Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Blaðsíða 15
15 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 DV Tilnefningar til Menningarverðlauna DV í byggingarlist 2003: Þjónustuskáll Alþingis Samræmist vel sínu nánasta umhverfi og endurspeglar þaö bæöi hvaö varöar form og efnisnotkun. Hus isienskrar ertoagreiningar Ásýndin gefur í skyn aö húsiö þjóni hlutverki trausts virkis sem verndar afar mikilvæg og viökvæm gögn. Hús er ekki bara hús „Þaö var gaman aö skoöa nýjar bygging- ar meö nefndarmönnum og rœöa saman um byggingarlist á íslandi út frá þeim verkum sem viö tókum til umfjöllunar," segir nýr gagnrýnandi DV og formaður dómnefndar í byggingarlist, Sigríöur Björk Jónsdóttir. Nefndin skoðaði alls um tuttugu verk og því vekur athygli að hún notar ekki kvótann, tilnefhir aðeins þrjú hús en má tilnefna fimm. Voru húsin svona óspennandi? „Aðallega var vandinn sá að mörg þessara húsa voru ekki frágengin að fullu þó að þau hefðu verið tekin í notkun að hluta. Þetta átti til dæmis við um skólahús sem við skoðuð- um. Okkur fannst ósanngjamt að taka með hús áður en þau væru fullfrágengin að innan og utan, en þau koma bara með næst,“ segir Sigríður. „Þar sem við skoðuðum ekki nema um 20 hús hefði að mínu mati varla verið eðlilegt að tilnefna ftmm. Öðru máli gegnir þeg- ar fjöldinn er kominn yfir 30 eins og oft hefur verið.“ Afturhvarf til módernisma Nefndin lagöi mikla áherslu á að skoða heild- armyndina og þá var eðlilegt að sleppa bygging- um sem ekki voru enn fullmótuð heild. „Við höfðum að leiðarljósi hugmyndina um borgarumhverfi og samhengi byggðar, eins og sjá má á tilnefningunum," segir Sigríður Björk. • „Arkitektúr er alltaf hluti af stærri heild, hvort sem það er náttúrulegt eða manngert umhverfi. Það er áskorun að hanna hús inn í gamalgróið umhverfi eins og viðbygginguna við Alþingis- húsið eða nýbygginguna við Ráðhústorgið á Ak- ureyri. Það er líka erfitt að teikna hús inn í lítt mótað umhverfi eins og hús íslenskrar erfða- greiningar. Allt krefst samræmis en þó nýsköp- unar um leið.“ - Hvaða tískusveiflur sáuð þið helstar í nýj- um húsum? „Viö sjáum ákveðið afturhvarf til módem- isma fimmta og sjötta áratugarins, ekki síst í Strandgata 3, Akureyrl Er bæöi í útliti og aö notagildi dæmigert borgarhús. efnisnotkun. Módernisminn fólst meðal annars í notkun náttúrulegra efna eins og timburs og steinflísa svo eitthvað sé nefnt. Einnig er gler nú áberandi, bæði í milliveggjum og klæðningu utan á hús, ásamt viði. Þessi notkun er yfirleitt dempuð nema hvað glerið er sums staðar notað ótæpilega." Hús er ekki bara hús, það er formræn heild sem bæði er umgjörð um starfsemi og þjónn hennar, bendir Sigríður Björk á. Auk þess er hús sjálfstæður hluti af enn stærri heild sem er umhverfi þess. Þennan tvöfalda heildarstrúktúr þarf að vega og meta í hverju tilviki. Með Sigríði Björk sitja í nefndinni Guðmund- ur Jónsson arkitekt og Ágústa Kristófersdóttir listfræðingur. Eftirfarandi byggingar eru til- nefndar til Menningarverðlauna DV 2003: Hús íslenskrar erfðagreiningar við Sturiugötu Byggingin er samspil þriggja aðskildra ein- inga sem tengjast með yfirbyggðri göngugötu og brúm. Ásýnd byggingarinnar gefur í skyn að hún þjóni hlutverki trausts virkis sem vemdar afar mikilvæg og viðkvæm gögn. Innandyra er húsið létt og bjart og myndast ákveðið mót- vægi sem einkennist af sveigjanleika. Rýmið er brotið upp með ósamhverfum skálínum sem skapa hreyfingu og spennu sem er táknræn fyrir það flæði starfsmanna milli deilda fyrir- tækisins sem á sér stað í miðrýminu. Húsið er einfalt og lárétt og sker sig ekki of mikið úr umhverfinu, spennandi