Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Síða 25
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003
25
DV
Tilvera
Stulkan með Ijósa hárið
Kvikmyndasafn íslands stendur
fyrir sýningu myndarinnar La
Baie des anges á laugardaginn kl.
16 í sýningarsal safnsins í Bæjar-
bíói, Hafnarfirði. Myndin, sem er
frá árinu 1963, var nefnd Stúlkan
með ljósa hárið á íslensku. Hún
var vinsæl á sínum tíma, eins og
reyndar fleiri myndir leikstjórans
Jacques Demys og má þar helst
nefna myndirnar Stúlkan með
regnhlífarnar og Lolu. Aðaihlut-
verk eru í höndum þeirra Claude
Mann og Jeanne Moreau.
Jean (Claude Mann) er banka-
s.tarfsmaður sem lifir hefðbundnu
reglusömu lífi þar til vinur hans
kynnir hann fyrir freistingum
spilavítanna. Jean er heppinn og í
sigurvímu heldur hann til frönsku
Rivierunnar til að spila. Þar kynn-
ist hann Jackie (Jeanne Moreau),
ljóshærðri þokkadís sem er altek-
in af spilamennskunni, spilar
djarft, vinnur mikið en tapar líka
oft miklu. Ástarævintýri þeirra
einkennist af lífi fjárhættuspilar-
ans og í lokin verða þau að gera
upp við sig hvaða ástríða í lífi
þeirra skiptir þau mestu máli.
The Hunted
Tommy Lee Jones og Benecio del Toro eru andstæöingar
sem berast á banaspjót.
lífiö
Fundur um dyslexíu
Félagsfundur Vinafélags Blindra-
bókasafns Islands um dyslexíu verð-
ur haldinn kl. 20 að Hallveigarstöð-
um, Túngötu 14 (kjallara). Allir vel-
komnir.
Alþjóðlegur
barnaleikhúsdagur
Alþjóðlegi bamaleikhúsdagurinn
er í dag en með honum er vakin at-
hygli á því mikilvæga hlutverki
sem leikhúsið hefur að gegna í lífi
ungra áhorfenda og leikhúsfólks.
Listadagar barna- og
unglinga
Það eru listadagar barna og ung-
linga í Garðabæ fram á sunnudag.
Mikið um að vera í bænum alla dag-
ana. Kíkið inn á www.gardabaer.is
Moody Company á 11
Það er boðið upp á Moody
Company á Laugavegi 11 í kvöld
klukkan 22. Þeir Krummi og Franz
verða sannanlega í takt.
Lifandi tónlist á Barnum
Á Bamum, Laugavegi (áður Blús-
barinn), mætir Tender foot með
frumsamda tónlist.
Atli á Glaumbar
Atli skemmtanalögga spilar á
Glaumbar í kvöld.
Sjonni og Jói á
Hverfisbarnum
Sjonni og Jói skemmta á Hverfis-
barnum í kvöld.
Sváfnir á Café Catalínu
Sváfnir Sigurðarson spilar á Café
Catalínu í kvöld.
+Rokk á Grand Rokk
Hljómsveitimar I Adapt, Dys,
Changer, Albert og Kimono rokk á
Grand Rokk í kvöld klukkan 21, 500
kall inn.
Dauðinn ber á dyr
- í fjórum kvikmyndum sem frumsýndar veröa á morgun
Það er mikið úrval gæðakvikmynda
í boði þessa dagana og ailir ættu að
fínna eitthvað við sitt hæfi. Fjórar nýj-
ar kvikmyndir bætast við á morgun,
sem auka enn fjölbreytnina. Allt eru
þetta spennumyndir. Þrjár eru banda-
rískar og ein er ffönsk.
Solaris
Solaris er endurgerð Stevens Soder-
berghs á hinni frægu kvikmynd And-
reis Tarkovskis, sem gerð var fyrir
rúmum þijátíu árum. Myndin er af-
rakstur samstarfs Soderberghs og
George Clooney og er þetta þriðja
myndin sem þeir gera saman.
Solaris er fyrst og fremst geimsaga,
en einnig ástar- og spennusaga sem
gerist einhvem tímann í ffamtíðinni.
