Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Side 11
FTMMTUDAGUR 20. MARS 2003
11
DV
Útlönd
Þeir kúguðu tneysta nú á ykkur
og þið eruð traustsins verð
- sagöi Bush Bandaríkjaforseti í þjóðarávarpi sínu í nótt
Bush í miðju ávarpi
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti þjóð sinni í nótt
að hernaðaraðgerðir gegn írökum væru hafnar.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti tilkynnti í sjónvarps-
ávarpi frá skrifstofu sinni í
Hvíta húsinu í nótt að hernaðar-
aðgerðir Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra gegn Irökum
væru hafnar með loftárásum á
valin hernaöarlega mikilvæg
skotmörk.
„Á þessari stundu hafa herir
Bandaríkjamanna og banda-
manna okkar þegar hafið hern-
aðaraðgerðir með það að
markmiði að afvopna íraka,
frelsa þjóð þeirra og vernda
heiminn frá bráðri hættu. Að
mínum fyrirmælum hófu herir
okkar árásir á valin skotmörk í
upphafi aðgerða til þess að draga
úr hernaðarmætti herja Sadd-
ams Husseins og er það aðeins
byrjunin á víðtækum og samstilltum
aðgerðum," sagði Bush.
Hann bætti við að meira en 35
þjóðir hefðu lýst yfir þýðingarmikl-
um stuðningi við aðgerðimar og leyft
afnot af höfnum sínum og flugvöllum
sem hefði verið ómetanleg hjálp við
upplýsingaöflun og undirbúning að-
gerðanna.
„Þessar þjóðir hafa ákveðið að axla
ábyrgð og deila heiðrinum af því aö
vera þátttakendur í þessu sameigin-
lega varnarátaki okkar,“ sagði
Bush og hvatti sína menn og
konur á stríðssvæðinu sem
heima fyrir til þess að standa
saman í því að tryggja öryggi í
heiminum. „Þeir kúguðu treysta
nú á ykkur og þið eruð trausts-
ins verð.
Óvinurinn sem við er að eiga
mun uppgötva getu ykkar og
hugrekki og fólkið sem þið frels-
ið mun verða vitni að heiðarleg-
um og siðlegum baráttuanda
bandariska hersins,“ sagði Bush.
Hann sagði að öllum ráðum
yrði beitt tU þess að koma í veg
fyrir fall óbreyttra borgara og að
allar áætlanir miðuðu að því.
„Við berum mikla virðingu fyrir
írösku þjóðinni og menningu
hennar og trú. Markmiðið er að
steypa stjórn landsins og ljúka að-
gerðum á sem skemmstum tíma. Við
höfum engan áhuga á ítökum í írak
að loknu striði og munum ekki dvelja
þar deginum lengur en þörf krefur,"
sagði Bush.
REUTER-SMYND
Friðarsinnar við Hvíta húsið
Nokkur hópur andstæðinga stríðs við írak safnaðist saman fyrir utan Hvíta
húsið í Washington í gærkvöld eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti til-
kynnti að fyrstu árásirnar á írak væru hafnar. Ráðist var á skotmörk í írösku
höfuðborginni Bagdad í þeirri von að ná forystusauðum stjórnvalda.
Gorbatsjov segir stríð
við írak mikil mistök
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum
leiðtogi Sovétríkjanna, sagði í
Japan í morgun að stríð Banda-
ríkjamanna í írak væri alvarleg
mistök sem myndu skaða sam-
skipti ríkja heims og stofna ör-
yggi heimsins í hættu.
Gorbatsjov, sem gaf samþykki
sitt fyrir Persaflóastríðinu 1991,
sagði að svo virtist sem banda-
rísk stjómvöld væru að reyna að
gera heiminn að héraði í þeirra
eigin landi. „Ég tel þetta stríð
ekki aðeins óréttlætanlegt heldur
einnig meiri háttar pólitísk mis-
tök,“ sagði Gorbatsjov.
María mey grætur
blóðtárum yfir stríði
Kaþólikkar í Venesúela hafa
flykkst í hundraðatali til lítillar
kapellu í höfuðborginni Caracas
þar sem sagt er að stytta af Mar-
íu mey gráti blóðtárum vegna
komandi stríðsátaka í írak.
Starfsmenn við nunnuskólann
þar sem styttan, sem kom til
Venesúela frá Þýskalandi, er
segja að blóð hafí fyrst runnið úr
augum hennar á mánudagsmorg-
un og síðan aftur og meira á mið-
vikudag. Þeir segja að með þessu
sé meyjarstyttan að hvetja menn
til að varðveita friðinn.
Fermíntycu’-'íZÚAn/
i
Magnaðir grínþættir á
Leigan í þínu hverfi
i
Samlokur
Leigan í þínu hverfi
W H K7Tþt?H
[i1 j | 1 f»l [{*• 1