Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2003, Side 26
26
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2003
Rafpóstur: dvsport@dv.is
- keppni í hverju orði
Wembley bara fyrir England
Forsvarsmenn fyrirtækis þess
sem byggir nú nýjan Wembley-
leikvang í Lundúnum hafa hafnað
tilboðum frá Arsenal og
Tottenham um hugsaniega
þátttöku liðanna í byggingu á
nýjum þjóðarleikvangi en bæði
þessi lið huga nú að endumýjun
leikvanga sinna í Lundúnum.
Ástæðan kvað vera að stórt
fjárframlag stjómvalda í Englandi
er skilyrt, þannig að ekki megi
önnur félög eiga hlut í fyrirtæki
því sem byggir þennan glæsilega
íþróttavöU.
Ólafur Stefánsson handknattleiksmaöur er íþróttamaður ársins 2002:
„Jákvæður á nýju ári“
Ólafur Stefánsson, handknattleiks-
maður með Magdeburg, var í gær
kjörinn íþróttamaður ársins, en það
em Samtök íþróttafréttamanna sem
standa fyrir kjörinu. Ólafur hafði
mikla yfirburði í kjörinu og fékk 227
stigum meira en næsti maöur, Örn
Arnarson, Evrópumeistari í 200
metra baksundi. Ólafur Stefánsson
var einnig kjörinn íþróttamaður árs-
ins hjá DV-Sporti.
Ólafur er afar vel að þessu kominn
enda átti hann frábært ár. Hann lék
ákaflega vel með íslenska landslið-
inu á EM í handknattleik í Svíþjóð
síðastliðinn vetur þar sem hann var
valinn í úrvalslið keppninnar og var
markahæsti maður mótsins. Þá varð
hann Evrópumeistari með félagsliöi
sinu, Magdeburg. Skömmu síðar var
hann kjörinn leikmaður ársins í
þýsku úrvalsdeildinni, annað árið í
röð.
En hvernig lidur Ólafi Stefáns-
syni á stundu sem þessari? „Mér
líður auðvitað mjög vel og ég er mjög
stoltur, bæði af sjálfum mér og öllum
þeim sem hafa hjálpað mér og stuöl-
að að því að ég er nú valinn besti
íþróttamaður á Islandi þetta árið.
Varstu bjartsýnn og gerðir þú
þér grein fyrir þvi aö þú cettir
möguleika? Já, ég var bjartsýnn og
ég gerði mér grein fyrir því að ég
ætti möguleika, en hins vegar hefði
ég ekki sálgað mér þó að ég hefði
ekki orðið efstur í kjörinu. Ég hefði
örugglega tekið því með ró. Allir
þeir sem voru tilnefndir eru frábær-
ir íþróttamenn og það er erfitt að
taka einhvem einn út. Það er örugg-
lega erfitt aö dæma um hver er
íþróttamaður ársins, því hann er
kannski eitthvað annað og meira en
maður sér á skjánum og það getur
verið erfitt að dæma um það hvað
hver gefur af sér í hverri grein
íþróttanna. íþróttamaður ársins er
kannski eitthvað meira, svona
mannssálin sjálf.
Hvað þýöir þessi titill fyrir þig?
Ég á erfitt með að svara því.
Hvetur hann þig til meiri afreka
eða setur hann pressu á þig? Þetta
er bæði hvetjandi og setur pressu á
mig. Pressa er alltaf af hinu góða og
maðurinn hefur alltaf gott af henni
og þessi útnefning gerir það tví-
mælalaust. Það bíður erfitt verkefni
nú í janúar og við viljum að sjálf-
sögðu sýna það að þaö sé engin til-
viljun að við skulum vera í úrslitum
á HM.
Hvernig leggst þetta ár í þig?
Það eru fyrirsjáanlegar breyting-
ar á þinum högum á árinu?
