Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Síða 13
13 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003_________________________________________________________________________________________ I>V Útlönd Bandaríkjamenn undir- búa drög að nýrri ályktun - reynt verður að koma til móts við óskir Frakka og Þjóðverja Ari Fleischer, talsmaöur Hvíta hússins, sagöi í gær að bandarísk stjómvöld væru nú að vinna drög að nýrri ályktun í íraksmálinu sem ætl- unin væri að leggja fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna eftir að Hans Blix hefur kynnt endurskoðaða skýrslu um stöðu vopnaeftirlitsins á grundvelli fyrri ályktunar ráösins frá því i nóvember. Ástæðan er án efa staðan sem kom- in er upp innan NATO og aukin and- staða heimafýrir og erlendis gegn hernaðaraðgerðum án samþykkis Ör- yggisráðsins og einnig það að Frakkar hafa boðað að þeir muni að óbreyttu leggja fram tillögu í ráðinu um aukið vægi vopnaeftirlitsins sem gangi út á það að fjölga verulega i vopnaeftirlits- sveitunum og gefa því þann tíma sem til þarf. Fleischer sagði að viðræður um orðalag draganna væru þegar komnar í gang og að allt yrði reynt til þess að ná sáttum í málinu en ljóst er að ell- REUTERSMYND Mohamed EIBaradei Forstjóri Alþjóöa kjarnorkumálastofn- unarinnar sendir kjarnorkudeiiuna viö Noröur-Kóreu til Öryggisráösins. Skorað á Norður- Kóreu að leysa kjarnorkudeiluna Stjómvöld í Suður-Kóreu hvöttu ráðamenn í Pyongyang í morgun til að grípa nú tækifærið og leysa deiluna um kjamorkuáætlun þeirra sem er á leið fyrir Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna. Alþjóða kjamorkumálastofnunin (IAEA) ákvað í gær að senda málið til Öryggisráðsins. í kjölfarið vör- uðu bandariskir embættismenn við því að Norður-Kóreumenn ættu að öllum líkindum eina eða tvær kjarnorkusprengjur og hefðu alla burði til að ráðast á Bandarikin. Stjórn IAEA komst að þeirri nið- urstöðu að Norður-Kórea hefði brotið reglur um kjarnorkuöryggi með framferði sínu. Öryggisráð SÞ hefur vald til þess að beita Norður- Kóreumenn refsiaðgerðum vegna þessa. Mohamed ElBaradei, fram- kvæmdastjóri LAEA, sagði þó í gær að þetta þýddi ekki endilega að refsiaðgerðum yrði beitt. Nemandi tekinn fyrir að svindla Ellefu ára skólapiltur var hand- tekinn í Flórída á dögunum og ákærður fyrir að hafa laumast í tölvu kennarans í matartímanum og breytt einkunnunum fyrir fimm heimaverkefni sem hann hafði leyst af hendi. Að bandarískum sið var piltur- inn fluttur í fangelsi og bókaöur. Föður hans var síðan gert að sækja stráksa og fara með hann heim. Skólayfirvöld líta málið mjög al- varlegum augum, enda svona fikt talið einhver mesti glæpurinn sem nemandi getur fram þar á bæ. Colln Powell í þinglnu Colin Powell, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, segir aö reynt veröi aö koma til móts viö óskir Frakka og Þjóöveija um aukið vægi vopnaeftirlitsins í írak. efu af fimmtán þjóðum í ráðinu eru hlynntar því að látið verði reyna á vopnaeftirlitið. Þessar yfirlýsingar koma í kjölfar aukinnar pressu á íraka eftir að sér- fræðingar vopnaeftirlitsins flettu í gær ofan af áætlunum þeirra um smíði langdrægari flugskeyta en sam- þykktir Öryggisráðsins leyfa. Um er að ræða al-Samoud II flaugar, sem samkvæmt samþykktum Öryggisráðs- ins mega draga 150 km vegalengd en geta dregið allt að 180 km samkvæmt ólöglegum áætlunum íraka. Colin Powell, utanrikisráöherra Bandaríkjanna, sagði í gær að reynt yrði koma til móts við óskir Frakka og Þjóöverja um aukið vægi vopnaeft- irlitsins og á fundi með bandarískri þingnefnd í gær sagðist hann ætla að fara fram á það við utanrikisráðherra þjóöanna að þeir upplýstu hve langan tíma þeir vildu gefa vopnaeftirlitinu og hvort ætlun þeirra væri virkilega að reyna að bjarga írökum fyrir horn. REUTERSMYND Dansaö fyrir páfann Jóhannes Páil páfi fyigist hér af áhuga með pólskum dönsurum sem sýndu þjóödansa á vikulegri móttöku í Vatíkaninu í gær. Páfinn býr sig nú undir fund meö Tareq Aziz, aöstoöarforsætisráöherra íraks, sem fyrirhugaöur er á morgun, í viöleitni sinni til þess aö koma í veg fyrir stríö í írak. Allt fast í NATO: Miðlunartillaga í deilunni um varnir