verður að sjá hvernig það fellur inn í framtíðarbyggð í Vatnsmýr- inni. Höfundur: Teiknistofa Ingimundar Sveins- sonar. Ingólfsstræti 3, Reykjavík. Strandgata 3, Akureyri Hér er um að ræða nýbyggingu við Ráðhús- torgið á Akureyri. í húsinu em verslanir, skrifstofur og íbúðir. Það er bæði í útliti og að notagildi dæmigert borgarhús og vísar form þess til bygginga frá þriðja og fjórða áratugn- um. Fúnksjónalisminn, sem á nokkra góöa fulltrúa á Ákureyri, er endurvakinn. Húsið þéttir og styrkir götumyndina og nýtir bygging- arreitinn vel en það er mikilvægt til að halda þéttri miðbæjarbyggð. Höfundar: Úti og inni sf. arkitektastofa. Bald- ur Ó. Svavarsson og Jón Þór Þorvaldsson. Þing- holtsstræti 27, Reykjavík. Þjónustuskáli Alþingis Þetta er lágreist hús sem fellur vel inn í byggðina í kring. Byggingin samræmist vel sínu nánasta umhverfi og endurspeglar það bæði hvað varðar form og efnisnotkun. Húsið stendur á viðkvæmum stað í hjarta borgarinnar við Austurvöll og því þurftu arki- tektarnir að sýna umhverfinu verulega nær- gætni. Húsið sker sig ekki úr heldur fyllir upp í skarð á milli húsa og fellur vel inn í með því að endurspegla efnivið húsanna. Þetta er gott dæmi um það hvemig markviss þétting byggð- ar getur haldist í hendur við sögu og menning- ararf en samt falið í sér breytingar. Höfundar: Batteríið Arkitektar. Trönuhrauni 1, Hafnarfirði. Tónminjasetur Islands Áhugamönnum um varðveislu tónminja er mörgum kunnugt um fram komnar hug- myndir um stofnun Tónminjaseturs íslands á Stokkseyri. Lengi hefur vantað heildstæða skráningu íslenskra tónminja og að ekki skuli markvisst unnið í þessum málum verð- ur alvarlegra með hverju misseri sem líður. Þeim einstaklingum fækkar sem þekkja af eigin reynslu þá byltingu sem varð á öllum sviðum íslensks tónlistarlífs á 20. öld og má fullyrða að ómetanleg verðmæti hafi þegar glatast vegna þess að meðvitund skorti um gildi þeirra eða ekki var kannað hvort eða hvar mætti varðveita þau. Enn í dag eru að glatast mikilvægar upplýsingar um þessa sögu á haugana og eru til alvarleg dæmi um slíkt frá allra síðustu árum. Fyrir Alþingi liggur nú þingsályktunartil- laga um stofnun Tónminjaseturs sem ísólfur Gylfi Pálmason þingmaður Sunnlendinga hefur lagt fram; tillagan fylgir eftir áður fram kominni tillögu Ólafs Arnar Haralds- sonar um sama málefni. Báðar þessar tillög- ur hafa fengið mjög jákvæða umræðu á Al- þingi og vonast þeir sem haldið hafa á lofti Bjarki Sveinbjömsson. mikilvægi þess að íslenskri tónmenningu verði sinnt sem skyldi að tillaga ísólfs Gylfa fái jákvæða umfjöllun og afgreiðslu á yfir- standandi þingi. í rúmt ár hefur hópur manna frá Atvinnu- þróunarsjóði Suðurlands, fyrirtækjunum Músík og sögu ehf. og Hólmaröst ehf. haldið fjölda funda um stofnun Tónminjaseturs ís- lands og kynnt hugmyndina einstaklingum, hagsmunafélögum tónlistarinnar og opinber- um aðilum. Hefur sú vinna m.a. borið þann árangur að fjárveitinganefnd Alþingis hefur veitt stofnun setursins rausnarlegt fjárfram- lag að upphæð kr. 7 milljónir á fjárlögum yf- irstandandi árs og auk þess hafa ýms fyrir- tæki og einstaklingar gefið loforð um veru- legt fjárframlag í formi styrkja og stofnfjár. Er nú svo komið að þessi hópur hefur blás- ið til stofnfundar Tónminjaseturs í húsnæði Hólmarastar ehf. á Stokkseyri, laugardaginn 15. febrúar næstkomandi kl. 14. Allir áhuga- menn erum boðnir velkomnir á fundinn. Fyrir hönd undirbúningshóps um stofnun Tónminjaseturs íslands, Bjarki Sveinbjömsson ______________________Menning Umsjón: Silja Aðaisteinsdóttir silja@dv.is Ný sýningarrými Tvö ný sýningarrými hafa verið tekin í notkun í kjallara