Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003
29
McLaren ógnar Ferrari
Kólumbíski ökuþórinn Juan Pablo
Montoya, sem ekur fyrir Williams-liðið
í Formúlu 1 kappakstrinum, hefur trú á
því að McLaren-liðið eigi eftir að ógna
Ferrari-liðinu verulega á þessu ári.
„McLaren var í vandræðum í fyrra
en það verður annað upp á teningnum í
ár. Ökumennimir eru reyndari og vélin
í bílnum hefur virkað vel. Þetta verður
ekki einokun eins og í fyrra.“ -ósk
Berti Vogts og aðstoðarmaöur
hans, Tommy Burns, voru ekki upp-
litsdjarfir eftir tapleikinn gegn írum í
síöasta mánuöi. Þá beiö liðið lægri
hlut fyrir sterku irsku liði, 2-0, á
Hampden Park og var Vogts ekki
sáttur við frammistöðu sinna
manna í leiknum. Hann sagði á
blaðamannafundi, þegar hann
tilkynnti hópinn í gær að leikmenn
hans yröu að finna aftur andann og
baráttuna sem liðið sýndi gegn
íslendingum í Reykjavík ef það
ætlaði sér að eiga möguleika þegar
Skotar taka á móti íslendingum 29.
mars næstkomandi í leik liðanna á
Hampden Park í fimmta riðli und-
ankeppni EM. Reuters
KARLAR 11 ^
Undanúpslitin hefjast á
Undanúrslit úrslitakeppninnar í
Intersportdeildinni heijast laugar-
daginn í Grindavík þegar Grindavík
tekur á móti Tindastóli kl. 16.
Á sunnudaginn sækja síðan
Njarðvíkingar Keflvikinga heim og
hefst sá leikur kl. 19.15.
Liðin þurfa að vinna þrjá leiki i
einvíginu til að komast í úrslitaleik-
ina og eiga Grindavíkingar og Kefl-
víkingar heimaleikjaréttinn.
Undanúrslit úrslitakeppninnar
verða síðan með eftirfarandi hætti í
framhaldinu:
Leikur 2:
Tmdastóll-Grindavík þri. 25. mars kl. 19.15
Njarðvík-Keflavík .. mið. 26. mars kl. 19.15
Leikur 3:
Grindavík-Tindastóll flm. 27. mars kl. 19.15
Keflavík-Njarðvík ... fós. 28. mars kl. 19.15
Ef með þarf:
Leikur 4:
Keflavík-Njarðvík .... sun. 30. mars kl. 16
Tindastóll-Grindavík . sun. 30. mars kl. 16
Leikur 5:
Grindavík-Tindastóll .. þri. 1. apr. kl. 19.15
Keflavík-Njarðvík .... þri. 1. apr. kl. 19.15
-ósk
Styttist í leik Skota og íslendinga í Glasgow:
Vogts velup
skoska hópinn
- sex nýir leikmenn frá fyrri leiknum gegn íslandi
Berti Vogts, landsliðsþjálfari
Skota, hefur valið 18 manna hóp fyr-
ir landsleikina gegn Skotum og Lit-
háum í undankeppni EM.
Sex nýir leikmenn eru í þessum
hópi frá því í fyrri leik íslands og
Skotlands á Laugardalsvelli 12. októ-
ber síðastliðinn en aðeins einn nýliði
er í hópnum, varnarmaðurinn Andy
Webster frá Hearts.
Vogts sagði, þegar hann tilkynnti
hópinn, að fimm til sex leikmenn til
viöbótar gætu bæst í hann um helg-
ina.
Don Huthison, sem leikur með
West Ham, er kannski helsta viðbót-
in við skoska liðið frá fyrri leiknum.
Hutchison, sem var meiddur þá, hef-
ur verið lykilmaður skoska liðsins
undanfarin ár og var eini leikmaður
liðsins sem gat borið höfuðið sæmi-
lega hátt eftir tapið gegn írum í síð-
asta mánuði. Aðrir nýir leikmenn
eru framherji Wolves, Kenny Miller,
en hann hefur skorað nítján mörk
fyrir Úlfana í 1. deildinni í vetur,
framherji Leicester, Paul Dickov,
sem leikið hefur vel í vetur, nýliðinn
Andy Webster, sem lék stórvel með
framtíðarliði Skotlands gegn Tyrkj-
um í síðasta mánuði, miðjumaðurinn
Colin Cameron frá Wolves og mark-
vörðurinn Neil Alexander frá Car-
dfiff.
íslendingar munu ekki sakna eins
leikmanns Skota sem er ekki í hópn-
um en þaö er bakvörðurinn Marucie
Ross sem lagði upp seinna mark
Skota í fyrri leiknum og átti margar
baneitraðar fyrirgjafir.
Hópurinn er skipaður eftirtöldum
leikmönnum:
Markverðir: Neil Alexander (Car-
diíf), Rob Douglas (Celtic) og Paul
Gallacher (Dundee Utd).
Varnarmenn: Gary Caldwell
(Newcastle), Christian Dailly (West
Ham), Steve Pressley (Hearts), Andý
Webster (Hearts) og Lee Wilkie
(Dundee).
Miðjumenn: Colin Cameron
(Wloves), Scott Gemmill (Everton),
Paul Devlin (Birmingham), Barry
Ferguson (Rangers), Paul Lambert
(Celtic) og Gary Naysmith (Everton).
