Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 Innkaup 15 DV Neytendasamtökin vigta brauö og kökur: Helmingur sýna stóðst ekki vigt Neytendasamtökin gera athuga- semdir við helming sýna sem tekin voru í könnun í nokkrum verslun- um á höfuðborgarsvæðinu til að meta hvort uppgefm þyngd á brauðum og kökum stæðist vigt. Neytendasamtökin segja niðurstöð- umar mikil vonbrigði fyrir neyt- endur. Af 173 vörutegundum voru 25 með undirvigt og 56 ekki merkt- ar með þyngd. Þyngdarmunur á þyngsta og léttasta vínarbrauðinu frá Breiðholtsbakaríi var td. um 38%. Segir í frétt frá Neytendasamtökun- um að matvara verði að standast vigt og vera merkt samkvæmt reglum svo sjá megi hvaö fæst fyrir peninginn. Vigtað var með leyfi verslunar- stjóra í þessum verslunum. Notuð var vog með 1 g nákvæmi og var ákveðið að meta ekki undirvigt ef vantaði minna en 1% upp á þyngd. Þyngd um- búða var metin eftir bestu getu og dregin frá til að fá sem réttasta niður- stöðu. Alls voru skoðuð á sjötta hundrað brauð og kökur ásamt nokkrum bökunarvörum frá Kötlu. Nokkur mismunur var milli bakar- ía og verslana, til dæmis var aðeins ein athugsemd gerð við vörur í Bónus en ailar Hagkaupsvörurnar voru ólög- lega merktar þar sem vantaði upp- gefna þyngd. Brauð frá Myllunni stóðust upp- gefna þyngd. Hjá nokkrum bakaríum var ailt sem skoðað var í lagi, eins og frá Mömmubakstri, Kexversmiðjunni, Akureyri og Brauðhúsinu, Grímsbæ. í frétt frá Neytendasamtökunum segir að ekki sé hæg tað sætta sig við ástand það sem könnunin sýnir. „Viö hefðum ffekar átt von á að fleiri fram- leiðendur bættu sig frá síðustu skyndikönnunum Neytendasamtak- anna en því er ekki að fagna.“ -hlh TILBOÐ VIKUNNAR Fjarðarkaup Tilboðin gilda til 22. mars. j Svínabógur 249 kr. kg Svinakótelettur 485 kr. kg Lambalæri 699 kr. kg Frosinn kjúklingur, ísfugl 255 kr. kg Svínahnakki m/beini 398 kr. kg Sms skyr 158 kr. Skyr.is, 170 g 65 kr. 1 Sparverslun Bæjarlind Tilboðin gilda til 24. mars. j Lambalæri, frosin 698 kr. kg Lambahryggur, frosinn 698 kr. kg Klementinur 85 kr. Epli, græn 85 kr. Epli, gul 85 kr. Epli, Jonagold 85 kr. Drykkjarjógúrt, 250 ml, 3 teg. 75 kr. 1 1 Hagkaup Tilboðin gilda til 22. mars. | Hamborgarhryggur 699 kr. kg Svínahnakki með beini 399 kr. kg Svínakótelettur 499 kr. kg Dracula brjóstsykur, 115 g 99 kr. BKI kaffi, extra, 400 g 199 kr. Jacobs pitu brauð, 400 g 99 kr. ■ Uppgrip - verslanir Olis Tilboðin gilda í mars. | Bouché-súkkulaði, allar tegundir 49 kr. Örbylgjupopp, Orwille 179 kr. Mónu krembrauð 69 kr. Egiis Orka, 0,5 I 135 kr. Seven Up, 0,5 I 99 kr. Latex hanskar, einnota 149 kr. Vinyl hanskar, einnota, 10 stk. 149 kr. 1 ' Þin verslun Tilboðin gilda til 26. mars. | Rauðvínslegið lambalæri 15% afsl. 1944 ítalskir pastatöfrar 15% afsl. Toro Lasagne ofnréttur 239 kr. Toro Tandori Chicken ofnréttur 209 kr. MCain súkkulaðikaka, 538 g 399 kr. Fairy uppþvottalögur, 500 ml 189 kr. 11-11 Tilboðin gilda til 26. mars. j Bautabúrs nautahakk 559 kr. kg Toro mexikönsk grýta 187 kr. Toro Lasagna ofnréttur 224 kr. Skafís, 1 I, van. súkk., cappuchino 349 kr. Goða pylsur 599 kr. Sara Lee frosnar kökur 295 kr. Vanillustangir heimilispakki 379 kr. 1 1 Urval/Samkaup Tilboðin gilda til 25. mars. [ Kjarnagr. jarðarberja, 1 I 199 kr. Kjarnagr. epla, 1 I 229 kr. Kjarnagr. sveskju, 1 I 189 kr. Kjarnagr. bl. ávextir, 11 179 kr. Lambalæri, gourmet, bláberja 1090 kr. Fyllt grisasteik 599 kr. Carlsberg Light, 1/2 I 79 kr. 1 1 Selectverslanir Tilboðin gilda til 26. mars. | Fanta, 0,5 1 105 kr. Villiköttur, 50 g 75 kr. Lacerol 55 kr. Bentasil 110 kr. Leo Go 60 kr. Frón kanil- sultu- og súkkulaðisnúðar265 