Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2002, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju Johann Sebastian Bach: Jólaóratóría Einstök stund í íslensku tónlistarlífi Að njóta Jólaóratóríu Bachs er einstök stund. Tveir af okkar fremstu söngvurum, Gunnar Guðbjörnsson og Marta Guðrún Halldórsdóttir, taka höndum saman með heimsþekktum kollegum sínum Andreas Schmidt og Monica Groop. Þau, ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands og Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Askelssonar, sameinast í flutningi á þessari mögnuðustu jóla- gleðitónlist allra tíma. í vændum er því einstakur viðburður í tónlistarlífi okkar. Hallgrímskirkja, fimmtudaginn 5. desember kl. 19:30(1-11 föstudaginn 6. desember kl. 19:30 (IV-VI) laugardaginn 7. desember kl. 17:00 (l-lll) Miðaverð: 2.500 kr. / 4.000 kr. ef keyptir eru miðar á tvenna tónleika. Jólatónleikar fjölskyldunnar Á boðstólum verður m.a. tónlist úr kvikmyndinni um töfrastrákinn Harry Potter og syrpa af heimsþekktum jólalögum. Krakkar úr Suzuki-skólanum koma fram og hinn frábæri kór Graduale Nobili. Að síðustu taka allir lagið saman og aldrei að vita nema jólasveinninn komi í heimsókn. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson Háskólabíó, laugardaginn 14. desember kl. 15:00. Miðaverð: 2.000 kr. /1.000 kr. fyrir böm 12 ára og yngri. „Glæsilegt verk“ EBU tónleikar Rfkisútvarpsins John Speight: Jólaóratoría ...var skrifað í blöð þegar Jólaóratóría Johns Speights var frumflutt í Hallgrímskirkju í desemþer 2001. Nú gefst annað tækifæri til að heyra verkið á tónleikum sem útvarpað verðurtil fjölmargra landa í Evrópu og víðar. Hljómsveitarstjóri: Hörður Áskelsson Einsöngvarar: Elín Ósk Óskarsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Garðar Thor Cortes og Benedikt Ingólfsson ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum Hallgrímskirkja, sunnudaginn 22. desemberkl. 17:00. Vín á heimavelli Vínartónleikar Vínartónleikar Sinfóniuhljómsveitarinnar eru nú aftur komnir í Háskólabíó og víst er að umgjörðin | verður með glæsilegasta móti. Tryggðu þérmiða ítíma. Hljómsveitarstjóri: Peter Guth Háskólabíó, miðvikudaginn 8. janúar kl. 19:30 fimmtudaginn 9. janúar kl. 19:30 föstudaginn 10. janúar kl. 19:30 laugardaginn 11. janúarkl. 17:00 Miðaverð: 3.000 / 2.600 / 2.200 kr. Giafakort J / x • / 1 • .. r er goójolagjof Gjöf sem hljómar vel! Settu saman gjafabréf Sinfóníunnar og láttu þá njóta sem þér þykir alveg sérstaklega vænt um! AÐALSTYRKTARA&ILt SINFÓbtlUHLJÓMSVEITAR (SLANDS SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabló við Hagatorg I Slmi 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Jól um víða veröld: „Það var ástin sem dró mig til íslands," segir Spánverjinn Eduardo Perez Baca, kokkur hjá Caffé kúltur við Hverfisgötu. „Ég hóf störf hjá Caffé kúltur þegar það var opnað og hef verið hér síðan. Að- sóknin hefur verið ágæt en það er yfirleitt mest að gera í hádeginu virka daga en á kvöldin um helgar. Við reynum að hafa matseðilinn einfaldan þar sem þetta er í raun kaffihús en bjóðum upp á átta fasta rétti með alþjóðlegu ívafi.