Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Page 24
Ji
24
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára
Smári Karlsson,
Hátröö 9, Kópavogi.
75 ára_________________
Gunnlaugur Jónsson,
Furugrund 77, Kópavogi.
Sæmundur Salómonsson,
Ketilsstööum 2, Vík.
70 ára__________________________
Agatha Erlendsdóttir,
Álftamýri 48, Reykjavík.
Ásthildur Einarsdóttir,
Jörundajholti 125, Akranesi.
Frlðrik Áskell Clausen,
+r Þverbrekku 6, Kópavogi.
Höröur Þormar,
Sólheimum 23, Reykjavík.
Ólöf Þórarinsdóttir,
Brúnavegi 5, Reykjavík.
60 ára__________________________
Ágúst Guðjónsson,
Naustabryggju 27, Reykjavík.
Hjálmtýr Guömundsson,
Kríunesi 8, Garöabæ.
Júlíus Sæberg Ólafsson,
Sæviöarsundi 82, Reykjavík.
Óskar Már Ólafsson,
Heimagötu 30, Vestmannaeyjum.
Páll Þorsteinsson,
Þverási 51, Reykjavík.
Siguröur Sigurösson,
Barðavogi_9, Reykjavík.
Þorbjörg Ásmundsdóttir,
Þrastanesi 15, Garöabæ.
50 ára__________________________
Aðalbjörg Helgadóttir,
Álfhólsvegi 123, Kópavogi.
Eiríkur Ingvar Þorgeirsson,
Fjaröarási 8, Reykjavík.
Fanney Rut Guömundsdóttir,
Digranesvegi 42, Kópavogi.
Gísli Rúnar Jónsson,
Selvogsgrunni 26, Reykjavík.
Ingibjörg Sigfúsdóttir,
Álftagerði, Skagaf.
Jónas Helgi Sveinsson,
Ásholti 5, Mosfellsbæ.
■v- Leifur Eiríksson,
Víöihlíö 19, Sauöárkróki.
Mekkinó Björnsson,
Leiöhömrum 24, Reykjavík.
Sigríöur Kristín Gunnarsdóttir,
Álfheimum 9, Reykjavík.
40 ára__________________________
Carl Erik Lehmann Jakobsen,
Suöurvegi 30, Skagaströnd.
Guölaug Ósk Gunnarsdóttir,
Hraunbæ 188, Reykjavík.
Guörún Eygló Guðmundsdóttir,
Álfheimum 28, Reykjavík.
Hólmfríöur S. Friðjónsdóttir,
Skriðugili 3, Akureyri.
Lárus Þorsteinsson,
Litlageröi 11, Hvolsvelli.
Lllja Björk Finnbogadóttir,
Þorvaldsstöðum, S.-Múlasýslu
• > Sigríður Ásta Slguröardóttir,
Neshömrum 2, Reykjavík.
Siguröur Kristinn Helgason,
Garöabraut 3, Akranesi.
Þórir Sigurgeirsson,
Aðalstræti 15, Akureyri.
Andlát
Tómas Kristjánsson, Hraunbraut 32,
Kópavogi, lést á Landspítalanum,
Hringbraut, sunnud. 16.3.
Sigríöur Hansdóttir frá Súgandafirði,
áöur til heimilis á Austurbrún 39,
Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu
Seljahliö mánud. 17.3.
-2. nsflEnss
Ólafur Jónas Sigurösson, Prestastíg 9,
áöur Grýtubakka 6, Reykjavík, veröur
jarðsunginn frá Frikirkjunni í Reykjavík
fimmtud. 20.3. kl. 13.30.
Þórir H. Konráðsson vélfræðingur,
Aratúni 6, Garöabæ, veröur jarðsunginn
frá Frikirkjunni í Reykjavík fimmtud.
20.3. kl. 15.00.
Þorsteinn Davíðsson, Faxaskjóli 16,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni
fimmtud. 20.3. kl. 13.30.
Guöbjörg Ólafsdóttir, Ásgaröi 73,
Reykjavík, veröur jarðsungin frá
Bústaöakirkju föstud. 21.3. kl. 13.30.
Slguröur Friörik Sigurösson sem varö
J bráökvaddur á heimili sínu í Gautaborg,
veröur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstud. 21.3. kl. 14.00.
Ragnheiöur Jónsdóttir frá
Kollafjaröarnesi, áöur til heimilis I
Skipasundi 68, verður jarösungin frá
Langholtskirkju föstud. 21.3 kl. 15.00.
Anna Petersen, Rókagötu 25, veröur
jarösungin frá Háteigskirkju föstud.
21.3. kl. 15.00.
