Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002
Kertagerð:
, Paó
a////' otm
Kertagerðarmeistarinn
Helga Björg Jónasardóttir segir að það séu tvœr aðferðir notaðar til að húa til kerti. „ Önnur felst i þvi að hella heitu vaxi i mót og láta
það storkna. Hin aðferðin er að dýfa kveik ofan í fijótandi vax aftur og aftur og byggja þannig upp kerti. “
„Kertagerð er bæði einföld og
skemmtileg og á allra færi,“ segir Helga
Björg Jónasardóttir, kertagerðarmeist-
ari hjá kertagerðinni Vaxandi. Helga
lærði kertagerð í Bretlandi og stofnaði
kertagerðina Vaxandi árið 2000. Hún
segir að það sé hægt að búa til kerti með
einföldum aðferðum sem henti bömum
á öllum aldri en að einnig séu til flókn-
ari aðferðir sem fremur eru á færi þeirra
sem hafa einhveija þekkingu á faginu.
Steypt á hvolfi
„Það eru tvær aðferðir sem notaðar eru
til að búa til kerti. Önnur felst í því að
hella heitu vaxi í mót og láta það storkna.
Hin aðferðin er að dýfa kveik ofan í fljót-
andi vax aftur og aftur og byggja þannig
upp kerti.“ Helga segir að fólk geti auð-
veldlega tileinkað sér báðar aðferðimar en
eftirfarandi aðferðir eru steypt kerti.
„Það fyrsta sem ber að hafa í huga er að
flest kerti sem steypt em í mót eru steypt
á hvolfi og svo er einnig með kertin í að-
ferðunum sem ég ætla að kenna lesendum
að búa til. Önnur er mjög einföld og því
tilvalin fyrir böm og fullorðna að stunda
saman. Hin krefst aðeins meiri kunnáttu."
Helga leggur áherslu á að fólk gæti
fyllsta öryggis þegar kertin eru búin til. „i
fyrsta lagi skal bræða vax í vatnsbaði, til
að fyrirbyggja eldhættu og fólk skyldi
forðist að hella fljótandi vaxi í vaskinn því
þá getur niðurfallið stíflast, einnig skal
gæta fyllstu varúðar ef börn eru nálægt.“
Endurunnin kerti
Eftirfarandi aðferð hentar vel fyrir böm
og fúllorðna og er tilvalin til að endurvinna
kertaafganga sem falla til á heimilinu. Það
sem þarf em kertaafgangar, góður kveikur,
vax og sterinblanda. Tveir pottar eða „dou-
ble-boiler“, mót, nál, hitamælir og kítti.
„Takið kertaafgangana og brytjið þá nið-
ur í bita. Setjið vatn í pott og annan pott eða
eldfast ílát ofan i. Setjið hreint vax og sterin
í innri pottinn í hlutföllunum níu á móti ein-
um. Bræðið vaxblönduna við vægan hita í
vatnsbaði eftir að suðan er komin upp á
vatninu. Mótið er undirbúið með því að taka
hæfilega sveran þráð fyrir mótið og klippið
hann um það bil fimm sentímetmm lengri
en mótið. Dýfíð kveiknum í vaxblönduna
þegar vaxið hefur náð góðum hita, um 70" á
Celsíus, látið hann liggja í hálfa mínútu eða
þar til loftbólumar fara úr kveiknum. Látið
vaxhúðaðan kveikinn storkna og þræðið síð-
an mótið með honum. Best er að nota nál
eða pinna til að halda kveiknum stöðugum í
miðju mótinu. Gætið þess að þétta vel með
hitaþolnu kítti við kveikinn til að vaxið leki
ekki út þegar því er hellt í mótið. Þegar mót-
ið er þrætt og tilbúið er kubbunum sem búið
er að brytja niður, raðað í mótið og fljótandi
vaxi hellt yfir. Best er að hafa vaxið um 80
gráða heitt þegar því er hellt yfir vax-
kubbana. Þegar kertið er fullstorknað og
orðið kalt er það losað úr mótinu og botninn
jafnaður í tómum potti á heitri hellu eða
með gömlu straujámi. Að lokum er kveikur-
inn snyrtur, kíttið hreinsað af honum og
hann styttur. Nú er kertið tilbúið til að
kveikja á því og njóta hlýlegrar birtunnar
eða gefa það í jó!agjöf.“
Helga segir að til að kerti brenni betur sé
gott að setja það í kæli yfir nótt áður en
kveikt er á því.
Dýrindis jólaepli
Helga segir að svo kölluð jólaepli hafa
verið mjög vinsæl hjá kertagerðinni und-
anfarin ár og þeir sem hafa áhuga á að
spreyta sig á að búa þau til geta fylgt eft-
irfarandi uppskrifti.
