Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
J3‘"y
Fréttir
Ég tel aðhún eigi
gott með að
vinna með
fólki. Hún
hefur
vilja, skap
og metn-
að til
þess að
standa
sig vel.
Hún hef-
ur gert
góða
hluti sem
dagskrár-
stjóri er-
lends
efnis
hjá sjónvarp-
Heldur vel
utan um sitt
Nafn: Laufey Guðjónsdóttir
Aldur: 44 ára, naut
Heimill: Reykjavík
Fjölskylda: Gift Erni Jónssyni,
prófessor viö HÍ, tvö börn
Menntun: Kvikmyndafræöingur
Staða: Dagskrárstjóri hjá RÚV
Efni: Nýráöin forstööumaöur
Kvikmyndamiöstöövar íslands
Laufey Guðjónsdóttir hefur
hreppt hnossið sem margir sóttust
eftir. Hún hefur verið ráðin for-
stöðumaður Kvikmyndamiðstöðv-
ar íslands. Á móti henni voru
margir sterkir umsækjendur en
það verður hún sem sest í stólinn.
Laufey er fædd á Selfossi 1958.
Foreldrar hennar fluttu til Reykja-
víkur þegar hún var ung. Sjálf
dvaldi hún mikið á Selfossi hjá afa
sínum og ömmu, sem þar bjuggu,
þar til hún var tólf ára. Þá var
hún í sveit í Hreppunum á sumr-
in. Hún gekk í Vogaskóla, kláraði
stúdentinn frá MH og hélt síðan til
Kaupmannahafnar. Þar hóf hún
nám í spænsku en kvikmynda-
fræðin freistaði hennar. Hún lauk
BA-gráðu frá Háskólanum í Kaup-
mannahöfn 1985.
Síðan hélt Laufey heim og fór að
vinna hjá Ríkissjónvarpinu það
sama ár við val og innkaup á er-
lendu efni. Því fylgdi samninga-
gerð við dreifingaraðila og kynn-
ingamál af ýmsum toga. Frá
1995-1997 var hún dagskrárstjóri á
Stöð 3, þar til stöðin var seld
Norðurljósum. Þá lá leiðin í
menntamálaráðuneytið þar sem
hún starfaði frá 1997 til ársloka
1999. Þar vann hún einkum við
menningarkynningar erlendis.
Hún skipulagði meðal annars
menningardagskrá á heimssýn-
ingunum í Portúgal og Hannover
og einnig á stóru víkingasýningar-
verkefni í Bandaríkjunum sem
hún vann fyrir ráðuneytið í nor-
rænu ráðherranefndinni. Hún
lagði einnig hönd á plóginn í sam-
skiptaverkefhi við Suður-Afríku.
Það var einnig í gegnum norrænu
ráðherranefndina.
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
blaðamaöur
Um áramót 1999-2000 varð hún
svo dagskráirstjóri erlendrar dag-
skrár hjá RÚV. Á árunum
1992-1998 hefur hún jafnframt set-
ið í úthlutunarnefndum hjá Kvik-
myndasjóöi.
Kemst vel frá sínu
Hinrik Bjarnason, fyrrverandi
dagskrárstjóri hjá RÚV, var yfir-
maður Laufeyjar um skeiö, áöur
en hann lét af störfum hjá stofnun-
inni. Hann segir að hún hafi ágæt-
an undirbúning undir það starf
sem hún sé að hefja núna. Hún
hafi lifað og hrærst í innkaupum
kvikmynda, að horfa á kvikmynd-
ir og meta þær, mörg undanfarin
ár. Nám hennar og vinna fram til
þessa sé mjög góður undirbúning-
ur undir nýja starfiö.
„Þar að auki hefur hún átt ákaf-
lega létt með félagslega þáttinn í
sambandi við sitt starf. Hún á auð-
velt með að blanda geði við fólk.
Það eru mikil erlend samskipti í
þessu starfi við að kynna kvik-
myndir erlendis, fylgja þeim eftir
á hátíðum, markaði og svo fram-
vegis. Ég geri ráð fyrir að sá
kunnugleiki sem hún býr að
vegna starfs síns hjá sjónvarpinu
og í þessum geira beinlínis komi
henni mjög til góða í nýju starfi.“
Hinrik segir að Laufey hafi ver-
ið góður samstarfsmaður. Sem
starfsmanni lýsir hann henni
þannig: „Hún heldur vel utan um
sitt og kemst vel frá sínu.“
Fríða Björg Eðvarðsdóttir er
æskuvinkona Laufeyjar. Vinátta
þeirra hefur haldist traust frá því
þær voru barnungar og fram á
þennan dag.
Fríða Björg segir að Laufey hafi
verið rólegt og yfirvegað barn.
Hún hafi verið greind og alltaf
mjög víðsýn. Henni hafi gengið
vel í skóla.