“ Fólk fer meira út „Jólin á Spáni er ósköp svipuð jólunum hér, að því undanskildu að fólk fer meira út á götu og á veitingahús til að blanda geði við aðra. Við gerum okkur glaðan dag með góðum mat og víni og gefum hvert öðru gjafir. Á Spáni er venjan að gefa gjafimar 6. janúar þegar vitringamir þrír koma í heimsókn en ekki á aðfanga- dagskvöld eins og hér. Þegar vitringamir koma í bæinn er haldin skrúðganga og svo færa þeir bömunum gjafimar um nóttina. í gamla daga var algengt að fólk setti upp litlar eftirmyndir af Qárhúsinu í Betlehem og þar mátti sjá Maríu, Jósep, vitringana, kindur og kýr og Jesúbamið í vöggu en í seinni tíð hefúr færst í vöxt að fólk setji upp jólatré. Vitringamir eru einnig að vikja fyrir rauða kóka-kóla-gæjanum sem við köllum Papa Noel.“ Kryddjól Að sögn Eduardo verður boðið upp á Qölbreyttan matseðil á Caffé kúltur um jólin. „Við erum með sérstakan jólamat- seðil með alþjóðlegu ívafi þar sem gestir geta valið um þrenns konar rétti. Fyrsti rétturinn nefnist Kryddjól og samanstendur af hvítlauksristuðum út- hafsrækjum, tómká-súpu eða súrsætri kókoshnetusúpu frá Taílandi í forrétt en i aðalrétt er kjúklingabringa fyllt með sveskjum og valhnetum, ásamt ofnbök- uðu meðlæti, kínakáli og salati með myntu. Réttur númer tvö er með spænsku ívafi og kallast Saltfiskjól. í forrétt er boðið upp á Brandada de Bacalao eða saltfisk Saltfiskjól Eduardo Perez Baca kokkur ætlar að bjóða gestum Cajfé kúltur upp á alþjóðlegan mat- seðil um jólin. tartar, saltfisksalat með appelsínum, djúp- steiktar saltfiskkökur og geitaost með ólífúm. Aðalrétturinn er grillaður saltfisk- ur ásamt paprikusalati, gratíneruðum kartöflum og alioli-sósu og í eftirrétt er mjólkurdesert með kanil og vanillu. Við bjóðum líka upp á sérstakan mat- seðil fyrir grænmetisætur sem við köllum Grænmetisjól. í forrétt er Nam Goí sem er víetnamskur hrísgrjónaréttur með papriku og núðlum, spínat-gnocci með salvíusmjöri og grilluðu eggaldini, þistil- hjörtum og júgúrtsósu. í aðalrétt er egyp- skt falafel með kjúklingabaunum, tómat- salati, grísku pilaf og tahinisósu og í eftir- rétt er sojaís með heslihnetum." -Kip Skreyttur að- ventukrans Fyrsta kertið nefnist spá- mannskertið og minnir á fyrir- heit spámann- anna um komu frelsarans. Hvað heita kert- in á að- ventu- kransin- um? ríítn/ut d fio/nu Fjórði sunnudagur fyrir jól kallast fyrsti sunnudagur í aðventu og þá er van- inn að kveikja á fyrsta kertinu á aðventu- kransinum. Eftir það er kveikt á einu kerti á hveijum sunnudegi aðventunnar. Þegar kveikt er á kertunum fagna menn komu Krists og jótanna. Fyrsta kertið nefhist spámannskertið og minnir á fyrirheit spámannanna um komu ffelsarans. Annað kertið kallast Betlehemskertið og heitir eftir fæðingarbæ Jesúbamsins. Þriðja kertið nefhist hirðakertið eftir hirðingjunum sem fyrstir fengu fréttir um fæðingu frelsarans. Fjórða kertið er englakertið og minnir á englana sem fluttu ffegnina um fæðingu ffelsarans. -Kip 'Safat,fyda U ætlað fjórum til fimm Kjúklingur 4-5 kjúklingabringur, skomar í hæfi- lega stóra bita. Marinering: 1 desilítri púðursykur 1 desilítri BBQ-sósa 1/2 desilítri sojasósa 2-10 kreist hvítlauksrif, eftir smekk Blandað saman í skál og kjúklingurinn settur út í. Látið standa í einn til fjóra tíma. Salat Einn poki Alabama-salat Tómatar Rauðlaukur Rauð paprika Sveppir Fetaostur Hnetur brúnaðar á pönnu, eftir smekk. Upp á fat Salatið sett á fat. Kjúklingurinn ásamt marineringunni settur á pönnu og látið sjóða/steikjast vel og síðan er öilu hellt yfir salatið. Hnetunum stráð yfir í iokin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.