Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Síða 5
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
21
DV
Sport
„Jú, nefndin er að vinna
fint starf og það er orðinn
mikill metnaður hjá þess-
um stelpum að gera betur.
Þegar ég tók við ákváðum
við að fá 12-15 leiki á ári
hverju og á þessu ári eru
komir 14 leikir,“ segir
Stefán Arnarson, lands-
liðsþjálfari kvenna í
handbolta, sem hefur tek-
ið stór skref í að koma
kvennalandsliðinu í hand-
bolta aftur á kortið.
Þettag
ekkiei
þarna í Eyjum. En auðvitað bitnar
það eitthvað á landsliðinu."
Hvernig er unglingastarfiö hjá
íslensku félögunum í dag?
Það er mjög mismunandi. Það er
gott sums staðar en slæmt á öðrum
en ungar stelpur eru að koma upp
og það er mjög jákvætt."
Spilum hraðan bolta
En hvað með landsliðið nú
samanborið við síðustu ár - erum
við á uppleið?
Samanburður er alltaf erfiður í
hverju sem hann er en mér er tjáð,
bæði af þjálfara Svía og Slóvena að
við höfum tekið framfórum og það
vekur athygli þeirra hvað við spil-
um hraðan bolta. Ég held að fáir
hefðu trúað þvi að íslenska liðið
spilaði hraðan bolta.
En það hefur unnist mikið í
þessu starfi undanfarið. T.a.m. hef-
ur landslið Noregs, sem er eitt af
þremur sterkustu liðuum í heimin-
um í dag, sýnt áhuga á að keppa eft-
ir að sænski þjálfarinn fór fögrum
orðum um íslenska liðið við hann.
Þetta eru Rússland og Noregur og
síðan Danmörk, Júgóslavía og
Frakkland sem er sterkustu þjóð-
imar en síðan kemur þarna bÚ frá
sæti 5-14. í þann pakka þurfum við
að komast og það er það sem við
stefnum á,“ segir Stefán Arnar-
sonlandsliðsþjálfari.
-vig
tver
Íslenska kvennaiandsliðið í hand-
bolta stóð í ströngu um síðustu
helgi þegar það keppti við landslið
Slóvena í þrígang. Allir leikirnir
töpuðust þó enda slóvenska liðið
talið með þeim allra sterkustu í
heiminum í dag. DV-Sport sló á
þráðinn til Stefáns Amarsonar
landsliðsþjálfara og spjallaði við
hann um stöðu landsliðsins og það
sem er fram undan hjá liðinu.
Margt jákvætt
Hvernig kom liðið út úr þessum
landsleikjum gegn Slóvenum að
þinu mati?
„Þetta voru mjög mikilvægir
leikir á móti gríðarlega sterku
landsliði. Þjóðimar sem við höfum
verið að keppa við undanfarið, Sló-
venar ásamt Spáni, Svíþjóð og
Hollandi, eru þjóðir sem em það
næsta við bestu þjóðir heims í dag.
Uppistaðan í þessu slóvenska liði er
félagsliðið Grim sem varð Evrópu-
meistari fyrir tveimur árum svo að
þessar stelpur eru gríðarlega sam-
hæfðar í sínum leik. Þetta eru allt
atvinnumenn, þessar stelpur æfa
tíu sinnum í viku og eru í fanta-
formi," segir Stefán.
„Fyrsti leikurinn var ekki nægi-
lega góður af okkar hálfu en hinir
tveir vom mjög góðir. í hálfleik í
öllum þessum leikjum er Slóvenía
þetta tveimur mörkum yfir en í
fyrsta leiknum hmndi leikurinn
hjá okkur þegar 20 mínútur eru eft-
ir. I leik númer tvö vorum við inni
í leiknum allt þar til fimm mínútur
voru eftir og lokastöður í þeim leik
gefa ekki rétta mynd af gangi hans.
En við teljum okkur hafa lært
mikið af þessum leikjum og margt
jákvætt sást i þessari ferð.“
Stelpurnar
á kortiö
Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari
íslands í handbolta, vinnur stíft að
þvi að koma fslenska kvennalands-
liöinu á kortiö í alþjóölegum hand-
bolta. DV-mynd Hari
Kom eitthvað þér á óvart i is-
lenska liðinu?
