Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
I>V
Fréttir
Ólafur Jóhann Ólafsson segir öryggisráðstafanir hafa verið hertar í New York:
Söguleg firð milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna
- segir enn eina viðvörunarölduna vera aö ganga yfir borgina
Slæmt efnahagsástand, uppsagnir og hætta á hryðjuverkum
íbúar New York-borgar hafa mátt muna sinn fífil fegri. Ólafur Jóhann segir þá
engu aö síöur vera búna aö mynda eins konar skráp og sennilega sé hvergi
meiri andstaöa viö stríö í írak en í stórborginni sem Bin Laden lét ráöast á
fyrir hálfu ööru ári.
Ólafur Jóhann Ólafsson rithöf-
undur segist telja að ekki hafi ver-
ið jafnlangt á milli Bandaríkjanna
og Evrópu frá því elstu menn
muna sé mið tekið af afstöðu til
þess hvort ráðast skuli á írak eða
ekki. Hann segir borgarbraginn í
New York, þar sem hann býr, líða
fyrir stöðu heimsmálanna - nú
tröllríði íraksmálið öllu og örygg-
isráðstafanir hafi verið hertar
þannig að íbúar verði áþreifan-
lega varir við slíkt í hinu daglega
lífi. Hins vegar sé stórborgarfólkið
„orðið bólusett" eftir tímann sem
liðinn er frá 11. september 2001 -
íbúarnir séu komnir með eins
konar skráp. Hann segir að ætla
hefði mátt að New York-búar yrðu
meðal herskárri Bandaríkja-
manna eftir árásimar á tvíbura-
turnana, en það hafi komið á dag-
inn að hlutfall þeirra sem eru á
móti styrjöld sé sennilega með þvi
hæsta í New York sé litið til þjóð-
arinnar allrar.
Þar séu sennilega frjálslyndustu
íbúar Norður-Ameríku.
Viðvaranaalda
„Bandaríkjamenn hafa ekki
farið gegn ákvörðunum Samein-
uðu þjóðanna hingað til - þeir
hafa ekki gert neitt algjörlega á
eigin spýtur," segir Ólafur Jó-
hann.
- Átt þú von á að þeir geri slíkt
nú?
„Ég ætla að vona ekki,“ segir
hann, en það er að heyra á íslend-
ingnum að honum fmnist að hlut-
ir geti farið á hvorn veginn sem
er. Bandaríkjamenn séu greini-
lega að undirbúa árás á írak.
En hvernig er þá lífið í New
York í dag?
„Þessa dagana er að ganga yfir
enn ein viðvaranaaldan - hætta
sögð vera á hryðjuverkum. Þetta
byrjaði kannski um helgina, þegar
við hjónin vorum á gangi heim
fram hjá Grand Central og sáum
viðbúnað við óvarin hótel og lest-
arstöðvar. Borgarbragurinn líður
talsvert fyrir þetta en fólk er þó
orðið svolítið bólusett. Það er ekki
talað um hættuna á sama hátt og
áður var.“
Ólafur Jóhann segir að ákveðnu
litakerfi hafi verið komið á, til
dæmis appelsínugulum lit sem
táknar ákveðið hættuástand. Fólk
fylgist svo með litunum í blöðum
og á sjónvarpsskjám. „Nú hefur
viðbúnaðarstigið verið hækkað í
rauðgulan lit.“
Slæmt efnahagsástand
Ólafur Jóhann segir ýmsa nei-
kvæða þætti vera ríkjandi í New
Ýork og reyndar víðar í Banda-
ríkjunum - heldur bágborið efna-
hagsástand, atvinnuleysi og yfír-
vofandi hættu, auk þess sem
hlutabréfamarkaðurinn sé í
kreppu.
