Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 10
30
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
Sport____________________________________________________________________________x>v
^ Arsenal enn í toppsætinu eftir sigur á Middlesbrough á laugardaginn:
I sitt gamla form
- Robert Pires skoraði fallegt mark og er að ná fyrri styrk eftir erfið meiðsl
fZ* EN6LAND
Úrvalsdeild:
Úrslit:
Arsenal-Middlesbrough......2-0
1-0 Sol Campbell (45.), 2-0 Robert
Pires (90.).
Birmingham-Charlton........1-1
0-1 Claus Jensen (37.), 1-1 Paul Davl-
in, víti (67.).
Chelsea-Aston Villa........2-0
1-0 Eiður Smári Guðjohnsen (42.), 2-0
Frank Lampard (57.).
Leeds-Southampton..........1-1
1-0 Harry Kewell (74.), 1-1 Fabrice
Femandes (88.).
Newcastle-Fulham...........2-0
1-0 Nolberto Solano (7.), 2-0 Craig
Bellamy (70.).
West Brom-Sunderland.......2-2
1- 0 Danny Dichio (27.), 2-0 Jason
Koumas (33.), 2-1 Kevin Phillips (56.),
2- 2 Kevin Phillips (64.).
West Ham-Bolton ...........1-1
1-0 Ian Pearce (17.), 1-1 Michael
Ricketts (65.).
Blackbum-Man. Utd .........1-0
1-0 Gary Flitcroft (40.).
Liverpool-Everton..........0-0
Staöan:
Arsenal 19 12 3 4 39-20 39
Chelsea 19 10 7 2 34-15 37
Man. Utd 19 10 5 4 30-18 35
Everton 19 10 3 6 22-21 33
Newcastle 18 10 2 6 29-24 32
Liverpool 19 9 5 5 28-19 32
Southampt. 19 7 7 5 22-19 28
Tottenham 18 8 4 6 24-24 28
Blackbum 19 7 6 6 25-22 27
Middlesbr. 19 7 5 7 22-18 26
Charlton 19 7 4 8 21-23 25
Man. City 18 7 3 8 22-25 24
Birmingh. 19 6 6 7 18-22 24
Fulham 19 6 4 9 22-25 22
Aston Villa 19 6 4 9 17-20 22
Leeds 19 6 3 10 24-26 21
Stmderland 19 4 6 9 12-26 18
West Brom 19 4 4 11 15-29 16
Bolton 18 3 6 9 19-32 15
West Ham 19 3 5 11 18-35 14
1. deild:
Úrslit
Brighton-Leicester............0-1
Gillingham-Burnley............4-2
Grimsby-Sheff. Wed.............2-0
MUlwall-Wolves................1-1
Norwich City-Walsail .........2-1
Nott. Forest-Reading..........2-0
Portsmouth-Ipswich ...........1-1
Sheff. Utd-Preston.............1-0
Watford-Bradford ..............1-0
Wimbledon-Stoke ..............1-1
Coventry-Derby................3-0
Rotherham-C. Palace............1-3
Staðan:
Portsmouth 24 16 6 2 49-22 54
Leicester 24 15 6 3 38-21 51
Nott. Forest 24 12 6 6 40-22 42
Norwich 24 12 6 6 36-21 42
Sheff. Utd 23 12 6 5 36-24 42
Reading 23 12 3 8 24-18 39
Wolves 23 10 7 6 40-24 37
Watford 24 11 4 9 30-36 37
C. Palace 24 9 9 6 37-27 36
Coventry 24 10 6 8 32-30 36
Rotherham 24 9 7 8 41-31 34
Gillingham 24 9 7 8 30-31 34
Derby 24 10 3 11 28-31 33
Wimbledon 24 9 5 10 39-39 32
Bumley 24 9 5 10 35-45 32
Preston 24 7 10 7 40-39 31
Millwall 24 8 6 10 25-36 30
Ipswich 23 7 7 9 31-29 28
Walsall . 24 8 4 12 37-40 28
Bradford 24 5 7 12 2642 22
Grimsby 24 5 5 14 26-47 20
Stoke 24 3 8 13 24-42 17
Brighton 24 3 5 16 2643 14
Sheff. Wed 24 2 8 14 17-40 14
Leikmenn Stoke sýndu styrk á laug-
ardaginn þegar þeim tókst að tryggja
sér dýrmætt stig á útivelli gegn
Wimbledon. Það var framherjinn há-
vaxni, Chris Iwelumo, sem skoraði
jöfnunarmark Stoke á 89. mínútu en
það breytir þó ekki því að liðið hefur
ekki sigrað í fimmtán leikjum í röð
og er enn í þriðja neðsta sæti deildar-
innar, þremur stigum frá næsta liði,
sem er Grimsby. -ósk
Þrátt fyrir að glæsileikinn sem oft á
tíðum hefur einkennt leik Arsenal í
vetur hafi verið víðs fjarri þegar liðið
mætti Middlesbrough á laugardaginn
tókst liðinu samt að vinna sigur, 2-0,
og halda toppsætinu, í bili að minnsta
kosti.
