Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 Fréttir I>V Val Deiglunnar: Árni Sigfús- son ber af Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hefur verið valinn Maður ársins 2003 í íslenskum stjómmálum á vefritinu Deigl- unni. Með fram- boði sínu í Reykjanesbæ seg- ir Deiglan að Ámi hafi sýnt pólitískt hug- rekki og í störf- um sínum hafi Arni Sigfússon. hann reynst öfl- ugur talsmaður einstaklingsfrelsis og mannréttinda. Deiglan segir að sú hugmynd aö forstjóri og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur byði sig fram sem bæj- arstjóraefni syöra hafi ýmsum þótt glannaleg. Þegar leið að kosningum hafi komið í ljós að bæjarbúum leist vel á frambjóðandann og með kraft- mikilli kosningabaráttu hafi sjálf- stæðismenn tryggt sér glæsilegan sigur, fengið 52% fylgi en Sjálfstæð- isflokkurinn hafði aldrei fyrr haft meirihluta í Keflavík. Áma er hælt fyrir sjálfstæðar skoð- anir og röggsemi sem stjórnandi. Hann sýndi styrk með því að mót- mæla meðferð stjómvalda á Falun Gong-fólki sem hingað leitaði síðasta vor. Árni þorði líka að lýsa þeirri skoðun sinni að hann teldi bann við einkadansi brjóta í bága við atvinnu- frelsisákvæði stjórnarskrárinnar. „Ámi Sigfússon hefur með ár- angri sínum í Reykjanesbæ sýnt að hann er ótvírætt einn af öflugustu stjómmálamönnum landsins og mun hann vafalaust láta viðar til sín taka þegar fram líða stundir," segir á Deiglunni. -JBP Mikill erill hjá lögreglunni Erilsamt var hjá Lögreglunni í Reykjavík í nótt. Tilkynnt var um innbrot i fyrirtæki á Laugavegi um hálffimmleytið í nótt. Þegar lögregl- an kom á staðinn var þjófurinn enn innandyra og tókst að handsama hann. Áð sögn lögreglunnar er þjóf- urinn góðkunningi hennar og hefur oft komið þar við sögu. Einnig var bíll stoppaður við Austurberg í Reykjavík en í bílnum fundust fimm e-töflur og hassmoli. Þá fann lögreglan geislaspilara og annað sem hana grunar að tekið hafi verið ófrjálsri hendi. Einnig þurfti lögregl- an að leita tveggja drengja, fæddra 1988, en þeir sögðu foreldrum sínum að þeir myndu gista hvor hjá öðrum. Þegar foreldrarnir áttuðu sig á að þeir væru á hvorugum staðnum var lög- reglan kölluð út. Drengirnir fundust í austurbænum, í kjallara, þar sem þeir höfðu komist yfir áfengi og voru þeir í annarlegu ástandi. -ss Áramótaskaupið: Okkar staða er hrein „Okkar staða er hrein. Við notuð- um bút úr þessu lagi og greiðum stefgjöld af því eins og við erum vön að gera,“ sagði Sigrún Erla Sigurð- ardóttir, framkvæmdastjóri Ára- mótaskaups 2002, um þær ásakanir indversku prinsessunnar Leoncie að lagi hennar, Sexy Loverboy, hefði verið stolið í áramótaskaup- inu og það eignað VOhjálmi Guð- jónssyni tónlistarmanni. Sigrún Erla sagði að talað væri við viðkomandi tónlistarmenn ef lögunum væri breytt. í þessu tilviki hefði einungis veriö notaður bútur úr lagi eins og gjaman væri gert. Vilhjálmur, sem sá um tónlistina í skaupinu, sagði, að hann hefði ekki einu sinni vitað að þessi lag- bútur hefði verið notaður, þar sem hann hefði aðeins séð um þau lög sem breytt var og svo eigin tónlist. „Þetta hefur ekkert með mig að gera,“ sagði hann. „Ég sá aðeins um tónlistina sem breytt var og svo tón- listina sem ég samdi sjálfur." -JSS Salan á flugvallarlandinu á Selfossi: Ekki að steypa hreiðr- um undan mönnum - segir landeigandi - Sáum þetta ekki fyrir, segir forseti baejarstjórnar „Vilji okkar landeigenda stendur ekki lengur til þess að selja umrætt svæði undir flugvöll. Það kom fram þegar atkvæði voru greidd um bæði tilboð," sagði Guðmundur Lárusson í Stekkum í Flóa. Hann er talsmað- ur bænda í Sandvíkurhverfi í Ár- borg sem hafa selt 70 ha svæði þar