kr. Crembollur 85 kr. 1 Hagkaup Tilboðin gilda til 22. mars. | Hamborgarhryggur 699 kr. kg Svinahnakki með beini 399 kr. kg Svínakótelettur 499 kr. kg Kims, 300 g 249 kr. Sun Lolly, 10 stk. 179 kr. Ota havrefras, 375 g 199 kr. Krónan Tilboðin gilda til 26. mars. | Krónu svínakótelettur 399 kr. kg Goða pizzahleifur 432 kr. kg Eðalgrís Gordon Blue 314 kr. kg Þykkvabæjar plokkfiskur 479 kr. CH. T Pizza Tony's bologne, 3 stk. 549 kr. Ferskur kjúklingur, vængir 375 kr. kg Burger hrökkbrauð 99 kr. 1 1 Nettó Tilboðin giida meðan birgðir endast. Kjarnafæði svínahnakksn. m/beini499 kr. kg Kjarnafæði, svinakóeilettur 599 kr. kg Heinz tómatsósa, 680 g 119 kr. Heinz chilli sauce hot, 340 g 109 kr. Cocoa Puffs, 533 g 319 kr. Celestial earl grey te, 44 g 199 kr. Sportlunch 69 kr. 1 1 J-JOL JkK ÞJALFUNAR OG ÆFIIMGARPUVMKTAR Engar afsakanir! Þó að ekki sé auðvelt að komast í gott form er það heldur ekki ómögulegt. Þú þarft heldur ekki að gera óyfirstíganlegar breytingar á lífsstíl þínum. Þú þart ekki að verja öllum stundum í líkamsræktinni og borða eingöngu ávexti og grænmeti og drekka vatn. Aftur á móti er þörf á að hrinda ýmsum "léttvægum" breytingum í framkvæmd, svo sem reyna á sig reglubundið með þol- og styrktarþjálfun og auka vægi orkusnauðrar fæðu, eins og kornmetis, bauna, ávaxta og grænmetis, á kostnað fituríkrar fæðu og sælgætis. Hættu strax að finna upp afsakanir og komdu þér í gott form! MATSEÐILL DAGSIIMS Dagur 34 Morgunverður: Fitness, kornflögur 2 dl Súrmjólk 2 dl Púðursykur 1/2 msk. Trópí 1 glas Hádegisverður: Rúgbrauð 1 sneið Maltbrauð 1 sneið Smjör 1/2 msk. Síld, konfekt- 5 bitar Egg, soðið 1 stk Fjörmjólk 1 glas Miðdegisverður: Banani 1 stk. Gulrætur 2 stk. Tómatur 1 stk. Kvöldverður: Gellur, soðnar 200 g Kartöflur 4 „eggstórar" Salat, blandað 100 g + Létt viðbit 2 msk. Kvöldhressing Poppkorn 1/2 örbylgjupoki Manneldismarkmið fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri. 1. Æskilegt er að heildarneysla sé í samræmi við orkuþörf til að tryggja eðlilega líkamsþyngd, vöxt barna og þroska. 2. Hæfilegt er að samsetning fæðunnar sé þannig að prótín veiti að minnsta kosti 10% heiidarorku. 3. Hæfilegt er að fuilorðnir fái 25--35% orkunnar úr fitu en börn og unglingar 30--35% og þar af komi ekki meira en 15% heildarorkunnar úr harðri fitu. (Með harðri fitu er átt bæði við mettaðar fitusýrur og trans-ómettaðar fitusýrur*) 4. Hæfilegt er að úr kolvetnum fáist um 50--60% af orkunni -- þar af komi ekki meira en 10% heildarorkunnar úr sykri. (Þetta merkir einfaldlega að af hverjum 1.000 hitaeiningum sem einstaklingurinn neytir ættu 500-600 að koma úr kolvetnum en ekki fleiri en 100 af þessum 500-600 ættu að vera í formi þeirrar kolvetnategundar sem við þekkjum undir heitinu sykur.) 5. Æskilegt er að neysla fæðutrefja sé að minnsta kosti 25 grömm á dag miðað við 2.500 hitaeininga fæði. 6. Æskilegt er að neysla á matarsalti sé undir 8 grömmum á dag fyrir fullorðna. 7. Stefnt skal að sem fjölbreyttustu fæði úr öllum fæðuflokkum í þeim hlutföllum orkuefna sem að framan greinir. * Trans-fitusýrur myndast við herðingu ómettaðrar fitu og eru þvítil staðar í öllu smjörlíki sem gert er úr hertri jurtafeiti eða hertu lýsi. Þrátt fyrir að þær flokkist með fjölómettaðri fitu er hér á ferðinni hörð fita sem hækkar kólesteról í blóði. Ástæðan fyrir því að trans-fitusýrur flokkast til fjölómettaðrar fitu er sú að efnatengin eru ekki mettuð með vetni heldur hafa efnatengin snúist við herðinguna þannig að fitan verður hörð. Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur HReynnc

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.