Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 19
19 4» FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 DV Tilvera íí f iö E F ' T I. R V I N N U •Sýningar BGIerverk eftir Rakei Síðasta sýningarhelgi er um þessa helgi á sýningunni Safeway sem er innsetning Rakelar Steinarsdóttur. Sýningin er í skemmu við Bræðraborgarstíg 16, gengið inn úr porti (áður bókaútgáfa Iðunnar og bakarí Jóns Símonarsonar). Opið verður fram á sunnudag frá kl. 16-19 og eftir samkomulagi í síma 8990870. Rakel vinnur aðallega með flotgler, þ.e. rúðugler, speglagler, dichrioic gler og einangrunargler. Víðátta landsins, nakin fjöllin, sandauðnir og ísbreiður hafa verið innblástur í verk hennar sem oft eru tengd ýmsum vangaveltum um manneskjuna. Þetta er fyrsta sýning Rakelar. Athugið að gestir eru á sinni eigin ábyrgð á sýningunni. •Fyrirlestrar MVisindaráhstefna________i Læknagarði í dag og á morgun er í gangi vísindaráðstefna lækna-, tannlækna og lyfjafræðideildar Háskóla íslands í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16. Ráðstefnan hefst kl. 9 í dag og lýkur kl. 16.45 á morgun með verðlaunaafhendingu menntamálaráðherra. Dagskrá ráðstefnunnar er hægt að finna á vef Læknablaðsins: lbl.icemed.is, undir fylgiriti 47, en þar verður að fara í pdf útgáfu til að fá réttar upplýsingar. ■Framtið háskóla á íslandi í Reykjavíkurakademíuniii er í gangi rannsóknarstefna í dag. Rannsóknarstefnan hefst kl. 15 og lýkur kl. 17.30 í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar, í JL- húsinu, Hringbraut 121, 4. hæð. Yfirskrift ráðstefnunnar er: „Háskóli í hvert kjördæmi? - hvert stefnir með uppbyggingu háskóla í landinu? M.a. verður fjallað um hvort rétt sé að fjölga skólum eða eru menn með því að dreifa takmörkuðum fjármunum og kröftum of mikið. Þeir sem taka til máls eru: Tómas Ingi Olrich, Stefán Arnórsson, prófessor í Háskóla íslands, Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla íslands, og Ari Edwald, framkvæmdasfjóri Sam- taka atvinnulífsins. Pallborðs- umræður. Lárétt: 1 gryfja, 4 hákarlaöngull, 7 ófagurt, 8 bylgja, 10 hrintu, 12 ferskur, 13 geð, 14 anga, 15 ánægö, 16 umrót, 18 skoðun, 21 snáði, 22 hirslu, 23 yndi. Lóðrétt: 1 mánuður, 2 tímabil, 3 óvild, 4 auðsveipu, 5 hratt, 6 spil, 9 þvo, 11 losaði, 16 hlaup, 17 forsögn, 19 mjúk, 20 hljóm. Lausn neðst á síöunni. Skák Umsjón: Sævar Bjarnason Hvítur á leik! Núna stendur yfir heimsmeistara- mót unglinga á Indlandi. 2 íslenskir keppendur taka þátt, Þeir Stefán Kristjánsson, alþjóðlegur meistari, og Davið Kjartansson, Islandsmeistari unglinga 2002. Eftir 5 umferðir hafði Stefán staðið sig mjög vel, teflt við sterka skákmenn, stórmeistara og al- þjóðameistara og hafði fengið 3,5 v. af 5 og ekki tapað skák. Davíð Kjartans- son var einnig með ágætisárangur, 2,5 v. af 5. Stefán vann ævintýralega skák i 1. umferð, tefldi mjög djarft i endatafli og yfirspilaöi andstæðing sinn frá Indlandi eftir öllum kúnstar- innar reglum. Hér er baráttan í al- gleymingi en endaði með að Stefán hafði biskup upp úr krafsinu sem dugði til vinnings. Hvítt: Stefán Kristjánsson (2431). Svart: G N Gopal (2174). Sikileyjarvöm. 