Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 5
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
25
DV
Sport
Sætið fyrir ofan
- stefnan hjá ÍR-ingum eftir að 32-23 sigur á Gróttu/KR kom þeim í 2. sætið
ÍR-ingar sigruðu þreytt og slappt
lið Gróttu/KR, 32-23, í Austurberg-
inu á laugardaginn var í Essodeild
karla í handknattleik. Með sigrinum
komust Breiðhyltingar í annað sæti
deildarinnar en gestirnir eru i þétt-
um og jöfnum pakka nokkrum sæt-
um neðar.
ÍR-ingar tóku leikinn i sínar hend-
ur strax í upphafi og þeir komust
frekar snemma í sjö marka forystu,
9-2, en gestirnir fóru þá aðeins að
bíta frá sér. Talsverð harka var ein-
kennandi í fyrri hálfleik og tveir
leikmenn iR-inga fengu að líta rauða
spjaldið. Fyrst Guðlaugur Hauksson
fyrir afar klaufalegt brot á Alexandr
Pettersons og síðan fékk Ingimundur
Ingimundarson þrjár brottvísanir,
þar af þá síðustu fyrir tuð. Leikmenn
mættu öllu rólegri til leiks eftir leik-
hléið og virtist brotthvarf Guðlaugs
og Ingimundar ekki há ÍR-ingum hið
minnsta, frekar var eins og þeir
hefðu sfyrkst við þetta mótlæti.
Svipað var uppi á teningnum
varðandi handboltann framan af sið-
ari hálfleik, heimamenn áberandi
betri og á síðustu tíu minútunum
kaffærðu þeir hreinlega gestina og
þegar upp var staðið munaði níu
mörkum, 32-23.
Mótspyrnan lítil
Það verður að segjast alveg eins og
er að lið Gróttu/KR var mjög slakt í
þessum leik og mótspyrna þess var
afar lítil. Kristján Þorsteinsson var
sá eini í liði Gróttu/KR sem lék vel,
markvarslan var slök en skánaði að-
eins þegar Kári Garðarsson kom inn
á. Dainis Rusko var allt of seinn í
gang og þessi sex mörk sem hann
gerði töldu lítið því úrslitin voru ráð-
in þegar hann loksins fann fjölina
sina.
Einar að skríða saman
Hjá ÍR-ingum var Hreiðar Guð-
mundsson traustur í markinu og
stórskyttan Einar Hólmgeirsson
gerði fma hluti, en piltur er rétt að
skríða saman eftir ökklameiðsl sem
hann hlaut í leiknum við Val fyrr i
vetur. Sturla Ásgeirsson var feiki-
góður og nýtti skot sín fullkomlega
og þá voru þeir Ólafur Sigurjónsson
og Fannar Þorbjörnsson sterkir.
Bestur þeirra ÍR-inga var þó fyrir-
liðinn Bjarni Fritzson, en hann var
afar áræðinn og kraftmikill. Hann
var hress sem fress þegar DV-Sport
kom að máli við hann eftir leik:
Allir lögðu sitt af mörkum
„Við erum ekki ánægðir með gengi
okkar að undanfórnu og vorum stað-
ráðnir í því að klára þennan leik af
krafti og mér fannst við sem lið spila
vel hér i dag. Allir lögðu sitt af mörk-
um og það er einfaldlega nauðsynlegt
ef við ætlum okkur að halda öðru
sætinu, þótt auðvitað við stefnum á
sætið fyrir ofan,“ sagði Bjarni og var
í jólaskapi. -SMS
1-0, 2-10, 5-11, 6-14, (8-17), 8-19, 9-21, 12-22,
15-23, 16-30, 17-35, 19-36, 20-38.
Selfoss:
Selfoss-Haukar 20-38
Mörk/viti (skot/viti): Ramunas Mikalonis
7/1 (18/2), Atli Rúnarsson 3 (4), Andri
Úlfarsson 3 (4), ívar Grétarsson 3 (8), Atli
Kristinsson 3 (9/1), Guðmundur Ingi
Guðmundsson 1 (2), Hörður Bjamarson (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: Engin.
Vitanýting:'Skoraö úr 1 af 3.
Fiskuó viti: ívar, Mikalonis, Atli K.
