Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
Skoðun I>V
Skólagjöldin eru
ekki á dagskrá
Menntun er Qárfesting sem
skilar miklum aröi til samfélags-
ins. Vel menntuð þjóð hefur alla
burði til að auka velsæld sína
með þeim mannauði sem vex upp
í heilbrigðu skólastarfi. Hlutverk
stjórnvalda er að tryggja öllum
aðgang að fjölbreyttri framhalds-
menntun, án tiilits til efnahags
eða búsetu. Því miður ér það enn
svo að einhverjir geta ekki aflað
sér menntunar vegna bágrar fjár-
hagsstöðu. Við höfum öflugt verk-
færi til að aðstoða fólk í þeirri
stöðu og þarf einungis viljann til.
Þetta verkfæri er Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna.
Er LÍN jöfnunarsjóður?
Lánasjóðurinn er sterkasta
vopnið til að tryggja jafnrétti til
náms. Því miður er staðreyndin
sú að hlutverk sjóðsins sem fé-
lagslegur jöfnunarsjóður hefur
ekki verið tekið alvarlega undan-
farin ár. Það sést glögglega á ít-
rekuðum úrskurðum umboðs-
manns Alþingis þar sem sjóður-
inn er gagnrýndur harkalega.
Stjórnendur LÍN hafa ekki
brugðist við þessari gagnrýni og
viðhalda sömu vinnubrögðum.
Ungir framsóknarmenn hafa ít-
rekað bent á að óeðlilegt sé að
meirihluti stjómar LÍN skuli ein-
göngu vera skipaður fulltrúum
Sjáifstæðisflokksins. Samhliða
breytingum á stjórn LÍN þarf að
treysta hlutverk sjóðsins. Endur-
greiðslubyrðina þarf að sam-
ræma og létta og einnig er morg-
unljóst að endurskoða þarf fram-
færslugrunn lána, en hann er frá
árinu 1975.
Skólagjöldum hafnað
Skólagjöld eru ekki á dagskrá
Framsóknarflokksins. Flokkur-
inn hafnar aifarið skólagjöldum í
ríkisreknum háskólum og ljóst er
að bæta þarf samkeppnisstöðu
„Einkareknu háskólamir hafa minna úrval náms-
greina en t.d. Háskóli íslands og Háskólinn á Akur-
eyri og geta þeir því nýtt rekstrarfé sitt betur á kostn-
að fjölbreytninnar. “
ríkisrekinna háskóla gagnvart
þeim einkareknu. Samkeppnis-
staðan er flókið mái og erfitt er
að finna lausn sem allir verða
sáttir við. Þó tel ég að hægt sé að
byrja á því að styrkja starfsemi
fámennra deilda, en þær fara
halloka í þeim árangurssamningi
sem íjárveitingar til háskólanáms
frá ríki byggjast á.
Þessi leið hefur verið til um-
ræðu innan Háskóla íslands og
hún myndi létta undir með fá-
mennu námsleiðunum og þær
fjölmennu fengju þá fjármagn sitt
vonandi óskert. Einkareknu há-
skólarnir hafa minna úrval
námsgreina en t.d. Háskóli ís-
lands og Háskólinn á Akureyri og
geta þeir því nýtt rekstrarfé sitt
betur á kostnað fjölbreytninnar.
Málþing um menntamál
Ungir framsóknarmenn leggja
gríðarlega áherslu á að Fram-
sóknarflokkurinn fari með
menntamálaráðuneytið í næstu
ríkisstjórn. í kvöld ætlar Sam-
band ungra framsóknarmanna að
ræða menntaniálin á málþingi
sem haldið verður kl. 20 á Hverf-
isgötu 33. Við munum ekki líða
það að LÍN standi ekki undir
nafni sem félagslegur jöfnunar-
sjóður, eða að ríkisreknir háskól-
ar verði að fella niður kennslu í
fámennum deildum né heldur að
fólk komist ekki í nám sökum bú-
setu. Þetta eru atriði sem við
leggjum áherslu á að Framsókn-
arflokkurinn berjist fyrir.
Dagný
Jónsdóttir
formaöur
Sambands ungra
framsóknarmanna
Herferð Samkeppnisstofnunar
Kristinn Sigurðsson
skrifar:__________________________
Það er mitt mat að leggja eigi
Samkeppnisstofnun niður. Þessi
stofnun fer langt út fyrir verksvið
sitt og hún á því ekki rétt á sér. Ég
tek dæmi um herferð stofnunar-
innar gegn Flugleiðum. Flugleiðir
hafa verið að hagræða í rekstri sín-
um með ýmsum hætti. Félagið býð-
ur nú lækkuð fargjöld til Kaup-
mannahafnar og London til þess að
annað og nýstofnað flugfélag taki
ekki alla farþega frá Flugleiðum
Stjórnendur Flugleiða gátu vart
gert mikið annað eða áhrifarikara.
„Félagið nýbúið að ná sér
eftir hörmungamar í
New York sem höfðu mik-
il og niðurdrepandi áhrif
á alla flugstarfsemi.hér á
Vesturlöndum. Kemur þá
ekki Samkeppnisstofnun
og hótar Flugleiðum og
bendir á að félagið hafi
ekki lækkað fargjöld sín
á öðmm leiðum!“
Félagið nýbúið að ná sér eftir
hörmungarnar í New York sem
höfðu mikil og niðurdrepandi áhrif
á alla flugstarfsemi hér á Vestur-
löndum. Kemur þá ekki Samkeppn-
isstofnun og hótar Flugleiðum og
bendir á að félagið hafi ekki lækk-
að fargjöld sín á öðrum leiðum!
