Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 4
20
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
Sport____________________________________________________________________________dv
Þýska karfan
um helgina:
Jón Arnór
stigahæstur
í sigurleik
Jón Arnór Stefánsson skoraði
21 stig og varð stigahæsti maður
Trier i 91-90 sigurleik á Bayer Gi-
ants Leverkusen í þýsku
Bundesligunni en þetta var annar
sigurleikur liösins í röð eftir aö
þeir sex fyrstu töpuðust hjá liöinu
í haust. Með þessum sigrum hefur
Trier-liðið komið sér af botninum
og er nú í 12. sæti af þeim fjórtán
liðum sem skipa þýsku Bundeslig-
una. Auk stiganna gaf Jón Arnór
4 stoðsendingar í leiknum en
hann hitti úr 4 af 6 þriggja stiga
skotum sínum.
Á tveimur topplistum
Jón Arnór er meðal efstu
manna í tveimur tölfræðiþáttum
eftir fyrstu átta umferðimar í
þýsku Bundesligunni.
Jón Amór hefur hitt úr 45,5%
þriggja stiga skota sinna (15 af 33)
og er þar þriðji á listnum á eftir
Finnanum Markku L,arkio (48%)
og Steve Ibens (46,2%).
Jón Amór hefur siðan geflð 4,0
stoðsendingar að meðaltali í leik
auk þeirra 14,4 stiga sem hann
hefur skorað. Aðeins þrír leik-
menn í þýsku Bundesligunni hafa
gefið fleiri stoösendingar að með-
altali sem eru frábærar tölur hjá
tvítugum strák á sínu fyrsta ári í
deildinni.
Logi og félagar
í Ulm töpuðu
Logi Gunnarsson og félagar í
Ulm í suðurhluta þýsku 2. deild-
arinnar í körfubolta máttu sætta
sig við 85-93 tap fyrir USC
Heidelberg. Þetta var aðeins
annaö tap liðsins 1 vetur en
þýddi að liðið datt niður í 8.
sæti. Logi varð í þriðja sæti í
kjöri besta leikmanns Ulm í
október-mánuði.
Björninn fyrstur
til að vinna SA
Bjöminn sigraði Skautafélag
Akureyrar með 5-3 á íslandsmót-
inu í ishokkí í Skautahöllinni á
lauagrdagskvöldið. Þetta var
fyrsti tapleikur Akureyringa í
vetur og þeir eru enn efstir í
deildinni með 8 stig, en Bjöminn
og Skautafélag Reykjavíkur hafa
bæði 4 stig.
Bjöminn hafði yfir eftir fyrsta
leikhluta, 3-2, í öðrum leikhluta
skoruðu bæði liö sitt markið
hvort en í þeim þriðja gerðu
Bjamarmenn síðan út um leik-
inn með tveimur mörkum.
Jónas Breki Magnússon skor-
aði tvö mörk fyrir Bjöminn og
þeir Sergi Zak, Birgir Hansen og
Brynjar Þórðarson skoruðu sitt
markið hver. Rúnar Rúnarsson
skoraði þrennu og þar með öll
mörk norðanmanna. -ÓÓJ
Þann 28. október síðastliðinn
voru tilkynntar í London, breyting-
ar á keppnisreglum Formúlu 1
kappakstursins af þeim Max
Mosley, forseta samtakanna, og
Bernie Ecclestone, eiganda sjón-
varpsréttarins. Óhætt er að segja aö
niðurstaða fundarhalda keppnisliða
og stjómenda kappakstursins hafi
ekki veriö í neinu samhengi við
þær tiiiögur sem á borðum voru fyr-
ir fundinn, en þær voru í meirá lagi
róttækar þar sem þyngdarforgjöf og
ökumannsskiptingar komu til tals.
Niðurstaðan er hins vegar sú að
timatökur sem ákvarða rásröð
keppenda verða með öðru fyrir-
komulagi en áður ásamt því sem
stigagjöf og prófanir verða með öðr-
um hætti en undanfarin ár. Það
kann að hljóma undarlega að það
þurfi að breyta keppnisreglum sem
gengið hafa til margra ára í jafn
sögulegri og vinsælli keppni og For-
múla 1 er, en fáheyrð velgengni
Ferrari á síðasta ári, og ekki hvað
síst Michaels Schumahcers sem
vann ellefu af sautján keppnum árs-
ins, varð til þess að vinsældir og
áhorfstölur minnkuðu þegar líða fór
á árið. Til að jafna leikinn og reyna
að koma í veg fyrir að annað eins
keppnistímabil verði endurtekið,
hefur FIA tekið málin í sinar hend-
ur.
Tvöfaldar tímatökur
Helstu og viðamestu breytingarn-
ar hafa verið gerðar á tímatökunum
sem hingað til hafa verið ein
klukkustund á laugardegi þar sem
hver ökumaður hefur fengið tólf
hringi til að aka á sem bestum tíma
í brautinni. Tímatökumar hafa nú
veriö færðar yfir á tvo daga.
Klukkutími milli eitt og tvö á föstu-
degi og annar á sama tíma á laugar-
degi, en aðeins einn hraður hringur
í hvort sinn á hvern ökumann.
Þetta eru miklar breytingar fyrir
bæði áhorfendur og ökumenn sem
nú mega hvorki verða fyrir vélarbil-
unum né gera mistök á þessum
tveim dýrmætu hringjum sem
ákvarða rásstööu þeirra fyrir
kappaksturinn á sunnudeginum.