Varin skot/viti (skot á sig): Jóhann Ingi
Guðmundsson 11 (42/4, hélt 6, 26%), Einar
Þorgeirsson 0 (7/2, hélt 0, 0 %).
Brottvísanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10):
Valgeir Ómarsson
og Bjami Viggós-
son (7).
Gœði leiks
(1-10): 3.
Áhorfendur: 39.
Maöur
Ásgeir Hallgrímsson, Haukum
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Aron Kristjánsson 7
(8), Ásgeir öm Hallgrímsson 6 (6), Robertas
Pauzuolis 5 (6), Halldór Ingólfsson 5/4 (7/4),
Vignir Svavarsson 4 (5), Þorkell Magnússon
3/1 (3/1), Jón Karl Bjömsson 3/1 (3/1),
Sigurður Þórðarson 2 (3), Birkir ívar
Guömundsson 1 (1), Bjami Frostason 1 (1),
Andri Stefan Guörúnarson 1 (2), Aliaksandr
Shamkuts (2), Jason Kristinn Ólafsson (2).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 5 (Aron 2,
Þorkell, Vignir, Andri).
Vítanýting: Skoraö úr 6 af 6.
Fiskuð viti: Ásgeir 2, Vignir 2, Shamkuts,
Andri.
Varin skot/víti (skot á sig): Birkir ívar
Guömundsson 8/2 (16/3, hélt 5, 50%), Bjami
Frostason 8 (20, hélt 4, 40%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
ÍR-ingurinn Einar Hólmgeirsson reynir hér að komast fram hjá Magnúsi Agnari Magnússyni og Alfreö Finnssyni,
leikmönnum Gróttu/KR í leik liöanna í Essodeildinni á iaugardaginn. Einar og félagar hans í ÍR unnu öruggan sigur
og skoraöi Einar sex mörk í leiknum. DV-mynd Siguröur Jökull
^ Selfyssingar steinlágu fyrir Haukum á laugardaginn:
I jólaköttinn
- Selfyssingar luku keppni fyrir jól með því að tapa sautjánda leiknum í röð
Það var aldrei spurning hvort
liðið færi með sigur af hólmi þegar
Selfoss og Haukar mættust i Esso-
deildinni á Selfossi á laugardaginn.
Selfyssingar eru á botninum en
Haukar í toppbaráttunni og var
munurinn á liðunum mikill og
greinilegur. Átján marka sigur
Hauka, 33-20, var öruggur og nær
allir leikmenn liðsins skoruðu
mark, meðal annars báðir mark-
verðimir.
Selfyssingar voru reyndar bók-
staflega slegnir út af laginu strax í
upphafi leiks þegar primusmótor
liðsins, Hannes Jón Jónsson, þurfti
að fara af velli. Aron Kristjánsson
slæmdi olnboganum í nefið á Hann-
esi í gegnumbroti, um leið og hann
skoraði fyrsta mark Hauka.
Hannes fékk hraustlegt höfuð-
högg og þurfti að leita læknis til að
rétta nefið og lék því aðeins rúma
mínútu í leiknum.
Haukar voru á allt öðrum hraöa
í sínum leik og áttu heimamenn í
mestu vandræðum í sókninni. Aron
fór oft illa með Selfyssinga líkt og
Ásgeir Hallgrímsson sem var einna
bestur í Haukaliðinu og gerði sex
falleg mörk.
Að sama skapi var sóknarleikur
Selfyssinga stirður og vandræðaleg-
ur en mikla athygli vakti innákoma
Atla Kristinssonar sem er aðeins 16
ára gamall. Atli, sem lék stöðu leik-
stjómanda og skoraði þrjú mörk,
var gjörsamlega óhræddur við
gömlu kallana og þarna er greini-
lega mikið efni á ferðinni.
Haukar höfðu tryggt sigur sinn í
hálfleik í stöðunni 8-17 og gátu því
leikið síöari hálfleikinn í rólegheit-
um. Þeir gáfu síðan aftur í undir
lokin og uppskáru átján marka sig-
ur.