„Við erum komin með góða
blöndu af yngri stelpum og þeim
eldri og í þessum leikjum stóðu
ungu stelpumar sig virkilega vel,
sérstaklega í síðasta leiknum. En
annars var þetta mjög jafnt á heild-
ina litið.“
Nefndin að vinna fínt starf
Það virðist vera meiri metnað-
ur hjá kvennalandsliðsnefnd
núna heldur en oft áður, ekki
satt?
„Jú, nefndin er að vinna fint
starf og það er orðinn mikill metn-
aður hjá þessum stelpum að gera
betur. Þegar ég tók við ákváðum
við að fá 12-15 leiki á ári hverju og
á þessu ári eru komir 14 leikir.
Núna á næsta ári ætlum við í
undankeppnina fyrir Evrópukeppn-
ina. Hingað til höfum við alltaf far-
ið beint í Evrópukeppnina og ekki
náð góðum árangri en nú ætlum við
að ná í reynslu áður en haldið er í
keppnina sjálfa.
Starfsumhverfið er betra nú hjá
landsliðinu en oft áður. Við erum
að vinna markvisst eftir þriggja ára
plani sem að hófst nú í ár og þetta
fyrsta ár hefur gengið ósköp vel.
Menn mega ekki gleyma því að
kvennalandsliðið hefur hingaö til
ekki verið að ná neinum árangri og
þetta gerist ekkert einn, tveir og
þrír.“
Hvað er fram undan hjá ís-
lenska liðinu?
„Það er verið að setjast niður
núna og meta stöðuna. Við höfum
farið þessa leið að spila alltaf við
sterkari þjóðir og t.d. nú um daginn
fengum við boð um að koma á mót
í Finnlandi. Við hefðum að ég tel
einfaldlega unnið það mót þannig
að við fórum frekar til Slóveníu og
spiluðum við sterkari andstæðinga.
Það teljum við einfaldlega vera
betri skóla fyrir okkur.“
Erum að bæta okkur
Hvernig finnst þér Esso-deild
kvenna hafafarið af stað i vetur?
„Hún hefur ekki farið nægilega
vel af staö. Það voru miklar breyt-
ingar hjá öllum liðum fyrir þetta
tímabil nema kannski hjá Víking,
og það tekur að sjálfsögðu einhvern
tíma fyrir liðin að aðlagast.
Það sem við þurfum að fá í bolt-
ann héma heima er miklu meiri
hraði vegna þess að þegar landslið-
ið er að spila er þetta allt annar
hraöi.
Ég get nefnt sem dæmi að ein af
ungu stelpunum sem var aö fara í
sína fyrstu ferð með landsliðinu
núna um síðustu helgi sagði þessa
leiki meira líkjast borðtennis.
Þannig aö það er gríðarlegur mun-
ur þar á. En ég held að það sé ekki
spuming aö boltinn á eftir að verða
betri.“
En hvað með alla þessa erlendu
leikmenn i deildinni. Er það ekki
slœmtfyrir landsliðið þegar far-
ið er að byggja liðin upp á erlend-
um leikmönnum?
„Þeir verða eiginlega að gera
þetta þama út i Vestmannaeyjum ef
þeir ætla að vera með og mér finnst
bara frábært starf hafa verið unnið
Mörkin gegn
Slóvenum
Úrslit leikjanna
Slóvenia-ísland .............31-17
Anna Blöndal 5.
Slóvenía-lsland .............31-22
Hanna Guðrún Stefánsdóttir 9.
Slóvenía-Ísland .............29-24
Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7.
íslensku markaskorararnir:
Hanna Guðrún Stefánsdóttir .... 16
Hrafnhildur Skúladóttir .........9
Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir ... 8
Dagný Skúladóttir................6
Dröfn Sæmundsdóttir..............6
Anna Blöndal ....................5
Drífa Skúladóttir................4
Harpa Melsted ...................3
Inga Fríða Tryggvadóttir.........3
Kristín Guðmundsdóttir...........2
Ragnhildur Guömundsdóttir.......1