Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Blaðsíða 18
18 ____________FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003 Tilvera DV Holly opnaði Harrods-útsöluna Fyrrum Neighbours- stjaman Holly Valance varð þess heiðurs aðnjótandi að klippa á borðann við opnun árlegrar vetrarútsölu Harrods í Lundúnum fyrir áramótin og var henni vel fagnað af Mohammed A1 Fayed sem vart gat haldið aftur af gráa fiðringnum við athöfnina, enda leikkonan kynþokkafulla djarf- lega klædd í aðsniðnum kjól frá Prada með dýrindis Cartier-djásn um hálsinn, sem metið er á lítil 100 þúsund pund. Eftir venjulega opnunarathöfn leiddi A1 Fayed leikkonuna ungu, sem er aðeins nítján ára gömul, um Knightsbridge-verslunina sem er í næsta nágrenni við nýkeypt glæsihýsi hennar Kensington- hverfinu og sagði A1 Fayed að hann væri í raun kaupmaðurinn hennar á horninu. Carey og Diesel viðra sig saman Fréttir frá Hollywood herma að poppdísin Mariah Carey og súper- skallinn Vin Diesel hafi sést viðra sig saman að undanfömu og segir kjaftasagan að þar sé meira en skokk eða útivist á ferðinni, jafnvel ást á suðumarki. Það þótti renna frekari stoðum undir orðróminn að sá sköllótti skyldi leigja sér einkaþotu til þess að hitta Carey fyrir jólin á skíðasvæðunum í Aspen, áður en hann hélt til Connecticut til að halda jólin með fjölskyldu sinni. Umboðsmaður Diesel vildi þó ekki kannast við að þau hefðu ráðgert að hittast í Aspen heldur hefði það verið hrein tilviljun. „Þau hittust en aðeins fyrir tilviljun og það er engin ást í spilunum. Þau ræddu um hugsanlegt samstaif. Annað ekki,“ ságði umbinn. Járnfrúin enn viröingarverö Sam- kvæmt skoðana- könnun sem Gallup gerði í Bandaríkj- unum em þær Hillary Clinton, Laura Bush og Oprah Winfrey þær konur sem mest virðing er borin fyrir þar í landi. Það sem kom mest á óvart í könnuninni var hvað gamla jám- frúin, Margaret Thatcher, fyrmm forsætisráðherra Bretlands, er enn ofarlega i hugum fólks, en hún lenti í fjórða sæti, á undan skínandi stjömu eins og Jennifer Lopez og stjómmálaskömngun- um Madeleine Albright og Eliza- beth Dole. Hjá körlunum er Bush Banda- ríkjaforseti í toppsætinu virðing- arlistans annað árið í röð og Jimmy Carter, fyrrum forseti, í öðru sætinu, á undan þeim Colin Powell, Jóhannesi Páli páfa, Bill Clinton og Billy Graham. DVHYND HARI Spila saman á sunnudaginn Margrét Árnadóttir og Lin Hong hafa komið fram á tvennum tónleikum i New York og nú er röðin komin að Kópavogi. Margrét Árnadóttir spilar í Salnum ásamt Lin Hong: Settist fimm ára við sellóið Hún lagði snemma drög að framtíðarstarfinu og var ekki nema flmm ára þegar hún settist við sellóið og byrjaði að æfa. Nú er hún í jólafrii frá Juilliard-tón- listarháskólanum í New York og ætlar að spila í Salnum á sunnu- daginn kl. 20, ásamt píanóleikar- anum Lin Hong. Margrét Áma- dóttir heitir daman og er dóttir tónlistarmannsins Árna Arin- bjarnarsonar. „Faðir minn spilar á orgel, og systkini mín tvö á pí- anó og fiðlu, en það vantaði selló- leikara í fjölskylduna svo það kom í minn hlut,“ segir Margrét hlæj- andi þegar hún er spurð af hverju þessi braut hafl verið valin. „En tónlistin er víst í blóðinu," bætir hún við. Hún kveðst hafa verið undir handleiðslu föður síns við æfingarnar fyrstu tvö árin, enda sé hann bæði fíðlu-og orgelleikari en sjö ára hafi hún farið í Nýja tónlistarskólann þar sem kennar- eimir voru Pétur Þorvaldsson og Lovísa Fjeldsted. Systurnar leigja saman Árið 1994 hóf Margrét nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Gunnari Kvaran og þaðan lauk hún einleikaraprófi aldamótaárið. 