Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 3
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 19 segir Hilmar Björnsson sem gekk nýverið til liðs við sína gömlu félaga í KR Knattspyrnumaðurinn Hilmar Bjömsson, sem leikið hefur með liði FH í Símadeiidinni undanfarin tvö keppnistímabil, ákvað nú fyrir skemmstu að söðla um og gekk hann til liðs við KR, liðið sem hann ólst upp hjá og spilaði með í yngri flokk- unum. Hilmar segir í samtali við DV-Sport að 'máltakið „einu sinni KR-ingur, alltaf KR-ingur“ eigi vel við þegar kemur að því að skýra þá erfíðu ákvörðun á yfirgefa Hafnar- fjarðarliðið. Erfitt að skilja við FH „Það var aldrei erfið ákvörðun að fara í KR en það var erfitt að fara frá FH þar sem ég átti mjög góða tíma og kynntist mörgu góðu fólki. En ég hef ailtaf sagt við sjálfan mig að ég myndi klára ferilinn hjá KR og mér fannst þetta rétti tímapunkturinn til að fara í félagið sem ég ólst upp hjá.“ Nú hefur þú tvisvar oróiö bik- armeistari meö KR en aldrei is- landsmeistari. Er þaó einhver hluti af skýringunni; aó þig lang- ar aö vinna íslandsmeistaratitil- inn áöur en skórnir eru lagöir á hilluna? „Nei, það er ekki svo. FH-liðið er mjög sterkt og verður án efa ofar- lega á næsta ári. Maður stefnir alltaf að því að vinna titla og þá er sama með hvað liði spilað er. En ég var hjá KR í 20 ár og hef alltaf haft sterk- ar tilfinningar til þess og eftir að Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, tal- aði við mig komst ég að þeirri niður- stöðu að þetta væri rétti tímapunkt- urinn til aö fara til KR. Mér líst mjög vel á KR-liðið og ég hef alltaf haft mikla trú á Willum sem þjálfara. Ég bý í vesturbænum og á marga góða vini í liðinu. Hann hafði samband við mig í fyrra en þá var ég samningsbundinn FH, reynd- ar með klásúlu um að mega fara ef að þjálfaraskipti yrðu sem síðan urðu, en ég ákvað að virða minn samning við FH. Svo hafði KR aftur samband núna í haust og þá var ég laus allra mála. Núna erum við byrjaðir að æfa og það eru mjög spennandi tímar fram undan og það verður án efa mjög skemmtilegur tími í vesturbænum á næstu keppnistímabilum.“ Er Willum aö hugsa þig sem bakvörð eóa má búast við því að sjá þig í gömlu stööunni, hœgri kantinum, nœsta sumar? „Ég held að hann hugsi mig sem bakvörð en mér er í sjálfu sér alveg sama hvar ég spila. Það skiptir engu máli. Það skiptir mestu máli að liðið spili vel og sigri í sem flestum leikjum." Nú hafa KR-ingar veriö aö styrkja sig verulega undanfarnar vikur. Þú ert ekkert á því aö þaö œtti bara aö vera formsatriöi að vinna deildina á nœsta tímabili? „Nei, alls ekki. Það er náttúrlega alveg gefið mál að það verður gríð- arlega erfitt að verja tiltilinn. Leikjafjöldinn hjá KR ætti að vera meiri á næsta tímabili heldur en nú i ár. KR hefur verið að detta út í 16- liða úrslitum í bikamum siðustu þrjú ár og stefnan er náttúrlega að komast lengra þar. Svo er það líka Evrópukeppnin sem spilar þar inn í þannig að það verða fleiri leikir ef aiit er eðliiegt. Svo hefur liðið líka misst leikmenn, Þorsteinn Jónsson t.d., og svo er það spuming meö Þormóð Egilsson fyrirliða en vonandi mætir hann aftur tii leiks. Það er nauösynlegt að hafa sterkan hóp tii að keppa á ölium vígstöðvum.“ Er þaó markmiö hjá Willum að reyna aö ná langt i Evrópukeppn- inni á nœsta ári? „Við höfum nú ekki farið út í það að setja okkur markmið enn sem komið er en auðvitað emm við í undankeppni meistaradeildarinnar þar sem ýmislegt getur gerst. Það eru miklir fjármunir í húfi og ég held að alla langi að standa sig sem best í Evrópukeppninni." Lærði bakvörðinn úti Hilmar fór í ársbyrjun 1998 til sænska liðsins Helsingborg og var þar til mála næstu tvö tímabil. Hann lenti strax á undirbúningstímabil- inu í meiðslum og átti erfitt með að festa sig í sessi eftir það og fékk lít- ið að spreyta sig. En telur Hilmar þann tíma hafa verið vonbrigði og hefur það aldrei komið í spilin að reyna aftur við atvinnumennskuna? „Ég lít ekki á þennan tíma sem vonbrigði. Ég kom þama inn i lið sem var eitt það besta á Norðurlönd- unum á þessum tíma. Fyrsta árið sem ég var úti varð liðið sænskur bikarmeistari og lenti í öðru sæti í deildinni. Árið eftir varð liöið síðan sænskur meistari og enn síðar var liðið í meistaradeiidinni. Þetta var því gríðarlega sterkt lið og í dag er mest af þessum mannskap atvinnu- menn hjá stórum liðum, t.a.m. í Þýskalandi. Auðvitað hefði ég viijað fá fleiri tækifæri og var oft frekar pirraður en ég var hjá liði sem ein- faldiega allt gekk upp hjá. Mér