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003
DV
Fólk í fréttum
Tryggvi Þór Herbertsson
forstööumaður Hagfræöistofnunar Háskóla íslands
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistoftumar Há-
skóla íslands, hefur svarað gagn-
rýni sem fram kom á hátt gengi
krónunnar á nýloknu Iðnþingi.
Þetta kom fram í DV-frétt sl. þriðju-
dag.
Starfsferill
Tryggvi fæddist í Neskaupstað
17.1. 1963. Hann lauk próíl sem iðn-
rekstarfræðingur frá Tækniskóla ís-
lands 1992, M.Sc.-prófi í hagfræði
frá HÍ 1995 og Ph.D.-prófi í hagfræði
frá Árósaháskóla 1998.
Tryggvi var hljóðmaður hjá Stúd-
íó Mjöt 1981-86, klippari á Stöð 2
1986-89, starfaði fyrir fjármálaráðu-
neytið og Iðntæknistofnun íslands
sumarið 1991, var sérfræðingur hjá
Hagfræðistofnun Háskóla íslands
1992-95 og er forstöðumaður stofn-
unarinnar frá 1995 auk þess sem
hann gegnir stöðu dósents í hag-
fræði við HÍ.
Tryggvi hefur gegnt fjölda trúnað-
arstarfa fyrir innlendar og erlendar
stofnanir auk þess að hafa samið
bækur, bókakaíla í ýmis rit og
fjölda vísindaritgerða sem birst
hafa í innlendum og erlendum fag-
tímaritum.
Fjölskylda
Tryggvi kvæntist 31.7. 1987 Krist-
jönu Halldórsdóttur Blöndal, f.
28.12. 1964, MA í sálfræði og uppeld-
isfræðingi. Þau skildu. Hún er dótt-
ir Halldórs Lárussonar Blöndals, f.
24.8. 1938, alþingisforseta og fyrrv.
ráðherra, og Renötu Brynju Krist-
jánsdóttur, f. 31.10. 1938, d. 3.6. 1982,
kennara.
Sonur Tryggva og Kristjönu er
Halldór Reynir, f. 13.10. 1990.
Tryggvi kvæntist 4.7. 2001, seinni
konu sinni, Sigurveigu Maríu
Ingvadóttur f. 14.4. 1962. Hún er
dóttir Ingva Rafns Albertssonar, f.
13.8. 1939, skipstjóra, og Maríu
Hjálmarsdóttur, f. 27.8. 1942, hús-
móður.
Dóttir Tryggva og Sigurveigar
Maríu er Anna Ragnheiður, f. 26.8.
1997.
Fósturböm Tryggva eru Mist f.
22.3. 1988; Veigar f. 3.4. 1993.
Systkini Tryggva: Stefán Þór Her-
bertsson, f. 4.1. 1956, iðnrekstrar-
fræðingur, búsettur i Reykjavík;
Víðir Þór Herbertsson, f. 13.5. 1964,
útvegsbóndi aö Gröf í Breiðuvíkur-
hreppi; Reynir Þór Herbertsson, f.
17.3. 1967, d. 24.3. 1984.
Hálfsystir Tryggva, sammæðra,
er Margrét S. Vilhjálmsdóttir, f. 1.3.
1946, húsmóðir, búsett á Eskifirði.
Hálfsystir Tryggva, samfeðra, er
Sigríður Herbertsdóttir, f. 6.3. 1950,
sjúkraliði, búsett í Kópavogi.
Foreldrar Tryggva: Herbert Al-
freð Jónsson, f. 2.3. 1922, d. 24.7.
2000, fyrrv. verkamaður í Neskaup-
stað, og Ragnheiður Anna Stefáns-
dóttir, f. 6.10. 1926, fyrrv. sjúkraliði.
Ætt
Herbert var sonur Jóns, b. á
Hamri í Skagafirði, bróður
Tómasar, afa Guðmundar Karls
Snæbjörnssonar, formanns Félags
islenskra heimilislækna. Jón var
sonur Jóns, b. á Þverá í Blöndu-
hlíð, Stefánssonar, b. á Þverá, Jón-
assonar. Móðir Jóns Stefánssonar
var Guðbjörg Tómasdóttir, b. á
Hvalnesi á Skaga, Tómassonar.
Móðir Jóns Jónssonar var Guðrún
Pétursdóttir, b. á Bjamastöðum í
Blönduhlíð, Péturssonar, b. á Mar-
bæli. Móðir Guðrúnar var Kristín
Guðmundsdóttir, b. á Hrafnshóli í
Hjaltadal, Jónssonar.
