Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Blaðsíða 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára
Margrét H. Lúthersdóttir,
Byggðavegi 148, Akureyri.
8Q.pra______________________
Hörn Sigurðardóttir,
Víðimel 36, Reykjavík.
Mikkalína Rnnbjörnsdóttlr,
Suðurgötu 17, Sandgeröi.
Þorbjörn Þorstelnsson,
Hamrabakka 10, Seyöisfiröi.
75 ára______________________
Þorgerður Egilsdóttir,
Grímsstööum 4, Reykjahlíö.
Þórdís Frímannsdóttir,
Heiðarvegi 4, Selfossi.
7Q ára_________________________
Guðjón Agnar Egllsson,
Háaleitisbraut 109, Reykjavík.
Kristján Árnason,
Stífluseli 5, Reykjavík.
Ragnhlldur Björgvinsdóttlr,
Laugavegi 27a, Reykjavík.
60 ára________________________
Anna G. Ásgelrsdóttlr,
Fellsmúla 11, Reykjavík.
Ása K. Ásgeirsdóttir,
Grænumýri 10, Seltjarnarnesi.
Hrafnhlldur Stella Stephens,
Hrísmóum 1, Garöabæ.
Margrét Erna Blomsterberg,
Lerkilundi 16, Akureyri.
50 ára_____________________
Auður Ingóifsdóttir,
Starengi 116, Reykjavík.
Gunnar Sæmundsson,
Garösenda 6, Reykjavík.
Helga Ásdís Einarsdóttir,
Bakkatúni 18, Akranesi.
Jón Krlstinn Guðmundsson,
Skeggjagötu 17, Reykjavík.
Ólafur Stelnarsson,
Rimasíöu 27d, Akureyri.
40 ára_________________________________
Elínborg Salóme
Jónsdóttir,
Norðurtúni 13, Bessa-
staöahreppi, bólstrari.
Maöur hennar er Hilmar
B. Þórarinsson húsa-
smíöameistari. Þau bjóða
vinum og ættingjum í dagverö aö heimili
sínu, laugardaginn 7.12. milli kl. 10.00
og 14.00.
Eyrún Axelsdóttir,
Silfurbraut 35, Höfn.
Guðríður Þorvaldsdóttir,
Foldahrauni 38g, Vestmannaeyjum.
Gunnhildur E. Friðriksdóttir,
Stelkshólum 2, Reykjavík.
Kristín Valgerður Gunnarsdóttir,
Lindarbraut 39, Seltjarnarnesi.
Mary Ann Enos,
Drápuhlíð 8, Reykjavík.
Óttar Arnaldsson,
Klapparholtj 2, Hafnarfiröi.
Rosa Georgsson,
Laugavegi 33a, Reykjavík.
Salah Yakhlef,
Kleppsvegi 44, Reykjavík.
Sigurður Andri Sigurðsson,
Hávallagötu 49, Reykjavík.
Sigurður Ingi Guðmundsson,
Vogageröi 20, Vogum.
Sigurjón Skæringsson,
Grýtubakka 6, Reykjavík.
Tryggvl Erlingsson,
Þrastarlundi 15, Garðabæ.
M
U. 1
%
Aðventu-leíðískrossar
I2V 34V
Sent í póstkröfu, sími 431 1464
Smáauglýsingar
DV
550 5000
DV
Fólk í fréttum
Bjarni Benediktsson
lögmaður og frambjóðandi í Suðvesturkjördæmi
Bjami Benediktsson hdl. verður í
5. sæti á framboðslista sjálfstæðis-
manna i Suðvesturkjördæmi í al-
þingiskosningunum í vor.
Starfsferill
Bjami fæddist í Reykjavík 26.1.
1970 en ólst upp í Garðabænum.
Hann var í Flataskóla, Garðaskóla,
lauk stúdentsprófi frá MR 1989,
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1995,
stundaði nám í þýsku við Goethe
Institut og stundaði framhaldsnám í
kröfurétti og stjómskipunarrétti við
Albert Ludwig Universitát í
Freiburg í Þýskalandi og framhalds-
nám í verslunar- og viðskiptarétti
við Miami School of Law og lauk
þaðan LLM-gráðu 1997.
Bjami var lögfræðingur á tjóna-
deild Eimskipafélags íslands 1997-98
og deildarstjóri þar 1998-99. Hann
gerðist þá meðeigandi lögmanns-
stofunnar LEX og starfar þar nú.
