Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003
Fréttir
DV
Fjárhagsáætlanir flokkanna:
Baráttan kosti 30 til 50 milliónir
Kosningabarátta flokkanna
mun kosta þá þrjátíu til fimmtíu
milljónir króna samkvæmt þeim
svörum sem þeir hafa gefið DV.
Að vísu gerir Frjálslyndi flokkur-
inn ekki ráð fyrir að eyða svo
miklu og Sjáífstæðisflokkurinn
gefur ekki upp áætlanir sínar.
„Við gerum ráð fyrir að þetta
geti orðið í kringum 30 milljónir,"
segir Kristin Halldórsdóttir, fram-
kvæmdarstjóri Vinstri-grænna.
„Þá á ég við það sem flokkurinn
sjálfur ver í þetta á landsvísu en
svo getur eitthvað bæst við í
hverju kjördæmi," segir Kristín
og telur að þetta sé heldur meira
en fyrir kosningamar 1999.
„Við gerum ráð fyrir að eyða 50
milljónum," segir Karl Th. Birgis-
son, framkvæmdastjóri Samfylk-
ingarinnar. „Það er töluvert
minna en síðast. Þá voru það eitt-
hvað í kringum 70 til 75 milljón-
ir.“ Eins og Kristín tekur Karl
fram að með þessu sé átt við áætl-
un aöalskrifstofu flokksins en
Fráleitt frítt
Flokkarnir gera ráð fyrir að eyða mismiklu í baráttuna fram undan. Frjálslyndir
gera sér vonir um 15 milljónir en áætlanir hinna hijóða upp á 30 tii 50
milljónir. Sjálfstæðisflokkurinn gefur það að vísu ekki upp.
ekki endilega allan kostnað úti inn eigi þetta fé ekki til heldur
um landið. Karl segir að flokkur- þurfl eins og aðrir aö reiða sig á
stuðning fólks og fyrirtækja við
lýðræðið í landinu.
„Við vorum síðast með eitthvað
í kringum 30 milljónir ef ég man
rétt og það verður örugglega eitt-
hvað svipað núna,“ segir Árni
Magnússon, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins. Framsókn
hafi hins vegar ekki gert ná-
kvæma kostnaðaráætlun.
„í sveitarstjórnarkosningunum í
fyrra eyddum við 6 milljónum og
ég get eiginlega bara sagt að það er
ekki hægt að vera með fyrir minna
en það. Helst myndi ég vilja geta
notað fimmtán,“ segir Margrét
Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins.
„Eins litlu og mögulegt er, enda
ekki efni til annars,“ segir Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins. „Það er mín
eina stefna í fjármálum í kosn-
ingabaráttunni," segir Kjartan.
Hann segist ekki muna hve miklu
flokkurinn hafi eytt síðast og það
yrði heldur ekki gefið upp. -ÓTG
ASÍ vill velferö fyrir alla:
Framtíðapsýn mótuð
Alþýðusamband íslands kynnti í
gær niðurstöðu vinnu á ráðstefhu í
Kópavogi sem ASÍ, í samstarfi við
fjölmarga aðila, hefur staðið fyrir á
undanfómum misserum. Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að
vonir standi til að þessi vinna geti
orðið innlegg í að skapa þjóðarsátt
um velferðarkerfið, þjóðarsátt um
velferðarkerfi framtíðarinnar sem
veiti öllum öryggi til frambúðar,
óháð búsetu, efnahag og félagslegum
aðstæðum.
„Velferðin er grundvallarþáttur í
lífsgæðunum. Hún er grundvallar-
þáttur í lífsgæðum okka allra. Hún
er hluti grundvallarmannréttinda og
forsenda þess að hægt sé að skapa
og varðveita samstöðu og samkennd
í þjóðfélaginu. Velferðarkerfi, byggt
á almennri sátt í þjóðfélaginu um að
dreifa skuli félagslegri ábyrgö, á að
tryggja mannlega reisn, jafnræði og
félagslegt réttlæti,“ sagði Grétar
Þorsteinsson.
