þeir eru ekki bikarmeistarar og þeir eru ekki Kjörísbikarmeistar- ar. Heimavöllufinn er liðum oft dýr- mætur og þeirra besta vígi. Körfu- boltinn er þar ekkert öðmvísi og deildarkeppnin snýst aðallega um þaö að vinna sér inn heimavallar- rétt í komandi úrslitakeppni. Ég endurtek að vinna sér inn heima- vallarréttinn. Þegar leikmenn og þjálfarar eru beðnir um að nefha óskamótherja í bikarkeppninni er þaö heimaleikur nefndur til sögunnar miklu frekar en eitthvert liðið. Það er ekki að ástæðulausu. Heimavöllurinn gerir oft útslagið í mikilvægum og jöfn- um leikjum. Körfuknattleikssambandið gerði vel í því að setja af stað fyrirtækja- bikarkeppni haustið 1996 en með þessari keppni sem um leið er ólík hinum þremur (deild, úrslita- keppni og bikar) auk þess sem hún setur upp einn aukatopp á tímabil- inu. Með þeirri ákvörðun að leyfa einu liðanna í hópi hinna fjögurra fræknu aö spila, ekki einn heldur tvo leiki, á heimavelli er hreinlega verið að spilla inntaki og hugsjón þessarar keppni sem vom bæði sótt í háskólakörfuboltann í Banda- ríkjunum. Þær eru tvær af aðal- ástæðum fyrir því að þessi keppni gengur upp og skapar sér sérstöðu á körfuboltatímabilinu. Það er í framhaldinu alveg eins hægt-að afhenda Keflvíkingum bik- arinn fyrir keppnina, annað væri hreinlega klúöur hjá þessu frábæra liði sem mætir til leiks með frábært Oskar Ofeigur Jónsson íþróttafréttamaöur á DV-Sporti segir sína skoðun lið og góða forgjöf á önnur lið keppn- innar. Leikstaðurinn, íþróttahúsið á Sunnubraut, er í raun ekkert til um- ræðu hér. Húsið er mjög vel til þess fallið að hýsa úrslit sem þessi, Kefl- víkingar voru stórtækir í sumar og settu glæsilegt og löngu þarft parket á gólfið og gerðu það enn betri kost til að hýsa stórleiki sem þessa. Leik- staðurinn sem slíkur er því í góðu lagi ef Keflvíkingar hefðu misst af því að komast alla leið í undanúrslit- in. Með þessari undarlegu ákvörðun er enn fremur fordæmið gefið. Þessi keppni, sem upphaflega átti að enda með viðhöfn í Laugardalshöllinni, eins og stendur í reglugerð hennar, er orðin heimilslaus eftir þriggja ára skammtímaveru í Smáranum í Kópa- vogi og nú er að sjá hvort fleiri lið fá keppnir körfuknattleiksins heim til sín á næstunni. Hvemig þau fara að því er kannski orðinn mesta keppnin í fyrirtækjabikarkeppni KKÍ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.