Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 18
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 Farið varlega um jólin Um jólin er notkun opins elds, rafmagnstœkja og annars búnaðar í hámarki ogafþeim sökum þarf að hafa brunavamir heimilanna igóðu lagi svo ekki hljótist af eldsvoðar eða slys. Brunavarnir heimilanna: , O /if/a/n neísfa Á þessum árstíma er notkun opins elds, rafmagnstækja og annars búnaðar í há- marki og af þeim sökum hafa hlotist bæði eldsvoðar og alvarleg slys. Hér á eftir er minnt á nokkur atriði sem hafa með brunavamir á heimilum að gera. Nánari upptýsingar er að fá á heimasíðu Slökkvi- liðs höfuðborgarsvæðisins (www.shs.is) og heimasíðu Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (www.lsssam- tok.is) Öryggistæki Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem ættu að vera á hverju heimili. Sker- andi vælið í þeim getur bjargað mannslíf- um. En til þess þurfa þeir: 1. Að vera til staðar og á réttum stað. 2. Að vera réttrar gerðar og í lagi. 3. Að hafa góða rafhlöðu. Til eru tvær megingerðir af reykskynj- urum; optískir og jónískir, auk skynjara sem sameinar eiginleika beggja. Jóníski skynjarinn skynjar vel reyk með stórum ögnum, til dæmis opinn eld, en síður upp- haf glóðarbruna, til dæmis í sófa, sem op- tíski skynjarinn nemur hins vegar mjög vel. Því er æskilegt að hafa báðar gerðim- ar á heimilinu. Einnig em til samtengjan- legir reykskynjarar og skynjarar með rat- ljósi. • Hafið eftirfarandi í huga um reyk- skynjara: • Ekki hafa reykskynjara í eða of ná- lægt eldhúsi. • Setjið optískan reykskynjara á ganga eða opin svæði. • Setjið optískan reykskynjara ná- lægt rafmagnstöflu. • Æskilegt er að setja reykskynjara í öll svefnherbergi. • Best er að samtengja alla reyk- skynjara í húsinu. • Sé húsið fleiri en ein hæð, setjið þá reykskynjara á allar hæðir. • Reykskynjara ber að koma fyrir í lofti, ekki nær vegg en 50 sentímetra. • Skiptið um rafhlöðu í reykskynjar- anum árlega. • Prófið reykskynjarann mánaðar- lega með því að ýta á prófunarhnappinn. Líftími reykskynjara er um það bil tíu ár. Aðgætið framleiðsludag/ár þegar reykskynjari er keyptur. Handslökkvitæki Til em margar gerðir slökkvitækja sem hafa má á heimilum. Mikilvægt er að all- ir á heimilinu viti hvar slökkvitæki em geymd og hvemig á að beita þeim. Slökkvitæki ber að yfirfara árlega af við- urkenndum þjónustuaðilum. Duftslökkvitæki eru ætluð á alla elda. Ekki er þó tryggt að duftið slökkvi eld þar sem myndast hefur glóð. Ráðlögð stærð á heimili er sex kíló. Kolsýmslökkvitæki em aðallega ætluð á virk rafmagnstæki. Þau slökkva þó ekki glóðareld fremur en duftslökkvitækin. Þau era til í mörgum gerðum og stærðum, allt frá tveimur kg. Vatnsslökkvitæki em aðallega ætluð á elda í fostum efnum, til dæmis timbri, vefnaði og pappír. Algengasta stærð tækj- anna er tíu lítrar. Léttvatnsslökkvitæki eru vatnsslökkvi- tæki sem froðuefni hefur verið bætt út í. Þau duga á sömu elda og vatnstækin en auk þess á olíu-, feitis- og rafmagnselda. Algengasta stærðin er sex og tíu lítrar. Eldvarnateppi Eldvamateppi em til í mörgum stærð- um og þau má nota aftur og aftur. Teppið er lagt yfir hinn brennandi hlut og þétt að. Ef teppið fer ofan í feiti í potti getur log- að í gegnum það. Þá er teppið tekið af og byrjað upp á nýtt. Fyrstu vi&brögb viö eldsvo&a Tilkynna öllum í húsinu um hættuna. Aðstoðið þá sem ekki geta bjargað sér sjálfir út úr húsinu. Tilkynnið slökkviliði um eldinn - 112. Reynið að bjarga því sem mögulegt er eða slökkva eldinn ef áhætta er lítil en fara út ella. Flóttalei&ir Greiður aðgangur þarf að vera að svalahurðum. Mikilvægt er að auðvelt sé að ljúka henni upp. Flestar svalahurðir opnast út þannig að fylgjast þarf með því, að snjór safnist ekki um of upp við hurð- ina. Hurðir rýmingarleiða eiga að vera opnanlegar innan frá án lykils (t.d. snerill á útihurð). Vinsamlega athugið að svala- lokanir em háðar samþykki byggingar- fulltrúa. í svefnálmu á að vera að minnsta kosti eitt björgunarop. Ef svefnálma er ekki sjálfstætt aflokað rými með aðgangi að að minnsta kosti einu björgunaropi eða björgunarsvölum á björgunarop að vera í hverju svefhherbergi. Ef neðri brún björg- unarops er tveim til fimm metrum frá jörðu á að koma fellistiga af viðurkenndri gerð fyrir við opið. Sé hæðin meiri þarf ömggari búnað. Björgunarop er opnan- legur gluggi sem þyrfti að vera hliðar- hengdur, sé hann topphengdur þarf sér- stakan búnað, stormjám, til að halda hon- um í opinni stöðu. Vanda þarf val á opn- unarbúnaði svo litil börn fari sér ekki að voða. Flóttaáætlun Þegar eldur kemur upp þar sem fólk sefur geta hiti og reykur valdið dauða nema þú hafir áætlun um hvemig bregð- ast á við, til dæmis um flótta úr svefnher- bergi á örfáum sekúndum. Áætlunin krefst: 1. Reykskynjara. 2. Flóttaáætlunar sem teiknuð er á blað. 3. Fjölskylduumræðna. 4. Æfinga. Haf&u tvær flóttalei&ir: 1. Framdyr og bakdyr. 2. Svefnherbergisglugga. Tryggðu að þessar flóttaleiðir séu ávallt greiðfærar. Brunaæfing á heimilinu: 1. Allir eiga að vera í sínu herbergi með hurðir lokaðar. 2. Einn á heimilinu gefur brunamerki með því að kalla ELDUR! ELDUR! 3. Hver og einn athugi herbergisdyr sínar. 4. Látið sem dymar séu heitar. Notið þá hina flóttaleiðina. 5. Allir mæti á fyrir fram ákveðinn stað utandyra, einn látinn „kalla til“ slökkviliðið. Ræðið eftirfarandi við fjölskylduna: 1. Sofið með svefhherbergisdymar lokaðar. Það heldur aftur af hinum eitr- aða reyk. 2. Reykskynjarinn mun væla og vekja fjölskylduna. 3. Athugið dymar. Ef þær em heitar notið þá hina flóttaleiðina. Séu þær kald- ar, verið viðbúin að loka aflur ef reykur eða hiti sækir inn. 4. Skriðið í reykfylltu herbergi, verið fljót út. 5. Farið á fyrir frarn valinn mótsstað svo þið getið athugað hvort öll fjölskyld- an sé óhult. 6. Farið ekki aftur inn í eld eða reyk. Verið viss um að aðrir fari heldur ekki inn. Fjöldi fólks hefúr látist við að reyna slíkt. 7. Kallið á slökkviliðið úr næsta síma. Heimild:www.bmnamal.is -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.