Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003
Fréttir I>-V
Gísii Guöjónsson fékk ungan Norömann sýknaöan af moröákæru 1998:
Raunverulegur
morðingi er fundnn
25 ára Norðmaður sem sakaður var
um morð á ungri frænku sinni í maí
1995 er ótvírætt talinn saklaus í dag
eftir að nýjustu tækni hefur verið
beitt við DNA-rannsókn á blóðugu
hári sem fannst í lófa Birgittu Tengs
sem fannst myrt. Rannsóknin staðfest-
ir að hárið er ekki af frænda myrtu
stúlkunnar. Gísli Guðjónsson rétt-
arsáifræðingur kvað á sínum tíma
upp þann úrskurð að ungur maður,
sem var sakfelldur og hafði gefíð
þvingaða játningu á verknaðinum,
væri saklaus. Lögreglan, dómarar og
geðlæknar í Noregi voru á öðru máli,
en kviðdómur trúði rannsóknum og
áliti Gísla og sýknaði unga manninn
þrátt fyrir þvingaða
játningu hans. Hann
hefúr síðan búið í út-
löndum enda var
honum gert gjörsam-
lega óvært að búa í
heimalandi sínu.
„Ég sagði eftir
rannsóknir mínar að
maðurinn væri sak-
laus,“ sagði Gísli
Guðjónsson í morgun. „Dómaramir
trúðu mér ekki þá, en gera það núna
þegar húið er að fmna mann sem pass-
ar nákvæmlega við austurrísku DNA-
greininguna sem nú liggur fyrir,“
sagði Gísli. Hann segir að ótrúverðug
son rettarsal-
fræðlngur.
játning hafi fengist
eftir 180 klukku-
stunda yfirhevrslur
á sínum tíma.
Eftir að ungi mað-
urinn var sýknaður
var farið í einkamál
gegn honum og
skaðabóta krafist.
Var hann dæmdur
til að greiða ættingj-
um 100 þúsund norskar krónur, um
eina milljón íslenskar krónur. Málið
fór fyrir Mannréttindadómstólinn í
Strasbourg sem sneri málinu við og
dæmdi manninum 1,5 milljónir ís-
lenskra króna í skaðabætur.
Birgitte Tengs,
hin myrta.
Norska lögreglan veit hver maður-
inn er sem nú er grunaður um verkn-
aðinn og er handtöku að vænta. Lög-
reglan hafði strax 1998 ábendingar um
að sá maður væri hugsanlegur ódæð-
ismaður. Ég er auðvitað hæstánægð-
ur með að mitt mat hefur reynst rétt.
Þessi lögreglurannsókn var aldrei trú-
verðug og yfirheyrslur sömuleiðis.
Fæstir Norðmenn trúðu því reyndar
að lögregluyfirvöld gætu sakfellt sak-
lausa menn og knúið fram játningu.
En það gerðist í þessu tilviki, menn
geta bitið svona nokkuö í sig,“ sagði
Gísli í morgun. „Ég tel að í framhald-
inu muni þetta mál hafa víðtæk áhrif
á réttarkerfið í Noregi." -JBP
Sviptup ökurétti í
fjögur ár vegna
ölvunaraksturs
Héraðsdómur Norðurlands
eystra hefur dæmt rúmlega tvítug-
an mann til að greiða tvö hundruð
þúsund króna sekt til ríkissjóðs og
svipt hann ökurétti í fjögur ár
vegna umferðarlagabrots. Maður-
inn hafði ekið bíl sínum undir
áhrifum áfengis í gegnum Akur-
eyri á ógnarhraða og þurfti lög-
reglan að hætta eftirför vegna
slysahættu. Maðurinn var hand-
tekinn skömmu síðar við heimili
sitt en hann mældist með 2,08 pró-
mill af alkóhóli í þvaginu.
Með vísan til alvarleika hátt-
semi mannsins þótti rétt að svipta
hann ökurétti í fjögur ár. -EKÁ
Klassíkin í rokki og blús
Ein sögufrægasta hijómsveit poppsög-
unnar The Yardbirds héldu tónleika í
gærkvöldi á Broadway. Voru þetta einu
tónleikar hljómsveitarinnar í stuttri heim-
sókn til landsins. Skapaðist góö stemn-
ing á tónleikunum, enda hljómsveitin
sjaldan veriö betri og fylltust gamlir aö-
dáendur sem og nýir eldmóöi. Á mynd-
inni er bassaleikari sveitarinnar og aöal-
söngvari, John Idan, aö þenja raddbönd-
in. Honum á vinstri hönd er gítarleikar-
inn Gypie Mayo.
