Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 Sport DV Annarri umferö meistaradeildarinnar auk í gærkvöld: úr keppni. Reuters - skaut Arsenal út úr meistaradeildinni meö ! Arsenal er úr leik í meistaradeild Evrópu eftir að liðið beið lægri Mut fyrir Valencia, 2-1, á Mestalla-leik- vanginum í Valencia í gærkvöld. Ajax náði jafntefli, 1-1, gegn Róm og það nægði liðinu til að komast áfram á kostnað Arsenal. Arsenal þurfti á jafntefli að halda til að vera öruggt áfram og tjaldaði öllum tiltækum mönnum þrátt fyrir að lykilmenn eins og Sol Campbell og Patrick Viera væru í besta falli tæpir fyrir leikinn. Valencia mætti til leiks með því hugarfari að sækja og uppskáru laun erfíðsins eftir rúmlega hálftíma leik þegar Norðmaðurinn tröllvaxni, John Carew, kom þeim yflr. Ástandið var ekki gott fyrir Arsenal því Valencia- liðið er þekkt fyrir að vera mjög sterkt vamarlega. Thierry Henry gaf því þó von í byrjun síðari hálfleiks þegar hann jafnaði metin en Carew skaut aftur upp kollinum átta mínút- um síðar og skoraði aftur - mark sem reyndist vera sigurmark leiksins og gulltrygging farseöils Valencia í átta liða úrslit keppninnar fjórða árið í röð. Leikmenn Arsenal sitja eftir með sárt ennið en geta þó sjálfum sér um kennt því liðið gerði þrjú jafntefli á heimavelli sínum og má segja að það sé ástæðan fyrir því að það komst ekki áfram. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var ósáttur við spila- mennsku Valencia eftir að liðið komst yfir, 2-1, og sagði að það hefði eyðilagt leikinn með óheiðarlegum leik. „Þegar þeir komust yfir, 2-1, þá var þetta ekki lengur knattspyrnuleikur því að þeir eyðilögðu hann. Þeir lögð- ust niður í völlinn við minnsta tilfelli og lágu þar í dágóða stund í hvert skipti. Það var ekkert flæði í leiknum og þegar svo er verður erfitt að spila góða knattspymu. Ég vildi gjarnan vita hversu mikið boltinn var í leik í seinni hálfleik - það hafa ekki verið margar minútur." „Við erum mjög vonsviknir. Við áttum allan fyrri háfleikinn en náðu ekki að nýta okkur það. Þeir áttu eitt skot á markið í fyrri hálfleik og við vorum 1-0 undir i hálfleik. Við gáfum kannski of mikið eftir þegar við vor- um búnir að jafna en áttum engu að síður skilið að fá meira út úr þessum leik. Þegar lið dettur út eru allir ábyrgir, knattpspyrnustjóri, leikmenn og þjálfarar - það er enginn undan- skilinn. Ég er hins vegar stoltur af mínum mönnum og veit að þeir munu Norski framherjinn John Carew fagnar hér öðru markí sinu fyrir Valencia gegn Arsenal í gærkvöld en mörkin hans tryggöu Val- encia sæfi í 8-liöa úrslitum meistaradeildarinnar en Arsenal sat eftir meö sárt enniö. Þetta var ekki fyrsta sinn sem Carew leikur Arsenal grátt því hann skoraði sigurmarkiö i leik liöanna í 8 liöa úrslitum keppninnar fyrir tveimur ár- um - mark sem geröi þaö aö verkum aö Arsenal datt yfirstíga þessi vonbrigði og klára keppnistímabilið með sóma.“ Jafntefliö nægði Roma átti möguleika að komast áfram svo framarlega sem liðið myndi vinna gegn Ajax og Arsenal myndi ná stigi eða stigmn gegn Valencia. Það gerðist þó ekki því leikurinn endaði með jafntefli, 1-1, og Rómverjar end- uðu í síðasta sæti riðilsins. Ajax fékk óskabyrjun i leiknum því Andy van der Mayde kom þeim yflr strax á 1. mínútu leiksins. Hinn ungi Antonio Cassano jafnaði metin á 23. minútu með sínu öðru marki í tveim- ur leikjum. Fabio Capello, þjálfari Roma, var ekki sáttur við úrslitin og sagði Ajax ekki eiga skilið að komast áfram. „Ajax hefur verið heppið í þessum riðli. Ekkert sem ég hef séð til liðsins segir mér aö það hafl átt að fara upp úr þessum riðli frekar heldur en við. Þeir eru með tvo góða leikmenn, [Zlat- an] Ibrahimovic og [Christian] Chivu en fyrir utan það er liðið