Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Side 15
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
35
Sport
i>v
Fyrir þá sem eru í þessu af alvöru
er rétt aö benda á að jafnframt er
hægt aö fá pela með merki Liverpool
og ekki er nú amalegt fyrir
stuðningsmann Liverpool að horfa á
sína menn á Anfield Road með
Liverpool-krúsina sína og í fangi
hans liggur ungur sonurinn að horfa
á leikinn með pabba með Liverpool-
pelann sinn.
Enginn í jólaköttinn
Svo má að sjálfsögðu kaupa
heíbundna hluti á borð við bangsa í
„rétta“ búningnum sem og bolta.
Þannig að þið feður sem vöknuðuð
með öran hjartslátt í morgun getið
byrjað að draga andann rólega því
Ert þú í vandræðum með jólagjafirnar?
Viö höfum lausnina
- og þú þarft ekki að fara í jólaköttinn í ár
lausnin er fundin og engin ástæða til
þess fyrir nokkurn að fara í
jólaköttinn í ár. -HBG
Hér að ofan gefur að líta Arsenal-
samfelluna og pelar og fleira er hér
til vinstri.
DV-mynd Hari
Þeir voru væntanlega ófáir
karlmennimir sem vöknuðu upp við
vondan draum í morgun og áttuðu sig
á því að það er kominn
Þorláksmessudagur. Mest, ef ekki öU,
jólainnkaupin eftir og tíminn
hugsanlega af skomum skammti.
DV-Sport reddar málunum
En þeir feður sem eiga böm í yngri
kantinum þurfa ekki að örvænta því
DV-Sport hefur fundið lausnina fyrir
þá ■ ef þeir era miklir
knattspyrnuunnendur og kannski
ekki síst áhugamenn um enska
boltann.
íþróttavöruverslunin Jói Útherji
býður nefnilega ýmislegt skemmtilegt
þessa dagana fyrir feður í vanda sem
vilja ekki „missa barnið sitt í hitt
liðið.“
Samfellur
Þar ber helst að nefna ansi
skemmtilegar samfellur fyrir böm frá
þriggja mánaða og upp úr.
Það sem er svo skemmtilegt við
þessar samfellur er að þær era með
merki enskra félaga og sem stendur
er hægt að fá þær með merkjum
Englandsmeistara Arsenal og
Liverpool. Slagorð Jóa er: „Ekki
missa bamið í hitt liðið."
Meiningin er því sú að feðumir
sjái til þess frá unga aldri að bamið
alist upp við að styðja „rétta liðið“
sem öllum kemur nú ekki saman um
hvað er.
... og smekkir
Nú ef menn vilja ganga enn lengra
þá má benda á smekki með merkjum
enskra félaga og hvað er nú fallegra
en ungbarn með Liverpool-smekk
útataðan eplamauki?
Það gæti heillað margan
stuðningsmann Rauða hersins og
eflaust gæti það einnig heillað til að
mynda stuðningsmenn Manchester
United því margir þeirra hefðu
eflaust gaman af því að sjá merki
Liverpool útatað ýmsum
matarleifúm.
... eöa pelar
Sérsamböndin hafa oröid...
íþrótta- og ólympíusamband íslands:
Níu nóttum fyrir jól
Á hverjum
mánudegi kemur ,Á ::
DV út með 24 síð-
ur af íþróttaefni.
Það er glæsilega
gert. Sömu sögu er /~\ r\
aö segja af Mogg- UvA
anum (sem nú ætl-
ar líka að koma út
á mánudögum) og sjónvarp og út-
varpsstöðvar standa sig líka í stykk-
inu og flytja okkur íþróttafréttir.
Fjölmiðlarnir mikilvægir
Hvers vegna skyldi þetta nú vera
gert, nema vegna þess að útgefend-
ur og aðstandendur fjölmiðla gera
sér grein fyrir þeim mikla áhuga á
íþróttum sem ríkir úti á meðal al-
mennings og þeirri brennandi þörf
að úrslit leikja og móta berist sem
fyrst til íþróttaáhugamanna, til
þjóðarinnar, sem er öll, meira og
minna, á kafi í íþróttum. Annaö
hvort við sjálf, eða bömin okkar eða
bamabömin, félagið okkar, bærinn
okkar, landsliðin okkar. Fjölmiðl-
amir gegna þessu hlutverki upplýs-
inga og frásagna og eru þannig
ómetanlegur þáttur í eflingu íþrótta-
lífsins.