DV-MYND HARI
Til hamingju, Ingibjörg
Nýtt hótel í hjarta Reykjavíkur, 101 hotel, var formlega opnaö í gær. Hóteliö er í gamla Alþýöuleikhúsinu viö Hverfisgötu.
Þaö er Ingibjörg Pálmadóttir sem er eigandi hótelsins og bauð hún boösgesti velkomna í opnunarveislu í glæsilegum salar-
kynnum hóteisins. Var margt um manninn og skemmtu gestir sér vel. Á myndinni er Þórólfur Árnason borgarstjóri aö segja
eitthvaö skemmtiiegt og eigandinn Ingibjörg Pálmadóttir, sem er honum á vinstri hönd, hlær innilega.
Fyrirtæki í Reykjavík auglýsir kynlífsþjónustu:
Dýflissa til leigu, með eða án
„Dýflissa tO leigu, með eða án
Mistress. Mistress Cat tekur einka-
tíma.“
Svo segir í auglýsingu á Netinu um
fyrirtæki í Reykjavík sem sérhæfir sig
í tdtekinni tegund kynlífsþjónustu. Að
því er best er vitað er þetta fyrsta fyr-
irtækið sem sett er á stofn hér á landi
td að veita þjónustu af þessu tagi.
DV hefúr áður fjallað um tvær
nuddstofur í Reykjavík sem veita svo-
kaUað nakið nudd, sé þess óskað, gegn
greiöslu. Þetta þriðja fyrirtæki birtir
verðskrá á heimasíðu sinni, eins og
Stuttar fréttir
nuddstofúmar. Þar kemur fram að
verð fyrir leigu dýflissu getur rokkað
frá 15 þúsund krónum upp í 40 þúsund
fyrir klukkutímann eftir því hvað
mikið er í lagt. Dvelji viðskiptavinur-
inn einn í dýflissunni borgar hann 15
þúsund. Sé hann með tvær dómínur,
eða drottningar, þarf hann að borga 40
þúsund á klukkutímann.
Fram kemur að dýflissan er tO
leigu frá klukkan 19-23 virka daga, en
um helgar eftir samkomulagi.
Það sem þama fer fram, aö því er
segir á heimasíðunni, era „niðurlæg-
ingar, bindingar, flengingar og annað
sem flokkast undir að „gera góðan
þræl, ambátt eða þjón“ úr viðskipta-
vininum. Jafnframt kemur fram að
þjónustan sem veitt er byggist á hlut-
verkjaleikjum. Á heimasíðunni era
veittar frekari upplýsingar um hvað
um sé að ræða og hvaða þjónusta sé
seld á staðnum.
í helgarblaði DV á morgun verður
fiadað ítarlega um þá kynlífstengdu
þjónustu sem verið hefúr að ryðja sér
tO rúms hér á landi á undanfórnum
árum og mánuðum. -JSS
Strið frestar flugi
Deyfð á bandarískum ferðamark-
aði, sem rakin er tO Íraksstríðsins,
veldur að Flugleiðir frestuðu aö hefia
New York-flug um þrjár vikur, eða
fram tO 7. aprO. Bandaríkjamenn era
hræddari við flug en Evrópubúar,
segir í Mbl.
Bíóverð í skoðun
Norðurljós, sem reka Smárabíó og
Regnbogann, skoða möguleikana á því
að lækka verð bíómiðans. Sambíóin
og Háskólabíó hafa þegar lækkað
verðið um 14% eða í 750 kr. - og er það
rakið tO hagstæðrar gengisþróunar.
Vísitalan hækkar
Stofnvísitala ýsu hækkaði um 70%
skv. stofnmælingu Hafró í nýafstöðnu
togararalli. Þá
hækkar vísitala
karfa og þorsks en
ekki nándar nærri
jafn mikið og ýsunn-
ar. Sjórinn við land-
ið er aldrei hlýrri, segir Mbl.
Skattar hafa aukist
AOs 76% landsmanna era á þeirri
skoðun að skattar og þjónustugjöld
þeirra hafi aukist, skv. nýrri könnun
Fréttablaðsins. Sjálfstæðismenn eru
síst á þessari skoðun, helmingur
þeirra segist ekki borga hærri skatta
en áður var.