Framherjar: Stephen Crawford
(Dumfermline), Paul Dickov (Leicest-
er), Don Hutchison (West Ham) og
Kenny Miller (Wolves).
Rainer Bonhof, þjálfari U 21 árs
landsliðs Skota, hefur einnig valið
sinn hóp og er hann skipaður eftir-
töldum leikmönnum: Craig Gordon,
Allan McGregor, Derek Soutar,
Stpehen Crainey, Chris Doig,
Andrew Dowie, Steven Hammell,
John Kennedy, Peter Canero, Stuart
Duff, Stephen Hughes, Brian Kerr,
Rick Montgomery, Ian Murray, Dav-
id Noble, Stephen Pearson, Michael
Stewart, Gareth Williams, Kevin
Kyle, Simon Lynch, James McFa-
dden, Tom McManus, Shaun Malon-
ey og Barry O’Connor. -ósk
Þpíp „klassískir" í körfunni
- Teitur Örlygsson, Guöjón Skúlason og Kristinn Friðriksson geröu gæfumuninn fyrir sín lið í undanúrslitum Intersportdeildarinnar
Átta liða úrslitum IntersportdeUdarinnar lauk
í fyrrakvöld og þá kom í ljós að Grindavík, Kefla-
vík, Njarðvik og TindastóU tryggðu sér sæti í und-
anúrslitunum. Hjá þremur síðamefhdu liðunum
Teitur ÖPlygsson í liði Njapðvíkup
Deildin í vetur 8 liöa úrslit
Leikir 16 2
Mínútur í leik 33,0 36,0
Stig f leik 14,4 25,5
3ja stiga körfur 45 10
3ja stiga körfur í leik 2,8 5,0
3ja stiga skotnýting 33,8% 52,6%
Fráköst í leik 4,8 5,0
Stoðsendingar í leik 4,8 4,5
munaði mUdu um að þrír gamlir reynsluboltar
stigu upp og áttu stóran þátt í að sín lið kæmust
áfram. Þetta eru þeir Teitur Örlygsson hjá Njarð-
vík, Guðjón Skúlason, fyrirliði Keflavíkur, og
Guðjón Skúlason í liði Keflavíkup
Deildin í vetur 8 liöa úrslit
Leikir 20 3
Mínútur í leik 18,9 22,3
Stig í leik 12,6 18,0
3ja stiga körfur 61 15
3ja stiga körfur í leik 3,1 5,0
3ja stiga skotnýting 40,9% 57,7%
Fráköst í leik 1,3 1,0
Stoðsendingar I leik 2,2 3,3
Kristinn Friðriksson, spUandi þjálfari Tmdastóls.
Hér fyrir neðan má sjá samanburð á tölfræði
þeirra í deUdinni og svo í fyrstu umferð úrslita-
keppninnar og þar sést þetta vel. -ÓÓJ
Kpistinn Fpiðpiksson í liði Tindastóls
Deildin í vetur 8 liða úrslit
Leikir 22 3
Mfnútur í leik 24,0 31,7
Stig f leik 13,7 25,3
3ja stiga körfur 53 12
3ja stiga körfur í leik 2,4 4,0
3ja stiga skotnýting 31,7% 35,3%
Fráköst f leik 3,4 3,3
Stoðsendingar f leik 2,2 3,3
KÖRFUBOLTÍ 7 /"
ffl i a ,£ f ijm
Úrslit í nótt:
Orlando-Miami.............109-93
McGrady 36 (9 stoös.), Giricek 18,
Garrity 18, Armstrong 10 - Butler 20.
Grant 17, Stepania 12, Allen 12.
Toronto-Atlanta............87-86
Carter 27, Lenard 13 - Terry 23,
Abdur-Rahim 22, Robinson 18.
Indiana-Boston............102-72
Artest 18, J. O’Neal 18 (12 frák.), R.
MUler 13, Harrington 11 - Walker 18,
Pierce 14, Battie 10.
New Jersey-Milwaukee .. 85-104
Martin 28 (14 frák.), Kidd 17 (9 frák.,
9 stoös.), Jefferson 14 (12 frák.) -
Payton 23, Cassell 22, Redd 18, Mason
17 (10 frák.).
New Orleans-New York .. 101-96
Mashbum 25 (9 frák., 8 stoðs.), Davis
23, Magloire 17 (8 frák.) - Houston 29,
Eisley 15 (7 stoðs.), Harrington 15
Memphis-Cleveland .... 128-101
Gasol 28 (7 frák.), Williams 16 (16
stoðs.), Miller 16 - Boozer 27 (12
frák.), Miles 18, Jones 15 (8 frák.)
Phoenix-Utah...............86-99
Marion 22, Stoudemire 17 (12 frák.),
Johnson 16 - Malone 34 (8 frák.),
Harpring 24, Ostertag 13 (14 frák.)
Portland-Houston...........94-83
Anderson 21 (7 stoðs.), Randolph 14,
WeUs 13, Stoudamíre 13 (8 stoðs.) -
Francis 17, Taylor 14, Griffin 13
LA Clippers-Denver........91-78
Zhi Zhi 21, Odom 13, Jaric 13 -
Howard 24 (8 frák.), White 10,
WUliams 9 (9 stoðs.)
Golden-State-Seattle......105-99
Jamison 28 (12 frák.), Richardson 25
(10 frák.), Sura 15 (8 frák., 9 stoðs.) -
Barry 23 (9 frák.), Allen 23, Lewis 18.