Grasrótin má ekki gleymast
Stundum finnst manni að áhersl-
umar séu ekki alltaf réttar, of mik-
ið um boltaíþróttir. En hvað ætti ég
aö vera kvarta, gamall fótbolta- og
handboltamaður? Það er kannske
fyrir þá sök að ég sem forseti heild-
arsamtakanna veit um allt það
mikla starf sem fram fer hjá öðram
íþróttagreinum og skil þá angist
sem brýst þar fram, þegar aldrei eða
sjaldan er þess getið sem þar á sér
stað. Það má ekki gleymast að níu-
tíu prósent íþróttastarfsins snýr að
ungviðinu, að grasrótinni, enda þótt
keppni og atburðir í hópi þeirra
bestu séu af eðlilegum ástæðum
mest í sviðsljósinu.
Vantar stuðning
íþróttasambandið hefur af veik-
um mætti reynt að gefa út sérstakt
blað, öðruvísi íþróttablað og öðru-
vísi fréttir, af íþróttum og ágæti
þeirra, af fólkinu á bak við félögin,
af íþróttunum sem era í felum en
eru þó stykki í púsluspilið, í lífríki
þeirrar fjölbreyttu félagsstarfsemi
sem íþróttimar standa og falla með.
íþróttasamtökin eru ein fjölskylda,
sem hefur sömu hagsmuni og sömu
vandamálin, aðstöðuleysi, peninga-
leysi. Og skilningsleysi, já, skiln-
ingsleysi stjómvalda og almennings
og fiölmiðla um þá undirstöðu og
kjölfestu, sem felst í endurgjalds-
lausu framlagi og fómum fjölda
fólks í hinum ýmsu íþróttafélögum
og íþróttagreinum. Um árabil, svo
lengi sem ég man, höfum við gengið
með betlistaf í hendi og gengiö bón-
leiöir til búðar hvað varðar meiri
skilning um meiri stuðning.
Sú þrautarganga tekur aldrei
enda. Og hún mun vart bera árang-
ur, ef viö göngum þar einir og í
kyrrþey.
Fjölmiðlar geta hjálpað
Metnaðarfullir fjölmiðlar gætu
hjálpað þar til. Af hverju þurfa félög
að draga sig út úr keppni? Hver er
Ellert B. Schram,
forseti íþrótta- og
ólympíusambands
tslands, skrifar:
þessi einstaklingur sem stendur á
bak við velgengni sinna manna? Af
hveiju er meiri ástundun íþrótta í
einu bæjarfélagi en öðra? Hvað er
ÍSÍ að gera í fræðslumálum, lyfjaeft-
irlitsmálum, skipulagsmálum, fjár-
málum? Af hveiju er fjárveitingar-
valdið ekki spurt, hvers vegna
íþróttimar bera skarðan hlut frá
borði í samanburði við ýmsa aðra
starfsemi? Er það ekki einnar frétt-
ar virði að skýra frá þvi að hér í
Reykjavík er haldinn stærsti
íþróttaleiðtogafundur sögunnar?
Hvaða áhrif kann það að hafa í för
með sér og árangur, fyrir íslenskt
íþróttalíf á alþjóöavettvangi?
öfl úrslit, allir sigrar inni á vell-
inum hafa sínar skýringar utan l -
vallar. Og töpin líka.
Nýtt ár fram undan
Nú er nýtt ár að hefjast, nýr kafli
í tímatalinu. En íþróttimar halda
sínu striki, þar er ekkert lát á, eng-
in timamót, engu móti eða keppni
er fyrr lokið en sú næsta byrjar. Og
þar erum við öll þátttakendur, kepp-
endumir, forystumennirnir, áhang-
endurnir, íþróttafréttamennimir,
allur þorri landsmanna, sem hver
og einn leggur sinn skerf af mörk-
um og gerir íþróttir á íslandi að
spennandi, samhangandi og tr-
skemmtilegri upplyftingu. Árið um
kring og alla daga.
Nú er bara að éta á sig gat um jól-
in og svo áfram, áfram, upp á hól,
stend ég og kanna, níu nóttum fyrir
jól, kem ég til manna.
Gleðileg jól og gott nýtt ár.