Krókakvóti hækkar
Verð á kvóta í krókaaflakerfinu er í
sögulegum hæðum og fer kflóiö á aOt
að 940 kr. Verðhækkunin er um 65% á
einu ári. Fram kemur í Mbl. að bank-
ar hafi verið duglegir að lána peninga
tO kvótakaupa sem spenni upp verðið.
Leikskólar í lamasessi
Starfsmenn fiögurra einkarekinna
leikskóla í Reykjavík hafa leitað að-
stoðar Eflingar - stéttarfélags þar sem
Ofeyrisgreiðslur og önnur launatengd
gjöld hafa ekki borist mánuðum sam-
an. RÚV greindi frá.
Kerfið lekur
Trúnaðarapplýsingar mígleka úr
tölvukerfum sýslumannsembætta
landsins, að því er fram kemur í nýrri
skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hvatt er
tfl þess að öryggi í aðgangi að kerfún-
um verði eflt og tryggt. -sbs
DV-MYND E.ÓL.
Anægja yfir nýju blaöi
Njáll Gunnlaugsson og Geir A. Guö-
steinsson, umsjónarmenn DV-bíla,
skoöa frumútgáfu hins nýja blaös
ásamt Ragnheiði Gústafsdóttur á
auglýsingadeild DV.
Nýtt bílablað DV:
Fjöibreytt um-
fjöllun um allt
sem hreyfist
Nýtt bílablað DV kemur út í dag.
Blaðið mun fylgja helgarblaði DV á
morgun, auk þess sem því verður
drefl't sérstaklega á fiölda staða, tfl
dæmis bOasölur og bensínstöðvar.
NjáO Gunnlaugsson og Geir A.
Guðsteinsson eru umsjónarmenn
hins nýja blaðs. NjáO segir fiöl-
breytnina verða helstu sérstöðu
blaösins
„Ætlunin er að fiaOa meira um
mótorsport sem DV hefur reyndar
sinnt mjög vel í DV-Sport. Þá er
reynsluakstur nýrra bfla stór hluti
af umfiöOuninni en hvergi annars
staðar hefur verið meiri umfiöOun
af því tagi en í DV. Við munum
leggja áherslu á innlendar og er-
lendar fréttir og einnig verður um-
fiöOun um notaða bOa og fleira
áhugavert. Við vfljum nálgast
meira áhugasvið hins almenna les-
anda sem hefur vfljað gleymast í
umfjöOun um bOa hér á landi,“ seg-
ir NjáO.
BOablaðið verður reglulega 24
síður og stærra þegar svo ber und-
ir. Sérstök aukablöð DV um bOa og
mótorsport verða gefin út áfram,
eða eins og tflefni þykir tfl. -hlh
SkilorðsbundiO
fangelsi fyrir
líkamsárás
Rúmlega tvítugur pfltur á Akur-
eyri hefur verið dæmdur í þriggja
mánaða skflorðsbundið fangelsi fyr-
ir líkamsárás en hann haföi slegið
annan mann í andlitiö á SjaOanum
með þeim afleiðingum að hann
kjálkabrotnaði og fiórar framtenn-
ur í efri gómi losnuðu. Ákærði ját-
aði að hafa slegið manninn í andlit-
ið á veitingastaðnum en andmælti
því aö maðurinn hefði hlotið um-
rædda áverka af hans völdum.
Ekki var faOist á frásögn hins
ákærða um að höggið hefði verið
viðbrögð við magahöggi sem hann
hefði oröiö fyrir af háOú mannsins
og var hann, auk fangelsisrefsing-
arinnar, dæmdur tfl að greiða
manninum hundrað og þrjátíu þús-
und krónur í skaðabætur. -EKÁ
IDV
helgarblað
I Kynlífsiönaður
1 á íslandi
I helgarblaði DV
I verður fiaOað ítarlega
I um kynófsiðnað, bæði
svokaOaðar nuddstof-
____________I ur, sem verið hafa að
ryðja sér hér tfl rúms, svo og fyrir-
tæki sem býður upp á dýflissu, með
eða án drottningar eða dómínu, bind-
ingar, flengingar og hlutverkaleiki. Þá
er ítarlegt viðtal við Geir Guðmunds-
son, formann BDSM-félagsins hér á
landi. BDSM útleggst sem bindi-,
drottnunar-, sadómasókistaleikir og
munalosti. í helgarblaðinu er rakin
saga vændis á íslandi. Þá er ítarlegt
viðtal við Jón A. Baldvinsson, nýkjör-
inn vígslubiskup og fiaOað um Mich-
ael Moore uppreisnarmann.