Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003
Fréttir I>V
Davíö Oddsson boöar stórfelldar skattalækkanir á landsfundi:
Tekjuskattun lækki um 4%
og matarskattur um helming
Davíð Oddsson boðaði umfangs-
miklar skattalækkanir, einkum á
tekjuskatti og virðisaukaskatti á mat-
væli, við setningu landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins í gær. Gert er ráð fyr-
ir að þær kosti ríflega tuttugu millj-
arða króna en að þar af fáist um
fimm milljarðar til baka vegna auk-
inna umsvifa.
„Við viljum lækka tekjuskatt um
4% á kjörtímabilinu. Við viljum af-
nema eignarskatt algerlega. Við vilj-
um lækka um helming viröisauka-
skatt á matvæli, bækur, húshitun,
raímagnskostnaö og öðru sem til-
heyrir lægra virðisaukaskattsþrep-
inu. Við viljum hækka bamabætur
um tvö þúsund milljónir króna. Við
viljum helminga öll skattþrep erfða-
fjárskatts þannig að almennt þrep
verði aöeins 5% og að fyrstu tvær
milljónimar verði erfðaskattslausar.
Og við viljum auka skattfrelsi vegna
viðbótarframlaga í lífeyrisspamað,"
sagöi Davíð í setningarræðu sinni.
Óvenjuleg loforð
Davíð sagöi að sjálfstæðismenn
hefðu hingað til ekki lofað beinum
skattalækkunum fyrir kosningar en
hefðu lækkað skattana samt. „Það
þýðir að hér er um bein loforð okkar
að ræða, sem við efnum fáum við til
þess styrk í þetta sinn,“ sagði Davíð.
„Og það vita allir sem fylgst hafa með
verkum okkar að því má treysta. Við
erum nefnilega ekki aðeins umræðu-
stjómmálamenn heldur fyrst og síð-
ast athafnastjómmálamenn og á því
er reginmunur."
Davíð sagði að það kæmi ekki af
sjálfu sér að geta nú með trúverðug-
um og traustvekjandi hætti heitið því
að gera hvort tveggja í senn, að hefja
þriöja áfanga skattalækkanaferilsins
og styrkja um leið stöðu aldraðra, ör-
yrkja og þeirra sem treystu á góða
„Lag til að lækka skatta svo um munar“
Dav/ð Oddsson sagöi aö svo heföi veríö búiö um hnútana í landinu aö tryggja mætti
samfelldan hagvöxt um árabll værí rétt á málum haldiö. Þessum árangrí vildi Sjálfstæö-
isflokkurínn skila beint til fólksins í landinu 'meö ríflegum skattalækkunum.
heilbrigðisþjónustu og félagslega vel-
ferð. Þannig hefði verið haldið á rík-
isfjármálum á undanfómum árum,
að ríkissjóður væri nú burðugri en
hann hefði lengi verið og það þótt
fimmtiu milljarðar króna hefðu verið
settir til hliðar til að stoppa upp í líf-
eyriskerfi sem ríkið bæri ábyrgð á en
hefði verið látið reka á reiðanum í
áratugi.
Davíð sagði að það væri hins veg-
ar óþekkt svo að hann vissi til að
vinstri stjóm lækkaði skatta. Hitt
hefði aldrei bmgðist, að vinstri stjóm
hefði á augabragði breytt kjörseðlum
í skattseðla.
Svarar gagnrýni
Davíð svaraði gagnrýni um að rík-
isstjómin hefði hækkað skatta og
velti fyrir sér hvort vinstriflokkamir
gengju götuna á enda og segðu næst
aö sífelldar skattahækkanir R-listans
í Reykjavík hefðu verið dulbúnar
skattalækkanir eftir allt saman. Þá
minnti hann á að Össur Skarphéðins-
son, „einn af aðaltalsmönnum Sam-
fýlkingarinnar," hefði á sínum tíma
gagnrýnt ríkisstjómina fyrir skatta-
lækkanir en segði nú að það væri
þjóðsaga að skattar hefðu verið lækk-
aðir. Hugsanlegt væri að þótt Össur
tryði ekki sér og fjármálaráðherra þá
tryði hann sjálfum sér, „sem sýnir þá
að hann er maður sem fylgir ekki
straumnum".
