Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 12
Með fullri reisn - frumsýning annan í jólum • Nytsamlegar jólagjafir FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 | t Margmiðlunardiskurinn Leikur að elda: omeflin mexímú<smni ow (wíhcu^ dílœfHZ - segir Egill Vignisson • Vandað handverk * íslensk steinlist Álfasteinn ehf - 720 Borgarfirði eystra Sími 472 9977 - www.alfasteinn.is Smáauglýsingar atvinna 550 5000 „Þetta er auðvitað góð jólagjöf en líka hentugt tæki til að nota við matargerðina allt árið og í textanum er hvergi minnst á jól,“ segir Egill Vignisson og er þar að tala um margmiðlunardiskinn Leikur að elda sem hann hefur útbúið í félagi við ungan matreiðslumann, Benedikt Jónsson. Þar er fylgst með Benedikt elda og útbúa ýmiss konar krásir á einfaldan hátt og þeir félag- ar fullvissa blaðamann um að þeir hafi lagt áherslu á að hafa diskinn notenda- vænan. Eða eins og Egill segir: „Þú sting- ur diskinum í tölvuna - hann hleður sig upp sjálfur - smellir tvisvar með músinni og þá ertu byijuð að læra!“ Réttu handtökin Á diskinum eru tiu uppskriftir og má þar nefna hamborgarhrygg, pörusteik, humarsúpu, eplasalat, brúnkál og heima- lagaðan ís. Benedikt sýnir matreiðsluna og segir ffá henni um leið - ekki aðeins við eldavélina eða ofninn heldur er líka hægt að fylgjast með honum forvinna það sem með þarf með því að smella á orðin sem visst merki er við. „Ég kenni fólki til Það er leikur að elda Benedikt með hamborgarhrygg og heima- lagaðan is með steiktum jarðarberjum. Giafakort ÞjóðleÍKhússins -gleðiieg jólagjöf Félagarnir tveir „ Við erum búnir að vera að þróa þessa hugmynd í eitt og hálft ár, “ segja þeir Egill og Benedikt um matreiðsludiskinn. DV-mynd dæmis að pilla humar með réttum hand- tökum," segir Benedikt. Eitt enn: Diskinum fylgja spjöld með uppskriftum og litmyndum til þess gerð að hafa í eldhúsinu að loknu námi við tölvuna. Spjöldin eru plöstuð svo auðvelt er að þrífa þau þótt þau lendi í vosbúð. Þetta get ég gert! Egill er menntaður í margmiðlunar- tækni og hefúr víðtæka reynslu á því sviði. Augljóslega kann hann að beita myndavélinni líka. Benedikt er mat- reiðslumaður í meistaranámi og þeir fé- lagar ákváðu að nýta þekkingu hvor ann- ars. „Við höfúm verið að þróa þessa hug- mynd í eitt og hálft ár og á þeim tíma hef ég lært alveg helling í matargerð," segir Egill brosandi. „Já, þetta er allt að koma hjá honum. Hann er að minnsta kosti orð- inn ágætur í að saxa niður hráefni og svona,“ segir Benedikt hlæjandi og bætir við, ögn ábyrgðarfyllri: „Við tókum þetta upp heima hjá mér þannig að þetta er allt raunverulegt og heimilislegt." Egill tekur undir það og segir ekkert við myndatök- umar sjálfar vera falsað eða tilgert. „Mat- urinn er bara eins og hann kom út úr ofn- inum og af pönnunni. Við viljum að fólk hugsi: „Þetta get ég hæglega gert.“ -Gun Fallegt jólatré er stofuprýði Steinunn Reynisdóttir garöyrkjufrœðingur segir að það sé auðvelt að láta jólatréð halda barrinu yfir jólin ef það er meðhöndlað rétt. Jólatréð í stofu stendur: í/íoewiiy e/1 /jexf <r() konuv l oe& /utun cu£ „Það er algengt að fólk komi til mín fyrir jól og spyrji hvemig best sé að láta jólatréð halda barrinu sem lengst,“ segir Steinunn Reynisdóttir, garðyrkjufræðing- ur hjá Garðheimum. „Satt best að segja er það ekki eins flókið og margir halda og ef fólk notfærir sér eftirfarandi heilræði eiga trén auðveld- lega að halda barrinu yfir jólin. í fyrsta lagi má aldrei taka jólatréð beint inn í stofúhita úr miklu fVosti. Ef það er frost þegar taka á tréð inn, verður að láta það þiðna hægt og helst í raka. Það má til dæmis leggja það í kalt vatn í bað- keri eða úða það nokkrum sinnum með köldu vatni. Þegar tréð hefúr jafnað sig inni er kominn tími til að setja það í vatns- fót. Oft þarf að fjarlægja nokkrar greinar neðst af stofni og snitta hann til svo hann passi í fótinn. Best er að saga um tveggja sentímetra sneið neðan af stofninum. Leggið neðstu greinar upp með stofninum og tyllið þeim með bandi á meðan næsta aðgerð er fram- kvæmd. Tálgið þriggja til fimm sentímetra í hring utan af stofninum og stingið honum síðan tíu sentímetra ofan í sjóðandi vatn í tíu mínútur. Að lokinni suðu skal ganga frá trénu í fótinn strax og gæta þess að fóturinn tæm- ist aldrei því annars myndast litlar loftból- ur sem geta komist í vökvaæðar trésins og valdið því að það fellir barrið.“ Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.