„í jólaeplið þarf 250 grömm paraffin-
vax, 1/4 teskeið vybar-bætiefni, 1/8 af
rauðri eplalitaskífú, góðan kveik og ilm-
efni sem gefúr frá sé epla- og kanililm
(má sleppa), tvo potta, epla-gúmmímót,
nál, hitamæli, grillpinna eða matpijón til
að hræra og statív fyrir gúmmímót. Epla-
kertið er steypt í gúmmímót sem hefur
eplalögun. Klippið kveik um það bil
fimm sentímetrum lengri en mótið. Þræð-
ið kveikinn með nál og í gegnum miðjuna
efst á mótinu, notið nálina síðan til þess
að halda kveiknum á réttum stað. Gott er
að sníða pappaspjald með gati í til að láta
mótið standa eða hanga í. Hitið vaxið í
vatnsbaði ásamt litnum og vybar bætiefn-
inu. Hrærið varlega í pottinum til að
blanda vaxinu og litnum vel saman.
Hellið vaxblöndunni í mótið þegar hún er
um 90“ heit. Ef nota á ilmefni er því hrært
saman við rétt áður en blöndunni er hellt í
mótið. Þegar búið er að hella í mótið er
gott að slá létt í það eða kreista varlega til
að losa um loftbólur sem geta myndast
þegar vaxinu er hellt í mótið. Þegar þessu
er lokið byijar tilvonandi kerti að storkna.
Eftir um það bil hálftíma þarf að stinga
með pinna í gegnum vaxhúðina sem byrj-
uð er að storkna þar til hann lendir í fljót-
andi vaxi. Þetta skal gera á háltíma fresti
þar til kertið er fullstorknað."
Helga segir að vax rými um' 15% við
það að storkna og því sé óhjákvæmilegt
að fylla upp í kerti sem steypt eru í mót.
„Þegar kertið er svo gott sem storknað
hafa myndast í því hvilftir og holur sem
þarf að bæta í vaxi. Hitið því afganginn af
vaxinu að nýju upp í 80” og hellið því í
holumar og látið áfyllinguna storkna.
Best er að losa kertið úr mótinu þegar það
er fullstorknað en ekki orðið alveg kalt.
Gott er að bera sápulög utan á mótið áður
en kertið er tekið úr. Teygið mótið utan af
kertinu og jafnið botninn í tómum potti á
heitri hellu eða með gömlu straujámi.
Vaxberið kveikinn ofan á kertinu með
brúnu vaxi svo að það líkist sem mest
venjulegu epli. Til að fá fallegan gljáa á
jólaeplið er tilvalið að pússa það með
gömlum nælonsokk."
Sérhönnuð kerti
Að sögn Heigu býður Kertagerðin Vax-
andi viðskiptavinum sínum, hvort sem
það eru einstaklingar eða fyrirtæki, að
sérhanna fyrir þá kerti fyrir ýmis tilefni.
„Við búum til kerti í stjaka sem erfitt er að
fá rétta stærð af kertum í, sérstaka liti eða
lögun og getum merkt kerti sérstaklega sé
þess óskað. Auk þess stöndum við fyrir
námskeiðum í kertagerð og seljum allt
sem þarf til kertagerðar. -Kip
Eplakerti
Eplakertið er steypt i gúmmímót sem hefur eplalögun. Klippið kveik um það bilfimm sentí-
metrum lengri en mótið. Þrœðið kveikinn með nál og í gegnum miðjuna efst á mótinu, not-
ið nálina siðan til þess að halda kveiknum á réttum stað.
Tilboð 1 10 tíma mánaðarkort, kr. 5.000 (rétt verð kr. 8.900)
Tilboð 2 15 tíma mánaðarkort, kr. 7.500 (rétt verð kr. 12.900)
Tilboð3 30 tíma 2ja mánaðakort, kr. 16.900. Kortinujylgir
Absolute Munieceur, mótandi og stinnandi gely að verðmœti kr. 3.600.
Rétt verð án gels 23.100. Ath., takmarkað magn.
Hringdu og pantaðu jrtanprufutíma. Sími 553 3818.
Opnunartími: mán. -jim.: 8 -21,fós.: 8 -20, lau.: 10-14
Eg náðifrábærum árangri á einum
mánuði og œtla að halda áfram.
Eg mæli hiklaust með Trimformi
Berglindar.
Guðrún Gunnarsdóttir
Egfer íTrimform Berglindarpegar
égsker niðurfyrir mót ogpað virkar I
velmeð annarripjálfun.
Lísa Hovland einkapjálfari |\
Munið vinsælu gjafakortin okkar
Skrdðupig í netklúbbinn okkar
'iowwtrimform. is
og við sendum nýjustu tilboðin.
TRIM/\F0RM
Grensásvegi 50
Sláðu til og nýttupér tilboðin -
byrjaðu strax.
Við böfum metnaðinn og
reynsluna.
Steypt í mót
Það fyrsta sem ber að hafa i huga er að flest
kerti sem steypt eru í mót eru steypt á hvolfi.
Aðferðin er mjög einföld og þvi tilvalin Jýrir
böm ogfullorðna að gera saman.
V