Allir vita að sumar leiðir gefa
meira af sér en aðrar. Nema
kannski Samkeppnisstofnun. Því
fordæmi ég Samkeppnisstofnun
fyrir herferðina, jafnvel ofsóknir
og fyrir að vera dragbítur á fram-
farir og rétt viðbrögð hjá stærsta
flugfélagi okkar, Flugleiðum hf.
Allt yfirfullt
Þeir bíöa nýrra eigenda.
Hvert fara
bílarnir?
Þðr Jónsson skrifar:
Allar bílasölur fyrir notaða
bíla hér í Reykjavík virðast
vera fullar af bílum. Það flóir
út yfir öll bílastæðin og bílar
eru komnir út á grasbala allt
um kring. Hvað verður um alla
þessa notuðu bíla? Maður spyr
sjálfan sig hvort nokkrir kaup-
endur verði að þeim ölium.
Verða þeir kannski fluttir út
sem brotajám að lokum? Sann-
leikurinn er þó sá að þarna er
um marga góða bíla að ræða og
alls ekki dýra því þá má fá
með margs konar kjörum og
enn þá ódýrari með útborgun á
boröið. En einhverjir tapa -
annaðhvort bílaumboðin með
nýju bílana eða eigendur gömlu
bílanna sem biða nýrra eig-
enda.
Þingmenn hjá SÞ
Hörður Jónsson hringdi:
Furðulegt að
alþingismenn
okkar skuli taka
sér leyfi frá
þingstörfum til
að sitja í New
York á þingi
Sameinuðu þjóð-
anna. Enda líta
íslensku þing-
mennimir þetta
meira sem
skemmtiferð og
taka þá gjarnan
maka sinn með,
ef ekki bara fleiri úr fjölskyld-
unni, til að lyfta sér og sínum
upp þennan tíma. Fróðlegt væri
að einhver fjölmiöillinn gerði út-
tekt á því hve margir íslenskir
þingmenn fara til New York ár
hvert, hvernig skiptingin er milli
flokka og hve langan tíma og
hver kostnaður er af þessum ferð-
um. Ég hef engan ágreining heyrt
á Alþingi eða annars staðar milli
stjórnmálamanna um þessar ferð-
ir. - Ættu þessi ferðalög þó sann-
arlega að vera tilefni til orða-
skipta, svo mjög sem þingmönn-
um er umhugað um að velta upp
steinum af minni tilefnum en
þessum. - Furðulegt!
Stelur starfsliðið?
Guóbjörg Guðmundsdóttir skrifar:
Samtök verslunar og þjónustu
láta nú boð út ganga um rýrnun í
verslunum upp á 4 milljarða
króna á ári (og er þá ekki átt við
viðkvæmar vörutegundir eins og
grænmeti o.fl.). Þessu megi líkja
við að stór matvöruverslun á
borð við Hagkaup í Kringlunni sé
tæmd einu sinni í viku allt árið!
Leggur fólk trúnað á þessa full-
yrðingu? Og frétt þessari fylgir
sú fullyrðing að stærsti hlutinn
hverfi ofan í vasa viðskiptavina,
starfsfólks og byrgja! Er það
kannski svo komið, að starfsfólk-
ið sé stærsti þjófaflokkurinn sem
þrífst innan íslenskra verslana?
Hér er verkefni fyrir verslunar-
mannafélögin að vinna. Eina
málsvara starfsfólksins. Treysti
ég best VR í þeim efnum.
Guömundur
Hallvarösson.
Óánægja í Sjó-
mannafélaginu?
Sjómaður skrifar:
Fréttablaðið var
uppfullt sl. þriðju-
dag á forsíðu með
sögur um að sjó-
menn væru ósáttir
við Guðmund
Hallvarðsson
alþm. sem standi
að samþykkt frum-
varps um útflöggun fiskiskipa
sem geri útgerðarmönnum kleift
að skrá skip sín undir fleiri en
einum þjóðfána. Ég hef ekki
heyrt sjómenn almennt sýna and-
stööu gegn þessu frumvarpi. Hér
virðist eitthvað málum blandið.
Guðmundur Hallvarðsson hefur
barist ötullega fýrir okkur sjó-
menn, bæði á þingi sem á öðrum
vettvangi þjóðmálanna, t.d. hefur
hann reynst mörgum öldruöum
sjómanninum vel í stjórn Sjó-
mannadagsráðs. Og frekar treysti
ég Guðmundi en núverandi for-
manni Sjómannafélags Reykjavík-
ur. Hann hefur ekki beint varpað
ljóma á sjómannastéttina í mál-
um sem óþarfi er að nefna nú. -
Skyldi kannski Fréttablaðið ann-
ars vera komið í kosningaslag
gegn núverandi ríkisstjóm? Eng-
inn blaðamaður var a.m.k. skrif-
aður fyrir þessari frétt eins og
oftast er tíðkað hjá því blaði.
IPV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.ls
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.