Bjami æfði og keppti i handknatt-
leik og knattspyrnu með Stjömunni
frá unga aldri. Hann lék með meist-
araflokki Stjömunnar í knatt-
spymu á árunum 1986-94 er hann
hætti vegna meiðsla. Þá var hann
fyrirliði meistaraflokks síðustu ár-
in. Hann var íslandsmeistari með
yngri flokkum Stjömunnar í hand-
knattleik og í knattspymu. Þá lék
hann með öllum yngri aldursflokk-
um íslenska landsliðsins í knatt-
spymu. Hann sat í stjóm knatt-
spymudeildar Stjörunnar 1997-2000
og situr nú í meistaraflokksráði
knattspymudeildar.
Bjarni var framkvæmdastjóri
Lögfræðiaöstoðar Orators 1994-95,
sat í stjóm FUS í Garðabæ 1991-94
og var fomaður FUS í Garðabæ
1993-94, tók þátt í framboði Vöku til
stúdentaráðs 1994, var varamaður í
íþrótta- og tómstundaráði Garða-
bæjar 1994-98, aðalmaður í stjórn
heilsugæslunnar í Garðabæ
1998-2002, situr í skipulagsnefnd
Garðabæjar frá 2002, er stjórnarfor-
maður Bílanausts hf., situr i stjórn
ISS á íslandi hf., er stjómarformað-
ur Fítón ehf., auglýsingastofu, er
stjómarformaður Nesskips hf. og er
í Rotaryklúbbnum Görðum.
Fjölskylda
Eiginkona Bjama er Þóra Mar:
grét Baldvinsdóttir, f. 1.3.1971, flug-
freyja og húsmóðir. Hún er dóttir
Baldvins Jónssonar markaðsráð-
gjafa, og Margrétar Björnsdóttur
húsmóður.
Böm Bjama og Þóru Margrétar
eru Margrét, f. 19.7. 1991; Benedikt,
f. 11.2. 1998.
Bræður Bjama eru Sveinn, f.
16.1. 1962, tölvufræðingur; Jón, f.
16.10. 1964, rafmagnsverkfræðingur
hjá Marel hf., kvæntur Ágústu Grét-
arsdóttur lyfjafræðingi og eiga þau
þrjú böm.
Foreldrar Bjarna eru Benedikt
Sveinsson, f. 31.7. 1938, hrl. í Garða-
bæ, og k.h., Guðríður Jónsdóttir, f.
19.9. 1938, húsmóðir.
Ætt
Benedikt er bróðir Ingimundar
arkitekts, Guðrúnar lögmanns og
Sveins, framkvæmdastjóra Sjóvá.
Benedikt er sonur Sveins fram-
kvæmdastjóra, en meðal systkina
hans má nefna Pétur, bankastjóra
og alþm., föður Guðrúnar, forstöðu-
manns sjávarútvegsd. HÍ, og Ólafar
dómstjóra; Bjarna forsætisráöherra,
fóður Bjöms alþm. og oddvita sjálf-
stæðismanna i borgarstjórn; Krist-
jönu, móður Halldórs Blöndals, for-
seta Alþingis; Ragnhildi; Ólöfu,
fyrrv. menntaskólakennara, móður
Guðrúnar Guðjónsdóttur kennara,
og Guðrúnu, móður Tómasar Zoéga
læknis. Sveinn var sonur Benedikts
alþingisforseta Sveinssonar, gest-
gjafa á Húsavík, bróður Bjöms, afa
Guðmundar Benediktssonar, fyrrv.
ráðuneytisstjóra. Sveinn var sonur
Magnúsar, snikkara að Víkinga-
vatni Gottskálkssonar, bróður Guð-
mundar, afa Jóns Trausta. Móðir
Sveins framkvæmdastjóra var Guð-
rún Pétursdóttir, útvegsb. i Engey
Kristinssonar. Móðir Péturs var
Guðrún Pétursdóttir af Engeyjar-
ætt, systir Guðfmnu, ömmu Bjarna
Jónssonar vígslubiskups.
Móðir Benedikts er Helga, dóttir
Ingimundar, b. í Kaldárholti Bene-
diktssonar, ráðsmanns á Breiðaból-
stað Diðrikssonar, b. á Skeggjastöð-
um Benediktssonar, bróöur Sveins,
foður Benedikts, sýslumanns og
alþm., foður Einars skálds. Móðir
Ingimundar var Kristín, systir Guð-
laugar, móður Jóns Ólafssonar
bankastjóra. Kristín var dóttir Þórð-
ar, b. Sumarliðabæ Jónssonar, og
Helgu Gunnarsdóttur, b. í Hvammi
á Landi Einarssonar. Móðir Helgu
var Kristín Jónsdóttir, b. á Vindási,
bróður Ólafs, langafa Odds á Sáms-
stöðum, langafa Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra. Jón var sonur
Bjama, ættfóður Víkingslækjaættar
Halldórssonar. Móöir Helgu var Ing-
veldur Einarsdóttir, systir Gests,
fóður Steinþórs alþm., foður Gests
skattstjóra. Móðir Ingveldar var
Steinunn Vigfúsdóttir Thorarensen,
sýslum. á Borðeyri. Systir Stein-
unnar var Guðrún, langamma Ingi-
bjargar, móður Davíðs Oddssonar.