Sigur Arsenal var þó öruggur og
geta stuðningsmenn liðsins glaðst yfir
leik Erakkans Roberts Pires sem átti
frábæran leik og virðist vera að
komast í sitt gamla form eftir langa
fjarveru vegna erflðra hnémeiðsla.
Arsene Wenger, knattspymustjóri
Arsenal, hrósaði vamarmanninum Sol
Campbell, sem skoraði fyrra mark liðs-
ins með skalla, eftir leikinn.
„Sol átti mjög góðan leik. Hann
vann hvert einasta návígi og mark
hans var frábært. Þegar maður, jafn
stór og sterkur og hann er, fer á ferð
er hann óstöðvandi," sagði Wenger.
„Middlesbrough mætti til leiks með
það að leiðarljósi að verjast og þeim
tókst það í fyrri hálfleik. Fyrra mark
okkar kom á frábærum tima og opnaði
Gordon Strachan, knattspyrnustjóri
Southampton. Reuters
leikinn. Ég var svolítið taugaóstyrkur í
stöðunni 1-0 því að þá getur alit gerst
en strákarnir sýndu mikinn styrk og
mikla einbeitingu," sagði Wenger.
Steve McClaren, knattspymustjóri
Middlesbrough, kvartaði yfir dómaran-
um eftir leikinn og sagði að brottvísun
hins unga Lukes Wilkshires hefði ver-
ið strangur dómur.
„Mér fannst dómarinn vera of fljót-
ur á sér þegar hann gaf stráknum
rauða spjaldið. Eftir það vorum við
einum færri og hlutirnir urðu erfiðari
fyrir okkur. Ég get samt ekki kvartað
yfir mínum mönnum. Þeir stóðu sig
vel og reyndu allan tímann að sækja,"
sagði McClaren.
Sjálfstraust, ekki hroki
Það ætlar að ganga brösuglega fyrir
Leeds að komast á skrið. Á laugardag-
inn missti Leeds af sigrinum á síðustu
stundu gegn Southampton þegar
Fabrice Femandes jafnaði metin á 88.
mínútu og var þetta í sjötta sinn á
tímabilinu sem Leeds fékk á sig mark
á síðustu tveimur mínútum leiksins.
Gordon Strachan, knattspymustjóri
Southampton, sagði að réttlætinu hefði
verið fullnægt en hans menn hefðu
fengið 11 stig af fimmtán mögulegum í
síðustu fimm leikjum.
„Við erum ánægðir með stigið því
að þeir náðu forystunni og við þurftum
að jafna leikinn en úrslitin voru sann-
gjöm. Ég verð að hrósa mínum mönn-
um. Þetta er hópur leikmanna með
sjálfstraust en ekki hroka. Þeir hafa
það á tilfinningunni að þeir geti unnið
önnur lið en þeir bera einnig virðingu
fyrir öðrum liðum því að þeir vita að
þau geta sigrað þá,“ sagði Strachan eft-
ir leikinn.
Newcastle vann sinn áttunda leik í
röð í heimavelli þegar liðið bar sigur-
orð af Fulham, 2-0, á laugardaginn.
Bobby Robson, knattspyrnustjóri
Newcastle, var sáttur eftir leikinn og
hrósaði Kieron Dyer og Gary Speed
fyrir frábæran leik. Hann sagði einnig
að liðið væri farið að sýna sitt rétta
andlit og það yrði ekki auðsigrað það
sem eftir lifði tímabils.