Það má ekkert út af bregða ætli þeir
að fá keppnisrétt, því 107% reglan
verður áfram við lýði og verður
henni hiklaust beitt og undanþágur
ekki veittar nema við sérstakar að-
stæður. í flestum tilfellum er grip
brauta meira eftir því sem líður á
tímatökur og hafa reglusmiðir FIA
nýtt sér það til hins ýtrasta með þvi
að láta stigastöðu ökumanna í
heimsmeistarakeppninni ráða nið-
urröðun á hringi ökuþóranna.
Þannig fer forystumaður stiga-
keppninnar fyrstu ferð á föstudegi
þegar gripið er hvað minnst, í þeirri
von um að honum farnist ilia. Nið-
urstaða föstudagstímatökunnar
kemur til með að ákveða niðurröð-
un laugardagsins þar sem hægasti
maður fer í fyrstu ferð, og sá hrað-
asti síðustu. Með þessu vonast Max
Mosley til þess að rásröð ökumanna
verði með öðrum hætti en ella, og
hraðari ökumenn lendi jafnvel í
lægri rásstöðum og þurfi þar af leið-
andi að vinna sig upp. Það þýðir
vonandi meiri framúrakstur.
Nýtt stigakerfi
Núverandi stigakerfi Formúlu 1
hefur verið notað síðan 1991 og hef-
ur fært sigurvegara tíu stig, en
þeim sem næstur kemur aðeins sex.
Þetta er mikill munur og er hluti af
þeirri staðreynd að Michael
Schumacher gat tryggt sér heims-
meistaratitil sinn i Frakklandi þeg-
ar sex keppnir voru eftir af móta-
röðinni þar sem hann vann nærri
allar keppnir fram að því. Nýjar
reglur FIA hafa innleitt nýja stiga-
gjöf þar sem átta fyrstu ökumenn-
irnir fá stig. Sigurvegarinn fær
áfram tíu stig fyrir unna keppni,
næsti átta, þriðji fær sex, fjórði
fimm, fimmti fiögur, og svona koll
af kolli þar til sá áttundi fær eitt
stig. Þetta kemur tii með að jafna
leikinn miiii ökumanna og ekki síst
bæta keppnina á miili þeirra liða
sem að jafnaði fengu ekki stig fyrir
að klára næst á eftir þrem bestu lið-
unum sem yfirleitt yfirtóku fyrstu
sex sætin og stigin. Með tilkomu
þessarar reglu kemur til með að
borga sig að klára keppni og annað
sætið er lengur ekki svo slæmt.
Hættan er þó sú að ökumenn verði
ekki lengur fúsir til að taka áhættu
til að komast I fyrsta úr öðru sæti
því ávinningurinn er ekki ýkja mik-
ill og því líklegt að menn sættist á
fengna stöðu. Auðvitað verða gefin
út fleiri stig en áður og stigametin,
sem nú hafa verið aö falla hvert af
öðru, verða nú auðveldari bráð.
Hefði þetta nýja stigakerfi verið við
lýði á síðasta ári hefði Schumacher
til dæmis fengið 156 stig í stað 144,
ÍÓmar Sævar
Gíslason
Formúlu eitt
sérfræðingur
og til gamans er áhugavert að benda
á að árið 1999 hefði Eddie Irvine orð-
ið heimsmeistari en ekki Mika
Hákkinen, og þannig er með marga
aðra meistara fortlðar sé miðað við
nýtt kerfi. Það er nú önnur saga en
segir okkur að það er verið að gera
talsverðar breytingar á Formúlunni.
Minni kostnaður?
Þar sem kostnaður samhliða
geysilegum prófunum keppnisliða
sem hafa fariö vaxandi með hveiju
árinu með þeim afleiðingum að efna-
meiri liðin hafa náð miklu forskoti á
þau efnaminni, hefur FIA komið
með góðan valkost sem kemur litlu
liðunum sannarlega til góða. Þau
koma til með að geta nýtt tvo tíma á
á föstudagsmorgnum á keppnishelg-
unum til prófana og sparað þar af
leiðandi mikinn ferðakostnað og
mannahald. Þar geta þau notað
prufuökumenn og varabíla, sam-
þykki þau tillöguna fyrir 15. desem-
ber og staðfesti að þau prófi ekki
meira en tíu daga utan keppnis-
helga. Hinn kosturinn er óbreytt
ástand. Williams hefur þegar ákveð-
ið að velja seinni kostinn og
Minardi þann fyrri, og hafa þar með
lagt línurnar. Þetta kostnaðarvanda-
mál kemur til með að gera reglu-
meisturum FIA erfitt því um leið og
þeir banna eina tegund prófana
koma liðin með aðrar lausnir sem
eru jafnvel dýrari. Það verður því
erfitt að takmarka kostnað í For-
múlu 1. Einnig voru liðsskipanir
bannaðar ásamt því sem dekkja-
framleiðendur fá nú tækifæri til að
sérsníða hjólbarða fyrir hvert lið
fyrir sig. Einnig hefur belgiski
kappaksturinn verið tekinn af móta-
röð næsta árs þar sem keppnisliðin
voru ekki sammála um að keppa þar
án tóbaksauglýsinga.
Margarundanþágur
Þegar á heildina er litið virðist
sem þessar reglubreytingar komi til
með að verða Formúlu 1 til góðs og
jákvætt að lengra skuli ekki hafa
verið farið að þessu sinni. Þær hug-
myndir sem bæði Bernie og Max
komu með i október, voru allt of
rótækar og þakkarvert að ekki kom
til þyngdarrefsinga á stigahæstu
mennina. Tlmatökur koma til með
að verða spennandi, og gaman verð-
ur að sjá hvemig breytilegt veður og
rigning kemur niður á ökumönnum
þegar þeir fá ekki lengur að velja
tíma til að aka hringi sína. Það er
mjög líklegt að FIA og dómarar
þeirra þurfi að veita margar undan-
þágur frá 107% reglunni á næsta ári.
-ÓSG