18 ára hélt hún ein út í hinn stóra heim og segir það vissulega hafa verið stórt skref. „Foreldrar mínir studdu mig í þessari ákvörðun og það var spennandi upplifun fyrir mig að setjast á skólabekk í Juilli- ard og búa þar á heimavist. Svo kom Pálína systir mín árið eftir til náms við sama skóla og við leigjum okkur litla ibúð í grennd við hann.“ Margrét segir gaman að fylgjast með tónlistarlíflnu vestra og sjálf hefur hún lagt þvi skerf, meðal annars með þátttöku í virtum tónlistarhátíðum og á einleiks- og kammertónleikum. Þá lék hún verk eftir Sergei Rakh- manínov inn á geisladisk sl. haust fyrir útgáfufyrirtækið Tavros Records og segir það hafa verið forréttindi að fá að taka þátt í slíku. Gott að koma heim Margrét ætlar að leika nokkur af sínum uppáhaldsverkum í Saln- um á sunnudaginn með Kínverj- anum Lin Hong sem var nýlentur á Fróni eftir næturflug frá New York þegar viðtalið fór fram. Sið- an Lin Hong flutti 16 ára til Bandaríkjanna hefur hann unnið til fjölda verðlauna í keppnum, leikið á konsertum og tekið þátt í tónlistarhátíðum. Nú stundar hann mastersnám við Juilliard. Verkin sem Margrét og hann flytja í Salnum eru eftir meistar- ana Bach, Beethoven og Chopin. Upphaflega æfðu þau dagskrána fyrir tónleika í skólanum sínum og var í framhaldinu boðið að leika í tónleikaröð við Columbia University í New York. Margrét kveðst vera á þriðja og næstsíðasta vetri í BA-náminu við Juilliard og eftir það sé framtíðin óráðin. Hún er ánægð i heims- borginni en segir samt alltaf óskaplega gott að koma heim til fjölskyldu og vina. „Það er líka mun hlýrra hér en í New York núna. Þar snjóaði um daginn," segir hún brosandi og það verða lokaorðin að sinni. -Gun. Sýnir afrakstur ferða um heims- byggðina. Ferðalag Á morgun opnar Sigurður Freyr Guðbrandsson sýningu á ljósmyndum í Listasafni Borgar- ness sem ber yfirskriftina Ferða- lag. Sigurður Freyr fæddist í Reykjavik og allt þar til hann varð tvítugur bjó fjölskyldan í Reykja- vík níu mánuði ársins en á sumr- . in fluttist hún út í sveit þar sem hún rak veiðihúsið í Þrándargili í Dölum. Sigurður segist eiga marg- ar sinar bestu æskuminningar frá bökkum Laxár, innan um útlenda veiðimenn og fólkið í dalnum, þó einkanlega á næstu bæjum, Leið- ólfsstöðum og Engihlíð, þar sem hann þvældist mikið fyrir í leik við skepnur og menn. Á útmánuðum fyrir sex árum lagðist Sigm-ður í víking og fór til Noregs að fomum sið. í Noregi lagði Sigurður stund á nám og því samfara ferðaðist hann víða um heimsbyggðina til að afla sér menntunar og reynslu, m.a. til Spánar, Kanada, Bólivíu og Pakistans. I dag er Sigurður sest- ur að í Reykholtsdalnum, byggir þar hænsnakofa og les Islendinga- sögur. Myndimar á sýningunni eru teknar á ferðalögum Sigurðar um álfumar. Hann gerir sér far um að blanda saman myndum af sem fjölbreyttustu landslagi og fólki en býr þó til ákveðin þemu þar sem sams konar myndum er raðað saman. Sýningargestum er boðið í ferðalag og til þess að veita þeim betri innsýn í framandlegar slóðir fylgir myndunum litill texti. Sýn- ingin stendur til 29. janúar. Bíógagnrýni Bíófélagid lOl/Regnboginn - En sangför Martin iric^k Ást og dauði Hilmar Karlsson skrífar gagnrýni um