Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir gu hótelrýmis í Reykjavík ■U, : > ‘ i: i | 1, :? j 1 1 H í ,<1 , i ' ■ ■ * 1 1 ® 341 HOTELHERBEROI BÆTAST VIÐ í SUMAR Mikill kraftur er hlaupinn i bygg- ingu hótela í Reykjavík. í sumar er gert ráð fyrir að hótelherbergi verði um 340 fleiri en stóðu til boða á síð- asta ári. Virðist ekki hafa verið van- þörf á því en hótelnýtingin i Reykja- vík í ágústmánuði á síðasta ári var 90,08% en var 88,83% í sama mán- uði 2001. Það hótelpláss sem vitað er með nokkurri vissu um að bætist við í Reykjavík í sumar er 341 herbergi. Þar er um að ræða 138 herbergja við- bót á Nordica Hotel við Suðurlands- braut sem opnar var í byrjun apríl. Þá eru 42 herbergi á 101-Hótel í gamla Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu sem opnað verður alveg á næstunni. Frá því á síöastliðnu sumri hafa bæst við um 80 herbergi á Hótel Barón á homi Barónsstígs og Skúlagötu. Hótel Plaza við Aðalstræti 4 er í byggingu en á að komast í gagnið í maí. Þar verður 81 herbergi. í fyrrasumar voru 1.516 herbergi á 19 hótelum á höfuðborgarsvæðinu og er þessi 242 herbergja viðbót í sumar því umtalsverð. Þegar öll hótel og gistiheimili eru talin með á höfuðborgarsvæöinu voru þar sam- kvæmt tölum Hagstofu íslands sam- tals 2.003 herbergi í 58 rekstrarein- ingum árið 2001. Samkvæmt upplýs- ingum DV eru tölur varðandi ijölda gistiheimila nokkuð á reiki fyrir síðasta ár og er jafnvel talið að eitt- hvað skorti á rétta skráningu þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Um þrenns konar gistirými er í raun að ræða í borginni, hótel, gistiheimili og heimagistingu. Erfitt getur verið að henda reiður á heildarfjölgun her- bergja því dæmi munu um að til starfa hafi tekið 10-15 herbergja gistiheimili án þess að fyrir fram væri vitað um þær fyrirætlanir. Hótel á gömlum rústum Þar fyrir utan var nýlega undir- ritaður samningur milli Reykjavík- urborgar og Innréttinganna ehf. um uppbyggingu á hornreit Aðalstrætis og Túngötu í Reykjavík þar sem gert er ráð fyrir hóteli. í ársbyrjun 2001 fundust á þeirri lóð við fom- leifarannsóknir merkar og heillegar minjar um mannvist sem jafnvel eru taldar geyma minjar um bústaö Ingólfs Arnarsonar. Gert er ráð fyr- ir að þessar minjar verði varðveitt- ar og almenningi til sýnis undir húsunum í 1200 fermetra sýningar- skála. Þá er einnig gert ráð fyrir um 200 herbergja viðbyggingu í tveim 13 hæða hóteltumum við Grand Hótel. Búist er við að framkvæmdir þar heflist i sumar og ljúki á næsta ári. í Kjörgarði við Laugaveg er búið að teikna hótel sem fyrirhugað er að ráðast í. Hóteltum við Kringluna hefur einnig verið á hugmyndastigi, hótel í Landssimahúsinu við Aust- urvöll, sem og Hafnarhótel svokall- að með 250 herbergjum og ráð- stefnuaðstöðu við Reykjavikurhöfn. Mikil umræða Þorleifur Þór Jónsson, hagfræð- ingur Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að varla sé svo rætt um hús í miðbæ Reykjavíkur um þessar mundir öðru vísi en spurt sé hvort ekki megi búa þar til hótel. Hann segir að bjartsýnin byggist m.a. á því að um nokkurra ára skeið hafi ríkt stöðnun í byggingu hótelrým- is í höfuðborginni en ferðamönn- um hafl fjölgað verulega. Menn verði þó að átta sig á því að ferða- þjónusta er stærsta atvinnugrein- in í heiminum og fer stöðugt vax- andi. Aðeins lítið brot af kökunni Þorleifur segir að meðaltal sið- ustu 20 ára sýni að fjölgunin hér sé um 8% á ári á meðan aukning- in í þessari þjónustu í Norður-Evr- ópu sé um 4% á ári. Árið 2000 var ísland aðeins með 0,67% markaðs- hlutdeild í ferðamannaþjónustu á þessu svæði sem tekur yfir Norð- urlöndin auk Bretlands og írlands. Þá komu hingað nærri 300 þúsund ferðamenn en áætlanir gera ráð fyrir um 1,5 milljónum ferða- manna árið 2020. Þótt sú tala næð- ist tæki þessi þjónusta á íslandi samt ekki nema rúmlega 1% af kökunni. Þorleifur segir að í þessu sam- bandi skipti líka verulegu máli að opinbert fjármagn til mark- aðskynningar hafi stóraukist. Því þurfi að halda áfram jafnframt því að tryggð verði áframhaldandi uppbygging í greininni og nægt framboð á flugi til íslands. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.