Traustur vinur
„Vinir hennar hafa verið og eru
tiltölulega vel valinn hópur. Hún
er mjög traustur vinur. Hún ber
tilfinningar sínar ekki utan á sér.
í erfíðum verkefnum myndi hún
láta skarpskyggni sína og dóm-
greind ráða.
Hún er mjög læs á umhverfi
sitt, hvemig samfélagið virkar,
svo og á menn og málefni. Þegar
aðrir fara leynt með vandamálin
er hún manna fyrst til að lesa rétt,
meta aðstæður og koma með ráð.
Það er ekki orrustuvöllur í kring-
um hana. Ef einhver kann að
vinna málefnalega þá veit ég full-
komlega að það er hún og að hún
mun gera það á þessum nýja
starfsvettvangi.“
Sigurður Valgeirsson, fyrrver-
andi dagskrárstjóri innlendrar
dagskrár hjá RÚV, sem rekur nú
Fjölmiðla- og framleiðslufyrirtæk-
ið Bæjarútgerðina, hefur starfað
mikið með Laufeyju í gegnum tíð-
ina. „Ég kynntist Laufeyju sem
góðum, skemmtilegum og traust-
um félaga í úthlutunarnefnd Kvik-
myndasjóðs, í Sjónvarpinu og loks
í nefnd sem vann að reglugerð um
aðferðir úthlutunar á vegum hinn-
ar nýju Kvikmyndamiðstöðvar.
Ég tel að hún eigi gott með að
vinna með fólki. Hún hefur vilja,
skap og metnað til þess að standa
sig vel. Hún hefur gert góða hluti
sem dagskrárstjóri erlends efnis
hjá sjónvarpinu. Hún hefur því
alla burði til þess að láta að sér
kveða í þessu nýja starfi."
Ríkið veitir 500 milljónir til jarðganga undir Almannaskarð:
Líkast lottóvinningi
- segir verkstjóri Vegagerðarinnar á Hornafirði
DVlvlYND JÚLÍA IMSLAND
Lottógöngln
Nauösynleg framkvæmd, göng undir Almannaskarð, komu flatt upp á
flesta. Reynir Gunnarsson var í gær að skoða staðinn þar sem göngin
koma í gegn í Almannaskaröi.
Menningarhús:
Bæjarstjóri fagnar
Fyrsti form-
legi fundur
Tómasar Inga
Olrich mennta-
málaráðherra og
Kristjáns Þórs
Júlíussonar,
bæjarstjóra á
Akureyri, um
smíði menning-
arhúss á Akur-
eyri er fyrirhugaöur í hádeginu í
dag. Fundurinn er haldinn í kjöl-
farið af tilkynningu ríkisstjórnar-
innar síðastliðinn þriðjudag um
aö hefja byggingu menningarhúsa
í Vestmannaeyjum og á Akureyri
en áætlað er að þessar tvær fram-
kvæmdir kosti um einn milljarð.
Bygging menningarhúsanna er
liöur í 6,3 milljarða innspýtingu
ríkistjórnarinnar sem draga á úr
slaka í efnahagslífinu.
Kristján Þór fagnar þessum
áformum ríkisstjórnarinnar og
leggur höfuðáherslu á að fram-
kvæmdir við menningarhús í
bænum hefjist sem fyrst. Að hans
sögn eru allar líkur á því að
bygging hússins hefjist fyrir árs-
lok. „Við erum ekki komnir langt
í undirbúningsvinnu en nú verð-
ur allt sett á fullt í þessum mál-
um,“ segir Kristján en m.a. á eft-
ir að ákveða staðsetningu húss-
ins.
Ljóst er að þessi framkvæmd
verður mikil lyftistöng fyrir at-
vinnulífið á Akureyri, en at-
vinnuleysi þar hefur aukist tölu-
vert undanfarið. -ÆD
Sú frétt að ríkið hefði veitt 500
milljónir króna til jarðganga und-
ir Almannaskarð kom flestum
Hornfirðingum á óvart og voru
vegagerðarmenn á staðnum þar
engin undantekning. Þeir líkja
milljónunum fimm hundruð við
lottóvinning.
„Ég var uppi í Almannaskarði
að skoða lagfæringar þegar ég
heyrði fréttirnar um fjárveiting-
una og að vinna ætti verkið á
næstu 18 mánuðum," sagði Reynir
Gunnarsson, verkstjóri hjá Vega-
gerðinni, í gær. „Ég hringdi strax
í Vegagerðina á Reyðarfirði og
sagði að hér þyrfti ekkert að gera;
við værum að fá göng. Þá höfðu
þeir ekki heyrt neitt um þetta.
Þetta eru aö sjálfsögðu miklar
gleðifréttir og má líkja þessu við
lottóvinning," segir Reynir.