Það leggst vel í mig. Maður verður
að taka jákvæður og stemmdur á
móti nýju ári. Það verður nóg að
gera. Maður verður að sjálfsögðu að
standa sig vel með Magdeburg, því
það hefur borið við að ef ég skora
ekki nóg þá hafi komið athugasemd-
ir frá áhorfendapöllunum um að ég
Islendingar leika þrjá vináttuleiki í handknattleik á næstu dögum:
Mikilvægir leikir
í undirbúningnum
Slóvenska landsliöið í handknatt-
leik kom til fslands í gær en liðið
mun mæta íslendingum þrívegis á
næstu dögum en báðar þjóðimar
æfa af kappi fyrir heimsmeistara-
mótið í Portúgal. Fyrsti leikur þjóð-
anna verður í Kaplakrika á morgun
og hefst leikurinn klukkan 16. önn-
ur viðureignin verður á sunnu-
dagskvöldið í Laugardalshöllinni
klukkan 20. Þriðji og síðasti leikur-
inn verður í Laugardalshöllinni á
þriðjudagskvöldið klukkan 20. Sló-
venar komu hingað til lands frá
Frakklandi þar sem liðið sigraði á
fjögurra landa móti. Slóvenar ætla
sér stóra hluti á heimsmeistaramót-
inu en uppskera liðsins á Evrópu-
mótinu var rýr, skipt var um þjálf-
ara og er stefnan tekin hærra en áð-
ur. íslendingar og Slóvenar áttust
síðast við í Skövde á EM fyrir um
ári síðan. Þá fóru íslendingar með
sigur af hólmi, 31-25. Tveimur árum
áður mættust liðin á Evrópumótinu
í Króatíu og þá sigruðu Slóvenar,
27-26. Á því móti gekk Slóvenum
allt í haginn, lentu í fjórða sæti og
tryggðu sér þátttökurétt á Ólympíu-
leikunum í Sydney 2000.
íslenska landsliðið æfði fullskip-
að á æfingum í Laugardalshölinni í
gær en leikmenn sem leika í Þýska-
landi komu ekki til landsins fyrr en
um áramótin. Liðið mun æfa tvíveg-
is í dag og má því með sanni segja
að undirbúningur liðsins fyrir HM
sé kominn á fulla siglingu,
Urslit í kjöri
íþróttamanns
ársins 2002
Nafn stig
1. Ólafur Stefánsson........410
2. Öm Amarson ..............183
3. Jón Arnar Magnússon......157
4. Eiður Smári Guðjohnsen . ’... 151
5. Kristín Rós Hákonardóttir ... 139
6. Ásthildur Helgadóttir....115
7. -8. Jón Amór Stefánsson ..70
7.-8. Rúnar Alexandersson....70
9. Guðni Bergsson............54
10. Ólöf María Jónsdóttir....43
11. Sigfús Sigurðsson........41
12. Ámi Gautur Arason........28
13. Patrekur Jóhannesson ....17
14. Olga Færseth.............16
15. Jakob Jóhann Sveinsson .... 14
16. Dagný Linda Kristjánsd...11
17. Guðmundur Stephensen......7
18. Þormóöur Egilsson ........3
19. -22. Birkir Kristinsson ..1
19.-22. Bjarki Birgisson......1
19.-22. Þórey Edda Elísdóttir.1
19.-22. Kristján Helgason.....1
sé með hugann við Spán og því
standi ég mig ekki nógu vel.
Nú flyturðu þig til Spánar á ár-
inu. Hvernig leggst það í þig og
heldurðu að þú getir bœtt þig sem
handboltamaöur þar?
Flutningurinn leggst mjög vel í
mig, nýtt og spennandi. Þetta er
auðvitað dálítil áhætta. Þarna fær
maður nýjan þjálfara og nýtt lið, en
áhættur og breytingar eru af hinu
góða. Það má kannski segja að það sé
orðið dálítið þægilegt og heimilislegt
hjá honum Alla (Alfreð Gíslasyni,
þjálfara Magdeborgar) og það má
segja að það sé ástæðan fyrir því að
ég breyti til. Á næsta undirbúnings-
tímabili renni ég alveg blint í sjóinn.