Clooney leikur dr. Chris Kelvin sem
er beðinn að rannsaka hóp vísinda-
manna í geimstöðinni Prometheus.
Hafa þeir shtið öllu sambandi við jörð-
ina. Kelvin tekur að sér verkefnið, að-
allega vegna þess að leiðangursstjór-
inn er vinur hans. Þegar hann kemur
í geimstöðina hefúr vinur hans framið
sjálfsmorð og vísindamennirnir eru
ekki mönnum sinnandi. Þeir geta þó
komið Kelvin í skilning um að ástand
þeirra má rekja til plánetunnar Solar-
is. Auk Clooneys leika í Solaris
Natasha McElhone, Jeremy Davies og
Viola Davis.
8 konur
8 konur eða 8 femmes, eins og hún
heitir á frummálinu, var vinsælasta
kvikmyndin í Frakklandi á síðasta
ári. Hún var auk þess tilnefnd til 12
Cesar-verðlauna. Það urðu raunar ör-
lög hennar að vera með flestar tilnefn-
ingar en fá síðan engin verðlaun. Pí-
anisti Romans Polanskis sá til þess að
fáir aðrir komust að.
Eins og nafnið bendir til fjallar
myndin um átta konur. Morgun einn
finnst iðnjöfúrinn Marcel stunginn til
bana. Morðið er ffamið í húsi sem er
einangrað vegna óveðurs. í húsinu
Solarls
George Clooney leikur geimfara sem veröur var viö aö eitthvaö
óskýranlegt er aö gerast.
Ledoyen, Ludivine Sagnier og Fir-
mine Richard.
The Hunted
William Friedkin er meðal þekkt-
ustu leikstjóra vestanhafs. Hann byrj-
aði ferilinn með þremur athyglisverð-
um kvikmyndum af ódýrari gerðinni,
The Birthday Party, The Night they
Raided Minsky’s og Boys in the Band.
Síðan komu stóru smellimir, The
French Connection og The Exorcist.
Þessar fimm kvikmyndir gerði hann á
fimm ára tímabili 1968-1973. Hefúr
Friedkin aldrei getað fylgt eftir þess-
ari glæsilegu byrjun.
í The Hunted, sem er nýjasta kvik-
mynd Friedkins, leikur Tommy Lee
Jones alríkisfulltrúann L.T. Bon-
ham. Nýjasta mál Bonhams er að
eltast við raðmorðingja sem geng-
ur undir nafninu Mannaveiðar-
inn. Hefur hann það fyrir sið að
veiða dádýraskyttur og ganga frá
þeim. Bonham nær morðingjan-
um sem sleppur síðan frá honum
og heldur inn í stórborgina þar sem
nóg er af fórnarlömbum. Mótleikari
Tommys Lees Jones er Benecio del
Final Destination 2
Ali Larter og A.J. Cook eru í hlutverk-
um tveggja stúlkna sem gera sér
grein fyrir því aö dauöinn steppir
engum sem hann hefur ætlaö sér.
eru konur sem allar gætu hafa myrt
Marcel. Þetta eru eiginkona hans,
Gaby, dætur hans, Suzon og Cather-
ine, tengdamóðir hans, Mamy, mág-
kona hans, Augustine, systir hans,
Pierette, kokkm-inn Chanel og þjón-
ustustúlkan Louise.
Leikkonurnar eru flestar meðal
vinsælustu leikkvenna Frakka. Þær
eru Danielle Darrieux, Catherine
Deneuve, Isabelle Huppert, Emanuelle
Béart, Fanny Ardant, Virginia
8 konur
Fanny Ardant leikur eina konuna og
var hún tilnefnd til frönsku Cesar-
verölaunanna fyrir leik sinn.
Toro sem í fyrra fékk óskarsverðlaun-
in fyrir leik sinn í Trafilc.
