Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Side 16
32 MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002 x>v Shaun Goater, Manchester City Shaun Goater Fæddur: 25. febrúar 1970 Heimaland: Bermúda Hæö/þyngd: 185 cm/76 kg Leikstaða: Framherji Fyrri lið: Man. Utd, Rotherham, Notts. Co., Bristoi City. Deildarleikir/mörk: 194/100 Landsleikir/mörk: Engir Hrós: ..Shaun var slæmur i hnénu fyrir leik- inn og því var óvíst hvort hann yrði með í leiknum. Hann sýndi hins vegar hversu öflugur hann er ..." Kevin Keeg- an, stjóri Man. City, um Goater. Mörkin tvö sem Shaun Goater gerði gegn Manchester United um helgina færðu honum þrefalda gleði. í fyrsta lagi tryggði hann Manchester City fyrsta sigur liðsins í grannaslag gegn Manchester United í 13 ár. í öðru lagi var seinna mark hans það hundraðasta hjá honum fyrir Manchester City í aðeins 194 leikj- um. í þriðja lagi kafsigldi hann Manchester United en forráðamenn þess höfnuðu Goater þegar hann var 19 ára á þeim forsendum að hann væri ekki nógu góður. Goater, sem er dýrkaður af stuðn- ingsmönnum Manchester City, fór löngu leiðina í það spila með þeim bestu. Hann spilaði með Rotherham og Bristol City í neðri deildunum allt þar til hann var keyptur til Manchester City árið 1997. Hann kom sterkur inn á eina tímabilinu í sögunni sem Manchester City hefur dvalið i ensku 2. deildinni og skoraði þá 21 mark. Hann skoraði 29 mörk næsta tímabil á eftir í 1. deildinni en náði sér ekki á strik vegna meiðsla í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2000-2001. í fyrra fór hann hins veg- ar á kostum með sókndjörfu liði undir stjórn Kevins Keegans og skoraði 32 mörk þegar Manchester City rúllaði upp 1. deildinni. Hann hefur haldið uppteknum hætti í ár og skorað fjögur mörk í ellefu leikjum. -ósk Tveir leikir fóru fram í ensku knattspyrnunni í gær: Enn tapar West Ham - er eina liðið í ensku úrvalsdeildinni sem hefur ekki unnið leik á heimavelli í vetur Kevin Phillips fagnar her markí sínu gegn Tottenham i gær en þetta var fyrsta mark hans fyrir Sunderland a timabilinu. Reuters Hörmulegt gengi West Ham á heimavelli i ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í gær þegar Leeds kom í heimsókn. West Ham er eina liðið sem ekki hefur enn unnið leik á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni og sýndi svo sannarlega af hverju í fyrri hálf- leiknum gegn Leeds. Vömin hjá liðinu var hreinasti hryllingur og leikmenn Leeds óðu um allt án nokkurrar fyrirhafnar og má segja að það eina sem leikmenn West Ham áttu eftir þegar flautað var til hálfleiks hafi verið að rúlla út rauða dregilinn til að bjóða þá velkomna. Leikmenn Leeds skoruðu fjögur mörk í fyrri hálfleik og hefðu hæg- lega getað skorað mun fleiri. í seinni hálfleik hresstist þó lið West Ham, drifnir áfram af stórleik ítalans Paolos Di Canios sem hlýtur að velta vöngum yfir því hvað hann þurfi að gera til að verðskulda nýj- an samning frá West Ham. Di Canio var potturinn og pannan í sóknar- leik West Ham en þrátt fyrir að lið- inu tækist að hysja upp um sig buxurnar og minnka muninn í eitt mark undir lokin tókst því ekki að jafna metin. Terry Venebles, knattspymu- stjóri Leeds, varpaði öndinni léttar en Glenn Roeder, knattspymustjóri West Ham, er enn í sama skítnum og hann var í fyrir leikinn. West Ham er komið í fallsæti á nýjan leik eftir sigur Sunderland á Tottenham og fátt sem bendir til þess að liðið muni rífa sig þaðan á næstunni. Betri sókn Það væri synd að segja að leik- menn Sunderland hefðu verið á skotskónum það sem af er tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Fyrir leikinn gegn Tottenham í gær hafði liðið skorað sex mörk í tólf leikjum en mörkin tvö gegn Tottenham hljóta að efla sjálfstraustið hjá leikmönn- um liðsins. Sóknarmennimir Kevin Phiilips og Tore Andre Flo skoruðu mörk Okkar menn Lárus Orri Sigurósson spilaði allan leikinn þegar West Bromwich Albion geröi jafhtefli gegn Bolton 1 ensku úr- valsdeildinni á laugardaginn. Guöni Bergsson var ekki 1 leikmanna- hópi Bolton í sama leik en