Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ sIminn sem aldrei sefur Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Viðbótarlífeyrissparnaður Allianzdlí) I „í-A l„f-A ^ Loforð er loforð FOSTUDAGUR 3. JANUAR 2003 Sími: 533 5040 - www.allianz.is Quarashi: Höskuldur hættur Höskuldur Ólafsson. „Já, það er rétt að ég er hættur í hljómsveitinni. Þrátt fyrir að þetta hafi verið mjög gaman hef ég komist að því að þessi heimur átti ekkert sér- staklega vel við mig. Ég byrjaði í Háskólanum fyr- ir um tveim árum og nú langar mig bara til að klára hann,“ segir Hösk- uldur Ólafsson sem er hættur sem aðalsöngvari rappsveitarinnar Qu- arashi. Sveitin hefur verið á fullu undanfarið ár við að kynna breið- skifuna Jinx sem gefrn var út í Bandaríkjunum, Asíu og víðar. Við- . tökumar voru góðar og seldust rúmlega 200.000 eintök um allan heim sem verður að teljast gott mið- að við fyrstu plötu. Quarashi hefur þvi verið skilgreind sem ein af von- arstjörnum íslenskrar tónlistar á er- lendum vettvangi. Höskuldur er einn stofnenda Qu- arashi ásamt þeim Sölva Blöndal og Steinari Fjeldsted en Ómar Örn Hauksson er fjórði meðlimuriim I dag. -hdm Frægur spaugari til landsins Robert Townsend. Einn fjölhæf- asti og virtasti uppistandsleikari Bandarikjanna, Robert Townsend, er væntanlegur til íslands og heldur skemmtun í Há- skólabíói fostu- dagirm 21. febrú- ar. Á skemmtun- inni, sem verður að teijast mesta uppistandsskemmt- un sem haldin hefur verið hér á landi síðan Jerry Seinfeld var hér um árið, koma einnig fram Sigurjón Kjartansson og Þorsteinn Guðmunds- son. Robert Townsend er leikari, uppi- standari, handritshöfundur, leik- stjóri og framleiðandi með 25 ára reynslu að baki við gerð yfir 40 kvik- mynda og sjónvarpsþátta. Til að mynda leikstýrði hann og skrifaði handritið að myndunum Raw með Eddie Murphy og Hollywood Shufíle með sjálfum sér í aðalhlutverki. Townsend hefur á ferli sínum unn- ið með mörgum af þekktustu leikur- um samtímans, annaðhvort sem mót- leikari eða leikstjóri og má þar nefna fólk á borð við Beyonce Knowles úr Destiny Childs, Halle Berry, Denzel Washington, Bill Cosby, Whoopie Goldberg, Wyclef Jean, Wing Rhames, Alfre Woodard, Louis Gossett Jr., James Earl Jones, Sin- bad, svo einhverjir séu nefndir. -HK E<3 ER A LAUSU DV-MYND ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON Fann tvo dauöa fugla Þorsteinn Sæmundsson á Náttúrustofu Noröurlands vestra meö fuglana tvo sem hann fann á Borgarsandi í gær. Milljónagreiðslur til stjórnarmanna Leifsstöðvar: Almennt óheppilegt fyrirkomulag - segir ríkisendurskoðandi - meta þurfi hvert tilvik „Almennt séð er svona fyrir- komulag óheppilegt og menn eiga að reyna að forðast það í lengstu lög að svona beinir hagsmunaá- rekstrar verði, þannig að sami maður sé bæði í eftirlitshlutverki og þiggjandi," segir Sigurður Þórð- arson ríkisendurskoðandi um frétt- ir af háum greiðslum til stjórnar- manna í Flugstöð Leifs Eiríksson- ar. Fréttastofa Útvarps greindi frá því í gær að tveir stjómarmenn flugstöðvarinnar hefðu fengið millj- ónagreiðslur í gegnum fyrirtæki sín fyrir ráðgjöf til flugstöðvarinn- ar. Annar hefði haft umsjón með því að bjóða út aðstöðu í flugstöð- inni en hinn hefði sinnt margvís- Leifsstöö Augu manna beinast nú aö umsýslu stjórnarmanna á staönum. legum verkefnum. Fréttastofan hafði eftir Höskuldi Ásgeirssyni, forstjóra flugstöðvarinnar, að ekk- ert væri óeðlilegt við þessa tilhög- un þar sem hún hefði verið sam- þykkt í stjórninni. Sigurður Þórðarson vildi í morg- un ekkert tjá sig um þetta tiltekna mál, en segir að almennt séð sé þetta fyrirkomulag óheppilegt. „Hins vegar getur komið upp sú staða í einstökum tilvikum að svona hlutir séu nauðsynlegir og þá þarf að liggja mjög ljóst fyrir hvað er verið að semja um í upp- hafi og að þeir sem bera ábyrgð á starfseminni komi allir að ákvörö- un um það. Eftirlitsstofnun eins og