ekkert sér- stakt,“ sagði Capello. Draumaferöin á enda Draumaferð Newcastle í meistara- deildinni tók enda í gærkvöld þegar liðið beið lægri Mut fyrir Barcelona, 2-0, á St. James Park. Newcastle spil- aði vel í leiknum og hefði að ósekju átt að fá meira út úr leiknum. Það var mun sterkara nánast allan leikinn en var refsað grimmilega fyrir varnar- mistök. Bobby Robson, knattspyrnustjóri Newcastle, horfði upp á meistara- deildardrauminn gufa upp í gærkvöld en lofaði að koma til baka með liðið á næsta ári og gera betur. „Við töpuðum 2-0 og fólk sem sá ekki leikinn mun örugglega halda að þetta hafl verið auðveldur leikur fyrir Barcelona. Svo var þó ekki því að við vorum betra liðið - við vorum meira með boltann, sköpuðum okkur fleiri færi en unnum samt ekki!“ sagði Rob- son. „Ég sagði við strákana eftir leikinn að þetta væri búið og gert, þeir yrðu að gleyma þessu því að það væri búið. Þetta er búinn að vera yndislegur tími - stórkostlegt ferðalag. Við borguðum farmiðann, hoppuðm upp í lestina og erum nú komnir heim. Nú eru átta leikir eftir í deildinni og þetta var það skemmtilegur tími að við munum berjast af lífs- og sálarkröftum til að komast þangað aftur,“ sagði Robson. Lokastaðan A-riðiU Úrslit B. Leverkusen-Inter Milan ... 0-2 0-1 Obafemi Martins (36.), 0-2 Berezoglu Emre (90.). Newcastle-Barcelona.......0-2 0-1 Patrick Kluivert (60.), 0-2 Thiago Motta (74.). Staðan Barcelona 6 5 10 12-4 16 Inter Milan 6 3 2 1 11-8 11 Newcastle 6 2 13 10-13 7 Leverkusen 6 0 0 6 5-15 0 B-riðiH Úrslit Valencia-Arsenal..........2-1 1-0 John Carew (34.), 1-1 Thierry Henry (49.), 2-1 John Carew (57). Roma-Ajax................1-1 0-1 Andy van der Meyde (1.), 1-1 Antonio Cassano (23.). Staðan Valencia 6 2 3 1 5-6 9 Ajax 6 1 5 0 6-5 8 Arsenal 6 14 16-5 7 Roma 6 1 2 3 7-8 5 Valencia, Ajax, Inter Milan, Real Madrid, Man. Utd, Juventus, AC Milan og Barcelona eru komin áfram 18-lióa úrslit. -ósk m veimur mörkum f * T .A * „Mörkin sem við fengum á okkur voru af ódýrari gerðinni. Varnar- mennimir mínir eru ungir og þessi leikur fer í reynslubankann þeirra. Það er ekki hægt að gera mistök þeg- ar leikmenn eins og Patrick Kluivert eru í hinu liðinu," sagði Robson að lokum. Raddy Antic, þjálfari Barcelona, horfði upp á lið sitt ganga af velli taplaust í íjórtánda sinn í meistaradeildinni í vetur og var ánægður með sína menn. „Þetta var góður leikur. Newcastle varð að vinna og reyndi það allan tim- ann. Við börðumst hins vegar vel og uppskárum sigur þó hann væri kannski ekki sanngjarn." Þegar blaðamenn spurðu Antic af hverju Barcelona gæti ekki spilað jafnvel í spænsku deildinni og liðið gerði i meistaradeildinni fauk í hann. „Það er alltaf sama sagan með ykk- ur. Þið spyrjið alltaf sömu spuming- arinnar og leyfið manni' aldrei að njóta sigursins." Inter áfram Inter MOan er komið i 8 liða úrslit- in eftir sigur á Bayer Leverkusen, 2-0. Það var átján ára gamall Nígeríumað- ur, Obafemi Martins, sem stal sen- unni í liði Inter MOan en hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu í fjarveru Christians Vieri og Alvaros Recoba. Hann nýtti það til fullnustu, skoraði fyrra mark liðsins og átti frábæran leik. Hector Cuper, þjálfari Inter MOan, var sáttur við sina menn og sagði þá hafa unnið sitt verk vel. „Við spOuðum vel sem lið i kvöld. LeOonenn minir voru agaðh: og þeir gerðu það sem þurfti. Leikurinn var alls ekki auðveldur og leikmenn Bayer Leverkusen gerðu okkur oft á tíðum erfitt fyrir,“ sagði Cuper. -ósk Andy van der Mayde. leikmaöur Ajax, fagnar hér marki sínu gegn Roma en jafnteftiö sem Ajax náöi a Olympíuleíkvangin- um í Rom tryggði liöinu sæti i 8 Itöa úrslitum keppninnar. , Reuters - r Carewkd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.