Ég veit t.d. ekki í hvaða skóm ég á að
hlaupa og það er allt nýtt fyrir
manni. Maður á kannski að stokka
allt upp hjá sér sem oftast á ævinni
og breyta til. -HBG
Olafur með
landsliðinu
2002: 23 leikir, 158 mörk (6,9 í leik)
2001: 21 leikur 101 mark (4,8)
2000: 12 leikir 59 mörk (4,9)
1999: 12 leikir 54 mörk (4,5)
1998: 13 leikir 44 mörk (3,4)
1997: 26 leikir 84 mörk (3,2)
1996: 19 leikir 98 mörk (5,2)
1995: 25 leikir 73 mörk (2,9)
1994: 3 leikir lOmörk (3,3)
1993: 3 leikir 4 mörk (1,3)
1992: 3 leikir .. .7 mörk (2,3)
Samtals: 160 leikir, 692 mörk (4,3)
„Leikirnir við Slóvena eru mjög
mikilvægir og stór þáttur í undir-
búningi liðsins fyrir HM. Hægt er
að segja að þeir séu nokkurs konar
prófsteinn á liðið og við sjáum hvað
þar stendur á þessum tímapunkti í
undirbúningnum. Ég er spenntur
fyrir þessum leikjum og það verður
gaman að sjá hvemig leikmenn
standa," sagði Einar Þorvarðarson,
aðstoðarmaður Guðmundar Guð-
mundssonar landsliðsþjálfara, í
samtali við DV i gær.
Um aðra helgi tekur íslenska lið-
ið þátt í fjögurra landa móti í Dan-
mörku, ásamt heimamönnum, Pól-
verjum og Egyptum. Síðasti leikur
liðsins fyrir HM verður gegn Svium
i Landskrona 16. janúar. -JKS
Jónatanf Alexander,
Bjarni og Einar
duttu út úr hópnum
Guðmundur Guðmundsson,
landsliösþjálfari í handknattleik,
ákvað í gær hvaða fjórir leikmenn
dyttu úr íslenska landsliðshópn-
um sem æfir nú af krafti fyrir
heimsmeistaramótið. Guðmundur
valdi upphaflega 26 leikmenn til
æfinga skömmu fyrir jól þannig
að nú eru 22 leikmenn á æfingum.
Þeir leikmenn sem duttu út voru
Alexander Amarson, HK, Bjami
Fritzson, ÍR, Einar Hólmgeirsson,
ÍR, og Jónatan Magnússon, KA.
Eftir leikina við Slóvena um
miðja næstu viku verður enn
skorið niður í hópnum en
skömmu fyrir heimsmeistaramót-
ið mun landsliðsþjálfarinn til-
kynna hvaða 16 leikmenn fara til
Portúgals.
í hópnum í dag eftir niðurskurð
eru eftirtaldir leikmenn. Mark-
verðir eru Guðmundur Hrafnkels-
son, Conversano, Elvar Guð-
mundsson, Ajax/Forum, Roland
Eradze, Val, og Birkir ívar Guð-
mundsson. Homa- og línumenn
eru Guðjón Valur Sigurðsson,
Essen, Gústaf Bjamason, Minden,
Einar Örn Jónsson, Wallau
Massenheim, Sigfús Sigurðsson,
Magdeburg, Róbert Sighvatsson,
Wetzlar, Róbert Gunnarsson, Aar-
hus, Logi Geirsson, FH, og Bjarki
Sigurðsson, Val. Útileikmenn em
Gunnar Berg Viktorsson, Paris
Saint Germain, Rúnar Sigtryggs-
son, Ciudad Real, Heiðmar Felixs
son, Bidasoa, Snorri Steinn Guð
jónsson, Val, Aron Kristjánsson
Haukum, Sigurður Bjamason
Wetzlar, Patrekur Jóhannesson
Essen, Ólafur Stefánsson
Magdeburg, Dagur Sigurðsson,
Wakunaga, og Markús Máni
Maute, Val. -JKS
Ehiogu frá í 8 vikur
Enski landsliðsmaðurinn Ugo
Ehiogu, leikmaður með Middles-
boro í úrvalsdeildinni, verður frá
keppni í það minnsta í tvo mánuði,
en hann meiddist í leik gegn Black-
burri á nýársdag. Ehiogu er riibeins-
brotinn auk þess sem lunga skadd-
aðist. Þetta er slæmt fyrir lið
Middlesboro sem hefur gengið upp
og ofan, vel á heimavelli en afar illa
á útivöllum.
-PS