Móðir Herberts var Tryggvína
Sigríður, systir Sigtryggs, föður
Lýðs, hljóðfæraleikara í Ósló, og
Hermanns, íþróttafulltrúa Akur-
eyrar. Tryggvína Sigríður var
dóttir Sigurðar, b. í Sælu í Svarf-
aðardal, Bjömssonar, b. á Atla-
stöðum, Sigurðssonar. Móðir Sig-
urðar var Sigríður Jónasdóttir.
Móðir Tryggvínu Sigríðar var
Kristín Anna, dóttir Sigurðar
Jónssonar og Sigríöar Halldórs-
dóttur.
Ragnheiður er dóttir Stefáns, b.
á Krossi í Mjóafjarðarhreppi, síðar
verkamanns, Eiríkssonar, Árna-
sonar, Eiríkssonar. Móðir Eiríks
Árnasonar var Kristbjörg Jónsdótt-
ir. Móðir Stefáns var Ingibjörg,
dóttir Sigurðar, b. á Streitisstekk,
Torfasonar, og Sigríðar Stefáns-
dóttur.
Móðir Ragnheiðar var Margrét
Ketilsdóttir, Sigurðssonar, Sigurðs-
sonar. Móðir Ketils var Valgerður
Einarsdóttir. Móðir Margrétar var
Jónína, dóttir Jóns Einarssonar og
Þorlaugar, systur Katrínar, ömmu
Karls Einarssonar sýslumanns.
Þorlaug var dóttir Ófeigs, b. í Hafn-
arnesi, Þórðarsonar.
Fimmtugur
Gísli Rúnar Jonsson
leikari, leikstjóri, rithöfundur og leikritahöfundur
Gisli Rúnar Jónsson, leikari,
leikstjóri, rithöfundur og leikrita-
þýðandi, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gísli Rúnar fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann stundaði leik-
listarnám við Leiklistarskóla Æv-
ars Kvarans 1969-70, nám og leik-
listarstörf hjá LA 1970-71 undir
handleiðslu Amars Jónssonar og
Þórhildar Þorleifsdóttur, leiklistar-
nám við Leiklistarskóla leikhús-
anna 1974-75 og framhaldsnám við
The Drama Studio í Lundúnum
1980-81.
Gísli Rúnar kom fyrst fram opin-
berlega hjá LA 1970 og hóf feril sem
leikari og skemmtikraftur í sjón-
varpi 1972. Hann hefur síöan komið
fram í og leikstýrt fjölda útvarps- og
sjónvarpsþátta, þ.m.t. tæpir tveir
tugir Áramótaskaupa og skrifað,
framleitt og leikstýrt fjölda auglýs-
inga fyrir útvarp og sjónvarp.
Gísli Rúnar hefur verið leikari og
leikstjóri frá 1973 við leikritaupp-
færslur, skemmtidagskrár, revíur
og kabaretta, m.a. fyrir Þjóðleikhús-
ið, LR í Iðnó, Austurbæjarbíói og
Borgarleikhúsi, LA, Alþýðuleikhús-
ið, Revíuleikhúsið, Hitt leikhúsið,
Kaffileikhúsið, Hvundagsleikhúsið,
Útvarpsleikhúsið, Þjóðleikhúskjall-
arann, Hótel Sögu, Hótel ísland,
Broadway, Listahátíð o.fl. auk leik-
ferða um landsbyggðina með ýms-
um leikílokkum.
Gísli Rúnar hefur verið höfundur
og flytjandi allra handa skemmti- og
barnaefnis í lausu máli og bundnu,
á hljómplötum, frá 1973. Hann færði
upp leiksýningar og kenndi leiklist
í menntaskólum 1975-77.
Gísli Rúnar stofnaði, ásamt fleiri,
sunnandeild Alþýðuleikhússins
1978. Hann kom fýrst fram í kvik-
myndum 1980, stofnaði og rak
Gríniðjuna hf. (í félagi við Eddu
Björgvins, Júlíus Brjánsson og Þór-
hall Sigurðsson) er færði upp vin-
sælt sjónvarps- og útvarpsefni
1987-90, m.a. fyrir Bylgjuna, Stöð 2,
og leiksýningar í íslensku óperunni,
á Hótel Islandi og víðar.
Gísli Rúnar rak fyrirtækið Leik-
listarstúdíóið frá 1993 sem stóð fyrir
leiklistamámskeiðum og framleiddi
efni og færði upp fyrir leiksvið og
ljósvakamiðla. Hefur frá 1972 unnið
við ritstörf, einkum sem höfundur
skemmtiefnis af margvíslegu tagi, í
lausu máli og bundnu, gamanleik-
ritum, kabarettdagskrám og reví-
um, ýmist einn eða í félagi við aðra,
m.a. fyrir Þjóðleikhúsið, Leikfélag
Reykjavíkur, Leikfélag íslands, Bíó-
leikhúsið, útvarpsstöðvar o.fl., auk
efnis fyrir á annan tug Ára-
mótaskaupa í sjónvarpi.
