Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
DV
7
Fréttir
Náttúruverndarsamtökin telja aurskolun geta komið í stað setlóns:
Nauðsynlegt að gera
setlón vegna virkjunar
- segir Viðar Olafsson verkfræðingur
DV-MYND E.ÓL.
Urskuröur kynntur
Jón Kristjánsson, settur umhverfisráðherra, og Viðar Ólafsson verkfræðingur
þegar úrskurður vegna Norðlingaölduveitu var kynntur \ Þjóðmenningarhúsinu
30. janúar sl.
Náttúruvemdarsamtök íslands
hafa haldið því fram eftir fram-
lagningu úrskurðar Jóns Krist-
jánssonar, setts umhverfisráð-
herra, vegna Norðlingaölduveitu
að setlón ofarlega við Þjórsá sé
mótvægisaðgerð vegna óvissu
um árangur af aurskolun úr
Norðlingaöldulóni. Ef aurskolun
virki sé ekki þörf fyrir setlónið
og í því tilfelli eigi náttúran að
njóta vafans. Sem kunnugt er fer
fyrirhugað lón algjörlega út úr
friðlandinu og náttúrufar og
vatnsbúskapur í friðlandinu
raskast ekki. Verkfræðistofa Sig-
urðar Thoroddsens kannaði
hvort unnt væri að haga fram-
kvæmdum þannig að umhverfis-
áhrifa gætti í minna mæli en
Landsvirkjun gerði ráð fyrir í
sinni matsskýrslu.
Viðar Ólafsson, verkfræðingur
og framkvæmdastjóri VST, telur
að um misskilning sé að ræða
hjá Náttúruvemdarsamtökum
íslands. Til að tryggja hag-
kvæmni lóns í 566 metra hæð í
stað 575 metra hæðar sé nauð-
synlegt að gera setlón og veita
hluta vatnsins yfir til Kvíslar-
veitu. Það spari dælingu og
minnki kostnað við gerö jarð-
ganga og dæla vegna Norðlinga-
ölduveitu. Lóniö sé einnig nauð-
synlegt til að halda eftir hluta af
aumum vegna þess að óvissa
ríki um aurskolunina og því sé
það rangt að hægt sé að komast
hjá því að byggja setlón. En
kannski séu fullyrðingar Nátt-
úruvemdarsamtakanna að ein-
hverju leyti byggðar á ósk-
hyggju.
„Hagkvæmnin liggur í því að
veita hluta af vatninu beint til
Kvíslarveitu og með því sparast
fjármunir sem annars þyifti að
nota í dælingu. Þá er hægt að hafa
dælur og vatnsvegi minni og
spara einnig í framkvæmdakostn-
aði. Þetta er að okkar mati dýrari
framkvæmd en virkjunaraðili var
með en ekki svo miklu dýrari að
við teljum það ekki færa leið. Við
höfum lítillega rætt við Lands-
virkjun og gerðum það fyrir birt-
ingu úrskurðarins 30. janúar sl.
Við teljum ekki að ís geti orðið
vandamál þarna. Áin ofan við
Norðlingaöldu er að mestu undir
ís frá hausti til vors og þetta litla
lón er þaö djúpt í endann þar sem
inntakið er að það á að vera hægt
að ná vatninu þar undir. Krapa-
hlaup ættu heldur ekki að vera
vandamál. Það er rétt hjá Lands-
virkjun að þetta er viðkvæmara
en mjög stórt lón,“ segir Viðar
Ólafsson. -GG
Samtök atvinnulífsins:
Fagna útspili ríkisstjórnarinnar
Samtök atvinnulífsins fagna
þeirri ákvörðun ríkisstjómarinn-
ar að verja 6,3 milljörðum króna
til ýmissa framkvæmda umfram
þau flýtiverkefni sem þegar hafði
verið ákveðið að ráðast í. SA telja
gott svigrúm fýrir þessar fram-
kvæmdir nú og tímasetningu
góða, enda slaki í efnahagslífinu,
verðbólga lág, lítil eftirspurn á
vinnumarkaði og atvinnuleysi
vaxandi. Með flýtingu sumra þess-
ara framkvæmda skarast þær síð-
ur við væntanlegar virkjunar- og
álversframkvæmdir og eru þannig
liður í því að skapa þeim fram-
kvæmdum rými. Loks er boðaður
viðbótaráfangi í einkavæðingu
sérstakt fagnaðarefni en til að fjár-
magna þessar aðgerðir hyggst rík-
isstjórnin selja enn óseld bréf rík-
isins í Búnaðarbanka, Lands-
banka og íslenskum aðalverktök-
um.