Móðir Vigfúsar var Guðrún Vigfús-
dóttir, sýslum. á Hlíðarenda, Þórar-
inssonar og Steinunnar Bjamadótt-
ur, landlæknis Pálssonar. Móðir
Steinunnar var Rannveig Skúladótt-
ir landfógeta Magnússonar.
Guðríður er systir Gunnars
Bjöms rekstrarhagfræðings. Guð-
ríður er dóttir Jóns, verkfræðings
og fyrrv. forstjóra SH Gunnarsson-
ar, b. á Ysta-Gili og Blöndubakka
Jónssonar, b. á Syðstu-Grund Gunn-
arssonar. Móðir Gunnars á Ysta-
Gili var Guðbjörg Klemensdóttir.
Móðir Jóns verkfræðings var Guð-
ríður, systir Halldóru, móður Gunn-
fríðar Jónsdóttur myndhöggvara,
ömmu Halldóru Eggertsdóttm-
námsstjóra, og langömmu Inga
Björns Albertssonar, fyrrv. alþm.
Hálfsystir Guðríðar var Anna,
amma Brynleifs, læknis á Selfossi,
föður Guðrúnar lögmanns. Guðríð-
ur var dóttir Einars, skálds á Bólu í
Skagafirði Andréssonar, b. á Bakka
í Viðvíkursveit Skúlasonar. Móðir
Guðríðar var Margrét Gísladóttir
frá Hrauni i Tungu.
Móðir Guðríðar Jónsdóttur var
Hólmfríður Sigurlína, dóttir Bjöms
Ólafs, skipstjóra á Karlsstöðum í
Fljótum Jónssonar, b. á Vestara-
Hóli Ólafssonar, b. þar Jónssonar.
Móðir Ólafs var Steinunn Ámadótt-
ir, b. á Kaðalsstöðum Bjömssonar,
b. i Nesi Þórarinssonar. Móðir
Björns var Kristín Árnadóttir, syst-
ir Jóns, afa Skúla Magnússonar
landfógeta. Móðir Guðbrands var
Soffla Bjömsdóttir (Róöuhóls-
Bjöms), b. á Róðuhóli i Sléttuhlíð,
Bjömssonar. Móðir Björns var Una
Guðmundsdóttir, systir Einars, fóð-
ur Baldvins, lögfræðings og þjóð-
frelsismanns. Móöir Hólmfríðar Sig-
urlínu var Guðríður Hjaltadóttir.
Níræður
Sigurfinnur Einarsson
fyrrv. verkstjóri ísfélags Vestmannaeyja
Sigurfmnur Einarsson, fyrrv.
verkstjóri ísfélags Vestmannaeyja,
nú til heimilis að Hraunbúðum,
dvalarheimili aldraðra í Vest-
mannaeyjum, er níræður í dag.
Starfsferill
Sigurfinnur fæddist að Steins-
mýri í Meðallandi og ólst upp í Með-
allandinu og að Iðu í Biskupstung-
um.
Sigurfinnur var sjómaður á sin-
um yngri árum, var lengi stýrimað-
ur og starfaði við skipasmíðastöð
Ársæls Sveinssonar á sumrin með
sjómennskunni. Þá starfaði hann
við hafnarframkvæmdir í Vest-
mannaeyjum um árabil.
Sigurfinnur starfaði þó lengstan
hluta starfsævi sinnar sem verk-
stjóri hjá ísfélagi Vestmannaeyja.
Eftir að Sigurfinnur kvæntist
bjuggu þau hjónin allan sinn bú-
skap í Vestmannaeyjum.
Fjölskylda
Sigurfmnur kvæntist 19.8. 1931
Önnu Ester Sigurðardóttur, f. 18.11.
1919, d. 19.1. 1980, húsmóður. Hún
var dóttir Siguröar Bjamasonar sjó-
manns og Þorbjargar Sigurðardótt-
ur húsmóður.
Böm Sigurfinns og önnu Esterar
eru Einar Sigurfmnsson, f. 14.2.
1940, verslunarmaður en synir hans
em Jóhannes Ágúst, ættleiddur, og
Bragi, kvæntur Guörúnu Stefáns-
dóttur en þau eiga bömin Steinunni
Björk, Stefán Amar og Einar Ágúst;
Sigurfmnur Sigurflnnsson, f. 18.6.