hefði liðið öðruvísi ef þetta hefði verið lið um miðja deild. En ég sé ekki eftir þessum tíma. Eitt jákvætt er t.d. það að þeir kenndu mér að spila bak- vörð sem ég hef gert síðustu tvö keppnistímabil. En það hefur einhvem veginn aidrei komið til tals að fara aftur út. Þetta er aiitaf erfitt þegar maður er kominn með fjölskyldu og að þurfa að rífa alit upp til að prófa eitthvað annað freistar min ekki. Mér líður vel hérna heima og ætla mér bara að vera hér heima." En aö íslensku deildinni. Hvern- ig fannst þér boltinn siöastliðiö sumar? „Ef ég hugsa ftjótt til baka þá fannst mér einhverra hluta vegna töluvert meira af fallegum mörkum skorað í sumar en undanfarin ár. Hvort spymugeta leikmenna er orð- in betri eða hvað það er get ég ekk- ert sagt til um en þetta er eitthvað sem var eftirtektarvert. Síðan fannst mér þetta vera mjög misjafnt eftir liðum. Mér fannst sum liðin vera að reyna að spila fótbolta á meðan önn- ur lið vora að spila frekar leiðinleg- an bolta. En það eru stigin sem telja alltaf að lokum," segir Hilmar Bjömsson. -vig Sport Af Hilmari Björnssyni Hilmar er fæddur 13. maí 1969 og verð- ur því 34 ára við upphaf næsta tímabils. Hilmar er hluti af hinum sigursæla 1969-árgangi i KR en auk hans voru í honum þeir Rúnar Kristinsson, Heimir Guðjónsson og Þormóður Egilsson, svo einhverjir séu nefndir til sögunnar hér. Hilmar hefur leikiö 186 leiki í efstu deild og hefur hann leikið þá fyrir þrjú félög, 116 leiki fyrir KR, 44 fyrir FH og 26 leiki fyrir Fram. Ails hefúr Hilmar leikið 212 meistaraflokksleiki fyrir KR og er hann 15. leikjahæsti leikmaður fé- lagsins frá upphafi. Hilmar lék sinnfyrsta leik með meist- araflokki KR í keppni á vegum KSÍ í júlí 1988. Hilmar kom þá inn á sem vara- maður í seinni hálfleik í bikarleik á Sauðárkróki þegar staðan var 3-0 fyrir Tindastól. Innkoma Hilmars gerbreytti leiknum og KR-ingar náðu að jafna hann. Það var aftur á móti Eyjólfur Sverris- son sem tryggði norðanmönnum sigur- inn með sínu öðru marki í leiknum en Eyjólfur átti þátt i öllum mörkum Tindastóls i leiknum. Hilmar vann sér hins vegar með frammistöðunni sæti í byijunarliðinu í næsta leik gegn Þór sem varð hans fyrsti leikur í efstu deild. Fyrsta mark Hilmars í efstu deild kom gegn Skagamönnum á KR-vellinum 2. júlí 1990. Hilmar fékk þá stungusend- ingu frá Bimi Rafnssyni þremur mínút- um fyrir leikslok og skoraði. Ails hefur Hilmar skorað tólf mörk í efstu deild, tíu fyrir KR-liðið og svo tvö fyrir Fram. Hilmarfór utan sem atvinnumaður til sænska liðsins Helsingsborg í ársbyrjun 1998 en það er óhætt að segja að at- vinnumennskan hafi ekki verið dans á rósum því hann náði aðeins að leika einn leik á Alisvenskan áður en hann var lánaður heim tii Framara í júní 1999. Hilmar hefur leikió þrjá landsleiki á ferlinum og í þeim er íslenska landslið- ið bæði taplaust (2 sigrar, eitt jafntefli) og hefur ekki fengið á sig mark (marka- talan 2-0). Hilmar byrjaði inni á í ein- um leik og kom inn á sem varamaður í öðrum. Hilmar á nú ifórum sínum fimm silf- urverðlaun á íslandsmótinu í knatt- spymu en á enn eftir að vinna íslands- meistaratitilinn. Hilmar varð í öðru sæti með KR-liðinu 1990, 1992, 1995 og 1996, og svo með FH sumarið 1993. Hann hefur hins vegar unnið bikarinn tvisvar með KR (1994 og 1995). Þaó er þó óhœtt að segja að HUmar sé líklegur tU að brjóta þann ís næsta sum- ar enda hafa KR-ingar unnið þrjá ís- landsmeistaratitta á síðustu fjórum ár- um og auk þess styrkt meistaralið sitt mjög mikið. -ÓÓJ Gef enn þá kost á mér í landsliðið Hilmar á að baki þrjá A- landsleiki í gegnum tíðina, árið 1994 kom hann inn á í sigurleik gegn Bólivíu og skömmu síðar var hann í byrjunarliöinu þegar ísland bar sigurorð af Sádi- Arabíu. Árið 1997 kom Hilmar síðan inn á sem varamaður í leik gegn Sádi-Arabíu sem endaði með markalausu jafntefli. Á undanfórnum árum hefur HUmari ekki verið gefið tækifæri í landsliðinu að nýju, tækifæri sem hann að margra mati verðskuldar, þar sem hægri bakvarðarstaðan hefur verið mikiU AkkUesarhæll landsliðsins undanfarin misseri. Hilmar segist ekki mundu hika við það að skella sér út í það verkefni ef Atli óskaði eftir hans kröftum. Jú, það er ekki spuming. Það er náttúrlega gífurlega mikUl heiður að spUa fyrir. hönd íslands. Mér hefur gengið vel undanfarin tvö ár og það er bara eitthvað sem verður að koma í ljós. Ef Atli telur sig þurfa á mér að halda þá er það bara gott mál en ég er ekkert að velta mér upp úr þessum hlutum. -vig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.