Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Page 32
\T Láttu okkur leita jyrir þig www.gulalinan.is FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 2003 / / / / / / f á skíði norður www.hlidarfjall.is Þessi ungi markvörður gaf ekkert eftir. Hann kastaði sér á eftir knettinum. Fótboltinn var hressandi eftir skólavistina. Skólataskan var geymd í markinu meðan á æfingunni stóð. Kemur seint Guðmundur Arni Stefánsson. „Ja, þær eru óljósar og koma seint,“ segir Guð- mundur Ámi Stef- ánsson um skatta- lækkanirnar sem Davið Oddsson boð- aði í gær. „Það er sérstaklega athyglis- vert að núna allt i einu verður for- sætisráðherra útbær á ýmislegt sem hann hefur verið spar á áður. Það eru auðvitað níutíu dagar í kosning- ar og Sjálfstæðisílokkurinn stendur illa í könnunum. En efnislega er þetta sumpart í þeim anda sem við samfylkingarmenn höfum talað. Við höfum verið jákvæðir fyrir því að skoða nú skattamál einstaklinga, sér- staklega lág- og miðlungstekjufólks- ins, sem hefur setið eftir.“ Veikjum ekki velferð „Sjálfstæðismenn virðast hafa mikið hom í siðu skatta- kerfisins, sem í mín- um huga er hins vegar ábyrgðarsjóð- ______________ ur þjóðarinnar," seg- Koibrún ir Kolbrún Halldórs- Halldorsdottir. dóttir. „Mér finnst skipta máli að skattakerfið sé réttlátt og skynsamlegt og að þeir sem hafa rúm fjárráð standi undir sínum hluta af velferðarkerfinu. Ég geng út frá því að fólk taki því að standa undir sínum hluta ábyrgðarinnar á velferð- arkerfinu. Ef við veikjum skattakerf- ið er hætta á að við rýrum velferðar- kerfið um leið.“ Viljum fjölþrepakenfi „Um hugmyndir forsætisráðherra er lítið hægt að segja fyrr en nánari út- færslur sjást á þeim,“ segir Gylfi Ambjömsson, fram- Gyifi kvæmdastjóri ASÍ. Arnbjornsson. er Jj5st ag ^SÍ er þeirrar skoðunar að skoða eigi út- færslu á fjölþrepakerfi til að hafa betri stjórn á tekjujöfnun í kerfinu. Við teljum að síðasta lota skattkerfis- breytinga hafi ekki komið til móts við tekjulægri hópana - skattbyrði þeirra hefur verið að þyngjast þrátt fyrir almenna skattalækkun - og við teljum forgangsverkefhi að endur- skoða skattkerfið með það að mark- miði að koma til móts við þessa hópa.“ -ÓTG 112 EINN EINN TVEIR NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRAUÐ , ‘Bónstöðín IS-TEFLON Bryngljái - lakkvörn Hyrjorhöf&i 7 • Sími 567 8730 Mikil aur- skpiða í Kamba- Nói albínói í bíó í Bandaríkjunum nesskriðum Óvenju mikil aurskriða féll á þjóðveginn um Kambanesskrið- ur í nótt á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Mokst- urstæki sem ætlaði að opna leiðina í morgun varð frá að hverfa, enda hlíðin á iði sam- kvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni. Á þessum kafla er nýr vegur með svokölluðum leiðm-um eða grindverki á vegbrún. Þessir . leiðarar virðast hafa stöðvað hluta af skriðunni og er fullt af aur og grjóti ofan þeirra. Þegar moksturstæki reyndi að ryðja veginn í morgun rann meira úr hlíðinni fyrir ofan. Meta átti að- stæður að nýju nú fyrir hádeg- ið. -HKr. Velgengni islensku kvikmynd- arinnar Nóa albínóa heldur áfram. Á kvikmyndahátíðinni í Berlín í gær var gengið frá samningi um dreifmgu myndarinnar i Banda- ríkjunum. Það er dreifingarfyrir- tækið Palm Pictures sem hefur tryggt sér dreifingarréttinn um alla Norður-Ameríku og er fyrir- hugað að dreifa henni í kvik- myndahús í haust. Nói albínói, sem þegar hefur fengið sex verð- laun á kvikmyndahátíðum, hefur ekki vakið siöur athygli í Berlin en á öðrum kvikmyndahátíðum. Hún er þar ekki í keppni heldur aðeins til kynningar og sölu. ís- lenskar kvikmyndir hafa hingað til ekki átt greiða leið í kvik- myndahús á hinum harða markaði vestan hafs og er einstakt að búið sé tryggja slíkan sýningarrétt svo fljótt eftir að myndin er fyrst sýnd. í tilkynningu, sem Palm Pict- ures sendi frá sér um kaupin á myndinni, segir: „Við erum yfir okkur ánægðir og spenntir yfir að fá að kynna Nóa albíóna banda- rískum áhorfendum. Myndin er frumraun mikils hæfileikamanns, Dags Kára, og það er sjaldgæft að sjá kvikmynd sem nær því að vera bæði listræn og höfða til fjöldans." Aðeins eru liðnar þrjár vikur frá því Nói albínói var fyrst sýnd í Frakklandi og hafa viðtökurnar verið einstakar og engin íslensk kvikmynd fengið jafnmikia at- hygli, jafn fljótt. Vonast er til að sýningar á henni hér á landi hefj- ist með vorinu en ákveðin dagsetn- ing er ekki komin. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.