1944, myndmenntakennari og með-
hjálpari í Landakirkju en eiginkona
hans er Þorbjörg Júlíusdóttir mót-
tökuritari og eru böm þeirra Gunn-
ar Már, kvæntur Lindu Hængsdótt-
ur og eiga þau bömin Andra' Stein
og Silju, Nanna Dröfn en maður
hennar er Óttar Gunnlaugsson og
eru böm þeirra Anna Ester og Þor-
björg Lind, Sigurfmnur Víðar en
kona hans er Ása Sigurðardóttir og
er dóttir þeirra Elínborg Eir; Þor-
björg Sigurfmnsdóttir, f. 5.6.1949, d.
27.11. 1996, verkakona, en maður
hennar var Viðar Sigurbjömsson
sjómaður og eru börn þeirra Gunn-
ar Laxfoss, alinn upp hjá Sigurfmni
og Önnu, en kona hans er Kristín og
dóttir hans Erla Fanný, Gísli Árni
en dóttir hans er Silvía Rut, og Sig-
urbjöm Einar.
Bræður Sigurfmns: Hr. Sigur-
björn Einarsson, f. 30.6.1911, biskup
í Reykjavík.
Hálfbróðir Sigurfmns: Guðmund-
ur Einarsson, f. 19.2. 1929, garð-
yrkjubóndi.
Foreldrar Sigurflnns vom Einar
Sigurfinnsson, f. 14.9. 1884, d. 1979,
bóndi í Steinsmýri, Lágu-Kotey og
Iðu, og Gíslrún Sigurbergsdóttir, f.
21.6. 1887, d. 1.1. 1913, húsfreyja.
Ætt
Einar var sonur Sigurfmns, bú-
stjóra í Háu-Kotey Sigurðssonar, b.
þar Jónssonar, b. á Þverá á Siðu
Sverrissonar, bróður Þorsteins, afa
Jóhannesar Kjarvals.
Gíslrún var systir Ingibjargar,
móður Aðalheiðar alþm. og Magn-
úsar Bjamfreössonar. Gíslrún var
dóttir Sigurbergs, b. í Háu-Kotey
Einarssonar, b. í Bakkakoti Magn-
ússonar. Móðir Einars var Ingibjörg
Gísladóttir, systir Ragnhildar,
langömmu Sveins, afa Sveins Run-
ólfssonar landgræðslustjóra. Móðir
Gíslrúnar var Ámý Eiríksdóttir,
systir Eyjólfs, langafa Hilmars Jóns-
sonar stórtemplars.
Magnúsína Guörún Guömundsdóttir,
Hvassaleiti 56, Reykjavík, andaöist á
Landsspítalanum Fossvogi fimmtud
28.11. sl.
Guðlaug Þorsteina Jónsdóttir, Sörla-
skjóli 56, Reykjavtk, andaöist á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund fimmtud.
21.11. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Magdalena S. Brynjúlfsdóttir frá Hval-
gröfum andaöist á Skjóli föstud. 29.11.
Auöur Vilhjálmsdóttir innanhússarki-
tekt, Kjartansgötu 2, Reykjavík, lést á
heimili sínu fimmtud. 28.11.
Magnús Friörik Einarsson pípulagninga-
meistari, Rauöalæk 71, lést á Landspít-
alanum viö Hringbraut fimmtud. 28.11.
Inglbjörg Magnúsdóttir, Nesbala 62,
Seltjarnarnesi, andaöist á Landspítalan-
um í Fossvogi laugard. 23.11. Jaröarför-
in hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinn-
ar látnu.
Jarðarfarir
Helga Þórarinsdóttir, Hringbraut 69,
Hafnarfiröi, verður jarðsungin frá
Hafnarfjaröarkirkju þriöjud. 3.12. kl.
13.30.
Sigríður Erla Sigurbjörnsdóttlr veröur
jarösungin frá Hallgrímskirkju þriðjud.
3.12. kl. 13.30.
Útför Jóhönnu Erasmusdóttur frá Háu-
Kotey í Meöallandi fer fram frá Foss-
vogskirkju þriöjud. 3.12. kl. 13.30.
Rögnvaldur Bjarnason, Reynigrund 41,
Kópavogi, veröur jarösunginn frá Digra-
neskirkju miövikud. 4.12. kl. 15.00.
Svanhildur Eggertsdóttir frá Holtseli
verður jarösungin frá Grundarkirkju miö-
vikud. 4.12. kl. 13.30.
Þórir Sigurösson veöurfræöingur lést á
Landspítala Fossvogi þriöjud. 26.11.
Jaröarförin veröur gerö frá Grafarvogs-
kirkju föstud. 6.12. kl. 13.30.