Davíð gagnrýndi harkalega hug-
myndir um fymingarleið í sjávarút-
vegi. Oftast hefði heyrst að ríkiö ætti
þannig að taka tfl sín tíu prósent á
ári af kvótanum. Ef reynt yrði að
framkvæma þetta myndi veðhæfni
sjávarútvegsins hrynja þegar í upp-
hafi vegna þeirrar óvissu sem hefði
skapast. „Slíkar hugmyndir geta ekki
flokkast undir annað en að vera
hreint tilræði við landsbyggðina,“
sagði Davíð.
Davíð vék einnig að stríöinu í írak
og sagði að þótt því væri ekki lokið
væm úrslit þess ráðin: „Dagar Sadd-
ams era taldir. Eftir þaö verður frið-
vænlegra í heiminum og öryggi vex í
þessum heimshluta. Þá geta menn
vonandi snúiö sér af alvöra að illvíg-
um og erfiðum deflum ísraels og
Palestínumanna."
Ekki í þakkarskyni
Davíð taldi upp ýmsan árangur
undanfarinna ára: hagvöxt, kaup-
máttaraukningu, skattalækkanir,
samninga við samtök aldraðra og ör-
yrkja, frið á vinnumarkaði, lága verð-
bólgu, aukin framlög tfl heflbrigðis-
mála og fleira, en sagði að Sjálfstæð-
isflokkurinn væri samt ekki í þeim
erindum að biðja fólk að kjósa sig í
þakkarskyni, enda liti flokkurinn
fyrst og síðast á þennan árangur sem
þjóðarárangur.
Á hinn bóginn liti flokkurinn til
framtíðar og segði að nú væri lag til
að lækka skatta svo um munaði;
treysta nýja sókn fólks og fyrirtækja;
tryggja áfram góða afkomu ríkis-
sjóðs; styrkja stöðu eldri borgara;
treysta öflugt atvinnustig; efla
menntunarstigið; efla orðspor íslands
sem eins umhverfisvænsta þjóðfélags
í veröldinni; koma í veg fyrir að
ábyrgðarlaus öfl græfu undan megin-
stofnum íslensks atvinnulifs; auka
enn hlut einstaklinganna á kostnað
hins opinbera; og fara úr sjöunda
sæti á lista Sameinuðu þjóöanna yfir
þau lönd þar sem eftirsóknarverðast
er að búa í toppsætin.
„Við erum að segja við þá sem
hlusta og ætla að láta málefnin ráða
afstöðu sinni í vor að kostimir séu
klárir og því ætti valiö að vera auð-
veldara en stundum áður,“ sagði
Davíö. -ÓTG
iampionsh^,
Lítill Pizza
með 2 álegas-
tegundum frá
Domino’s pizza
fylgir með 500
fyrstu leikjunum
iiiú/ijiiií J
11-J il íijjiji
CHAMPIONSHIP MANAGGR
DVJVIYND GVA
Hrlkaleg aðkoma
/ forgrunni sjást fólksbílarnir tveir en í fjarska sér aftan á smárútu sem einnig lenti í árekstrinum, en annar
fólksbíllinn lenti á framhorni hans meö hræöilegum afleiöingum eins og fréttin aö neöan ber meö sér.
Umferðarslys á Reykjanesbraut snemma í morgun
Tveir létust í
árekstri þriggja bíla
Tveir létust í hörðum árekstri
sem varð á Strandarheiði á
Reykjanesbraut um klukkan
hálf sjö í morgun. Málsatvik eru
í stuttu máli þau að að fólksbill
á leið til Reykjavíkur lenti á
vinstra framhomi lítils rútubíls
og síðan á fólksbíl sem á eftir
kom. ökumaður var einn í
annarri fólksbifreiðinni en þrír í
hinni. Fólkið í rútunni mun hafa
sloppið með minni háttar
meiðsl, en þar var á ferðinni
áhöfn Flugleiðavélar sem var aö
koma heim eftir utanfor.
Þegar DV fór í prentun í morg-
tm var ekki vitað um líðan far-
þeganna úr annarri fólksbifreið-
inni - og málsatvik voru enn
ekki að fullu skýrð. Lögreglu-
menn voru enn við störf á vett-
vangi á tíunda tímanum. Vegna
slyssins var Reykjanesbraut lok-
uð milli Vogaafleggjara og Kúa-
gerðis og var umferð beint um
Vatnsleysustrandarveg.
-sbs