í bréfi sem kynnt var í lok ráð-
stefnunnar, og er til stjómmála-
flokkanna, segir m.a. að velferðar-
kerfið eigi að standa á íjórum styrk-
um stoðum - mennta-, umönnunar-,
heilbrigðis- og tryggingakerfi sem
eigi að vera fyrir alla eftir þörfum
en ekki eftir efnahag eða félagslegri
aðstöðu. I kafla um fátækt segir
m.a. að auka verði framboð á félags-
legu leiguhúsnæði og auka niður-
greiðslur á leigu. -GG
Dv-MYND PETuR S. JOHANNSSON
Bjargaö
Sjómennirnir tveir af Röst SH komu í gærkvöldi til Rifs eftir að bátur þeirra fyiitist af sjó og sökk á skömmum tíma. Björgun
þeirra gekk hratt og vel og ekkert amaöi að mönnum. Sjómennirnir heita Gestur Már Gunnarsson og Bergsveinn Gestsson.
Tveim sjómönnum bjargað við Svörtuloft
- trilla þeirra fylltist af sjó á örskotsstundu
Röst SH-134, 30 tonna trilla frá
Stykkishólmi, sökk síðdegis í gær
skammt undan Svörtuloftum sem
era nyrst og vestast á Snæfellsnesi.
Báturinn fylltist fljótt og sökk.
Áhöfnin, tveir sjómenn, komst í
björgunarbát. Nokkru síðar vora
mennimir teknir um borö í græn-
lenskt-íslenskt loðnuskip, Siku.
Flugstjóm í Reykjavík hafði sam-
band við stjómstöð Landhelgisgæsl-
unnar kl. 16.50 og tilkynnti að flug-
vél á norðvesturleið hefði numið
neyðarsendingar innst í Breiðafirði.
Stuttar fréttir
Áhöfhin á TF-LÍF var kölluð út og
Flugmálastjóm beðin að senda flug-
vél sína, TF-FMS, strax af stað til
leitar. TF-LÍF fór í loftið kl. 17.39.
„Leitarsvæöið var gríðarlega stórt í
fyrstu en skömmu eftir að TF-FMS
fór frá Reykjavík kl. 17.30 nam hún
neyðarsendingar og gat miðað þær
út. Á sama tima námu gervihnettir
sendingamar og gáfu staðsetningar
út af Snæfellsnesi. Laust fyrir kl. 18
tilkynnti TF-FMS um björgunarbát
út af Svörtuloftum við Snæfellsnes.
Skammt frá björgunarbátnum voru
tvö loðnuskip; Sighvatur Bjamason
og grænlenska skipið Siku, en TF-
LIF var skammt undan," segir Dag-
mar Sigurðardóttir, upplýsingafull-
trúi Landhelgisgæslunnar. Menn-
imir tveir vora heilir á húfi og þeg-
ar ljóst var að ekkert amaði að
mönnunum var þyrlu Landhelgis-
gæslunnar og flugvél Flugmála-
stjómar snúið til Reykjavíkur. Siku
tók mennina og sigldi með þá í átt
til Rifs en björgunarbáturinn Björg
kom á móti þeim og tók við mönn-
unum. -JBP
Kaupir i Granda
Afl, fjárfestingar-
félag Þorsteins Vil-
helmssonar, keypti
tæplega 8% hlut í
Granda hf. í fyrra-
dag. Afl átti ekkert
fyrir í Granda en
Þorsteinn hefur
setið þar í stjórn.
Kaupverðið var tæplega 700 millj-
ónir króna. Seljandi hlutarins var
Hafhf.
Hvatt til þjóðarsáttar
Alþýðusamband íslands hvetur
til þjóðarsáttar um velferðarkerfið.
í viðamiklum tillögum sem kynntar
voru í dag er lagt til að atvinnuleys-
isbætur verði þegar í stað hækkað-
ar í 93.000 og að lægstu bætur til ör-
yrkja verði 110.000 krónur.
JSR
Nýr meirihluti í Keri
Vörðuberg ehf.,
undir forystu Krist-
jáns Loftssonar,
framkvæmdastjóra
yogunar hf. og
Ólafs Ólafssonar,
forstjóra Samskipa,
keypti í gær tæp-
lega 30% hlut í
Keri hf. að nafnvirði um 295 miljón-
ir króna. Seljendur bréfanna í Keri
hf. voru Samvinnulífeýrissjóðurinn
og Vátryggingafélag íslands. Við-
skiptin fóru fram á genginu 12,0.
Fyrir áttu eigendur Vörðubergs
rúmlega 29% hlut og fara því eftir
kaupin í dag með tæplega 60% hlut
í Keri hf.
íslensk kona í hernum
Tuttugu og sjö ára íslensk kona,
Steinunn Hildur Truesdale, er
sjóliði í bandaríska herliðinu í
Kúveit sem nú hefur ráðast inn í
írak. Hún hefur verið hermaöur í
eitt og hálft ár og er gift bandarísk-
um hermanni sem nú er í Japan.