Fínal Destination 2
Final Destination 2 er óbeint fram-
hald vinsællar kvikmyndar um ungt
fólk sem lenti í flugslysi og hefði sam-
kvæmt öllum líkum átt aö deyja. Það
kom síðan í ljós að dauðinn sleppir
ekki hendi af þeim sem hann hefur
ætlað sér. Final Destination 2 gerist
nákvæmlega einu ári síðar. Ung
stúlka er um það bil að fara út af hrað-
braut þegar hún upplifir hryllilega
sýn um dauða og eyðileggingu. Hún
missir um stund stjórn á bílnum og
veldur slysi. Hún og fleiri lifa slysið af
og þykir það sæta furðu. Smátt og
smátt fara þau sem lifðu af slysið að
týna tölunni. Kimberley hefúr uppi á
Clear Rivers, þeirri einu sem lifði af
hörmungarnar fyrir einu ári, og sam-
an reyna þær að finna krók á móti
bragði.
Með aðalhlut-
verkin fara Ali
Larter, A.J.
Cook, Michael
Landers og
Tony Todd.
Leikstjóri er
David Richard
Ellis, fyrrum
áhættuleikari.
-HK
í gufubaðinu
Þegar Púntilla er viö skál elskar hann allt og alla.
Villtur í eöli sínu
- segir Theodór Júlíusson um Púntilla bónda
Leikritið Púntilla bóndi og
Matti vinnumaður er „alþýðugam-
anleikur með alvarlegum undir-
tóni“ eins og haft er eftir höfund-
inum, Bertolt Brecht. Það verður
frumsýnt á stóra sviði Borgarleik-
hússins í kvöld, í leikstjórn Guð-
jóns Pedersens, og þar tekst Theo-
dór Júlíusson á við eitt af sínum
stærstu hlutverkum um ævina,
Púntilla bónda - reyndar í annað
sinn. „Ég lék Púntilla með Leikfé-
lagi Akureyrar fyrir tuttugu og
fjórum árum og hef oft hugsað um
að gaman væri að fá tækifæri til
að leika hann aftur, sem eldri og
þroskaðri maður,“ segir hann.
Edrúköstin erfið
Leikritið gerist í Finnlandi og
er skrifað af Brecht árið 1940,
reyndar með finnskri konu, Hellu
Wuolijoki, en hjá henni dvaldi
hann sem landflótta maður. Það
fjallar um landeigandann Púntilla
sem á við stórt vandamál að
stríða. Þegar hann er drukkinn,
sem er ansi oft, er hann mannvin-
ur sem elskar lífið og allt og alla
en þegar rennur af honum og
hann fær sín „edrúköst" rekur
hann alla frá sér og neyðir dóttur
sína til að giftast hundleiðinlegum
og húmorslausum biðli.
í uppfærslu Borgarleikhússins
koma margir viö sögu, bæði leik-
arar og hljóðfæraleikarar. Bergur
Þór Ingólfsson fer með hlutverk
Matta bílstjóra og Nína Dögg Fil-
ippusdóttir leikur dóttur Púntilla.
Tónlistin er eftir finnska tónlistar-
manninn Matti Kallio, sem leikur
á harmóniku í sýningunni og Guð-
mimdur Ólafsson er höfundur
söngtexta.
Umkomulaus undir skelinni
Theodór er spurður hvernig
honum hafi samið við Púntilla
bónda á æfingaferlinu. „Við fyrsta
lestur virðist karlinn fremur ein-
föld manngerð. En við nánari
skoðun sést að hann er margbrot-
inn persónuleiki sem hægt er að
fara margar leiðir að við að
túlka," segir hann og heldur
áfram. „Þegar hann er drukkinn
er hann villtur í eðli sínu og
óhaminn. Allsgáður er hann harð-
stjóri en jafnframt umkomulaus
undir skel stórbokkans." Hann
segir þá Púntilla gerólíka að þessu
leyti. „Ég þyki fremur leiðinlegur
með víni en þokkalega góður
edrú.“ Hann undirstrikar að þrátt
fyrir farsakennt yfirborð verksins
sé undiraldan þung. „Þótt ærsl og
öfgar séu áberandi vona ég að sýn-
ingin skilji eftir spurningar hjá
fólki og það hafi um eitthvað að
hugsa þegar það gengur út.“
-Gun.