„Þegar stríðstal, slæmt efna-
hagsástand og aukin hætta á
hryðjuverkum er uppi á borðinu
samtímis er ástandið ekki sérstak-
lega uppörvandi. Það er verið að
segja upp fólki, mikið tengt störf-
um, tengdum Wall Street. Þar er
uppsögnum haldið áfram og ég sé
ekki að breytingar séu fram und-
an. Ég held þetta muni frekar
versna en hitt.“
Háhýsaskrekkur
Þegar íslendingar horfa á fréttir
í sjónvarpi eða kvikmyndir og
fólk við störf í háhýsum í Banda-
ríkjunum þá kemur óneitanlega
oft upp í hugann sú spuming
hvort íbúar vestra séu ekki bangn-
ir við að vera „hátt uppi“. Hvað
segir íslendingurinn Ólafur Jó-
hann um þetta. Hugsar hann
svona eins og við hér heima sem
aldrei förum upp í meira en tólf til
fjórtán hæða hús á hjara veraldar?
„Já, það getur verið,“ segir
hann. „Ég stóð um daginn með
fólki fyrir framan mikla byggingu
sem verið er að reisa á suðvestur-
horni Central Park við Columbus-
hringtorgið. Þetta er mjög áber-
andi bygging. Ekki var laust við
að fólk hugsaði: „Verður þetta hús
ekki tilvalið skotmark? Einhvers
staðar leynist þessi hugsun hjá
fólki. En allir leita í sína rútínu -
fólki líður best að vera í sínu
fari,“ segir Ólafur Jóhann.
Hann mun, eins og aðrir New
York-búar, halda áfram að lifa líf-
inu - með svolítinn skráp en í
óvissu um hvort fleiri hryðjuverk
verða framin í kjölfar væntanlegr-
ar árásar á írak, hvort sem hún
verður gerð með eða án samþykk-
is Sameinuðu þjóðanna. Ef það
gerist munu Bandaríkjamenn
jafnvel sýna vígtennur sínar og
vald upp á eigin spýtur. Ef það
verður mun söguleg fjarlægð ekki
aðeins skapast milli þeirra og Evr-
ópuþjóða heldur væntanlega
einnig milli þeirra og arabaheims-
ins - í sögulegri sundrungu
þriggja heimshluta. -Ótt
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. febrúar 2003 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 49. útdráttur
1. flokki 1990 - 46. útdráttur
2. flokki 1990 - 45. útdráttur
2. flokki 1991 - 43. útdráttur
3. flokki 1992 - 38. útdráttur
2. flokki 1993 - 34. útdráttur
2. flokki 1994 - 31. útdráttur
3. flokki 1994 - 30. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 15. febrúar.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi uppLýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
I Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Rauðgult hættuástand
Ólafur Jóhann var á gangi meö konu sinni um helgina þegar þau uröu
áþreifanlega vör viö þann öryggisviöbúnaö sem ríkir í New York. Á myndinni
sjást imyndaöir tákngervingar tvíburaturnanna.
/ Tónar V
eingöngu fyrir
<NOKIA síma >
kr./stk.
kr./stk.
Nýjustu fréttir
beint ígemsann þinn
r
—
_
—
Ferskir tónar
Til að panta hringitón sendir þú skeytið: Tone DV kódi.
T.d.: Tone DV 2142, til að velja Lose Yourself með
EMINEM og sendir á 1919. 99 kr. stk.
Flytjandi
EMINEM
Jennifer Lopez
Theme
Lenny Kravitz
Led Zeppelin
Kelly Osborne
Nirvana
No Doubt
Weezer
Europe
Deep Purple
Coldplay
Bryan Adams
Buffy the Vampire
ACDC
BK
lag
Lose Yourself
Jenny From The Block
Mothy Python
American Woman
Stairway to heaven
Papa Dont Preach
Smells LikeTeen Spirit
Hey Baby(DTI)
Hashpipe
FinalCountdown
Smoke On The Water
In my Place
Summer of 69
Theme 2
TNT
■ra
im ■ ■
kodi
2142
2144
3147
5026
9425
1864
9431
0587
9540
7008
5064
1762
1772
9269
9566
Þú getur fengið fleiri
tóna og merki á
www.smartsms.is
Nú senda allir sitt SMS
áeitt númer: 1919
Sendu SMS-skeytið DV FRETT á númerið 1919 og
við sendum þértil baka nýjustu fréttirnar, um leið
og þær gerast frá fréttamönnum DV.
Að móttaka hvert SMS kostar 49 kr.
Til að afskrá þiónustuna sendu SMS-skeytið
1919.
Fylgstu
með um leið
og það
gerist!
—
cuds