Listasafns íslands þar sem safniö býður listamönnum af yngri kynslóðinni að sýna verk sín. Hefur þessi vettvangur hlotið nafnið Sjónarhom. Verkin sem sýnd verða eru ýmist í eigu listamannanna eða í einkaeigu en eitt af markmiðum Sjónarhomsins er að varpa ljósi á áhugaverð verk og kynna þau í samvinnu við listamennina sjálfa. Fyrsti listamaðurinn sem sýnir i Sjónarhomi er Anna Líndal. Sýnir hún þrjú verk og þar af eitt sem sérstaklega er unnið inn í rýmið. Hin verkin eru innsetning frá 1999-2000 og videó- verk frá árinu 2002. Sýn- ingin verður opnuð á morgun kl 16 og stendur til 16. mars. Á sunnudaginn kemur, 16. febrúar kl. 15, verður „Samtal við listaverk" í safn- inu. Þar ræðir Ragna Róbertsdóttir um yf- irstandandi sýningu sína, Á mörkum hins sýnilega. Orð um samkynhneigð Kl. 12 á hádegi á morgun heldur Þóra Björk Hjartardóttir málfræðingur fyrir- lestur í stofu 101 í Odda, Háskóla íslands sem nefnist „Orð á hreyfingu. Orö og orðanotkun tengd samkynhneigð". Erindið er hluti af fyrirlestraröð sem Samtökin ‘78 standa fyrir í tilefni af aldarfjórðungs af- mæli sínu. Þóra Björk mun ræða um orö á við- kvæmum eða bannhelgum sviðum, við- brögð sem notkun þeirra vekja og ástæður þess. Fjallað verður um hverju orð miðla og hvað felist í merkingu orða og merk- ingarbreytingum. Rætt verður um tilraun- ir til afnáms gildishlaðinna orða eða merkingar sem margir minnihlutahópar hafa beitt sér fyrir í réttinda- og sýnileika- baráttu sinni. Don Kíkóti X-kynslóðarinnar 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason er komin út á þýsku og fær þessa dagana lofsamlega dóma í Þýskalandi og Sviss. Hallgrímur er sagður „frábær og hug- myndaríkur stílisti" í Súddeutsche Zeitung og í Neue Zúricher Zeitung er Hlynur Björn, aðalpersóna sögunnar, kallaður „Don Kíkóti X-kynslóðarinnar“. Útgáfurétturinn á 101 Reykjavík hefur nú verið seldur til 12 landa, þar á meðal til Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Póllands, Rúmeníu, auk Þýska- lands. í dómi sínum segir gagnrýnandi Súd- deutsche Zeitung að Hlynur Björn, aðal- persóna sögunnar, sé „kynlífsóður, líkt og heill skipsfarmur víkinga á alsælupillum ... Frásagnarsnilld Hallgríms Helgasonar felst í því að gera þennan þráhyggjufulla sögumann að persónu sem maður er reiðubúinn að fylgja í gegnum bókina, þrátt fyrir allan munnsöfnuð og dónaskap. Og maður fylgir honum fús, því að þessi ofdekraði þráhyggjumaður er orðheppinn og afar fyndinn." Gagnrýnandi Stem, Peter Pursche, seg- ir að 101 Reykjavík sé „bók sem maður nýtur“, í Kulturnews er talað um „dýrlega sjaldgæfan húmor“ og Joachym Ettel, gagnrýnandi Ultimo, segir bókina „dásam- lega“. Thomas Wegmann ritar í Der Tagesspiel að HaUgrímur hafi skrifað „hrífandi og kjarnmikla and-þroskasögu, kynngimagnaða blöndu úr Hans Henny Jahnn og fyrri verkum Nick Hornbys." Gagnrýnandi Neue Zúricher Zeitung ber Hallgrím saman við Aldo Keel og Hall- dór Laxness og segir bæði Bjart í Sumar- húsum og Hlyn Björn sljómast af hugsjón- um; Bjart af „ímynd hins frjálsa bónda" og Hlyn af „hinum póstmóderníska, al- heimsvædda vitundariðnaöi.... í Reykja- víkurskáldsögunni er bændamenningin aöeins óljós minning - ekki fortíð, öllu heldur forntíð án nútíðar og framtíðar; menning sem Hlynur horfir hjálparvana á, týndur í tilverunni og sjónvarpsfjarstýr- ingin hið eina sem hann heldur eftir til að ráða fram úr lífi sínu.“ Þá segir Philipp Búhler í Berliner Zeit- ung: „ísland er hætt að hvísla" og líkir Hallgrími bæði við Halldór Laxness og Ir- vine Welsh. Skáldsagan 101 Reykjavík kom út hjá Máli og menningu árið 1996.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.