SA telja hins vegar ljóst að þörf
sé á verulegum samdrætti fjárfest-
inga og annarra opinberra út-
gjalda þegar framkvæmdimar fyr-
ir austan ná hámarki á árunum
2005 og 2006. Mikilvægt sé að
stjórnvöld láti í ljós ákveðin áform
og vilja í því efni til þess að draga
úr ætlaðri þörf fyrir vaxtahækk-
anir. Því meiri áhersla sem lögð
verði á aðhald í fjármálastjórn
hins opinbera til að draga úr eftir-
spurn á framkvæmdatímanum
þeim mun minni verða áhrif þess-
ara framkvæmda á vexti og gengi
krónunnar og þar meö á annað at-
vinnulíf í landinu. Sú leiö stuðli
jafnframt að betra jafnvægi í efna-
hagslífinu að framkvæmdatíman-
um loknum og meiri ávinningi til
lengri tíma. -GG
DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON
Baka pönnukökur
Þessar myndarlegu kvenfélagskonur voru komnar á fætur fyrir allar aldir og
bökuöu 1.600 pönnsur handa samborgurum sínum sem nutu þess að borða
góðgætið með morgunkaffinu. Við borðið eru, taldar frá vinstri, Sigríður Þóra
Eggertsdóttir, Nanna Þórðardóttir, Metta Jónsdóttir, Sigríður Eggertsdóttir og
Súsanna Hilmarsdóttir, formaður pönnukökunefndar Kvenfélags Ólafsvíkur.
Pönnukökudagur í Ólafsvík
Það var mikið fjör hjá þeim kven-
félagskonum í Ólafsvík sem hófu
pönnukökubakstur eldsnemma í gær-
morgun. Það er árlegur siður hjá
þeim að baka og bjóða íbúum Snæ-
fellsbæjar til kaups. Salan er alltaf að
aukast og í þetta skiptiö höfðu fyrir-
tæki og stofhanir pantað hvorki
meira né minna en 1600 pönnukökur.
Þær voru ýmist sykraðar eða með
sultu og rjóma og voru gimilegar á
að líta áður en kvenfélagskonur óku
þeim til neytenda til að ná morgun-
kaffinu.
Fjöldi félagskvenna kemur að þess-
um bakstri og er ágóðinn notaður til
að fjármagna hin ýmsu góðu verkefni
sem kvenfélagið vinnur að í bæjarfé-
laginu. Formaöur pönnukökunefndar
er Súsanna Hilmarsdóttir. -PSJ
Northrop-vélin í Skerjafirði:
Flakið friðlýst
DV-MYND LHG
Flakiö
Þrívíddarmynd unnin upp úr mæligögnum úr
fjölgeislamælinum af flugvélarflakinu á botni
Skerjafjarðar.
Flak Northrop-flugvélar-
innar sem fannst í Skerja-
firði í ágúst síðastliðnum,
hefur verið friðlýst af Forn-
leifavernd ríkisins. Friðlýs-
ing felur í sér að bannað er
að kafa yfir flakinu og í 20
metra radíus við það.
Sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslimnar hafa
haft yfirumsjón með köfun
við flakið og rannsókn á
því. Þeir hafa aflað sér
margvíslegra heimilda um
það, m.a. frá Northrop
Grumman-verksmiðjunum,
flugsafninu í Kaliforníu og
breska og norska sendiráð-
inu. Vélin fannst með fjöi-
geislamæli sem bandaríski
sjóherinn lánaði Landhelg-
isgæslunni í sumar. Einu merk-
ingarnar sem hafa fundist á vél-
inni eru norskir einkennislitir
undir vængjum og númer á olíu-
kæli.
Flugvélin var í notkun á stríðs-
tímum og því má reikna með
sprengjum í eða við flakið. Ekki
hefur verið staðfest hvort áhöfn
vélarinnar fórst er hún sökk á sín-
um tima og hvort líkamsleifar eru
í vélinni. -aþ
Farðu úr bænum á góðum bil frá Avis - Helgarbíllinn þinn
Hringdu i Avis simi 5914000 —-
Knarrarvogur 2 - 104 Reykjavík - www.avis.is
ISLAND*S/€KJUM ÞAÐ HEIM
AV/S
Við gerum betur