sem Selfossflugvöllur er til tveggja verktakafyrirtækja. Þau hyggjast þar koma upp íbúðabyggð á kom- andi árum og þá þarf völlurinn að víkja. Eins og fram hefur komið hafa ver- ið uppi hugmyndir um að flytja kennslu- og æfingaflug úr Reykjavík á Selfoss. Guðmundur segir að þá yrðu lendingar og flugtök á Selfossi kannski um 70 þúsund á ári í stað fjögur þúsund í dag. „Við erum ekkert spenntir fyrir svo mikilli flugumferð hér og ónæði sem því myndi fylgja," segir Guðmundur. Hann staðfestir að tilboð Flug- klúbbs Selfoss hafi verið nokkru hærra en fyrirtækjanna, eða sem nemur 50 þús. kr. á hektara. „Hins Þorvaldur Guð- Sturla mundsson. Böövarsson. vegar horfum við til þess að byggðin þróist hér lengra suður úr og inn á það svæði þar sem flugvöllurinn er í dag. Þannig sjáum við að önnur lönd okkar geti í kjölfarið hækkað meira,“ segir Guðmundur. Hann minnir jafnframt á að klúbbnum hafi á siðustu árum staðið til boða að kaupa umrætt landsvæði eins og öðrum en félagsmenn dregið lappimar. „Það er ómögulega hægt að ásaka okkur landeigendur um að við séum að steypa hreiðrunum undan mönnum,“ segir Guðmundur. „Þessi staða er nokkuð sem við sáum ekki fyrir,“ sagði Þorvaldur Guðmundsson, forseti bæjarstjómar Árborgar. Vilji félaga í flugklúbbnum er að bæjaryfirvöld gangi inn í kaup- in á svæðinu, þá með uppbyggingu flugvallarins í huga. Þorvaldur segir að af hálfu bæjaryfirvalda í Árborg hafi verið vilji til þess. „Höfum við þá séð fyrir okkur aðkomu ríkisins að málinu," sagði Þorvaldur. í samtali við DV sagði Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra að flug- málayfirvöld hefðu sl. ár ítarlega skoðað möguleikana á því að flytja kennsluflugið á Selfoss. Hefðu ýmsar rannsóknir verið gerðar á svæðinu í því sambandi. Ráðherra sagði ríkis- valdið hafa verið opið fyrir þeim möguleika að kaupa landsvæðið sem völlurinn er á en hins vegar hefði samgönguráðuneytinu verið kunnugt um tregðu landeigenda til að selja svæðið svo þar yrði flugvöllur áfram. Væri erfitt að vinna málið þegar að- staeður væri slíkar en hins vegar yrði farið betur yfir málið allt nú á næst- unni í ljósi stöðunnar. -sbs ■ DV-MYND SJ Tilboö á tilboö ofan Útsölur standa nú sem hæst en verslanir sem opna eftir áramótin hefja flestar útsölur í dag. Gera má rjúkandi góö kaup á þessum útsölum en afsláttur á einstökum vörum getur veriö allt aö 90 prósent. Fyrir kaupmenn er þetta eins konar „annar íjólum“. Útsalan í Hagkaupum hófst ígær klukkan 14 og þá þegar beiö fjöldi fólks eftir aö verslunin yröi opnuö. Hér spá tvær yngismeyjar í snyrtivörur á útsöiuveröi í Hagkaupum i Kringlunni í gær. Sólveig Pétursdóttir er ánægð með skaupið: Börnunum mínum fannst ég taka rokkið vel - Sigurður Geirdal segir skaupið betra en oft áður Flestir voru sammála um aö Ára- mótaskaupið hafi verið gott þetta árið. Eins og svo oft áður voru þjóð- þekktar persónur .teknar fyrir og grín gert að þeim. Flestir af þeim sem gert var grin að tóku því ágæt- lega enda orðnir vanir öðru eins. Jónína Benediktsdóttir, athafna- kona, segir að henni hafi líkaö skaupið í ár þó svo það hafi verið einum of gróft fyrir hennar smekk. „Ef skaupið á að vera í þessum dúr á það að vera bannað bömum undir 18 ára aldri. En það var ekki viö öðru að búast af Hallgrími Helga- syni en að hafa það gróft,“ segir Jónína sem jafnframt segist ekki hafa tekiö eftir því að gert hafi ver- ið grín að henni. „Ég kannast ekk- ert við þaö að grín hafi verið gert að mér,“ segir Jónína. „En skaupið var visual gott.