Gísli Rúnar hefur unnið við leik-
ritaþýðingar af og til frá 1988.
Þýðingar hans eru m.a. söng-
leikimir Kysstu mig Kata; Hedwig-
& Reiða restin; Litla hryllingsbúðin,
og Honk, gamanleikirnir NÖRD;
Sjeikspír eins og hann leggur sig,
(Adam Long/Daniel Singer & Jess
Martin) og Allir á svið, hefur auk-
heldur gert íslenskar leikgerðir og
staðfærslur fjölda erlendra verka, þ.
á m. Sex í sveit og Gleðigjafana.
Hann hefur setið í ritnefnd tímarits-
ins Leikhúsmál frá stofnun 1995 og
af og til einn helsti skrifftnni sama
rits. Hefur einnig annast ritstörf og
þýðingar fyrir útvarp og sjónvarp.
Gísli Rúnar skrifaði síria fyrstu
bók 2001, Bó & Co, með íslenskum
texta, æviágrip Björgvins Halldórs-
sonar, og haustið 2002 kom út þýð-
ing hans á metsölubókinni Hvemig
á því stendur að KARLAR HLUSTA
EKKI og KONUR GETA EKKI
BAKKAÐ STÆÐI.
Gísli Rúnar stofnaöi, ásamt Qeiri
leikflokkinn Leik-
frumuna 1971,
sem færði upp
leiksýningar í
Lindarbæ, og
SÁL, Samtök
áhugafólks um
leiklistarnám,
1971 í þvi skyni að
knýja á yfirvöld
um stofnun ríkis-
leiklistarskóla.
Helstu áhuga-
mál Gísla Rúnars
era leiklistarsaga,
annálar og atviks-
sögur úr leikhúsi
og skemmtiiðnaði
en afþreying hans
er Hálfrar aldar
gamlar svart-hvít-
ar bíómyndir,
limruyrkingar,
skopmyndateikn-
ing og ukuleleá-
sláttur.
Gísli Rúnar fagnaði fyrir nokkra
30 ára leikafmæli sínu, ásamt Júl-
íusi Brjánssyni meö því að vekja til
lífsins forna örlagavalda í lífi sínu,
sjálfa Kafftbrúsakarlana, eftir ára-
tuga aðskilnað en þeir félagar miða
upphaf ferils síns við fæðingu þess-
ara kaffiþyrstu skrýtlumakara.
Gísli hélt nýlega upp á ftmmtugsaf-
mælið með því að þýða, staðfæra og
færa á svið í Þjóðleikhúsinu ein-
hvem vinsælasta gamanleik siðari
ára, Allir á svið, sem er þar er nú
sýndur við aðsókn og góðar viðtök-
ur.
Fjölskylda
Synir Gísla Rúnars og Eddu
Björgvinsdóttur eru Björgvin
Franz, f. 9.12. 1977, leikari í
Reykjavík, en kona hans er Berg-
lind Ólafsdóttir félagsliði og er
dóttir þeirra Edda Lovísa Björg-
vinsdóttir, f. 12.4. 2001; Róbert Oli-
ver, f. 9.4. 1993, nemi.
Uppeldisdætur Gísla, dætur
Eddu, eru Eva Dögg Sigurgeirs-
dóttir, f. 27.8. 1970, kaupmaður og
tískuráðunautur í Reykjavík, en
maður hennar er Guðmundur
Hrafn Pálsson, auglýsinga- og
markaðsráðgjafi, og eru börn
þeirra Fannar Daníel, f. 8.10. 1993,
og Sara ísabella, f. 28.2. 1999; Mar-
grét Ýrr Sigurgeirsdóttir, f. 26.2.
1973, hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík, en maður hennar er
Sigurður Rúnar Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri og eru dætur þeirra
Karen Eva, f. 23.3. 1995, og Rakel
Ýr, f. 19.11. 2001.
Albræður Gísla eru Baldur
Jónsson, f. 13.7. 1947, fram-
kvæmdastjóri; Bjöm, f. 29.1. 1959,
framkvæmdastj óri.
Hálfsystir Gisla, samfeðra: Kol-
brún Sæunn Jónsdóttir, f. 11.1.1943,
d. 22.8. 1975, húsmóðir.
Foreldrar Gísla era Jón Konráð
Björnsson, f. á Strjúgsstöðum í
Langadal í Austur-Húnavatnssýslu
3.12. 1918, fyrrv. kaupmaður, og
Guðrún Valgerður Gísladóttir, f.
2.12. 1923 á Bjarnastöðum í Blöndu-
hlíð í Skagafirði, skáld og húsmóðir.