41. Heimsmeistaramót unglinga. Goa, Indlandi (1), 2002 1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6 5. Rf3 Bg4 6. dxc5 Dxdl+ 7. Kxdl e5 8. b4 e4 9. h3 Bh5 10. g4 Rxg4 11. hxg4 Bxg4 12. Rbd2 exf3 13. Bd3 Rc6 14. Hel+ Be7 15. Kc2 a5 16. b5 Rd8 17. a4 Re6 18. Ba3 0- 0-0 19. Rb3 Bh4 20. Be4 Rg5 21. Bxb7+ Kxb7 22. He7+ Kc8 23. b6 Re6 24. Ha7 Bf5+ 25. Kb2 Be4 26. Hel Bd5 27. c4 Bf6+ 28. Kbl Bb7 29. Rxa5 Bc3 (Stöðumyndin) 30. c6 Bxa5 31. cxb7+ Kb8 32. Hxa5 Kxb7 33. Ha7+ Kxb6 34. Hxf7 Hhe8 35. Be7 Rc7 36. Bxd8 Hxel+ 37. Kc2 He2+ 38. Kd3 Hxf2 39. Bxc7+ Kc6 40. Bg3 Ha2 41. Hxf3 Ha3+ 42. Ke4 Hxa4 43. Kd4 Ha7 44. He3 Hd7+ 45. Kc3 Hf7 46. He6+ Kc5 1-0. Lausn á krossgátu •U0( 03 ‘UII 61 ‘pds H ‘SBJ 91 ‘ipuiæ; n ‘egnBi 6 ‘niu 9 ‘ho g ‘njBiirÁjs \ ‘dB5{spuBf| g ‘pio z ‘eoS x iijajQoq •imim sz ‘dBjjs ZZ ‘ÚlBd iz ‘ihb 8i ‘>isbj 91 ‘iæs gi ‘buih EI ‘puni 8i ‘jau zi ‘npA oi ‘BpiB 8 ‘HQfi 1 ‘mjos \ ‘joj3 i :jjajBi Pagfari fslands þúsund ár Mikið getur maður orðið þjóðrækinn í andanum um áramót. Það gera meðal ann- ars áramótaávörpin í fjölmiðl- unum. Svo upphafin og hátíð- leg. Ekki spilla myndirnar úr okkar tignarlegu íslensku náttúru sem líða yfir sjón- varpsskjáinn um leið og hinn rismikli Lofsöngur hljómar. Útvarpsstjórinn endar ávallt árið í útvarpi og sjónvarpi með einstökum hætti. Man fyrst eftir Vilhjálmi Þ. sem einlægt kvaddi með hinni fallegu kveðju „í Guðs friði.“ Svo kom Andrés Björnsson og hafði mikilli speki að miðla með sinni djúpu rödd. Nú orð- ið kafnar ávarp útvarpsstjór- ans í hinum gríðarlega sprengjugný og það er synd. Svo kemur nýársdagur og for- setinn með sína hugvekju. í þetta sinn kom hann við kaunin á þjóðinni er hann fjallaði um fátæktina. Það var hollt. í minni sveit er hóll sem heitir Fátækramannahóll. Nafn sitt dregur hann af því að fyrr á öldum, þegar hung- urvofan vofði yfir, lögðu þeir sveitungar sem voru aflögu- færir gjafir við hólinn. Þar var þeirra vitjað af þeim sem þurftu þeirra með. Þetta var mæðrastyrksnefnd þess tíma og ber vissulega vott um rétt- lætiskennd og samhygð íbúa í afskekktri sveit. í velsældar- þjóðfélagi nútímans finnst manni samt að ætti að vera búið að þróa kerfi sem gerði slíkar ölmusugjafir í stórum stíl óþarfar. Það væri okkar góða landi samboðið og sýndi að hér væri gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, eins og þjóðsöngurinn boðar. Gunnþóra Gunnarsdóttir blaöamaöur Myndasögur 1 -í Jæja, þá er Sigurbjörn Einareeon biök up byrjaður að afgreiða heitar pylsur í innkeyrölunni hjá Píranaklúbbnum... Ekki bara það, við tókum * kjötlð úr pylsunni og fylltum hana af eagi. Hvar er brauðið? Petta er vínarpylea! Srauðið koatai tvö hundruð. j Hún er i innflutt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.