“ Þá var heldur betur gert grín að Sólveig Siguröur Pétursdóttir. Gelrdal. Sigurði Geirdal, bæjarstjóra Kópa- vogsbæjar. „Mér fannst skaupið betra en oft áöur og er í reynd bara nokkuð ánægður með það. Ég áttaöi mig þó ekki strax á því að þetta hafi átt aö vera ég fyrr en ég sá Gunnar og þá hlaut þetta að vera ég honum við hlið,“ segir Sigurður. Þá segir Sigurður aö hann taki það ekkert nærri sér að gert sé grín að honum. „Maður er orðinn svo vanur því að þetta er eins og að skvetta vatni á gæs,“ segir Sig- urður. Þá hefur ef- laust ekki farið framhjá mörgum að Sólveig Pét- ursdóttir, dóms- Jóntna og kirkjumála- Benediktsdóttir. ráðherra, var einnig tekin fyr- ir. „Mér fannst Skaupið í heildina séð hafa tekist ágætlega og mörg at- riði mjög fyndin," segir Sólveig sem segir jafnframt konunni sem lék hana hafa tekist það ágætlega. „Bömunum mínum fannst ég alla vega taka rokkið nokkuð vel,“ segir Sólveig að lokum. Þá kom Björn Bjamason nokkrum sinnum fram í Skaupinu en hann vildi ekki tjá sig um það. -ss mmmm Heldur utan Vilhjálmur Egils- son, alþingismaður og íramkvæmdastjóri Verslunarráðs ís- lands, tekur á næst- unni við starfi hjá Al- þjóða gjaldeyrissjóðn- um í Washington í Bandaríkjunum. Ólafur ísleifsson, sem hefur gegnt starf- inu ytra, snýr heim og mun taka að sér ráðgjafarstörf í forsætisráðuneytinu. Fluttur frá Hollandi Karlmaður, sem var framseldur frá Hollandi vegna gruns um smygl til ts- lands á um 5 kilóum af amfetamíni og 150 grömmum af kókaíni, var fluttur hingað til lands í gær. Maöurinn verð- ur að sögn mbl.is yfirheyrður á næst- unni. D-listi bætir við sig Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig um 3% fylgi í Reykjavík á kostnað Frjálslynda flokksins. Þetta kemur fram í nýlegri könnun Gallups. Fylgi Reykjavikurhstans stendur í stað sam- kvæmt könnuninni. TopShop lokað Tiskuversluninni TopShop í Lækjar- götu verður lokað og hefur starfsfólki verslunarinnar verið sagt upp. mbl.is greindi frá. Grunaður um áreitni Sextugur maður er grunaður um að hafa áreitt böm kynferðisiega á Sel- fossi. Rannsókn málsins stendur yfir og ekki er kunnugt hversu alvarleg brotin em. Maðurinn er tengdur öðra baminu fjölskylduböndum. Bama- vemdamefhd á Selfossi vísaði málinu til lögreglu. RÚV greindi frá. Ekki fleiri sjúklingar Foreldrum tveggja bama sem hugð- ust leita til Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja í gær var vísað frá með þeim orð- um að þeir tveir læknar sem starfa hjá stofhuninni megi ekki taka við fleiri sjúklingum. Frá þessu var greint á vf.is en þar var jafhframt haft eftir starfs- manni í móttöku að mikið annríki væri hjá stofiiuninni. Bæta við flugvélum íslandsflug hefur bætt tveimur Air- bus a300/600R-breiðþotum til verkefna í fraktflugi. Þar með verða þotur félags- ins í millilandaflugi orðnar níu en auk þess er félagið með tvær Domier-vélar í innanlandsflugi. Lampaþjófar á ferð Um 150 gróðurhúsalömpum var stolið á síðasta ári úr gróðurhúsum i Hvera- gerði og á Flúðum. Grunur leikur á að lampamir séu í mörgum tilvikum not- aðir við ræktun kannabisefna. -aþ helgarblað Oftast óhræddur í Helgarblaði DV er ítarlegt við- tal við Halldór Ás- grímsson utanrik- isráðherra um átökin í kringum R-listann, kosn- ingamál vorsins, erfiðar skoðana- kannanir sem sýna veika stöðu Halldórs og flokks- ins og áhrif erfiðra veikinda á síðasta ári á Halldór. í blaðinu er einnig viðtal við Viðar Eggertsson leikstjóra um hinn um- deilda mormóna Neil LaBute, upphaf Eggleikhússins og flóttann undan þægindum reynslunnar. I blaöinu verður einnig fjallað um megrunar- kúra, raunveruleika bak jólum, stöð- una í Quarashi, kosningahegðun, gild- ismat háskólanema og rætt er við móður einhverfs manns sem barist hefur við kerfið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.