Ríkisendurskoðun verður hins veg- ar að meta hvert einstakt tilvik,“ segir Sigurður. -ÓTG Ingibjörg virðist engu breyta Þjóðarpúls Gallup: Ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að bjóða sig fram til þings fyrir Samfylkinguna hafði engin marktæk áhrif á fylgi Sam- fylkingarinnar í desember sam- kvæmt Þjóöarpúlsi Gallups sem birtur er í dag. Skoðanakönnunin var gerð frá 28. nóvember til 29. desember. Fylgi Samfylkingarinnar á landsvísu reyndist 32,1% eða hiö mesta sem mælst hefur hjá Gallup frá síöustu kosningum, en í nóvember var það þó litlu minna eða tæp 32%. Þorlákur Karlsson hjá Gallup vill ekki gefa upp tölur fyrir hvert kjör- dæmi, en segir að fyrirtækið hafi borið saman niðurstöðumar í Reykjavík fyrir og eftir að Ingibjörg Ingibjörg Sólrún Margrét Gísladóttir. Frímannsdóttir. Sólrún tilkynnti framboð sitt 18. desember. „Það var ekki munur fyr- ir og eftir tilkynninguna. Töiumar benda því ekki til þess að hún hafi haft áhrif,“ segir Þorlákur. Hann segir að skýrari mynd fáist af því í næsta Þjóðarpúlsi hvort landslagið sé að breytast. „Mér finnst eðlilegt að það komi ekki fram breyting nú því að málið hafði varla verið afgreitt þegar könnunin var tekin," segir Margrét Frímannsdóttir varaformaður Sam- fylkingarinnar um þessa niður- stöðu. „Ingibjörg Sólrún hefur hins vega boðað að hún komi inn af full- um krafti í kosningabaráttuna og þá held ég að við eigum enn eftir að bæta við okkur,“ segir Margrét. Óvenjumargir vora í úrtaki að þessu sinni eða 3.128 og var svar- hlutfall 70%. Gallup reiknaði út að samkvæmt niðurstöðunni fengi Samfylkingin 21 þingmann en flokk- urinn hefur nú 17 þingmenn. -ÓTG Skagafjöröur: Fugladauðinn í rénun Þorsteinn Sæmundsson, starfs- maður Náttúrustofu Norðurlands vestra á Sauðárkróki, gekk fjörur í nágrenni bæjarins í gærdag. Hann fann einungis tvo dauða fugla á Borgarsandi þannig að svo virðist sem ástandið í vistkerfinu hafi lag- ast frá því um jólaleytið, en annan í jólum fann Þorsteinn 62 dauða fugla á Borgarsandi og tiu á Garð- sandi, austan Hegraness. Af þessum dauða svartfugli var tíundi hlutinn haftyrðill. Övenju mikið virðist vera um þá tegund á þessum tíma, en að sögn Þorsteins er ísland sunnan við suðurmörk þess svæðis sem hann heldur sig mest á. Þorsteinn Sæmundsson segir að fugladauðinn nú sé ekki líkt því eins mikill og var í febrúar á síð- asta ári þegar þúsundir fugla fund- ust dauðar frá Vestfjöröum og allt austur á Langanes. „Veiðimenn sem voru á svart- fugli fyrir jól sögðu að þá hefði fuglinn verið feitur og pattaraleg- ur, en síðan á annan fann ég þenn- an fugl horfallinn og dauðan á fjör- unum,“ segir Þorsteinn og eins og fyrr er ætlað að fuglinn hafi drep- ist vegna vannæringar, eitthvað í vistkerflnu hafi valdið því. Þor- steinn segir athyglisvert að nú undanfarið hafi verið sunnanátt og hlýindi og því ekki um það að ræða að fuglinn hafi hrakist undan veðri og kulda. Því er fugladauð- inn nú enn dularfyllri en í febrúar síðastliðinn. -ÞÁ F átæktarumræðan: Ríkisstjórn taki þessu vel Guðni Ágústsson. Guðni Ágústs- son, ráðherra og varaformaður Framsóknar- flokksins, segir mikilvægt að menn grípi á næstunni til aö- gerða gegn fá- tækt á íslandi. Til þess hvatti forseti íslands í nýársávarpi sinu og skoraði á sam- tök launþega að ganga þar fram fyr- ir skjöldu. Guðni segir að sér þyki sú hugmynd góð.....og jafnframt á ég von á því að ríkisstjóm og sveit- arfélög taki vel þessum orðum." „Mælingar segja frá því að í auknum mæli leiti fólks á náðir hjálparstarfs til að geta veitt sínum vel um hátíð eins og jólin. Mér fannst ræða forseta íslands mannleg og hlý í garð fólks sem á erfitt," sagði Guðni ennfremur. -sbs Sjá umfjöllun á bls. 7 EINN EINN TVEIR LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ SECURITAS VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 I www.securitas.is ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.