kvikmyndir. Allt frá því Bille August gerði hina ágætu kvikmynd Pelle sigur- vegara hefur hann verið að gera dýrar alþjóðlegar kvikmyndir, House of the Spirits, Smilla’s Sense of Snow og Les Misérables, eftir stórum og frægum skáldsögum með frægum leikurum. Dæmið hef- ur ekki gengið upp hjá honum. Myndimar eru í besta falli miðl- vmgsgóðar og hafa alls ekki náð hylli almennings. Undantekning er Jemsalem, sem hann gerði eftir skáldsögu Selmu Lagerlöf árið 1996. Þar kom í ljós að það hentar Aug- ust betur að vera á heimaslóðum og í þrengra umhverfi. Þetta kemur enn frekar í ljós í En sáng för Mart- in, sterkri upplifun um örlagaríkt samband tveggja einstaklinga, kvikmynd sem liflr lengi í huga manns. Það er ekki oft sem kvikmynd er gerð um eldheitt ástarsamband konu og karls sem komin eru yfir fimmtugt. En sáng for Martin er undantekning frá reglunni. Ástar- samband tónlistarmannanna Mart- ins og Barböru er vel unnið í góðu Komið að endalokum Sven Wollter og Viveka Seldahl í hlutverkum tónskáldsins og eigin- konu hans. handriti sem Bille August útfærir síðan í áhrifamikið myndmál. Þau hafa bæði verið í ástlausu hjóna- bandi þegar ástin ber á dyr við þeirra fyrstu kynni. Martin er tón- skáld og hljómsveitarstjóri og Bar- bara er konsertmeistari. Það mynd- ast strax rafmagnað samband á milli þeirra og August er ekkert að velta sér upp úr erfiðum skilnuð- um, við fáum nasasjón af því að þar hefur verið harkalega tekist á, heldur leiðir hann okkur strax inn í hamingjusamt líf þeirra þegar þau eru gift og eru á brúðkaupsferð í Marokkó. Enda er En sáng för Martin ekki kvikmynd um líf ham- ingjusamra tónlistarmanna heldur hvernig örlögin taka af völdin og gera hamingjusamt lif að mikilli kvöl. Eftir tiltölulega stutta sambúð fer Martin að gleyma. Þegar hann svo kvöld eitt hættir i miðju kafi að stjóma sinfóníuhljómsveit er ljóst að eitthvað er að. í ljós kemur að hann er kominn með alzheimer og læknirinn er ekkert að draga dul á að ástand hans á eftir að versna. Barbara á bágt með að trúa því að snillingurinn og maðurinn sem hún elskar eigi eftir að breytast og tekst á við að halda honum við efn- ið. Fram undan er að klára óperu sem Martin hefur lengi verið með í smíðum. Smátt og smátt gerir Bar- bara sér grein fyrir því að hún heyr vonlausa baráttu. Örvænting hennar er mikil en hún neitar að gefast upp. Það eru mikil og dramatísk átök sem leikaramir Sven Wollter og Viveka Seldahl þurfa að takast á við og er leikur þeirra mjög góður, sérstaklega er leikur Wollters eðli- legur þegar sjúkdómurinn er far- inn að ná tökum á honum. Sjálfsagt hefur það haft góð áhrif á samleik þeirra að þau voru hjón til margra ára og þekkja því vel mörkin hvort hjá öðru. Stuttu eftir að myndin var frumsýnd í Svíþjóð lést Seldahl úr krabbameini. Alzheimer er sjúkdómur sem manneskjan hræðist hvað mest. Það að verða smátt og smátt svipt- ur allri þekkingu og löngunum, án þess að gera sér grein fyrir því, er hræðileg framtíðarsýn fyrir hvern og einn. Bille August gefur okkur í kvikmynd sinni, En sáng för Mart- in, raunsæja og oft óþægilega lýs- ingu á því ástandi sem einstakling- urinn, sem fær þennan sjúkdóm lendir í, og þeim áhrifum sem það hefur á hans nánustu. Leikstjóri: Bille August. Handrit: Bille August eftir bók Ullu Isaksson. Kvik- myndataka: Jörgen Persson. Tónlist: Steffan Nilsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.