Vatnsleiðsla enn biluð
Önnur vatnsleiðslan milli lands
og Vestmannaeyja er enn biluð.
Vatni er safnað yfir nótt og dregið
hefur verið úr þrýstingi á kerfi bæj-
arins. Fimm vikur eru síðan önnur
leiðslan bilaði í óveðri og hefur ekki
tekist að staðsetja lekann. -HKr.
Vélsmiðja KÁ:
Tapaöi 20
milljónum króna
sem undirverktaki
Vélsmiðja KÁ á Selfossi hefur
fengið greiðslustöðvun til 21.
mars nk. Vélsmiðjan var áður
tengd rekstri Kaupfélags Árnes-
inga en varð sjálfstæður rekstrar-
aðili árið 1996. Guðmundur Krist-
insson framkvæmdastjóri segir
að vandi Vélsmiðju KÁ snúist um
það að vélsmiðjan hafi verið að
vinna fyrir nokkra verktaka sem
hafa síðan lent í gjaldþroti. Vél-
smiðja KÁ hefur tapað um 20
milljónum króna á þeim viðskipt-
um. Á stjómarfundi Vélsmiðju
KÁ í vikunni verður tekið fyrir
hvort óskað verði eftir framhaldi
greiðslustöðvunarinnar.
„Það sem þarf að taka til hend-
inni með í þessum verktaka-
bransa er að samræma lög hér
því sem gerist á Norðurlöndun-
um. Þar er skylda að útvega
bankatryggingu vegna samninga
við undirverktaka. Ef lögunum
hérlendis væri breytt í þá veru
væru þessi mál í miklu betra
horfi því það er fullkomnlega
ósanngjarnt að einstaka fyrirtæki
sé að taka svona mikið á sig eins
og dæmið er með okkar fyrir-
tæki, sem getur orðið til þess að
menn ná ekki fyrir endann á
dæminu. Ef þetta hefði verið í
gildi í okkar dæmi hefðum við
fengið okkar greiðslur gegnum
bankatryggingar,“ segir Guð-
mundur Kristinsson.
Guðmundur segir fyrirtækið
ekki hafa lent í vandræðum
vegna Hótel Keflavíkur sem
Keflavíkurverktakar yfirtóku eða
Hótel Selfoss sem ekki hefur enn
verið lokið við. Vélsmiðjan hafi
fengið sitt greitt en það sé Kaup-
félag Árnesinga sem sé aðili að
þessum byggingum. -GG
Grásleppuvertíð
hefstídag
Grásleppuvertíöin hefst í dag,
fimmtudag. Grásleppukarlar á
Norðurlandi eystra, Austfiörðum
og Suðurlandi mega leggja grá-
sleppunetin klukkan átta og er
leyfiíegur netafiöldi á hvem
mann í áhöfn bátanna 50. Frá
Raufarhöfn verða gerðir út 12
bátar til grásleppuveiða og er það
fiölgun um einn bát frá því á ver-
tíðinni í fyrra. Lítið hefur fengist
af rauðmaga í net að undanfómu
en það þarf ekki að vera vísbend-
ing um komandi grásleppuvertíð.
Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands smábáta-
eigenda, segir að meiri bjartsýni
ríki nú fyrir grásleppuvertíöina
en mörg undanfarin ár. Það vant-
ar hrogn á heimsmarkaðinn
vegna þess að veiðamar hafa
dottið alveg niður á sl. ári við
Nýfundnaland. Þar veiddust að-
eins 1.000 tunnur en venjuleg
veiði þar er liðlega 11.000 tunnur.
Undanfarin þrjú ár hefur veiðin
verið minni en markaðurinn hef-
ur þurft. -GG
f ókus
tn*a Á MORGUN
Tískan í toglyftunni
í Fókus á morgun tökum við púls-
inn á krökkum sem skelltu sér á
bretti á dögunum,
könnum hver tískan
er í fiallinu. Við ræð-
um við Jóhönnu
Klöra Stefánsdóttur,
ungan líkamsræktar-
kennara sem á ekki
langt að sækja áhug-
ann á því sviði, fiöllum um frum-
sýningu Stúdentaleikhússins. Þá er
fiallað ítarlega um getnaðarlimi og
goðsögnina um hvað eru stór og lítil
typpi.