hann á við meiðsli að stríða. Eióur Smári Guójohnsen var í byrjun- arliði Chelsea gegn Birmingham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Hann skoraði tvö mörk í leiknum og var skipt út af á 71. mínútu. Hermann Hreiöarsson spilaöi allan liðsins og þurfa stuðningsmenn liðs- ins ekki að örvænta ef þeir tveir eru að vakna til lifsins. leikinn fyrir Ipswich sem gerði marka- laust jafntefli við Sheffield United á úti- velli í ensku 1. deildinni. Brynjar Gunnarsson og Bjarni Guó- jónsson voru báðir í byrjunarliöi Stoke sem tapaöi fyrir Grimsby í ensku 1. deildinni. Bjarna var skipt út af á 81. mínútu. Pétur Marteinsson var ekki í leikmannahópi Stoke í leiknum. Heiðar Helguson spilaöi allan leikinn fyrir Watford í tapleik gegn Rotherham i ensku 1. deildinni á laugardaginn. Helgi Valur Danielsson spilaði allan leikinn hjá Peterborough sem bar sigur- orð af Chesterfield í ensku 2. deildinni. Arnar Gunnlaugsson var ekki í leik- mannahópi Dundee United sem tapaði Sunderland komst með sigrinum úr fallsæti en þetta var jafnframt fyrsti sigurleikur liðsins undir fýrir Celtic í skosku úrvalsdeildinni í gær. Jóhannes Karl Guöjónsson kom inn á sem varamaður á 89. mínútu þegar Real Betis gerði jafntefli gegn Valencia í spænsku 1. deildinni. Þóröur Guójónsson lék fyrri hálfleik- inn í tapleik Bochum gegn Stuttgart í þýsku 1. deildinni á laugardaginn. Eyjólfur Sverrisson var ekki í leik- mannahópi Herthu Berlin í þýsku 1. deildinni í gær. Arnar Þór Viöarsson og Arnar Grét- arsson spilaðu báðir allan leikinn fyrir Lokeren sem vann stórsigur á Charleroi í belgísku 1. deildinni á laugardaginn. Amar Grétarsson skoraði þriðja mark stjóm Howards Wilkinsons í ensku úrvalsdeildinni. -ósk Lokeren í leiknum. Rúnar Kristinsson var ekki í leikmannahópi Lokeren í leiknum en hann á við meiösl að stríða. Jóhannes Haröarson sat allan tímann á varamannabekk Groningen sem gerði jafntefli við NACBreda í hollensku 1. deildinni í laugardaginn. Sigmundur Kristjánsson og Viktor B. Arnarson vom ekki í leikmannahópi Utrecht sem vann Waalwijk í hollensku 1. deildinni. Helgi Kolviösson kom ekki við sögu hjá Kárnten sem vann Bregenz, 3-0, í aust- urrísku 1. deUdinni á laugardaginn. Stefán Gislason kom heldur ekki við sögu hjá GAK sem bar sigurorð af Ried, 2-0, í austurrísku 1. deUdinni. -ósk Sport Hetjan Varnarmaðurinn Gareth Southgate sá tU þess að Liver- pool tapaði fyrsta leik sínum i ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Hann þakkaði pent fyrir gjöf pólska markvarðarins Jerzys Dudeks og skoraði í autt markiö sigurmark Middlesbrough gegn Liverpool. Southgate hefur verið einn af bestu varnarmönnum ensku úrvalsdeildarinnar undan- farin ár, margreyndur landsliðs- maður en hann hefur ekki verið þekktur fyrir að skora mörk. Markið um helgina var þó annað mark hans á skömmum tíma, mikilvægt mark sem festir Middlesbrough í sessi í efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar. -ósk ... skúrkurinn Glenn Roeder, knattspyrnu- stjóri West Ham, á ekki sjö dag- ana sæla nú um stundir. Liðið tapaði enn einum heimaleiknum um helgina og vandamál West Ham í vöminni komu berlega í ljós í fyrri hálfleiknum gegn Leeds þegar liðið fékk fjögur mörk á sig og var heppið á fá ekki helmingi fleiri. Roeder hefur ekki tekist að koma lagi á varnarleikinn það sem af er vetri og fátt sem bendir til þess aö hann geri það úr þessu. Besta verk hans væri sennilega að hætta með liðið og hleypa ein- hverjum öðrum að sem hefur meira fram að færa. -ósk Laugardagur 16. nóvember Arsenal-Tottenham Chelsea-Middlesbrough Manchester City-Charlton Newcastle-Southampton West Brom-Aston Villa Sunnudagur 17. nóvember Liverpool-Sunderland Birmingham-Fulham Blackbum-Everton Leeds-Bolton West Ham-Manchester United Fimmtudagur 21. nóvember Aston Villa-Southampton Laugardagur 9. nóvember Man. Utd-Newcastle Aston Villa-West Ham Bolton-Chelsea Everton-West Brom Fulham-Liverpool Middlesbrough-Man. City Southampton-Arsenal Sunderland-Birmingham

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.