Albert Eymundsson, bæjarstjóri
á Hornafirði, segir að það komi
ekki á óvart að ákveðið sé að gera
jarðgöng undir Almannaskarð en
tímasetningin komi þægilega á
óvart. Albert segir að um tíma
hafl verið skoðaöar lausnir í Al-
mannaskarði en þar er að flnna
bröttustu brekku á öllum hring-
veginum þegar ekið er þar upp
Hornafjarðarmegin.
„Sú brekka mun verða með tím-
anum ólögleg samkvæmt stöðlum
ESB hvað varðar fólksflutninga og
hefur áhrif á akstursleiðina suð-
ur. Með jarðgöngum velja örugg-
lega fleiri að fara syðri leiðina
austur á Hérað en þá nyrðri.
Brattinn er óviðunandi hvað varð-
ar flutninga um skarðið og allar
lausnir sem menn hafa verið að
skoða geta aldrei orðið framtíðar-
lausnir. Aðeins jarðgöng gátu orð-
ið framtíðarlausn þama, ekki síst
í ljósi stórvirkjanaframkvæmda.
Við vorum hins vegar að leggja
meiri áherslu á tengingar innan
sveitarfélagsins með nýrri brú á
Hornafjarðarfljót og vegalagningu
og settum það verkefni í forgang,"
segir Albert Eymundsson.
Áætlaður kostnaður við jarð-
göng undir Almannaskarð, reikn-
aður út fyrir tveim árum, var
6-700 milljónir króna. Bæjarstjórn
Hornafjarðar hefur verið að skoöa
lausnir hvaö varðar jarðgöng um
Almannaskarð og nefnd undir for-
sæti Hermanns Hanssonar um það
lauk störfum í síðustu viku og
sendi gögnin á miðvikudagsmorg-
un. Það stendur því ekki á heima-
mönnum að framkvæmdir geti
hafist sem fyrst. -GG/JI
Kristján Þór
Júlíusson.
Ættfræðingurlnn
„Þjóðin er undarleg,u segir Friðrik
Skúlason. Kominn meö 100 þús-
und notendur að íslendingabók.
íslendingabók:
100 þúsund
notendur
Skráðir notendur íslendingabók-
ar eru orðnir 100 þúsund. Sá múr
féll í fyrrakvöld og í gær voru um-
sóknir orðnar samanlagt 100.099
talsins. „íslendingabók afhjúpar
meðal annars hve undarleg þjóðin
er. Eða hvar gæti það annars stað-
ar gerst að á fáum vikum fengir
þú hundrað þúsund manns til að
skrá sig inn í gagnagrunn um ætt-
fræði? Þetta er fáheyrt," segir
Friðrik Skúlason, tölvugúrú og
ættfræðingur, einn helsti hönnuð-
ur bókarinnar. Nánar er rætt við
hann í DV-Magasíni sem kemur
út í dag. -sbs
Ungir jafnaðarmenn:
Vilja ekki
í Evrópunefnd
Davíðs
Framkvæmdastjóm Ungra jafn-
aðarmanna hvetur Samfylking-
una til að taka ekki þátt í fyrir-
hugaðri Evrópunefnd Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra. Þeir
segja að Samfylkingin hafi rætt
Evrópumálin af fullri ábyrgð
undanfarin misseri og sé með
skýra stefnu í þessu mikilvæga
hagsmunamáli þjóðarinnar. ís-
lenskir kjósendur eigi heimtingu
á því að umræða um aðild ís-
lands að Evrópusambandinu fari
fram fyrir opnum tjöldum en
verði ekki kæfð þremur mánuð-
um fyrir kosningar með því að
setja málið í nefnd. Með þessu út-
spili sé forsætisráðherra að
breiða yfir vandræðagang Sjálf-
stæðisflokksins í Evrópumálun-
um og reyni að taka málin af
dagskrá. -HKr.
Mosfellsbær:
Vilja Vesturlands-
veg í forgang
Stjórn Framsóknarfélags Mos-
fellsbæjar skorar á samgönguyfir-
völd að hraða tvöfóldun Vestur-
landsvegar, frá Víkurvegi að
Langatanga. Bent er á að á Vest-
urlandsvegi sé ein mesta slysa-
tíðni á landinu.
Þar sem yfirvöld hafi þegar
ákveðið að leggja aukið fé til að
hraða vegaframkvæmdum ríkis-
ins þá telur félagið nauðsynlegt
að setja Vesturlandsveginn í for-
gang. -HKr.
Lést í vinnuslysi
Valdimar
Gunnarsson.
Maður sem
lét lífið í
vinnuslysi í
Bryggjuhverfí
í Grafarvogi á
þriðjudag hét
Valdimar
Gunnarsson,
til heimilis að
Stekkjarbergi
4 í Hafnar-
firði. Valdi-
mar var fædd-
ur 12. mars árið 1973. Hann
lætur eftir sig 12 ára son og
sambýliskonu.