Jean Tigana, knattspymustjóri Ful-
ham, var ekki jafn glaður eftir leikinn.
Það er mikið um meiðsli í herbúðum
Fulham og það gerir liðinu erfitt fyrir.
„Við vissum að nóvember og desem-
ber yrðu erfiðir mánuðir. Þá er leikið
þétt og erfitt fyrir lið eins og okkur,
sem höfum ekki marga leikmenn, að
hanga í bestu liðunum.
Endurkoma Eiðs
Eiður Smári Guðjohnsen minnti
rækilega á sig á laugardaginn þegar
hann fékk tækifæri í byrjunarliði
Chelsea á kostnað Gianfranco Zola á
laugardaginn gegn Aston Villa. Eiður
Smári skoraði fyrra mark Chelsea og
átti mjög góðan leik. Chelsea-liðið er
gifurlega öflugt þessa dagana og hefur
ekki tapað leik í úrvalsdeildinni í þrjá
mánuði en Claudio Ranieri, knatt-
spymustjóri liðsins, var þó ekki full-
komlega sáttur eftir leikinn.
„Ég er ekki sáttur við leik okkar í
dag því að Aston Villa var betri aðilinn
í leiknum. Sigurinn var þó mikilvægur
en við gerðum ekki marga góða hluti í
leiknum," sagði Ranieri eftir leikinn
en gat þó ekki annað glaðst yfir stöð-
unni í deildinni.
„Hún er frábær en það sem skiptir
máli er að vera á þessum stað þegar
deildin er búin. Ef það verður raunin
þá verð ég mjög hamingjusamur mað-
ur,“ sagði Ranieri.
Jafnt hjá botnliöunum
Botnliðin fjögur léku innbyrðis á
laugardaginn og lyktaði báðum leikj-
unum með jafntefli.
Láras Orri Sigurðsson og félagar
hans í West Brom geta nagað sig í
handarbökin eftir að hafa kastað frá
sér sigri gegn Sunderland. West Brom
leiddi með tveimur mörkum í hálfleik
en markahrókurinn Kevin Phillips
náði að bjarga stigi fyrir Sunderland
með tveimur mörkum i síðari hálfleik.
Gary Megson, knattspyrnustjóri
West Brom, var óður eftir leikinn og
sagði að ef leikmenn hans héldu áfram
að gefa frá sér sigra í leikjum eins og
þeir heföu gert til þessa þá biði þeirra
ekkert annað en fall í 1. deild.
Howard Wilkinson, knattspymu-
stjóri Sunderland, þakkaði Kevin
Phillips fyrir stigið og sagði að hann
væri maðurinn sem gæti bjargað tíma-
bilinu fyrir Sunderland.
„Aðalumræðuefnið undanfarin tvö
ár hefur verið hvort Phillips yrði seld-
ur. Hann verður ekki seldur. Það má
vel vera að ég sé heimskur en svo
heimskur er ég ekki,“ sagði Wilkinson.
West Ham er enn án sigurs á heima-
velli eftir jafntefli gegn Guðna Bergs-
syni og félögum hans í Bolton.
Glenn Roeder, knattspyrnustjóri
West Ham, kenndi dómaranum um
jafnteflið, sagði að mark Boltons hefði
verið rangstaða og að vitaspyma hefði
verið höfð af West Ham sem situr á
botni deildarinnar með 14 stig og er
falldraugurinn farinn að knýja dyra af
miklu afli hjá liðinu. -ósk
SKOTLANP
Úrslit
Aberdeen-Livingston...........0-0
Celtic-Dundee ................2-0
Dundee Utd-Hearts ............0-3
Kilmamock-Hibemian............2-1
Partick-Rangers...............1-2
Staðan
Rangers 21 18 3 0 64-16 57
Celtic 21 17 2 2 57-13 53
Hearts 21 9 6 6 32-32 33
Dunferml. 20 10 3 7 37-38 33
Hibemian 21 9 2 10 29-31 29
Kilmamock 21 8 5 8 22-33 29
Dundee 21 6 7 8 25-32 25
Partick 21 5 6 10 22-34 21
Aberdeen 21 4 8 9 18-34 20
Livingston 21 4 5 12 27-34 17
Dundee Utd 21 3 6 12 1641 15
Motherwell 20 3 5 12 25-38 14