Tyrklands skotin niður Frakkar, Þjóðverjar og Belgar höfnuðu í gærkvöld málamiðlunar- tillögu sem ætlað var að leysa ágreininginn innan Atlantshafs- bandalagsins (NATO) um varnir Tyrklands, fari svo að Bandaríkja- menn hefji stríð við írak. Kreppan innan NATO gerði því ekki annað en að versna. Ríkin þrjú, sem hafa gagnrýnt harðlega allt óðagot varðandi hem- aðaraðgerðir gegn írak, neituðu að gefa neitt eftir, að minnsta kosti ekki fyrr en eftir að Hans Blix, yf- irmaður vopnaeftirlits Sameinuöu þjóðanna, hefur flutt skýrslu sína í öryggisráðinu á morgun. George Robertson, framkvæmda- stjóri NATO, reyndi i gærkvöld að lægja þessar mestu deilur í 54 ára sögu NATO með því að skera mjög utan af fyrri tillögum. En allt kom REUTERSMYND George Robertson Framkvæmdastjóra NATO tókst ekki aö fá samþykkta máiamiölun um varnir Tyrkiands ef til stríös kemur. fyrir ekki. Ríkin þrjú neituðu að hverfa frá fyrri andstöðu sinni. Robertson lagði málamiðlunartil- löguna fyrir sendiherra aðildar- landanna nítján eftir umfangsmikl- ar þreifingar milli landanna. En þegar sendiherrarnir hittust í gær- kvöld, í fimmta sinn á þremur dög- um, hafði ekkert miðaö í samkomu- lagsátt. Talsmaður franska utanríkis- ráðuneytisins í París fór fremur háðuglegiun orðum um málamiðl- unina, jafnvel áður en sendiherr- amir hittust aftur. Tillögumar gera meðal annars ráð fyrir að Patriot-flugskeytum verði komið fyrir í Tyrklandi. Rík- in þrjú telja að með samþykkt þeirra sé NATO að fallast á að stríðsaðgerðir í írak séu óumflýjan- legar. REUTERSMYND George Tenet Forstjóri CIA svarar spurningum þing- manna um Osama bin Laden. Leitað að duldum boðum í upptök- unni með Osama Bandarískir leyniþjónustumenn fara þessa dagana í saumana á nýrri hljóðupptöku, sem sögð er vera með Osama bin Laden, til að reyna að ganga úr skugga um hvort í henni leynist dulin skilaboð til liðsmanna hans um að gera árásir. George Tenet, forstjóri banda- risku leyniþjónustunnar CLA, sagði í gær að hryðjuverkaárásir hefðu verið gerðar í kjölfar þess að síð- ustu tvær upptökur bin Ladens vom leiknar. Önnur árásin var gerð á næturklúbb á Balí og hin var gerð á hótel í eigu ísraela í Keniu. „Hann er augljóslega að hvetja þá til frekari aðgerða. Við erum að kanna hvort þetta er til merkis um yfirvofandi árás eður ei,“ sagði Tenet um upptökuna sem arabíska sjónvarpsstöðin al-Jazeera spilaði i vikunni. Þar hvatti bin Laden með- al annars múslíma í írak til að berj- ast færi svo að ráðist yrði á landið. Sérsveitir BNA læðast inn í írak Samkvæmt fréttum bandaríska dagblaðsins Washington Post, hafa bandarískar sérsveitir þegar lætt sér inn fyrir landamæri íraks til undirbúnings innrásar í landið. í fréttinni, sem höfð er eftir tveimur foringjum umræddra sveita, segir að tvær slíkar sveitir, sem skipaðar séu ótilgreindum fjölda sérþjálfaðra hermanna, hafi farið viða um landamærahéruð íraks. Haft er eftir foringjunum að að- gerðimar hafi staðið í allt að mán- uð og miði að þvi að undirbúa jarð- veginn þannig að hægt verði að hertaka stór svæði landsins í skyndi. UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjáif- um, sem hér segir: Engihjalli 11,1. hæð D, ehl. gþ., þingl. eig. Nói Jóhann Benediktsson, gerðar- beiðendur Tal hf. og Tollstjóraskrif- stofa, mánudaginn 17. febrúar 2003 kl. 13.00. Engihjalli 9, 0601, þingl. eig. Valgerð- ur Ásmundsdóttir og Björgvin Gunn- arsson, gerðarbeiðendur Engihjalli 9, húsfélag, fbúðalánasjóður, Kópavogs- bær og Landsbanki íslands hf., höf- uðst., mánudaginn 17. febrúar 2003 kl. 13.30. Hlaðbrekka 21,0001, þingl. eig. Þröst- ur Friðþjófsson, gerðarbeiðendur Eimskipafélag íslands hf., íbúðalána- sjóður og Landsbanki íslands hf., aðal- stöðv., mánudaginn 17. febrúar 2003 kl. 15.00.______________________ Lautasmári 41, 0302, þingl. eig. Ásta Björk Vilhjálmsdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn 17. febrúar 2003 kl. 15.30. Lundarbrekka 10,0404, þingl. eig. Sig- rún Baldursdóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., íbúðalánasjóður og Kópavogsbær, mánudaginn 17. febrúar 2003 kl. 14.30. _________________________ SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.