Selfyssingar fóru hins vegar i
jólaköttinn og verða vonandi
sloppnir frá honum aftur þegar
Essodeildin hefst á nýjan leik í febr-
úar. -GKS
IR-Grótta/KR 32-23
2-0, 9-2, 10-7, 14-9, 15-11, (16-12), 16-13, 19-14,
21-17, 25-19, 28—20, 30-22, 32-23.
ÍEl
Mörk/viti (skot/víti): Bjarni Fritzson 7 (9),
Sturla Ásgeirsson 6/1 (6/1), Einar Hólmgeirs-
son 6 (11), Ólafur Sigurjónsson 6/3 (12/4),
Fannar Þorbjörnsson 3 (4), Ingimundur Ingi-
mundarson 2 (3), Ragnar Helgason 1 (1),
Tryggvi Haraldsson 1/1 (1/1), Þorleifur
Björnsson (3).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 9 (Sturla 3,
Bjarni 3, Einar, Ragnar, Fannar).
Vítanýting: Skoraö úr 5 af 6.
Fiskuð viti: Þorleifur 2, Einar, Bjami, Fann-
ar, Sturla.
Varin skot/viti (skot á sig): Hreiðar Guö-
mundsson 14 (37/1, hélt 7, 38%).
Brottvisanir: 12 mínútur (Ingimundur og
Guðlaugur Hauksson rautt).
Dómarar (1-10).
Guöjón L. Sigurðs
son og Ólafur Har
aldsson (6).
Gœði leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur: 240.
Maður leiksir
Ðjarni
Grótta/KR:
Mörk/vtti (skot/viti): Dainis Rusko 6 (10),
Kristján Þorsteinsson 5 (7), Aleksandr Peter-
sons 4 (9), Magnús A. Magnússon 3 (3), Páll
Þórólfsson 3/1 (7/1), Alfreð Finnsson 2 (5),
Hörður Gylfason (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Kristján 2,
Páll, Petersons 1)
Vitanýting: Skorað úr 1 af 1.
Fiskuð vítU Petersons.
Varin skot/víti (skot á sig): Hlynur
Morthens 5 (19/3, hélt 1, 26%), Kári Garðars-
son 10/1 (28/3, hélt 2, 36%).
Brottvísanir: 8 mínútur.
Sigur hjá
Magdeburg
Heil umferð fór fram í þýsku 1.
deildinni í handknattleik um helg-
ina.
Magdeburg vann öruggan sigur á
Grosswallstadt, 29-24. Ólafur Stef-
ánsson skoraði fjögur mörk fyrir
Magdeburg en Sigfús Sigurðsson
var ekki meðal markaskorara.
Enn sigrar Lemgo
Wetzlar, lið Róbert Sighvatssonar
og Sigurðar Bjarnasonar, tapaði
naumlega fyrir toppliði Lemgo,
29-27, á heimavelli. Róbert skoraði
fimm mörk fyrir Wetzlar og Sigurð-
ur skoraði tvö mörk. Lemgo hefur
nú unnið alla sautján leiki sína
deildinni og setur met í hverjum
sigurleik.
Essen steinlá á útivelli gegn
Flensburg, 26-18, á laugardaginn.
Patrekur Jóhannesson skoraði eitt
mark fyrir Essen en Guðjón Valur
Sigurðsson komst ekki á blað.
Gústaf Bjamason skoraði eitt
mark þegar Minden vann Lúbbecke,
24-20. -ósk
Valur 17 12 3 2 466-366 27
ÍR 17 12 1 4 497—446 25
HK 17 11 2 4 476-446 24
Haukar 16 11 1 4 468-378 23
KA 16 10 3 3 436-402 23
Þór, A. 17 10 0 7 481-446 20
FH 17 9 2 6 457-432 20
Fram 17 8 3 6 432-421 19
Grótta/KR 16 8 1 7 407-371 17
Stjarnan 17 5 2 10 441-477 12
Afturelding 16 4 2 10 376-414 10
ÍBV 17 4 2 11 386-482 10
Víkingur 17 1 2 14 422-514 4
Selfoss 17 0 0 17 410-560 0
Nú verður gert hlé á mótinu til 4.
febrúar vegna undirbúnings og þátt-
töku íslenska landsliösins á heims-
meistaramótinu í handknattleik sem
hefst í Portúgal 20. janúar.